Morgunblaðið - 13.04.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARÐAGUR 13. APRÍL 1985
7
Frá stofnfundinum í gær. Vinstra megin við borðið eru þeir Albert Kemp,
Fáskrúðsfirði, og Ófeigur Gestsson, Hofsósi, en hægra megin eru frá vinstri:
Ólafur Már Sigurösson, Seyðisfirði, Jón Gunnlaugsson, Akranesi, Hermann
Kr. Jónsson, Vestmannaeyjum, Sigurgeir Jónasson, Ijósmyndari, Vestmanna-
eyjum, Hjalti Sigurbjörnsson, Kiðafelli, Kjós, Pétur Hjálmsson, Mosfells-
sveit, Sigurður Sigmundsson, Syðra-Langholti, Hrunamannahreppi, Arnór
Ragnarsson, Garði, og Davíð Pétursson, Grund, Skorradal.
Gunnar Bjarnason, fréttaritari frá gamalli tíð, ávarpaði fundinn og sýndi
gamalt fréttariUraskírteini. Aðrir á myndinni eru frá vinstri: Helgi Bjarna-
son, Borgarnesi og blaðamaður á Morgunblaðinu, Ólafur Guðmundsson,
Egilsstöðum, sem kjörinn var ritari félagsins, og Úlfar Ágústsson, Isafirði,
formaður félagsins „Okkar menn“.
Fréttarítarar Morgunblaðsins stofna félag:
„Okkar menn“ um allt land
STOFNFUNDUR félagsins
„Okkar menn“, sem er félag
fréttaritara Morgunblaðsins, var
haldinn í veitingahúsinu Gauki á
Stöng í gær og sóttu hann á fjórða
tug fréttaritara hvaðanæva af land-
inu, en alls eru frétUritarar Morg-
unblaðsins á annað hundrað. For-
maður félagsins var kjörinn Úlfar
Ágústsson, Isafirði.
Tilgangur félagsins samkvæmt
samþykkt stofnfundar er að efla
og treysta fréttaöflun Morgun-
blaðsins og vinna að hagsmunum
1 fréttaritara blaðsins. Einkum
eru menn þar með í huga aukna
fræðslu við öflun frétta og
fréttaskrif. Á fundinum kom
fram jákvætt viðhorf fréttarit-
ara til blaðsins og áhugi á að
bæta enn fréttaþjónustu þess af
landsbyggðinni.
Nokkrir fréttaritarar, sem
áttu ekki heimangengt á fund-
inn, sendu kveðjur, m.a. nokkrir
af elstu fréttariturunum. Öllum
fréttariturum blaðsins verður
sent boð um að ganga í félagið.
Auk Úlfars Agústssonar, sem
áður er nefndur, voru eftirtaldir
kjörnir í stjórn félagsins: ólafur
Guðmundsson, Egilsstöðum, rit-
ari, Helgi Kristjánsson, ólafsvík,
gjaldkeri, og í varastjórn: Her-
mann Kr. Jónsson, Vestmanna-
eyjum, Gunnar Berg, Akureyri,
og Jón Gunnlaugsson, Akranesi.
Endurskoðendur félagsins voru
kjörnir: Davíð Pétursson, Grund,
Skorradal, og Séra Halldór
Gunnarsson, Holti undir Eyja-
fjöllum, og til vara ófeigur
Gestsson, Hofsósi, og Albert
Kemp, Fáskrúðsfirði.
Morgunbladið/Bjarni Eiriksson
Frá stofnfundi „Okkar manna" í gær. Frá vinstri eru á myndinni: Trausti
Þorsteinsson, Dalvík, Sveinn Þórðarson, Innri-Múla, Barðaströnd, Bjöm
Guðmundsson, Ijósmyndari, Ólafsvík, Alfreð Jónsson, Grímsey, Matthías
Jóhannsson, Siglufirði, Benedikt Guðmundsson, Staðarbakka, Miðfirði, Gils
Jóhannsson, Hvolsvelli, Steinar Guðmundsson, Stöðvarfirði, Bernhard Jó-
hannesson, Sólbyrgi, Borgarfirði, Haukur Gíslason, Ijósmyndari, Selfossi.
Aftast sést séra Einar Jónsson, Arnesi á Ströndum, og við borðið lengst til
hægri má m.a. sjá Jakob Ágústsson, Ólafsfirði, Svavar B. Magnússon, Ijós-
myndara, Ólafsfirði, Kristin Pétursson, Bakkafirði, Ólaf Má Sigurðsson.
Seyðisfirði, Sigurgeir Jónasson, Ijósmyndara, Vestmannaeyjum, og Albert
Kemp, Fáskrúðsfirði.
Mazda323
Glæsilegur, rúmgóöur 5 manna fjölskyldubíll meö framdrifi.
Eftirfarandi búnaður fylgir Mazda 323 DeLuxe:
Rúllubelti — Stillanleg hæð á framsæti með mjóhryggsstillingu — Sportrendur á hliðum — Heilir stuðarar
með rauðri innfelldri rönd — Öryggisljós að aftan — Litað gler í rúðum — Niðurfellanlegt aftursætisbak
í tvennu lagi — Handgrip í lofti — Tauáklæði á sætum — Quarts klukka — 60A rafgeymir — Sérstök hljóð-
einangrun í farþegarými — 3 hraða rúðuþurrkur — Halogen aðalljós — Stokkur á milli framsæta — Blást-
ur á hliðarrúður — Spegill í sólskyggni hægra megin — Farangursgeymsla klædd í hólf og gólf — 3 hraða
miðstöð — Útispegill — Baksýnisspegill með næturstillingu — Þurrka og sprauta á afturrúðu — Hituð
afturrúða — Opnun á afturhlera og bensínloki innan frá — Ljós í farangursgeymslu (HB) — Barnaöryggis-
læsingar — Vindlakveikjari og margt fleira.
Verð með öllu þessu aðeins kr. 337.900
Opið laugardag
frá kl. 10—4
£
MEST FYRIR PENINGANA
BÍLABORG HR
Smiðshötða 23 sími 812 99