Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 14.04.1985, Blaðsíða 58
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 Maríanna Friðjónsdóttir, dagskrárgeröar- maöur hjá Sjónvarpinu og staögengili Jóns Baldvins Hannibalssonar á Alþingi í tæpar tvær vikur, tók vel í viötal, þegar hún var spurö, en öllu verr gekk aö finna tíma til þess. Þaö tókst þó í 6. lotu. Maríanna er fædd á Siglufiröi, bjó á Akur- eyri til 9 ára aldurs og síöan hefur hún búiö í Reykjavík. Hún fór í Kvennó, eins og aörar duglegar stelpur, eignaöist barn síö- asta veturinn þar, byrjaöi stuttu seinna hjá sjónvarpinu, þar sem hún hefur unniö helming ævi sinnar. Hún var laus og liöug í áratug, en fann þá manninn í lífi sínu ... og gifti sig 1981. Nú eru karlmennirnir í lífi Maríönnu orönir 4, enda er hún í tveggja ára leyfi frá sjónvarpinu og heimavinnandi húsmóðir í fyrsta sinn. í síðustu kosning- um var Maríanna 4. maður á lista Alþýöu- flokksins í Reykjavík, er því 2. varamaöur flokksins. Við spjölluðum saraan á laugar- dagseftirmiðdegi meðan sá ný- fæddi fékk brjóstið og sá næst- yngsti, sem er 1 og hálfs árs, tæmdi sykurkarið og drakk úr öll- um kaffibollum, sem hann náði í. — hann hefur alltaf verið svona, sagði Maríanna, alveg ótrúlega fjörugur. Þessi er aftur á móti svo afslappaður, og átti við þann yngsta. Unglingurinn á heimilinu lagaði kaffi og heimilisfaðirinn var í vinnunni. Maríanna leit mjög vel út og erfitt að sjá, að hún hafi staðið í barneignum síðustu tvö árin. Við byrjuðum á stjórnmála- starfinu. — Mér hefur fundist mjög lærdómsríkt að sitja á þingi og það hefur líka veitt mér tækifæri á að ýta einhverjum málum af stað. Eg reiknaði í sjálfu sér ekki með þeim möguleika, að ég yrði kölluð inn sem varamaður, þannig að það kom mér á óvart þegar Jón Baldvin hringdi og sagði að ég þyrfti að koma inn, en ég hefði vilja fá lengri fyrirvara. Hinsveg- ar gaf ég kost á mér á sínum tíma og því fylgir auðvitað sú ábyrgð að hlýða kallinu, þegar að kemur. Maríanna hefur þegar borið fram 2 þingsályktunartillögur, önnur er um gildi heimilisstarfa og hin um niðurfellingu söluskatts á auglýs- ingatekjum sjónvarpsins. Ég vona svo sannarlega, að þessar tillögur mínar verði samþykktar, segir Maríanna. Ég spyr Maríönnu um dagskrár- gerðarmanns hjá sjónvarpinu. — Þetta er margþætt vinna og felst helst í því að útbúa dagskrár- efni þannig að sjónvarpsáhorfend- ur eigi sem greiðastan aðgang að því. Þegar búið er að ákveða að gera þátt þá er sest niður og at- hugað hvaða áhrif hann á að hafa og hvernig best sé að meðhöndla efnið þannig að það höfði til sem flestra og oft einkum til þeirra, sem ekkert eða lítið vita um efnið. Kostnaðarhliðin er stór þáttur, líka vegna þess að úrvinnslan er háð því fjármagni, sem verja má í dagskrána. Svo þegar áætlun ligg- ur fyrir, þá er þetta samvinna margra aðila. Kemur þú með tillögur? — Já, það kemur fyrir. Annars koma tillögur um dagskrárgerð víða að. Deildarstjóri kemur með tillögur, eins útvarpsráðs svo og alls konar fólk úti í þjóðfélaginu. En það er ekki ráðist í gerð dag- skrár án samþykkis útvarpsráðs. Stefna sjónvarpsins er að hafa sem fjölbreyttasta dagskrá, en það reynist auðvitað erfitt, ef fjár- magnið skortir. Dagskrárgerð hjá sjónvarpinu er mjög flókin og tímafrek vinna og flóknari en menn gera sér almennt grein fyrir. Og ekkert „sólóspil", heldur hópvinna. Verkefni eru auðvitað misskemmtileg, skemmtilegast hefur mér þótt að fjalla um heil- brigðismál. Ég hef alltaf verið með nokkurs konar heilbrigðis- dellu. Af hverju? — Ég hef ekki hugmynd um það. Stóðum á tímamótum, ég og mamma Það var af hreinni tilvilviljun að Maríanna byrjaði að vinna hjá sjónvarpinu. Síðasta veturinn sem hún var í skóla eignaðist hún strák og tók sér frí um sumarið til þess að sjá um hann og reyndi þá jafnframt að gera það upp við sig, hvað hún ætlaði að gera í framtíð- inni. — Mig hafði lengi langaö í læknisfræði, en hafði því miður ekki efni á því að halda áfram námi. Mamma skildi þegar ég var 14 ára og fjárhagur heimilisins var ekki upp á það besta. Svo einn daginn þegar við vorum í strætó, ég og mamma, heyrði ég auglýst eftir skriftu hjá sjónvarpinu. Ég sagði mömmu að þetta starf ætl- aði ég að sækja um. Við stóðum þá báðar á tímamótum í lífi okkar. Mamma var nýbúin að sækja um inngöngu í nám, sem hana hafði lengi langað í og ekki gátum við báðar farið í nám þennan vetur- inn. Nokkru seinna fékk ég að vita að ég hefði verið ráðin hjá sjón- varpinu og sama dag var mömmu tilkynnt, að hún hefði komist í skólann. Þeim degi gleymi ég aldr- ei. Annars botnaði ég aldrei í því af hverju ég var ráðin, ekki nema 16 ára unglingur. En kvennaskóla- stelpur voru eftirsóttur vinnu- kraftur þá, vissirðu það" Ætli ég væri ekki enn ritari í einhverrt stofnuninni ef ég hefði ekki fengið þessa vinnu hjá sjónvarpinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.