Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
29
hentar vel að styðjast við hljóðf-
æri, þrátt fyrir góða svokallaða
innri heyrn. Píanóið er einkum
notað í þessu skyni, en ég hef aldr-
ei lært á píanó og finnst það vera
mér frekar til trafala en hitt.“
— Nauðsynlegt að heyra fyrir
sér það sem skrifað er, segirðu.
Eyrað er þá hinn æðsti dómari,
ofar ströngum lögmálum tónlist-
arinnar og skilyrði þess að tón-
verk geti orðið listaverk. Með
þetta í huga væri gaman að heyra
hvað þú hefur að segja um nú-
tímatónlist almennt, en það orð er
nánast skammaryrði í eyrum al-
mennings. Þykir bera vott um að
tónskáldin geri sér annað hvort
enga grein fyrir því hvers konar
músík þau eru að semja eða hafi
einfaldlega svona hrikalega slæm-
an smekk. Hvað segirðu um þetta?
Fyrst vil ég leggja áherslu á
einfaldan hlut sem mönnum
hættir til að sjást yfir þegar ný og
gömul tónlist er borin saman. Þeg-
ar menn heyra nýja tónlist eru
þeir ekki að hlusta á úrval, það
besta sem nútíminn býður upp á.
Tíminn á eftir að velja og hafna og
ákveða hvað lifir. Mjög hátt hlut-
fall af þeirri músík sem er ný í dag
kemur ekki til með að heyrast í
framtíðinni. Og þannig hefur það
alltaf verið. Sú gamla tónlist ser .
orðið hefur ódauðleg og heyrist
enn þann dag í dag, er á hinn bóg-
inn aðeins lítið brot, það besta, af
því sem samið var á undangengn-
um öldum.
Einnig hefur mér virst að í hug-
um margra, sem ekki hafa kynnt
sér málið sérstaklega, eigi orðið
„nútímatónlist" tæplega við um þá
tónlist sem samin hefur verið á
undanförnum 10 til 15 árum, held-
ur frekar tónlist sem var samin
um og upp úr stríði, og fram á
sjöunda áratuginn. Þá var óvenju
mikið um djarfar tilraunir í mús-
ík, sem skoða þarf í réttu félags-
legu samhengi. Kannski bölvar
fólk nútímatónlist fyrst og fremst
vegna þess að það er að leita að
hlutum sem það er vant að finna í
eldri tónlist. Það nær til dæmis
ekki fótfestu í verki sem samið er
með raðtækni af þvi að það vantar
í það tónræna þungamiðju og lag-
línu í hefðbundnum skilningi.
Raðtækni, eða seríalismi, var mik-
ið notuð tækni við tónsmíðar á ár-
unum frá 1920 til 1950 og felst
meðal annars í því að endurtaka
aldrei tón fyrr en búið er að leika
alla aðra tóna í tónaröðinni. Sjón-
armiðið var að allir tónar væru
jafn réttháir.
Annars held ég því fram að
straumar í tónsmíðum séu mikið
að breytast, við erum að sigla inn
í nokkurs konar nýrómantískt
tímabil. Þess gætir reyndar líka í
öðrum listgreinum, eins og við sjá-
um til dæmis á nýja málverkinu."
— Merkirðu þessa breytingu
hjá íslenskum tónskáldum?
„Tvímælalaust. Hins vegar er
ekki alveg víst að almenningur
taki svo mikið eftir breytingunni
— það er að segja sá hluti fólks
sem hlustar aðallega á tónlist í
útvarpi, sem er mikill meirihluti
— því Ríkisútvarpið hefur staðið
sig illa hvað varðar kynningu á
nýrri íslenskri tónlist, og reyndar
nýrri tónlist almennt. Otvarpið
leikur mest klassíska og rómant-
íska músík, eitthvað af nýklassík
líka, en ný tónlist heyrist sáralít-
ið. Og þegar hún heyrist er henni
yfirleitt skipað á afmarkaðan bás
sem sérfyrirbæri, og er oftast
ókynnt að auki. Aðsókn að tónleik-
um hér í bænum sýnir hins vegar
að það er stór hópur fólks sem
fylgist af áhuga með hræringum í
íslenskri tónlist í dag.“
— Hvernig lítur þú á þig sem
tónskáld? Er hægt að skipa þér á
bás?
