Morgunblaðið - 13.04.1985, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
31
AP/Símamynd
PRUÐBUIN PRINSESSA
Díana prinsessa vekur mikla athygli hvar sem hún fer og ekki síst fyrir klæðaburdinn. Snemma í mánuðinum
var hún viðstödd höggmyndasýningu í British Museum og þá skartaði hún þessum fallega kjól.
Noregur:
Þjóðhátíð — en
ekki kröfuganga
Ósló, 12. aprfl. AP.
ÍBÚARNIR í Harstad í Norður-
Noregi eru vanir að halda upp á
þjóðhátíðardaginn, 17. maí, eins og
aðrir Norðmenn, en að þessu sinni
er óvíst með hvaða hætti hátíðar-
höldin verða. Hafa ýmsir ákveðið að
koma þar hvergi nærri vegna þess
að bæjarstjórnin hefur leyft friðar-
hreyfingunni á staðnum að flagga
með kröfuspjöld og slagorðaborða í
göngunni.
Forsvarsmenn norska hersins í
Harstad hafa neitað að taka þátt i
hátíðarhöldunum vegna þessa
máls og sömu afstöðu hafa ýmsir
hópar nemenda og kennara tekið.
Segja þeir það reginhneyksli, að
17. maí, sem sé hátíðisdagur allrar
þjóðarinnar, skuli dreginn niður í
svaðið og breytt í kröfugöngu fyrir
ákveðinn hóp. Bæjarstjórnin í
Harstad situr enn við sinn keip en
ekki er talið ólíklegt, að hún láti
undan síga fyrir almennri
óánægju bæjarbúa og banni
friðarhreyfingunni að misnota
þjóðhátíðardaginn.
Átta Spánarflugvellir
lýstir stórhættulegir
Flugvellir í Malaga og Kanaríeyjum í þeim hópi
Madrid, 12. aprfl. AP.
ÁTTA flugvellir á Spáni, þ. á m. flug-
vellirnir í Malaga og þrír Kanarí-
eyjaflugvellir, Hierro, Las Palmas
og Los Rodeos á Tenerife, eru stór-
hættulegir og væri skynsamlegast að
loka þeim þegar í stað, samkvæmt
áliti félags spænskra atvinnuflug-
manna.
Jose Antonio Silva, talsmaður
félags spænskra atvinnuflug-
manna, SEPLA, segir í samtali við
óháða vikuritið Tiempo, að á átta
flugvöllum sé leiðsögubúnaður
ófullkominn. Stafi af því stór-
hætta og hans vegna gæti þess-
vegna skapast hættuástand er
endað gæti með slysi.
Flugvellirnir, sem spænskir
flugmenn vilja láta loka, eru flug-
vellirnir í Bilbao, Madrid, Malaga,
San Sebastian, Melilla, og þrír
flugvellir á Kanaríeyjum, flugvell-
irnir Hierro, Las Palmas og Los
Rodeos, sem er á norðurhluta
Tenerife. Jafnframt segir Silva
það niðurstöðu félags atvinnuflug-
manna að átta flugvellir til við-
bótar séu hættulegir.
Frá því í nóvember 1983 hefur
421 maður týnt lífi í flugslysum á
Spáni. Síðasta stórslysið var 19.
febrúar sl. er þota frá spánska
flugfélaginu Iberia brotlenti á
fjalli skömmu fyrir lendingu i
Bilbao. Fórust allir, sem með
flugvélinni voru, 148 manns.
Arið 1977 skullu tvær júmbó-
þotur saman á Los Rodeos-flug-
vellinum á Tenerife með þeim af-
leiðingum að 585 manns fórust.
Mestri flugumferð til Tenerife er
nú beint til nýs flugvallar á suður-
hluta Tenerife, sem nefndur er
eftir Spánardrottningu, Sofia. Er
hann fyrsta flokks, samkvæmt
flokkun SEPLA.
Félag spænskra flugumferðar-
stjóra hótaði verkfalli í gær ef
lendingar flugvéla yrðu ekki
takmarkaðar við 15 á klukkustund
á flugvöllum, þar sem flugumferð
er stjórnað frá flugturni. Jafn-
framt krefst félagið afsagnar
Pedro Tena, flugmálastjóra Spán-
ar, fyrir aðgerðarleysi hans í flug-
öryggismálum.
Fágætur
kondór úr
eggi í
dýragarði
San Diego, 12. aprfl. AP.
Ein sjaldgæfasta fuglategund
veraldar er kaliforníukondórinn,
sem er í bráðri útrýmingarhættu.
