Morgunblaðið - 13.04.1985, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Hermenn við brynvagn sem Ifbanskir shitar sprengdu f loft upp.
Tekst shitum í S-Líbanon
og ísraelum í N-ísrael
að halda frið?
ÞESSA DAGANA hraða fsraelar brottflutningi herja sinna frá Suður-
Líbanon, eins og verða má. Áður en langt um líður verða engir ísraelskir
berflokkar á þessu landsvæði, en þar með er ekki sagt að allt falli í Ijúfa
löð. Þvert á móti eru menn uggandi og hafa áhyggjur af því hvernig
samskiptum shita í Suður-Líbanon verði háttað við grannann — ekki sízt
með hliðsjón af því sem á undan er gengið. ísraelar hafa lýst því yfir að
það sé Líbana að halda uppi lögum og reglu á landsvæðinu og þeir hafa
ennfremur ekki farið í launkofa með þá fyrirætlun sína að verði Norður-
ísrael ógnað muni ísraelar tafarlaust ráðast á ný inn í Líbanon.
Leiðtogar shita í Líbanon, þar
á meðal sá hinn mest áber-
andi, Nabib Berri, talsmaður
AMA, stjórnmálasamtaka shita,
hafa kunngert að shitar muni
ekki hafa nokkra ástæðu til að
áreita ísraela eftir að þeir hafa
komið sér yfir landamærin. Á
hinn bóginn eru ýmsir þeir bæði
innan ísraels og Líbanons, sem
eru ekki trúaðir á að svo verði.
Það blandast varla neinum
hugur um að aðgerðir ísraela á
landsvæðum shita síðustu vikur
hafa mælzt illa fyrir og er þá
kurteislega til orða tekið. Árásir
ísraelskra hermanna á bæi og
þorp í Suður-Líbanon, undir því
yfirskyni að þeir væru að leita
að hryðjuverkamönnum shita,
hafa verið fram úr hófi mis-
kunnarlausar og margir óbreytt-
ir borgarar látið lífið. Áður og
fyrrum gerðu ísraelar atlögur af
pessu tagi af því að þeir kváðust
vera að leita að hryðjuverka-
mönnum PLO, en það sýnir
hversu staðan hefur breytzt að
nú skuli ísraelar telja það einna
mest aðkallandi að koma hönd-
um yfir líbanska hryðjuverka-
menn. Því að víst má hafa í huga
hversu íbúar í Suður-Líbanon
fögnuðu ísraelum eins og frels-
urum þegar þeir gerðu innrásina
í landið fyrir þremur árum og
hröktu skæruliða PLO á brott.
Auk þess hafði samvinna her-
sveita Haddams heitins majors
við ísraela verið mjög náin um
árabil og Líbanir á þessum slóð-
um hölluðust yfirleitt að stuðn-
ingi við ísraela umfram Palest-
ínumenn. Ástæður þess voru
meðal annars hörmungar borg-
arastyrjaldarinnar, og enda var
Suður-Líbanon um margt nánast
einangrað frá öðrum hlutum
landsins um langa hríð. Skæru-
liðar PLO sýndu mikla grimmd
íbúunum og skelfing og óöryggi
fólksins var á alvarlegu stigi.
En nú hefur skipt um. Það
hefur auðvitað ekki gerzt í einu
vetfangi, heldur smám saman.
Þegar ísraelar tóku suðurhlut-
Ættingjar ísraelsks hermanns sem
féll í Libanon. Myndin var tekin
við útför hans á HerzÞfjalli.
ann bjuggust Lfbanir áreiðan-
lega ekki við því að þriggja ára
herseta þeirra væri í vændum.
Þeir trúðu því án efa flestir, að
ísraelar myndu hverfa á brott
eftir að hafa upprætt skæruliða-
hreiður PLO-manna. En sú varð
ekki raunin og smám saman
komu upp samskiptavandamál
milli Líbananna og ísraelanna.
tsraelar þóttu ekki sýna minni
grimmd en PLO-menn, ef eitt-
hvað brá út af og hægt og síg-
andi hefur andstaðan við her-
námsliðið vaxið og skæruliða-
sveitir shita á svæðinu, sem
varla voru til fyrir þremur ár-
um, hafa gerzt æ atkvæðameiri
eins og fram hefur komið í frétt-
um.
í ísraelskum blöðum hefur
verið skrifað mikið um framtíð-
arþróun í Suður-Líbanon. Marg-
ir hafa fullyrt að í reynd hafi
ísraelar farið halloka fyrir Líb-
önum og bent á hversu brott-
flutningsáætlunum hefur verið
breytt og hraðað. Á það hefur
einnig verið bent að samkvæmt
shitahefðinni er bezti vinurinn í
augum Allah sá sem er bezti vin-
ur vinar síns og bezti granni
granna síns. Og margir israelsk-
ir sérfræðingar hafa ritað lærð-
ar greinar um það, hversu ísra-
elum hafi orðið hált á því í sam-
skiptum við Líbani svo og aðra
að sýna ekki trúarhefð viðkom-
andi tilhlýðilega virðingu, þar
sem hún skipti meginmáli.