„ájálfsagt er það hægt, en það
verða aðrir að gera en ég. Hins
vegar held ég að það sé algild
regla hvað varðar stíl, að ef lista-
maðurinn er einlægur í því sem
hann er að gera hljóti persóna
hans og umhverfi að endurspegl-
ast að verulegu leyti í verkum
hans.“
MorgunblaðiA/ól.K.H.
Áskell með dóttur sinni Margréti, sem er tæplega fimm
mánaða gömul.
— En þessi nánu kynni þín af
ásláttarhljóðfærum, hafa þau ekki
haft mótandi áhrifa á tónsmíðar
þínar, hvers konar músík þú sem-
ur og fyrir hvaða hljóðfæri?
Vissuiega hef ég skrifað tölvert
fyrir slagverk, og þau verk eru
mikilvæg meðal þess sem ég hef
samið. En ég hef ekkert síður
skrifað fyrir önnur hljóðfæri eða
hljóðfærahópa, og stærstu verk
mín eru til að mynda hljómsveit-
arverkin."
— Áttu þér eftirlætishljóðfæri?
„Ég held mest upp á það hljóð-
færi sem ég er að skrifa fyrir þá
stundina.“
— Víkjum að öðru Áskeli, hvers
vegna tókstu þá ákvörðun að
leggja hljóðfæraleik á hilluna?
„Eg gerði mér einfaldlega grein
fyrir því að ég hafði mestan áhuga
á því að skrifa, og raunar fannst
mér að það væri það sem ég ætti
að gera. En fleira kom til. Ég var á
tímabili síspilandi á slagverks-
hljóðfæri frá ýmsum þjóðlöndum
sem ekki hentuðu í þeirri tónlist
sem ég hafði mestan áhuga á. Sem
handtrommuleikari stóð mér
raunar ekki annað til boða en
spila rytmíska músík — sem ég
hefði prófað í popp- og djass-
hljómsveitum og líkaði ekki nógu
vel. Kjarni málsins er sá að hand-
trommur eru afskaplega lítið not-
aðar í alvarlegri tónlist, þær hafa
orðið útundan, kannski fyrst og
fremst vegna þess að það er ekki
til handtromma sem er beinlínis
hönnuð samkvæmt vestrænni
tónhugsun. Ég fann sárlega fyrir
þessari vöntun, og ákvað fyrir
nokkrum árum að reyna að hanna
hljóðfæri, sem gæti fyllt þessa
eyðu, og nú liggja þessar teikn-
ingar mínar fyrir hjá hljóðfæra-
framleiðanda í Bandaríkjunum til
umsagnar."
— Hvers konar hljóðfæri er
þetta?
Istuttu máli er þetta hljóðfæri
sem hefur nokkuð vítt tónsvið,
tvær og hálfa áttund, og býður
upp á mikla möguleika hvað varð-
ar styrk og blæbrigði i tón. Þetta
eru fjórar misstórar trommur úr
fægðum kopar, sem sitja í grind
úr þykkum viði, krómuðu stáli og
jarni. Hver tromma er tiltölulega
víður belgur sem kemur saman í
stút eða háls neðarlega og endar í
lúðurlaga bjöllu. Hljóðfærið er
fyrst og fremst miðað við að leikið
sé á það með höndum og fingrum,
en einnig má leika á það með ýmis
konar sleglum. Á því eru pedalar,
svipað og á pákum og er því hægt
að leika á það ýmis konar laglínur,
mjög skýrt, vegna stærðar tromm-
anna og lögunar.“
— Ég tók eftir því áðan Áskell,
að þú talaðir um alvarlega tónlist
og þá væntanlega til aðgreiningar
frá svokallaðri léttri tónlist' eða
jafnvel léttvægri. Á þessi aðgrein-
ing rétt á sér?
