Morgunblaðið - 14.04.1985, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
5
BSRB krefst afsagnar
bankaráösmanna:
„Þjóðinni
er ofboðið
STJÓRN BSRB hefur krafist þess af
Alþingi, „að þeir bankaráðsmenn,
sem að hinum siðlausu ákvörðunum
um bílakaup bankastjóra stóðu,
verði leystir frá störfum. Þá verði
einnig tafarlaust afnumin bílafríð-
indi ráðherra", eins og segir í álykt-
un sem stjórn BSRB samþykkti 11.
apríl.
í ályktuninni fordæmir stjórnin
þær ákvarðanir bankaráða ríkis-
bankanna að greiða bankastjórum
450 þúsund verðtryggðar krónur á
ári til að kaupa einkabíla — auk
þess sem þeir fá greiddan rekstr-
arkostnað bíla sinna. „Með þess-
um ákvörðunum er farið í kring-
um ályktun Alþingis 22. maí 1984
þar sem ríkisstjórninni er falið að
hlutast til um að felldar verði úr
gildi þær reglur, sem þá giltu
gagnvart yfirmönnum ríkisstofn-
ana, svo sem rikisbanka og fram-
kvæmdastjórnum, um fríðindi
hliðstæð þeim er ráðherrar hafa
notið varðandi bifreiðakaup, auk
þess sem lagabrot er framið."
Síðan er þess krafist, „með
hliðsjón af því að hinir þingkjörnu
fulltrúar í bankaráðum fara með
þá þætti í fjármálum þjóðarinnar,
sem afdrifaríkastir geta verið
fyrir afkomu þjóðarheildarinnar
og einstaklinga“, að bankaráðs-
mennirnir verði þegar í stað leyst-
ir frá störfum.
„Stjórn BSRB leggur sérstaka
áherslu á þann voða, sem í þvl
felst, að á sama tíma og þorri
launamanna berst fjárhagslega í
bökkum vegna lélegra launakjara
skammta leiðtogar þjóðarinnar í
fjármálum yfirmönnum pen-
ingamála launakjör svo langt
fyrir ofan hin almennu launakjör,
að þjóðinni er ofboðið," segir í
ályktun stjórnar BSRB.
, . >
►
Vcidar meft hundum Flugtihnýtingasamkeppnín
Lýaing á urrídasv«öíou Vcíðin srdasta stimaf
•Laxé Verdá iaxveiélleylum
Nýtttölublað
af „Á veiðum“
ÚT ER komið 1. tbl. 1985 af tímarit-
inu Á veiðum, sem fjallar um stanga-
og skotveiði.
Meðal efnis í blaðinu má nefna
samantekt um bestu veiðiárnar
síðastliðið ár. Af öðru efni blaðs-
ins má nefna grein eftir Jón
Kristjánsson fiskifræðing um
skotveiðar með hundum. Þá eru
greinar um hleðslu haglaskota og
sagt er frá veiðum fyrr á öldinni.
Fluguhnýtingaþátturinn er á sín-
um stað og lýst er nákvæmlega
hluta urriðasvæðisins í Laxá I
Þingeyjarsýslu. Sú grein er eftir
Stefán Jónsson rithöfund og fyrr-
um alþingismann. Einnig eru I
blaðinu ýmsar greinar og viðtöl
tengd stangaveiði o.fl.
BÍaðið er 64 síður og gefið út af
Frjálsu framtaki hf. Ritstjóri er
Ólafur Jóhannsson.
(Úr fréttatilkynninpi)
Aðalfundur
Vinnuveitendasambands íslands 1985
veröur haldinn þriðjudaginn 16. apríl í Súlnasal Hótel Sögu
Friðrik
Dagskrá:
Kl. 10.00 Fundarsetning. Rseöa: Páll Sigurjónsson formaöur VSÍ.
Kl. 10.40 Erindi. Einar Benediktsson, sendiherra: Tengsl utanríkisþjónustu við atvinnulífiö.
Kl. 11.00 Erindi Friörik Pálsson, framkvœmdastjóri: ísland sf.
Kl. 12.15 Hádegisveröur aöalfundarfulltrúa og gesta.
Kl. 13.30 Aöalfundarstörf skv. lögum VSÍ.
Kl. 14.30 Panelumrssöur: Nýsköpun í atvinnurekstri. Þátttakendur: Steingrímur Hermannsson,
forsætisráöherra, Þorsteinn Pálsson, form. Sjálfstæöisflokksins, Halldór Ásgrímsson,
sjávarútvegsráöherra, Sverrir Hermannsson, iönaöarráöherra. Umræöustjóri: Höröur
Sigurgestsson, forstjóri.
Kl. 16.00 Framhald aöalfundarstarfa.
Kl. 17.00 Fundarslit.
Hinn frábæri Hjálmtýr Hjálmtýsson
syngur nokkur lög.
Hársnyrtisýning undlr stjórn Heiö-
ars Jónssonar
■ Húsiö opnar kl. 19.00
■ Gestum fagnað meö Ijúffengum
fordrykk til kl. 20.00
■ Sala blngóspjalda hefst — glæsi-
legir vinningar
■ Dansflokkur frá Sóley Jóhanns-
dóttur sýnir hinn stórgóöa dans
.Svört Messa"
■ Hinir landsfrægu grinarar Viktor og
Baldur koma fram meö bráö-
skemmtilegt og létt atriöi. Sýnd
veröur nýjasta baöafatatízkan
■ Fimleikasyning í léttum dúr
■ Ungfrú og Herra Utsýn 1985. Un<-
anúrslit. Dómnefnd hefur valið
u.þ.b. 30 þátttakendur í loka-
keppnina og veröa þeir allir kynntir
á sviöinu í Broadway
■ Verölaunaafhending i skoöana-
könnun Utsýnar og í getraun um
starfsaldur Úfsynar-starfsfolks
■ Bingó — spilaöar veróa 3 umferó-
ir. Glæsllegir vinnlngar — sólar-
landaferöir meö Utsýn
í dag kl. 14 — 16 veróa aðgöngumió-
ar seldir og tekið á móti borðapönt-
unum í Broadway stmi 77500. Pantið
borð tímanlega — því alltaf ar fullt á
Útsýnarkvöldum í Broadway.
i
Feröaskrífstofan
0TSÝN