Morgunblaðið - 13.04.1985, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
5
Gnuidarfjörður:
Fyrra uppboð á Sigur-
fara II verður 18. apríl
STJÓRN Fiskveiðasjods hefur
óskað eftir uppboði á 12 nskiskipum
vegna vanskila við sjóðinn, en nokk-
uð er síðan Bjarni Herjólfsson ÁR
var boðinn upp.
Af þessum 12 skipum eru þrír
togarar og tvö vélskip stærri en
100 lestir, en sjö minni. Mál þessi
hafa þann gang, að fyrst eru þau
tekin fyrir og náist þá ekki sam-
komulag um greiðslu er farið fram
á fyrri sölu eða uppboð. Að loknu
fyrra uppboði geta málsaðiljar
síðan óskað síðara uppboðs og er
það algengt.
Mál togarans Sigurfara 11 hefur
þegar verið tekið fyrir og fyrra
uppboð ákveðið þann 18. apríl
næstkomandi. Mál Sölva Bjarna-
sonar var tekið fyrir á fimmtudag
og verður fyrra uppboð síðari
hluta maímánaðar. Mál Kolbeins-
eyjar hefur enn ekki verið tekið
fyrir, en það mun gert fljótlega.
Mál vélskipsins Helga S var tekið
fyrir á föstudag og verður fyrra
uppboð væntanlega í fyrrihluta
júnímánaðar. Þá er ekki búið að
taka fyrir mál vélskipsins Freyju,
en líkur eru taldar á því, að það
leysist.
Mál smærri vélskipanna eru á
ýmsu stigi, en nákvæmar upplýs-
ingar um stöðuna liggja ekki fylli-
lega fyrir.
Hafsteinn Þorsteins-
son símstjóri látinn
LÁTINN er í Reykjavík Hafsteinn
Þorsteinsson, símstöðvarstjóri í
Reykjavík, 67 ára að aldri. Hann lézt
< í Borgarspítalanum þann 11. þessa
mánaðar.
Hafsteinn fæddist í Vestmanna-
eyjum 5. marz 1918. Hann var son-
ur hjónanna Þorsteins Hafliða-
sonar, skósmiðs þar, og Ingibjarg-
ar Þorsteinsdóttur. Hafsteinn tók
gagnfræðapróf frá Vestmannaeyj-
um, stundaði ritsímanám árin
1936 til ’38, lauk loftskeytaprófi
1941 og símvirkjaprófi árið 1943.
Hann var símritari í Vestmanna-
eyjum og Siglufirði 1938—1940 og
símvirki hjá Landssímanum i
Reykjavík 1941-1943. 1943 var
hann skipaður stöðvarstjóri við
símstöðina á Reyðarfirði. Haf-
steinn var síðan skipaður verk-
stjóri í símtæknideild Landssím-
ans í Reykjavík 1947, fulltrúi í
sömu deild 1954 og fulltrúi bæj-
arsímstjóra í Reykjavík 1958.
Hann var skrifstofustjóri bæjar-
símans frá 1963, settur símstjóri í
Reykjavík 1. janúar 1975 og skip-
aður í stöðuna 1. apríl sama ár.
Hafsteinn var ritstjóri símaskrár-
innar frá 1952 en hann vann í rúm
50 ár hjá Pósti og síma og hlaut
fyrir það viðurkenningu stofnun-
arinnar.
Fyrri kona Hafsteins var Mar-
grét Snorradóttir frá Eskifirði, en
þau slitu samvistir. Síðari kona
hans er Nanna Þormóðsdóttir og
lifir hún mann sinn.
Grundfirðingar:
Reyktur fiskur á
Bandaríkjamarkað?
„ENN sem komið er framleiðum við
bara fyrir innanlandsmarkað, en
höfum sent prufur utan og lofa við-
tökurnar góðu. Annars höfum við
mestan áhuga á að koma reykta
Hskinum inn á Bandaríkin," sagði
Ragnar Elbergsson á Grundarfirði 1
Tveir piltar í slysa-
deild eftir átök
TVEIR piltar voru fluttir í slysadeild
Borgarspítalans eftir að til átaka
kom miíli þeirra í leiguhúsnæði Fé-
lagsmálastofnunar í Búðagerði fyrir
drengi, sem eiga í erfiðleikum. At-
burðurinn átti sér stað um klukkan
þrjú aðfaranótt fimmtudagsins og
kvaddi stúlka lögregluna á vettvang.
Piltarnir slógust, beittu kylfum og
var lögreglan kvödd á vettvang.
Annar pilturinn fór þá út á svalir
hússins, braut rúður og lét ófriðlega.
Piltarnir skárust og voru fluttir
í slysadeild, en meiðsli þeirra
reyndust ekki alvarleg og voru
þeir fluttir á lögreglustöðina við
Hverfisgötu. Skömmu síðar fengu
þeir að fara þaðan í húsnæðið við
Búðagerði.
samtali við Morgunblaðið.
