Morgunblaðið - 14.04.1985, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
Útgerðarfélag Skagfirðinga:
Tap síðasta árs
12 milljónir króna
— aflaaukning 31 % frá árinu áður
SauAárkróki, 12. aprfl.
AÐALFUNDUR Útgeröarfélags Skagfirðinga hf. var haldinn 10. aprfl sídast-
liðinn. Á fundinum kom fram að rekstrartekjur félagsins árið 1984 voru
133,9 milljónir króna, sem er 61 % aukning frá fyrra ári. Rekstrargjöld námu
145,4 milljónum króna, þar af eru afskriftir 22,9 milljónir. Tap félagsins nam
12,1 milljón króna.
Félagið á þrjá togara, Drang-
ey, Hegranes og Skafta. Heildar-
afli þeirra í fyrra var 9.122 lestir,
sem er 31% aukning frá fyrra
ári. Alls tóku 207 manns laun hjá
félaginu, samtals að upphæð 45,9
milljónir króna. Eignir félagsins
samkvæmt efnahagsreikningum
eru að verðmæti 123,9 milljónir
króna. Matsverð skipa ÚS er
189,1 milljón umfram bókfært
Iðnaðarráðherra:
Úttekt á rekstrar-
möguleikum Sjó-
efnavinnslunnar
verð þeirra. Heildarskuldir voru
179,8 milljónir króna.
Aðalhluthafar í ÚS eru Sauð-
arkrókskaupstaður, hraðfrysti-
húsin á Sauðárkróki og Hofsósi,
Kaupfélag Skagfirðinga og
margir einstaklingar. Fram-
kvæmdastjóri félagsins er Bjarki
Tryggvason. Formaður stjórnar
er Marteinn Friðriksson og aðrir
í stjórn Árni Guðmundsson, Gísli
Kristjánsson, Þorbjörn Árnason
og Þórður Þórðarson.
Kári
Morgunblaðið/E.G.
ByrjaÖ á þaki nýju flugstöðvarinnar
Það var síðdegis á fimmtudag sem byrjaö var að reisa þak á vesturhluta nýju flugstöðvarinnar á Keflavíkur-
flugvelli. Meðfylgjandi mynd sýnir fyrstu sperruna sem reist var.
Fjárhagsáætlun Siglufjarðar:
SVERKIR Hermannsson, iðnaðarráð-
herra, hefur falið dr. Sigmundi Guð-
bjarnasyni, verðandi háskólarektor,
að gera úttekt á rekstri og vinnslu-
möguleikum Sjóefnavinnslunnar á
Suðurnesjum. Þessar upplýsingar
komu m.a. fram í fyrirspurnatíma ráð-
herra á landsfundi Sjálfstæðisflokks-
ins í fyrrakvöld.
Dr. Sigmundur Guðbjarnason
sagði í samtali við Morgunblaðið að
unnið væri nú að tillögum um
hvernig að verkinu skuli staðið og
myndi hann væntanlega leggja þær
tillögur fyrir iðnaðarráðherra í
næstu viku. Dr. Sigmundur sagði að
gert væri ráð fyrir að úttekt á
rekstrarmöguleikum fyrirtækisins
lægi fyrir með haustinu þannig að
við gerð fjárlaga liggi fyrir hvort
unnt sé að halda rekstrinum áfram.
Málið væri hins vegar enn á undir-
búningsstigi og því ekki unnt að
greina frá þeim áætlunum um
vinnutilhögun, sem verið væri að
vinna að nú.