„Því ekki það. Það er til tónlist
af öllu mögulegu tagi, sem gegnir
ólíku hlutverki. Það er ballmúsík
til að dansa eftir, bakgrunnsmúsík
til að tala yfir, borðmúsík til að
hlusta á yfir borðum og svo fram-
vegis. Handel samdi dæmigerða
tækifæris- og afþreyingarmúsík,
sem var meðal annars leikin í hlé-
um við flutning á óratóríum hans
og óperum. Og Telemann samdi
beinlínis músík sem hann ætlaðist
til að yrði leikin undir borðum.
Þessi músík á að sjálfsögðu rétt á
sér, hún hefur hlutverki að gegna,
og það sama gildir um afþrey-
ingarmúsík nútímans, þrátt fyrir
að þar ráði reyndar markaðslög-
málin oft orðið svo miklu að mús-
íkin er fjöldaframleidd, ekki á
ósvipaðan hátt og dósir í verk-
smiðju. En þessi músík er ekki
tón—list, með áherslu á orðið
„list“. Alvarleg tónlist gegnir ekki
slíku hlutverki. Ef hún stendur
undir nafni megnar hún hins veg-
ar, á sama hátt og önnur listaverk,
að dýpka og fegra mannsandann."
Þegar hér er komið sögu er sú
litla farin að ókyrrast, „líklega
bæði orðin blaut og svöng,“ segir
Áskell, svo við ákveðum að setja
punktinn aftan við viðtalið hér.
En þess má að lokum geta að í maí
nk. munu gítarleikarinn Josef
Fung og slagverksleikarinn Roger
Carlsson frumflytja nýtt verk eft-
ir Áskel, Duo, auk þess sem Roger
Carlsson mun, ásamt Sinfóníu-
hljómsveit íslands, flytja konsert-
þátt fyrir litla trommu og
hljómsveit, en það verk er nú með-
al kennsluefnis í slagverksdeildum
akademíanna í Kaupmannahöfn
og Malmö, auk þess sem samn-
ingaviðræður eru nú á lokastigi
varðandi útgáfu þess á hljóm
plötu. Einnig stendur fyrir dyrum
útgáfa á prenti af sex tónverkum
Áskels hjá bandaríska útgáfufyr-
irtækinu Cortelu.
GPA
HASKOLAMENNTAÐIR
RÍKISST ARFSMENN í BHMR
Félagsmenn HÍK hafa staöiö i fjárfrekri baráttu fyrir hönd
okkar allra.
Okkur ber skylda til aö standa viö bakið á þeim.
Fjárþörfin er mikil og þvi brýnt aö allir leggi umtalsvert
framlag i vinnudeilusjóö BHMR nú þegar.
Ávisanareikningur vinnudeilusjóös BHMR er
nr. 21 21 22
viö Alþýöubankann, Suöurlandsbraut.
Ef greitt er meö giró er stofnnúmer 815 og höfuö-
bókarnúmer 25.
Stjórn vinnudeilusjóós BHMR.
VHSl -klipping
fyrir þig
Klipptu og settu saman efni á VHS-kassettunum
þínum aö eigin vild. Hreinsaöu stubba af mörgum
kassettum yfir á eina, settu saman eigin dagskrá
úr efni sem þú hefur tekið upp. Fjölfaldaöu efni
sem þú vilt gefa kunningjunum. Leigjum út full-
komnustu klippi- og yfirfærslutæki sem til eru á
markaönum fyrir VHS-kassettur. Viö klippum fyrir
þig eöa þú getur klippt sjálfur meö eöa án ieiö-
beinanda. Ef þú óskar þess frekar klippum viö eftir
þinni uppskrift án þess þú þurfir aö vera viöstadd-
ur- Upplýsingar í síma 28810 eöa 45387.
ARGUSCO
Fiöður
þjóðarinnar
Markmiðið með sölu á rauðu fjöðrinni
er söfnun fyrir LÍNUHRAÐLI, tæki sem
bjargar mannslífum.
Sameinumst öll í þessu þjóðarátaki.
12.-14. APRÍL1985
LANDSSÖFNUN
UONS