Ragnar ásamt tveimur öðrum er
eigandi fyrirtækisins Stólpa sf. í
Grundarfirði, en fyrirtækið er ný-
byrjað að reykja fisk með útflutn-
ing í huga. Ragnar sagði, að þeir
hefðu nýlega keypt fullkominn
sjálfvirkan reykofn frá Noregi í
gegnum Traust hf. Sagði hann
ofninn afkasta 400 kilóum af flök-
um á 10 tfmum. Nú væru þeir að-
allega með ýsu, en einnig karfa og
þorsk. Síðan væri ætlunin að
reykja lax og rauðmaga i álegg.
Starfsemin hefði hafizt í febrúar
og enn sem komið væri færi öll
framleiðslan á markað innan-
lands. Prufur hefðu þó verið send-
ar til Bandaríkjanna, Bretlands og
Frakklands og lofuðu undirtektir
góðu, þó engar beinar pantanir
hefðu borizt. Hugsanlegt verð
væri einnig vel viðunandi.
Ragnar sagði ennfremur, að
undanfarið hefði verið fremur erf-
itt að fá ýsuna. Þeir hefðu orðið að
sækja hana til Ólafsvíkur og Hell-
issands, en hefðu þó einnig nokkur
viðskipti við Hraðfrystihús
Grundarfjarðar og Sæfang. Hann
kvaðst bjartsýnn á framhaldið
enda gengi reykingin vel.
Helga með Gertrud
Stein til Norðurlanda
HELGA Bachmann leikkona, sem
undanfarna tvo mánuði hefur leik-
ið Gertrude Stein í einleiknum
„Gertrude Stein Gertrude Stein
Gertrude Stein“ á Litla sviði Þjóð-
leikhússins, heldur nk. þriðjudag
utan með verkið í hálfsmánaðar-
langt sýningarferðalag til Norður-
landa.
Sýningar verða í Stokkhólmi
þann 18. og 19. þessa mánaðar, í
Gautaborg þann 21., i Lundi 23.
og i Jónshúsi i Kaupmannahöfn
þann 26. og 28. apríl. Möguleikar
eru á að sýningar verði fleiri.
Ákveðið var að Þjóðleikhúsið
sendi uppfærslu sína á verkinu
utan, eftir að óskir þess efnis
bárust frá fslendingum i Svf-
þjóð, en íslendingafélögin á
ofangreindum stöðum munu
taka á móti sýningunni.
„Gertrude Stein Gertrude
Stein Gertrude Stein“ er rúm-
lega tveggja klukkustunda lang-
ur einleikur eftir bandariska
gyðinginn Marty Martin. Leik-
stjóri er Andrés Sigurvinsson.
Gott verð í
Bretlandi
— lakara í Þýzkalandi
ÞRJÚ skip hafa selt afla sinn er-
lendis síðustu daga í Bretlandi og
Þýzkalandi. Verð hefur verið fremur
lágt í Þýzkalandi en hærra í Bret-
landi. Eitt skip selur afla sinn í
Þýzkalandi í næstu viku.
Dagstjarnan KE seldi á mið-
vikudag og fimmtudag 162,6 lestir,
mest karfa í Cuxhaven. Heildar-
verð var 4.463.300 krónur, meðal-
verð 27,45. Á fimmtudag seldi
Keilir RE 93,8 lestir, kola, ýsu og
þorsk, í Grimsby. Heildarverð var
3.971.000 krónur, meðalverð 42,32.
Karlsefni RE seldi á föstudag
247,1 lest, mest karfa í Cuxhaven.
Heildarverð var. 7.707.800 krónur,
meðalverð 31,20.
„Erum ánægð
með aðsóknina“
— segir Anna Einarsdóttir
„ÞÚSUNDIR titla fóru út á bóka-
markaðinum." sagði Anna Einars-
dóttir, framkvæmdastjóri bóka-
markaðs félags bókagerðarmanna,
sem haldinn var frá 22. mars kl. 8.
apríl í Vörumarkaðinum á Eiðistorgi.
„Síðasti bókamarkaður var
haldinn fyrir tveimur árum og lík-
lega er um helmingsaukning í sölu
síðan þá. Aðstandendur bóka-
markaðarins eru þvi mjög ánægð-
ir og yfirleitt sýndist mér við-
skiptavinir ánægðir líka. Bókaút-
gefendur lækkuðu verðið veru-
lega.“
Anna sagði að ekki yrði tekin
ákvörðun um hvort fleiri slíkir
bókamarkaðir verði haldnir fyrr
en búið er að gera dæmið upp á
aðalfundi i vor.
^\uglýsinga-
síminn er 2 24 80
Frœðist og ferðist
ListfræÖsla Fríklúbbsins
Kynnist list og menn-
ingu endurreisnartím-
ans á Ítalíu.
Aöalsteinn Ingólfsson, listfræöingur, fjallar
í dag um eitt glæsilegasta tímabil í sögu
mannsins, endurreisnartímann á Ítalíu, þá
er Leonardo da Vinci og Michelangelo
auöguöu heiminn meö list sinni.
Missið ekki af fróölegu erindi og mynda-
sýningu.
Laugardaginn 13. apríl í Norræna húsinu
kl. 14.00.
Aðgangur kr. 100.-
Ókeypis ferða-
happdrætti.
KLUBBURINN
Ferðaskrifstofan
ÚTSÝN