^NNLENT
Lögð fram af Sjálfstæðis-
flokki og Alþýðuflokki
— Fulltrúi Framsóknarflokkins telur Alþýðuflokkinn þar með hafa slitið
meirihlutasamstarfi Framsóknar-, Alþýðuflokks og Alþýðubandalags
Brestur er nú kominn í samstarf
meirihluta bæjarstjórnar Siglufjarð-
ar í kjölfar framlagningar fjárhags-
áætlunar. Meirihlutann mynda
fimm fulltrúar Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og Framsóknarflokks,
gegn fjórum fulltrúum Sjálfstæðis-
flokks, en á síðasta fundi bæjar-
stjórnar lögðu fulltrúar Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks með fulltingi
Alþýðubandalagsins fram fjárhags-
áætlun næsta árs. Bogi Sigurbjörns-
son, forseti bæjarstjórnar og fulltrúi
Framsóknarflokksins, telur að með
þessu hafi Alþýðuflokkurinn tekið
sig út úr samstarfinu. Björn Jónas-
son, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
telur Framsóknarmenn hafa vikizt
undan samstarflnu, en Jón Dýrfjörð
fulltrúi Alþýðuflokksins, vill ekki tjá
sig um stöðu mála.
Bogi Sigurbjörnsson sagði í
samtali við Morgunblaðið, að þeg-
ar bæjarfulltrúi Alþýðuflokksins í
bæjarráði legði fram fjárhags-
áætlun með bæjarráðsmanni
minnihlutaflokksins, væri kominn
brestur í samstarfið. Hann hefði
ekki orðið var við nein formleg slit
samstarfsins, fyrr en þetta, þó
misvel hefði gengið. Það væri ekki
hægt að líta á þetta öðruvísi en
formleg slit samstarfsins. Meiri-
hlutaflokkarnir hefðu ekki rætt
saman síðan þetta hefði komið
fram síðastliðinn miðvikudag,
þannig að ekki væri hægt að tjá
sig um framhald og framtíð sam-
starfsins þrátt fyrir þetta.
Bogi sagði, að framsóknarmenn
hefðu getað sætt sig við áætlunina
með vissum breytingum, sem þeir
hefðu flutt tillögur um, en ekki
verið ræddar enn. Þær væru ekki
til hækkunar og bæru engan keim
af því, að kosningar væru á næsta
ári.
Björn Jónasson sagði i samtali
við Morgunblaðið, að hann liti svo
á, að framsóknarmenn hefðu
hlaupizt undan merkjum. Þau
framfaramál, sem unnin hefðu
verið í Siglufirði á þessu kjörtíma-
bili, hefðu verið byggð á tillögum
sjálfstæðismanna, því þeir hefðu
alltaf fengið einhvern hinna með
sér. Það væri því ekkert nýtt að
sjálfstæðismenn hefðu gripið í
taumana, þar sem meirihlutinn
væri nánast óstarfhæfur vegna
sundrungar og samstöðuleysis. Nú
hefði fjárhagsáætlun verið lögð
fram af fulltrúa Alþýðuflokksins
og Sjálfstæðisflokksins til fyrri
umræðu með samþykki áheyrnar-
fulltrúa Alþýðubandalagsins í
bæjarráði. Þau eindæmi hefðu síð-
an gerzt, að einn meirihlutaflokk-
urinn og forseti bæjarstjórnar
legðu fram á sama fundi breyt-
ingartillögur við fjárhagsáætlun-
ina. Slíkt væri ekki samkvæmt
venjubundnum starfsháttum.
Jón Dýrfjörð, bæjarfulltrúi Al-
þýðuflokksins, sagði að hann teldi
Alþýðuflokkinn ekki hafa slitið
meirihlutasamstarfinu. Hins veg-
ar gæti hann sagt það, að þegar
hann teldi ástæðu til þess að bera
málefni Siglufjarðar fyrir alþjóð,
vildi hann eiga frumkvæðið að því
sjálfur. Hann léti hvorki fram-
sóknarmenn né aðra hafa áhrif
þar á.