Trúlegt er að engin niðurstaða
fáist í þessu máli alveg á næst-
unni. En það er líka trúlegt að
ísraelar hinkri aðeins áður en
þeir hefja nýja sókn inn í Suð-
ur-Líbanon eftir það sem á und-
an er gengið. Líbanir eiga svo
sem ekki aðeins við þennan
vanda að glima. Klofningut Inn
meðal trúflokka og ættflokka í
landinu virðist jafn alvarlegur
og fyrr. Til að mynda ágreining-
urinn sem er fyrir nokkru kom-
inn upp meðal kristinna manna
og sagt hefur verið frá. Það hef-
ur svo aftur orðið til þess að
Gemayel forseti hefur hallað sér
æ meira að Sýrlendingum, en
það er óneitanlega vafasöm
ákvörðun og gæti haft afdrifa-
ríkar afleiðingar. Ágreiningur
kristinna manna, ágreiningur
innan hinna ýmsu fylkinga mú-
hameðstrúarmanna, ágreiningur
allra þessara við drúsa og hvers
við annan. Þetta virðist í raun og
veru óleysanlegt vandamál. Sýr-
lendingar kynda undir úlfúðina
milli allra stríðandi fylkinga og
geta í skjóli hennar haft áfram
setulið í landinu. Það er litið illu
auga af Líbðnum, en þar sem
engir geta komið sér saman um
nokkurn skapaðan hlut, næst
heldur engin samstaða um það.
Þegar stjórn Rashid Karami
tók við fylltust ýmsir vonum að
honum tækist að bera klæði á
vopnin og hefja endurreisnar-
starf í landinu. Karami vill
skella skuld á ísraela og Sýr-
lendinga fyrir að það hefur ekki
tekizt. En sjálfsagt er málið ekki
svo einfalt.
(Heimildir: Jerusalem Post,
New York Times o.fl.)
Góð ráð
sitt úr hverri áttinni
Nú er einmitt rétti tíminn
til að sá fræjum og for-
rækta blómin inni fyrir
sumarið. Þá er alveg til-
valið að nota eggjabakka
fyrir gróðurreiti, svo þið
getið byrjað að safna
þeim strax. Þeir reynast
mjög bel, bæði pappa- og
plastbakkar.
Þegar skipta þarf um
mold á plöntum er stór-
sniðugt að setja nokkur
smá bein neðst í pottinn. í
beinunum er fosfórsýra
sem er afar gagnleg fyrir
plönturnar, auk þess sem
beinin eru ágætis „ræsi“ í
moldinni.
Eitt blómaráð í við-
bót. Það hefur reynst
mér afar vel að láta
svampgúmmí í botn-
inn á blómapottun-
um. Auðvelt að gera
það um leið og um-
pottað er eða settir
niður laukar. Ef
vökvað er of mikið
sýgur gúmmíið auka-
vatnið til sín, og
gleymist að vökva er
alltaf einhver auka-
lögg í svampinum.
Agúrkur eru dýrar á þess-
um árstíma, og því sár-
grætilegt að þurfa að
henda t.d. hálfri agúrku,
sem er orðin lin. Skerið
smá sneið af henni og lát-
ið svo endann strax ofan í
kalt vatn. Eftir smá stund
er hún stinn og safarík á
ný.
Gott fyrir blóðlitla. Margir
eru guggnir eftir veturinn
og vilja ef til vill reyna
gamalt ráð við blóðleysi.
Hrærið eina hráa eggja-
rauðu með örlitlu salti, og
bætið út í 2 kúfuðum
matskeiðum af hakkaðri
steinselju (persille), ef
þurrkuð, þá 1 matskeið.
Notið blönduna sem sósu
með hádegismatnum.
Þetta er ekki bara gott,
heldur einnig mjög bragð-
gott.
Te-toddý. Ljúffengt, heilnæmt og gott. Það er ekki
óeðlilegt að álykta að einhver páskaferðalangurinn
hafi náð sér í kvef um síðustu helgi, og þess vegna
ætla ég að gefa ykkur þessa uppskrift. Hún er bæði
góð fyrir nef og háls. 1 glas: Hrærið 1 eggjarauðu
með 1—2 matsk. af hunangi. Hellið út í ca. 2 dl. af
nýlöguðu tei. Bragðbætið með sítrónusafa, og ef þið
kærið ykkur um, þá má setja smá slurk af rommi út
í. Drekkið sjóðandi heitt.