Morgunblaðið - 13.04.1985, Síða 37
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 13. APRIL 1985
37
Hvað segja fulltrúar á landsfundi?
Ingimar Halldórsson,
ísafirði:
Dregið hefur
úr krafti
ríkis-
stjórnarinnar
INGIMAR Halldórsson, ísafirði,
sagði landsfundinn fyrst og fremst
verða að svara spurningunni um
samstarf ríkisstjórnarflokkanna.
Hann sagðist persónulega ekki
telja að um annan kost betri væri
að ræða, en sér fyndist að dregið
hefði úr krafti ríkisstjórnarinnar
eftir samningana við BSRB. Hann
sagði síðan: „Vonandi ná þeir sér
upp aftur, en í dag sé ég ekki ann-
að betra stjórnarmunstur."
Ingimar sagði í framhaldi af
þessu, að hann teldi að lands-
fundur ætti að álykta í þá veru,
að ríkisstjórnarsamstarfið yrði
styrkt og að stefna sjálfstæð-
ismanna ætti þar meiri hlut. Af
öðrum þjóðmálum sem bæru
hvað hæst að hans mati sagði
hann: „Það standa auðvitað fyrir
dyrum nýir kjarasamningar þeg-
ar fer að líða á árið. Ég held að
þeir eigi að ná sem víðtækastri
samstöðu um þá, þannig að það
komi ekki til annarrar koll-
steypu eins og varð á síðasta ári.
Ég tel að það sé mál sem þarf
sérstaklega að athuga."
Um ástand mála í sinni
heimabyggð sagði Ingimar: „í
augnablikinu er nú ekki bjart yf-
ir þar sem sjómenn eru í verk-
falli. En nýjustu fréttir eru að
Patreksfirðingar séu búnir að
semja, þannig að það er von til
þess að hjólin fari að snúast aft-
ur. Að öðru leyti hefur verið góð
atvinna og mikil á ísafirði á
undanförnum árum.“ Hann
sagði að lokum: „Ég hef setið
einn landsfund áður, þann síð-
asta. Mér sýnist að þessi verði
með öðru yfirbragði þar sem
ekki eru harðar kosningar hér,
— kannski meiri friður."
Drífa Hjartardóttir,
Keldum, RangárvöIIum:
Landbúnaðar-
kerfið þarf
að stokka upp
DRÍFA Hjartardóttir frá Keldum á
Rangárvöllum sagðist hafa starfaó
lengi í Sjálfstæðisflokknum, er
rætt var við hana á fóstudags-
morgni. Hún hefði byrjað í Heim-
dalli en síðan átt sæti í stjórn fé-
lagsins fyrir austan. Um lands-
fundinn sagði hún: „Mér finnst
hann mjög sterkur. Ræða Þor-
steins við setninguna var mjög góð
og gefur okkur von um bjartsýni.
Þá finnst mér eftirtektarvert hvað
það taka margar konur til máls
núna strax í upphafí fundarins, það
boðar vonandi aukin ítök kvenna í
flokknum."
Drífa sagði margt athyglisvert
af málefnum fundarins. Varð-
andi afstöðuna til ríkisstjórn-
arsamstarfsins sagði hún: „Ég
vil að Sjálfstæðisflokkurinn
haldi áfram stjórnarsamstarf-
inu. Ég held að það sé bjart
framundan og ég tel að það sé
von til að þeir geti bætt úr þessu
og vinni upp það sem tapaðist."
Drífa er bóndakona og var því
spurð um landbúnaðarmál og af-
stöðu Sjálfstæðisflokksins til
þess málaflokks: „Ég vil að
Sjálfstæðisflokkurinn sinni mál-
efnum landbúnaðarins meira.
Mér fannst afskaplega góð
stjórn á landbúnaðarmálum þeg-
ar Pálmi var og eins Ingólfur, en
ég er mjög óánægð með núver-
andi landbúnaðarráðherra. Mér
finnst hann alls ekki nógu afger-
andi. Það þarf að stokka upp í
landbúnaðarkerfinu."