Ástand stofnsins er slíkt, aó sér-
fræðingar töldu að ekki einn ein-
asti ungi myndi komast á legg
þetta árið. Því ríkti mikil gleði í
dýragarðinum í San Diego í dag,
er kondórsegg klaktist út í útung-
unarvél og stálhraustur ungi leit
dagsins Ijós.
Það eru eigi færri en fjórir
sérfræðingar sem sinna ungan-
um, sem kallaður hefur verið
Kaweah, en það er indíánamál
og merkir: „Staður nærri Sequ-
oia“. Kyn fuglsins hefur ekki
verið greint enn sem komið er,
en ýmsar rannsóknir verða
gerðar næstu daga, engar þó
sem taldar eru geta skaðað litla
skinnið.
Aðeins 13 eggjum var orpið á
þessu vori, þá eru talin bæði egg
sem villt pðr urpu, svo og fuglar
í dýragörðum. Talið er að aðeins
milli 9 og 13 kondórar lifi villtir
í Kaliforníu og 17 til viðbótar
séu í dýragörðum. Þeir finnast
ekki villtir utan Kaliforníu.
Sport Sunny
NISSAIM SUNNY Coupe 1.5GL
Noregur:
Gaf harðfiskknippi
sem kosningaframiag
ÓdA, 12. oprfl. Prá Ju Erik
Loure, frétUriUro MM.
NÝLEGA var harðflskknippi aö verðmæti um 7.000 ísl. kr. sent Káre
Willoch forsætisráðherra og átti það að vera framlag til kosninga-
baráttu Hægriflokksins. Á sama hátt fengu leiðtogar hinna stóru
borgaraflokkanna tveggja, Miðflokksins og Kristilega þjóðarflokks-
ins, sendan harðflsk.
Það var fiskverkandinn Einar til þess að þrýsta á stjórnmála-
Giæver frá Havnnes í Troms, mennina.
sem sendi þessi óvenjulegu kosn- ---->♦«______
ingaframlög. Giæver segist hafa
fengið bréf frá Hægriflokknum,
þar sem hann hafi verið beðinn
um að leggja sitt af mörkum til
að tryggja sigur borgaraflokk-
anna í haust.
Hann sagðist hafa sent stjórn-
málamönnunum harðfisk, svo
þeim mætti verða ljóst, að það
væri skylda ríkisvaldsins að
leysa þau vandamál, sem tengj-
ast þessari afurð. I Noregi eru nú
fyrirliggjandi skreiðarbirgðir
fyrir yfir þrjá milljarða ísl. kr.
„Harðfiskur er frábært fram-
lag til kosningabaráttunnar.
Hann styrkir, auk þess sem hann
skýrir hugsunina," segir Giæver.
Hann kvaðst vona, að fleiri fisk-
verkendur færu eins að og hann
Carrington
til Noregs
Osló, 12. aprfl. AP.
NORSKA utanríkisráðuneytið
greindi frá því í dag, að Carrington
lávarður, framkvæmdastjóri Atl-
antshafsbandalagsins, myndi koma í
opinbera heimsókn til Noregs 15. til
16. aprfl næst komandi.
Carrington mun ræða við ýmsa
ráðamenn í Noregi, meðal annarra
Kare Willoch forsætisráðherra,
Svenn Stray utanríkisráðherra og
Anders Sjaastad varnarmálaráð-
herra. Munu leiðtogarnir ræða
utanríkis- og varnarmál.
Veitum frábær kjör á
öllum Sunny-bílum.
* —..—
niiuav cmo iiciui varia
þekkst hingaö til.
Tökum flesta notaöa
bíla upp í nýja.
A aöeins kr.
429.000
Meö Nissan Sunny færöu bókstaflega alla þá aukahluti sem þú veröur aö panta
sérstaklega í aöra bíla t.d.: Upphituö framsæti, útvarp, tölvuklukku, snúningshraöa-
mæli, öryggisbelti fyrir fimm, þriggja hraöa miöstöö, rafhitaöa afturrúöu meö
rúöuþurrku og rúöusprautu, þurrkur á framljósum, hliöarrúöur aö aftan og opnast
meö tökkum úr framsæti, farangursgeymsla og bensínlok eru opnanleg úr öku-
mannssæti o.m.fl.
Vélin er 83 hestöfl, 1500 cc. Sunny er auðvitað framhjóladrifinn og fimm gíra eöa
sjálfskiptur.
Muniö bílasýningar okkar um helgar kl. 14—17.
BINGVAR HELGASON HF
_Sýningarsalimnn/Raiiöogerði, simi 33560