Morgunblaðið - 10.02.1985, Síða 36

Morgunblaðið - 10.02.1985, Síða 36
36 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. FEBRÚAR 1985 félk í fréttum SALVÖR NORDAL NÝR FRAMKVÆMDA- STJÓRI LISTAHÁTÍÐAR: „Stefna að draga úr umfangi hátíðarinnar“ Hún er aðeins 22 ára, stundar nám í heimspeki við Háskól- ann, var um skeið blm. Morgun- blaðsins og heitir Salvör Nordal. Hún hefur nýlega tekið við starfi framkvæmdastjóra Listahátíðar, en það var eitt af fyrstu verkum nýrrar framkvæmdastjórnar Listahátíðar að ráða hana og sýn- ir e.t.v. vel að hér er á ferðinni fólk sem þorir að takast á við nýj- ungar og á vonandi eftir að sýna það í verki þegar val á listafólki er annars vegar. Við höfðum sam- band við Salvöru og spurðum í hverju starf framkvæmdastjórans væri fólgið. „Þetta er ábyrgðarmikið starf en mjög heillandi og spennandi. Aðalstarf mitt er að sjá um rekst- ur hátíðarinnar og reyna að fá þá iistamenn sem framkvæmda- stjórnin hefur komið sér saman um. Það er skipulagið í sambandi við Listahátíðina sem er í höndum mínum og síðan ber ég fjárhags- lega ábyrgð á henni. Stefnan er auðvitað að Listahátiðin beri sig fjárhagslega og að við stöndum ekki höllum fæti að henni lokinni. Þetta er geysimikil vinna og það má segja að hún komi í skorpum, þ.e.a.s. vinnan eykst sífellt er tími hátíðarinnar nálgast, en svo er rólegri tími inn á milli þeirra." Hefurðu komið mikið nálægt Listahátíðunum áður? „Já, ég hef unnið við allar hátíð- arnar síðan 1976 og byrjaði þá sem sendill sem smám saman vann sig upp og nú er svo komið að ég hef unnið í flestum þeim störf- um sem tengjast undirbúningi hennar. Mér þykir verulega vænt um það traust sem framkvæmda- stjórnin hefur sýnt mér.“ Megum við eiga von á einhverj- um breytingum í undirbúningi Listahátiðarinnar? „Það hvílir í höndum fram- kvæmdastjórnarinnar að marka stefnu sem er núna að draga úr umfangi hennar og hafa hana minni í sniðum en hafa þá virki- lega góð atriði. Það er margt í deiglunni hjá okkur hvað snertir efnisatriði á Listahátíð, en að svo stöddu er erfitt að upplýsa nánar um það. þeir sem nú eru í stjórn eru Hrafn Gunnlaugsson og hann gegnir formannsstarfi, Kristinn Hallsson varaformaður, og að auki Kristín Jóhannesdóttir, Birgir Sigurðsson og Stefán Baldursson. Þetta er allt vant listafólk á sínu sviði og þekkir efnið út og inn.“ Ungt fólk er spennt fyrir því að fá svona ungan framkvæmda- stjóra og bindur vonir sínar við að þú komir nú með gott efni fyrir það. Hvað segir þú um það? „Ég hef fullan áhuga á því að fá einhverja góða popphljómsveit. Við fáum alla vega sjaldan góðar hljómsveitir hingað af því tagi og það er helst í kringum hátíðir sem þessar að það er vettvangur fyrir þær svo þetta er mál sem ég tek til alvarlegrar íhugunar." Er búið að fá einhverjar vissar myndir á kvikmyndahátiðina í maí? „Já, og við vinnum í því núna. Þær myndir sem við vitum fyrir víst að koma til með að verða sýndar eru „Gullgrafararnir" sem tekin var hér 1982 og var lokið við í fyrra og síðan mynd sem ber nafnið „Eigi skal gráta" en hún er samin út frá þeim atburði sem gerðist í Þýskalandi er kona skaut morðingja barnsins síns í réttar- sal og það er Hark Bohm sem er höfundurinn. Báðar þessar mynd- ir eru nýjar og það er meiningin að hafa þær sem flestar nýlegar." Salvör Nordal framkvæmdastjóri Listahitíðar. Police“-poppflokkurinn með hinn fræga „Sting“ fyrir miðju HOLLYWOOD: ,jÁ)gregluþjónar“ að var mikil veisla haldin í Hollywood á dögunum og er það engin nýlundá á þeim slóðum. Allra handa lið mætti þar eins og lög gera ráð fyrir, frægir, ímyndunarfrægir og smástirni. Þessir kappar voru meðal gesta, en ekki áttuðu sig allir á því vegna klæðnaðarins og fór það ívið í skapið á þeim. Fólk freistaðist nefnilega til að biðja þá um drykk eða snarl, hélt þá vera þjóna. En þetta er sjálfur „Police“-poppflokkurinn með hinn fræga „Sting“ í miðj- unni. Það leið drjúg stund áður en þeir fengu óáreittir að snæða sjálfir af eigin diskum, ótrufl- aðir af fólki sem vildi taka af þeim diskana sjálfu sér til nær- ingar. STACY KEACH: Fer troðnar slóðir Stacy Keach, bandaríski leikarinn sem var gripinn glóðvolgur með kókain á Heathrow og var skutlað í svartholið þar í landi (Bretlandi), hefur tekið saman í andlitinu. Hann brotnaði gersamlega saman er hann var nappaður, grét og hélt langar og bljúgar ræður um það hversu mjög hann iðraðist og hversu hræðilegt það væri að vera ánetjaður kókaíni. Það gæfi falska öryggis- kennd. Nú hefur Keach fundið köllun sína og um leið til að láta tímann í steininum líða hraðar. Hann er farin að rita ævisögu sína, frumleg hugmynd, og eru þar að sögn miklar prédikanir um víti eiturlyfja. Einnig talsvert af bitastæðu Hollywood-slúðri. COSPER — Þér þurfið adeins lengri göngustaf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.