Um málefni sinnar heima-
byggðar sagði hún: „Atvinnu-
málin eru þar hvað brýnust. Við
sjáum fram á alvarlegt ástand í
atvinnumáium. Það hefur dregið
mjög úr atvinnu vegna sam-
dráttar í virkjunarframkvæmd-
um. Það vantar mörg atvinnu-
tækifæri. Ég held að til bóta sé
helst að styðja vel einkaaðila
sem vilja setja upp fyrirtæki eða
verksmiðjur." Drífa sagði í lokin
aðspurð, að hún myndi væntan-
lega velja sér umræðuhópinn um
atvinnumál.
Ólafur Stephensen,
Reykjavík:
Draumurinn er
meirihluta-
stjórn Sjálf-
stæðisflokks
ÓLAFUR Stephensen úr Heimdalli
í Reykjavík er yngstur landsfund-
arfulltrúa, eða a.m.k. einn af þeim
yngstu, því hann er 16 ára. Um
þennan fyrsta landsfund sinn
sagði hann: „Hann hefur góð áhrif
á mig og það er gott, ef maður
kemur einhverju góðu til leiðar."
Aðspurður um hvað það væri sem
hann vildi helst koma til leiðar
sagði hann: „Það er náttúrulega
margt, en þó helst að flokkurinn sé
sínum stefnumálum trúr, en verði
ekki eitthvert dautt flykki, — að
hann taki á málunum."
Ólafur var spurður í framhaldi
af því, hvort honum fyndist örla á,
að Sjálfstæðisflokkurinn væri
nærri því að vera „dautt flykki".
„Já, einum of mikið."
— Kosningaréttur ungs fólks
hefur verið mikið til umræðu og
lækkun kosningaaldurs. Hver er
þín skoðun á því máli?
„Mér finnst alveg sjálfsagt að
lækka kosningaaldurinn, en hins
vegar þurfum við að taka af-
stöðu. Það eru alltof margir sem
hafa ekki neina afstöðu tekið.
Þetta er okkar land, við erum
farnir að borga skatta og margir
á þessum aldri komnir út á
vinnumarkaðinn. Það er því ekki
nema sjálfsagt að við tökum af-
stöðu og ráðum því hverjir eiga
að stjórna landinu. Það er
minnihluti sem tekur afstöðu í
mínum aldursflokki, þar sem ég
þekki til.“ Þess má geta, að ólaf-
ur er nemi í menntaskóla.
— Hverju er um að kenna?
Ná flokkarnir ekki til ykkar, til
dæmis Sjálfstæðisflokkurinn?
„Nei, það er alltof mikið um að
fólk álíti þessa jafnaldra sína,
sem eru að tala um pólitík, lok-
aða, einangraða náunga, sem eru
ekki nógu hressir eða skemmti-
legir. Ég tel að flokkarnir þurfi
fyrst og fremst að beita nútíma-
legri aðferðum til þess að ná til
fólks, — koma ungu fólki í meiri
skilning um hvað það græðir á
því að styðja við hvem flokk.“
ólafur sagði í lokin aðspurður
um hverjar vonir hann bindi við
niðurstöðu landsfundar að þessu
sinni: „Að það verði mörkuð skýr
stefna og engin undanlátssemi
leyfð að neinu leyti.“ Hann bætti
því við, að hann væri engan veg-
inn ánægður með þessa ríkis-
stjórn og að hann teldi að lands-
fundur hlyti að taka afstöðu til
ríkisstjórnarinnar. Aðspurður
um óskaríkisstjórn sagði hann,
að auðvitað væri draumurinn
meirihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokksins, því í samsteypustjórn-
um yrðu alltof oft ofan á póli-
tískar málamiðlanir, sem væru
hvorki fugl né fiskur.
Þórður Björgvinsson,
Akranesi:
„Flokkurinn
þarf að taka
harðari af-
stöðu í hús-
næðismálunum“
„UNGA fólkið hefur verið mjög
jákvætt í garð Sjálfstæðisflokksins
en mér fínnst að menn þurfí nú að
gæta mjög að sér í þeim efnum,
sérstaklega í húsnæðismálunum.
Flokkurinn þarf að taka harðari
afstöðu, hann hefur ekki skilað því
sem lofað var í húsnæðismálun-
um,“ sagði Þórður Björgvinsson,
vélvirki frá Akranesi.
