Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 1
96SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
84. tbl. 72. árg.
Þingmaður
þakinn
skynjurum
Ksnavcrilhörda, 13. apríl. AP.
FERÐ geimferjunnar Discovery
gengur að óskum og aðeins rúmri
klukkustund eftir Dugtak frá Flórída
í gær komu geimfararnir kanadísk-
um fjarskiptahnetti á braut. Tókst
það eins og bezt verður á kosið. Upp
úr hádegi í dag, laugardag, var ætl-
unin að koma öðrum hnetti á braut.
Ferð Discovery vekur helzt eftir-
tekt að þessu sinni sakir þess að
um borð er ðldungadeildarþing-
maðurinn Jack Garn. Urmull
skynjara og rafskauta var festur á
líkama hans skömmu fyrir flugtak
til að fylgjast með meltingarstarf-
semi hans og líkamsstarfsemi að
öðru leyti. Tilgangurinn er að öð-
last meiri þekkingu á því hvernig
mannslíkaminn aðlagast þyngd-
arleysi.
Discovery lendir væntanlega á
Flórída næstkomandi miðvikudag.
Bólusótt í
140 ára
gömlu líki?
Lundúnum, 13. aprfl. AP.
UPPGRÖFTUR fornleifafræðinga
á kirkjulóð í Lundúnum hefur ver-
ið stöðvaður af heilbrigðisyfirvöld-
um eftir að 140 ára gamlar Ifk-
amsleifar manns fundust óvenju-
lega vel varðveittar. Telja sérfræð-
ingar að maðurinn hafi dáið úr
bólusótt og vírusinn kunni enn að
vera virkur.
Kirkjugarður þessi var notað-
ur á síðustu öld til að jarðsetja
fórnarlömb bólusóttarinnar, en
slæmur faraldur gekk þá yfir og
margir dóu. Víst er talið að
maðurinn sem leifar hafa fund-
ist af, hafi dáið úr bólusótt og
sýni hafa verið tekin til rann-
sóknar og uppgreftri frestað
meðan unnið er úr þeim. Sér-
fræðingar telja að vísu að lík-
urnar á því að vírusinn sé enn
virkur séu minni en að líkurnar
á hann sé löngu óvirkur, það sé
hins vegar rétt að storka ekki
örlögunum og rannsaka málið
áður en lengra er haldið
Fariö að halla
undan fæti
hjá Neves
Sto Piulo. Brasilíu. 13. upril. AP.
HEIL.SU Tancredo Neves, kjörnins
forseta Brasilíu, hrakaði rétt einu
sinni síðla fostudags og á laugardag,
og óttuðust læknar um líf hans. Nev-
es, sem veiktist hastarlega fyrir fjór-
um vikum, örfáum klukkustundum
áður en hann átti að sverja forsetaeið-
inn, gekkst á föstudag undir sjöunda
uppskurðinn á umræddum tíma.
Hann hefur verið með miklar innvort-
is blæðingar og sýkingar.
Antonio Britto, talsmaður for-
setaembættisins, sagði gegnumlýs-
ingar sýna „slæma hrörnun" í lung-
um og nýrum Neves og vél sæi nú
um að sía blóð hans þar eð nýrun
væru orðin ófær um það. Britto
sagði: „Það er alltaf von meðan líf
er enn að finna, en það er ástæðu-
laust að stinga staðreyndunum
undir stól.“
SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
Prentsmiðja Morgunblaðsins
20 fórust í spreng-
ingu á krá í Madrid
Grunur beinist að hryðjuverkamönnum
Mmdrid, 13. aprfl. AP.
SÍDUSTU fregnir herma að 20
manns hafi látist og 79 særst í mik-
illi sprengingu sem varð á föstu-
dagskvöldið í veitingahúsinu El
Dcscanso skammt fyrir utan Mad-
rid. Veitingasalurinn var á jarðhæð í
þriggja hæða húsi og hrundi húsið að
mestu. 150 manns voru í veitinga-
húsinu, þar á meðal 25 Bandaríkja-
menn, en þarna skammt frá er
bandari.sk herstöð. Spænska lögregl-
an telur trúlegt að sprengju hafi ver-
ið komið fyrir í húsinu og hryðju-
verkinu beint gegn Bandaríkja-
mönnunum sem yfirleitt eru þó
miklu fjölmennari í veitingahúsinu.
