Morgunblaðið - 13.04.1985, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 13. APRÍL 1985
59
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
^ TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu . „Lögvernd“?
Plata með
Simon Le Bon
Starfsmaður Fálkans kom að
máli við Velvakanda og vildi
koma því á framfæri, vegna mik-
illar umfjöllunar um hljómsveit-
ina Duran Duran í lesendadálk-
um blaðanna, að væntanleg er i
verslanir hér plata með einum
meðlimi hljómsveitarinnar, Sim-
on Le Bon.
Þá er einnig væntanleg plata
með hljómsveitinni næstkom-
andi haust. Að síðustu vildi
starfsmaðurinn kom því á fram-
færi að Duran Duran'tnun ekki
halda neina hljómleika á þessu
ári.
Því miður krakkar.
Guðrún hringdi:
I framhaldi af grein sem birt-
ist i Morgunblaðinu sl. föstudag
undir yfirskriftinni „Er réttar-
far á Islandi sýndarmennska?"
langar mig til að spyrja þá sem
ábyrgð bera á nefndri grein,
samtökin Lögvernd, að dálitlu.
Hvaða samtök eru þetta eig-
inlega? Hvar er hægt að ná sam-
bandi við félagsmenn og hvernig
stendur á þvi að samtökin eru
svo illa kynnt almenningi?
Veit ég að þessar spurningar
brenna á vörum margra og
vænti ég því svara.
(Aths.: grein um samtökin
birtist i blaðinu sl. föstudag.)
Hvorki
sundlaug né
félagsmiðstöð
Tvter úr Seljahverfinu hringdu:
Okkur langar til að benda
Æskulýðsráði á að sama sem
ekkert er gert fyrir unglinga í
Seljahverfinu, þar er hvorki fé-
lagsmiðstöð né sundlaug. Næsta
félagsmiðstöð er lengst niðri í
Fellum og sundlaug er enn
lengra í burtu. Er nú ekki hægt
að gera eitthvað fyrir okkur, á
Ári æskunnar?
Afþakkið
styrkinn
B.I. hringdi:
Bílastyrkir til bankastjóranna
eru hið versta mál. Ef banka-
stjórarnir okkar eru heiðarlegir
menn þá leysa þeir þetta mál
einfaldlega sjálfir og afþakka
þessar greiðslur líkt og aðrir,
sem eru undir sama hatti, ættu
að gera.
Slíkt sýndi gott fordæmi og
myndi útkljá þetta kjánalega
mál.
Tónlist úr
tölvum
Einn úr Vesturbænum hringdi:
Mig langar að spyrja forráða-
menn rásar 2 að því hvort að
ekki sé hægt að hafa einn þátt í
viku á rás 2 með tölvutónlist?
Mætti heyrast meira með
hljómsveitum sem flytja þannig
tónlist sérstaklega þá Depeche
Mode.
Ekki eru menn á eitt sáttir um það hvaða tegundir hjólbarða reynast best í snjó.
Nagladekk engin bót
Lárus skrifar:
Ég get ekki lengur orða bundist
yfir þessu nagladekkjafargani á
götum borgarinnar. Núna hafa
borgarstarfsmenn fundið út að um
93% af bílum borgarinnar eru á
negldum dekkjum og það yfir vet-
ur sem vart stendur undir nafni.
Fyrir sjö árum eða svo bönnuðu
V-Þjóðverjar alveg notkun nagla-
dekkja og þá aðallega til að hlífa
götunum. Nú í vetur var þetta mál
tekið til umræðu aftur og prófaðar
hinar ýmsu gerðir snjóhjólbarða á
móti nagladekkjum. Útkoman var
sú að hinar nýju gerðir snjóhjól-
barða voru betri en nagladekk við
allar aðstæður nema á blautum ís.
Einnig kom í ljós að hemlunar-
vegalengdin var 20% lengri á
nagladekkjum við góðar aðstæður,
þ.e.a.s. á þurru malbiki.
Ástæðan var sögð vera sú að
hjólbarðaframleiðendur hafa
komið til móts við auknar kröfur
og hannað nýjar gerðir mynsturs
og harðara gúmmíi sem saman
hafa ofangreinda eiginleika. Eins
var þess getið að í neglda eða negl-
anlega hjólbarða væri notað
mýkra gúmmí þar sem það væri
ódýrara.
Hér með geri ég það að tillögu
minni að borgaryfirvöld verði sér
úti um niðurstöður tilraunanna
eða láti framkvæma slíka könnun
hér við hinar margrómuðu séris-
lensku aðstæður. Þá mætti
Hvað varð
Inga Ingimarsdóttir, Njarðvíkum,
skrifar:
Mig fýsir að vita hvað orðið hef-
ur um verslunina Dúllu sem var til
húsa að Snorrabraut 22 í Reykja-
vík og verslaði með notuð barna-
föt.
Þannig var að 10. febrúar 1984
fór ég með 96 barnaflíkur til eig-
anda verslunarinnar. Áður hafði
ég séð auglýst að hún keypti notuð
barnaföt en þegar ég kom sagði
hún mér að búið væri að breyta
fyrirkomulaginu og nú seldi hún
einungis fötin fyrir fólk í um-
boðssölu. Gott og vel, ég afhenti
henni flikurnar, hún skrifaði allt
niður á blað og kvaðst ætla að
hafa við mig samband þegar búið
væri að selja allt saman, það
kannski sannfæra bílaeigendur og
tryggingarfélög um að nagladekk
eru engin bót allavega ekki ef mið-
að er við aðrar gerðir snjóhjól-
barða.
um Dúllu?
myndi taka um 3—4 vikur.
Eftir þrjá mánuði hafði ég ekki
enn heyrt frá henni svo ég hringdi
í hana til að leita frétta af fatnað-
inum. Þá sagði hún að ennþá væri
þó nokkuð eftir að selja og bað
mig að hringja seinna. Svona hef-
ur þetta gengið lengi vel, ég hringi
og hún með sömu svörin, þ.e. að
ekki sé allt selt.
Um daginn gafst ég upp og dreif
mig sjálf á staðinn. En viti menn,
verslunin er þá hætt og horfin
sporlaust. Ég hef ekki enn getað
haft upp á eigandanum og bið ég
konuna því að láta frá sér heyra,
því margt af fötunum var ónotað
og varla trúi ég því að hún sé svo
óheiðarleg að ætla að stinga öllu I
eigin vasa.
Úterukomnar
bækumar
HANDBÓK UM SÖLUSKATT
2. ÚTG. (VERÐ 400 KR.)
ÚRSKURÐIR
KVEÐNIR UPP AF RÍKISSKATTANEFND
Á ÁRUNUM 1981-82, ÚRTAK (VERÐ 350
KR.)
Bækurnar eru til sölu í Bókabúö Lárusar Blönd-
al, Skólavöröustíg 2, 101 Reykjavík, sími 15650.
Verö bókanna er meö söluskatti.
Fjármálaráöuneytiö, 12. apríl 1985.
Bladburöarfólk
óskast!
Austurbær:
Óöinsgata
Meöalholt
Sóleyjargata
FLEIRI HESTÖFL
FRITT
meö
Kynniö ykkur kosti Vc. 17 m antifozzing botnmálningar
sem gefur 25% minna viönám botnsins meö tilsvarandi
hraöaaukningu eöa minni orkuneyslu sem skapast af
þessu rennislétta yfirboröi.
Eyfjörö Ak.,
Véltak hf.,
Ellingsen Rvík.
Utsölustaðir