Þórður sagði að þessi mál virt-
ust standa til bóta með ályktun-
um landsfundarins. Sagði hann
nauðsynlegt að láta Iánskjara-
vísitöluna vera I tengslum við
launaþróun í landinu. Sagðist
Þórður hafa keypt sér raðhús
fyrir skömmu og þekkti þessi
vandamál af eigin raun.
„Mér finnst að þar mætti
breyta til,“ sagði Þórður þegar
leitað var álits hans á umræð-
unni um setu formanns Sjálf-
stæðisflokksins í ríkisstjórninni.
„Ekki endilega að skipta um einn
ráðherra flokksins heldur jafn-
vel þrjá, til að hreinsa and-
rúmsloftið, og að formaður
flokksins tæki sæti í stjórninni.
Þetta tel ég nauðsynlegt fyrir
flokkinn, bæði út á við og til að
koma þeim mönnum, sem kjörn-
ir hafa verið til að stjórna
flokknum, til meiri áhrifa.“
Þórður var kosinn á lands-
fundinn af fulltrúaráðinu á
Akranesi en hann hefur starfað I
mörg ár í Þór, félagi ungra
sjálfstæðismanna á Akranesi.
Hann er varabæjarfulltrúi og
starfar í mörgum nefndum sem
slíkur. „Það er mjög líflegt,"
sagði Þórður þegar hann var
spurður um hvernig félagslífið
væri hjá sjálfstæðismönnum á
Akranesi. „Við höldum reglulega
opna stjórnmálafundi og þá
gjarnan með ráðherrum eða öðr-
um forystumönnum flokksins
sem frummælendur. Þá eru
morgunfundir á sunnudögum
fyrir hvern bæjarstjórnarfund
þar sem bæjarmálin eru rædd.
Þessir fundir eru alltaf vel sótt-
ir. Þetta starf hefur skilað sér í
kosningum. Til dæmis fengum
við fjórða manninn inn í bæjar-
stjórnina í siðustu bæjarstjórn-
arkosningum og í síðustu alþing-
iskosningum fengu sjálfstæð-
ismenn flest atkvæði allra
flokka, í fyrsta skipti í langan
tíma,“ sagði Þórður.
AÖalheiður Arnórsdóttir,
Sauðárkróki:
Margt í gangi
sem gera
mætti gott úr
Aðalheiður Arnórsdóttir, Sauð-
árkrókí, sagði að sér hefði fundist
stemmningin við setningarathöfn-
ina á fímmtudag benda til þess að
menn gætu staðið vel saman.
„Fundurinn hlýtur að verða til
þess að sameina sjálfstæðisfólk
um allt land í að styðja við bakið á
okkar mönnum við það sem þeir
eru að berjast fyrir," sagði hún.
Varðandi stöðu þjóðmála og
ríkisstjórnarinnar sagði hún:
„Ég er ekki viss um, að við eigum
að fara að tala um kosningar
einmitt núna, en við erum öll
með þetta á bak við eyrað. Ef
þessi mál sem eru í brennipunkti
núna nást ekki fram undir okkar
stefnu, þá er spurning hversu
lengi við eigum að halda í ríkis-
stjórnina. En á þessari stundu er
ég ekki tilbúin til að segja að það
eigi að hætta stjórnarsamstarf-
inu. Það er svo margt í gangi,
sem gæti orðið gott úr.“
Um stöðu mála í sinni heima-
byggð sagði Aðalheiður: „Þar er
lítið eða ekkert atvinnuleysi. Við
erum að koma steinullarverk-
smiðjunni í gang og það rikir
bjartsýni á hana. Útgerðin hjá
okkur er eins og alls staðar —
mætti ganga betur.“
Þetta er annar landsfundurinn
sem Aðalheiður situr og um
fundarhaldið sjálft sagði hún að
lokum: „Mér finnst eins og það
sé léttara yfir öllu á þessum
fundi. Á síðasta fundi snérist
reyndar allt um formannskjörið.
Þá biðu allir eftir því, en nú
finnst mér umræðan vera meiri
um landsmálin og þar af leiðandi
reikna ég með málefnalegri
fundi.“
\