Rannsókn hefur leitt f ljós, að
gasleki olli ekki sprengingunni,
hún varð ekki út frá rafmagni né
vegna bilaðrar olíukyndingar. Á
hinn bóginn hafa fundist brot sem
talin eru geta verið úr bhutan-
gaskútum og byggir lögreglan
sprengjukenningu sína fyrst og
fremst á því. Bandarísk kona, sem
sat að snæðingi í húsinu en slapp
með skrekk og skrámur, lýsti at-
burðinum á þann veg, að gífurleg-
ur hvellur hefði skyndilega heyrst,
síðan hefði þakið hrunið yfir and-
dyrið og hálfan matsalinn. „Ég
hélt að þetta hefði verið sprengja,
eða þá að flugvél hefði hrapað
ofan á húsið.”
Þeir sem létust eða særðust
voru flestir í þeim hluta hússins
sem konan sagði að hrunið hefði
yfir. Lögreglan leitar enn í rústun-
um og óttast er að ekki séu öll kurl
komin til grafar. Lögreglunni
barst í dag símtal frá áður óþekkt-
um hryðjuverkasamtökum baska
sem lýstu ábyrgð á hendur sér.
Taldi lögreglan ekki ástæðu til að
taka mark á því, hins vegar sé
ekki óliklegt að ETA eða einhver
önnur baskasamtök hafi staðið að
sprengingunni, eða jafnvel erlend
hryðjuverkasamtök.
Miðaldur Bandaríkja-
manna hækkar stöðugt
Winkinrton. 13. nprn. AP. O
Waflhington, 13. nprn. AP.
MIÐALDUR Bandaríkjamanna er nú kominn í 31,2 ár og hækkar óðum.
Segir manntalsskrifstofa landsins að Bandaríkin séu á góðri leið með að
verða gamalmennaþjóðfélag.
Með miðaldri er átt við að
jafnmargir séu fyrir neðan þann
aldur og ofan, þ.e. helmingur
Bandaríkjamanna sé eldri en
31,2 ár og helmingur yngri. Þetta
miðgildi var 31,2 ár 1. júlí sl. en
var 30,9 árið áður.
Að sögn manntalsstofunnar
mun miðaldur Bandaríkjamanna
halda áfram að hækka. Orsakast
það m.a. af því að börn eftir-
stríðsáranna eru nú að komast á
miðjan aldur. Fæðingum fjölg-
aði gífurlega eftir stríð. Einnig
hafa framfarir heilbrigðisþjón-
ustu valdið því að mikill fjöldi
aldraðra nær hárri elli.
Miðaldurinn hefur hækkað
árlega frá 1971 úr 27,9 árum í
31,2 ár. Búist er við að hann
verði 33 ár 1990 og 39,3 ár 2020.
Milli áranna 1980 og 1984 fjölg-
aði Bandaríkjamönnum um 4,2%
en miðaldra og öldruðum fjölg-
aði miklu meir. Þeir sem eru
35—44 ára fjölgaði um 19,5% og
85 ára og eldri fjölgaði um
19,4%. Hvort tveggja sýnir hvert
stefnir, og einnig það að 14—17
ára Bandaríkjamönnum fækkaði
um 9,5% á sama tima og 5—13
ára um 3,2%.
Miðaldur bandarísku þjóðar-
innar fór í 30,2 ár 1950 vegna
hlutfallslega fárra fæðinga á
kreppu- og striðsárunum, en
hafði fallið niður í 27,9 ár 1967
vegna gífurlegra barneigna eftir
stríð.
Samtals voru Bandaríkjamenn
236.681.000 talsins 1. júlí og
hafði fjölgað um 9,6 milljónir frá
1980.