„Yrði rothögg
fyrir hafbeitina"
— segir Gunnar Helgi Hálfdánarson um niðurskurð í Kollafirði
„EF ÞAÐ verður regla að skera
allt niður þegar sjúkdómar koma
upp í stöðvunum, og niðurskurður í
Kollaflrði verður fordsmi í því
efni, minnka stórlega líkurnar á að
uppbygging verði í flskeldinu hér i
landi. Slíkan niðurskurð þolir eng-
in stöð, þetta yrði rothögg fyrir haf-
beitina og eins gott að hstta
strax,“ sagði Gunnar Helgi Hálf-
dánarson, framkvsmdastjóri Fjár-
festingarfélags íslands, í samtali
við Mbl. um aðgerðir gegn nýrna-
veikinni í Kollaflrði, en Fjárfest-
ingarfélagið er aðili að hafbeitar-
stöð í Vogum á Vatnsleysuströnd.
Stjórn Landssambands fisk-
eldis- og hafbeitarstöðva gekk á
fund landbúnaðarráðherra fyrir
skömmu og mælti með niður-
skurði í Kollafirði. „Mér er
ómögulegt að skilja að þessi
samtök mæli með svona aðgerð-
um, það er eins og þessir menn
ætli að gera út á ríkisjötuna en
ekki eigin tekjur," sagði Gunnar.
„Eftir að hafa rætt þessi mál við
erlenda sérfræðinga erum við
alls ekki hræddir við þennan
sjúkdóm. Við vorum reyndar til-
búnir til að kaupa 40 þúsund
seiði úr Kollafirði en fengum
ekki leyfi til þess,“ sagði Gunnar
einnig.
„Sjúkdómurinn er staðreynd
og jákvætt að hann skyldi koma
upp núna. Ég tel að þetta sé
stórkostlegt tækifæri fyrir
Kollafjarðarstöðina til að rann-
saka hann, við hinir getum sinnt
hafbeitarstarfseminni á meðan.
Landbúnaðarráðherra myndi
gera landi og þjóð mikið gagn
með því að stuðla að rann-
sóknum á þvi hvort þessi sjúk-
dómur sé jafn slæmur og af er
látið og hvernig megi halda hon-
um í skefjum," sagði Gunnar
Helgi einnig.
Fundað um Rockall
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá
utanríkisráðuneytinu um sameigin-
legan fund íslendinga, Dana og Fær-
eyinga á Hatton-Rockall-svæðinu.
Dagana 10. og 11. þ.m. var hald-
inn í Kaupmannahöfn fundur um
sameiginlega hagsmuni íslend-
inga, Dana og Færeyinga á Hatt-
on-Rockall-svæðinu.
Af íslands hálfu sátu fundinn
Hans G. Andersen sendiherra,
Eyjólfur Konráð Jónsson alþingis-
maður og dr. M. Talwani ráðgjafi.
Fyrir dönsku viðræðunefndinni
voru Niels Boel yfirmaður þjóð-
réttardeildar danska utanríkis-
ráðuneytisins og Peter Brúckner
skrifstofustjóri.
Á fundinum var skipzt á skoð-
unum og upplýsingum og afstaða
landanna skýrð frekar. Sjónarmið
sem fram komu verða athuguð
nánar í höfuðborgunum tveimur.
Náið samband verður haft um
málið og viðræðum haldið áfram
síðar.
Mál þetta verður rætt í utanrík-
ismálanefnd Alþingis á morgun
þar sem Hans G. Andersen og dr.
Talwani mæta.
Samgönguráðherra:
Farsímaþjón-
ustu komið á fót
MATTHÍAS Bjarnason, samgöngu-
ráðherra, hefur falið póst- og síma-
málastofnun að koma á fót alsjálf-
virkri farsímaþjónustu. Farsíma-
þjónustan verður hluti af hinu al-
menna símakerfl og verður fyrir
bfla, báta og skip við strendur
landsins svo og sumarbústaði og
ýmsa afskekkta staði.
Stefnt er að því að þessi nýja
þjónusta hefjist um og eftir
næstu áramót og að hún muni ná
til nær alls landsins í lok 1987.
Þetta símakerfi er hið sama og
nú hefur verið í notkun um nokk-
urra ára skeið á hinum Norður-
löndunum. (Fréttalilkynning.)