Morgunblaðið - 14.04.1985, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985
25
Norræna húsiö:
Harmóníkutónleikar
ÞAR SEM árið 1985 er bæði alþjóðaár æskunnar og evrópskt tónlistarár
ætlar Norræna húsið að sameina það með því að bjóða nokkrum af
hinum fremstu ungu tónlistarmönnum á Noröurlöndum að leika á tón-
leikum í sérstakri tónlistarröð undir nafninu „Ungir, norrænir einleikar-
Tónlistarfólkið er valið úr
þátttakendum í þriðju tónlist-
arkeppni Sambands norrænna
tónlistarháskóla (Nordisk Kon-
servatorierads 3. biennale for
unge nordiske solister), sem
haldin var í Osló á síðasta ári.
Jón Nordal, skólastjóri Tón-
listarskólans í Reykjavík, að-
stoðaði við að skipuleggja tón-
leikaröðina.
Þessi umrædda tónlistar-
keppni hefur verið haldin annað
hvert ár, til skiptis í höfuðborg-
um Norðurlandanna, og mark-
miðið er að kynna alþjóðlegum
tónleikaskipuleggjendum, um-
boðsmönnum, útvarps- og sjón-
varpsstöðvum, gagnrýnendum
og fleirum, norræna einsöngv-
ara, einleikara og litla tónlist-
arhópa.
Þátttakendur í keppninni
mega ekki vera eldri en þrítugir
og eru valdir af dómnefnd sem
þekktir tónlistarmenn, tilnefnd-
ir af Norðurlöndunum, eiga sæti
í.
Fyrstu tónleikarnir í þessari
tónleikaröð verða nú í kvöld
klukkan 20.30. Það er Jostein
Stalheim, Norðmaður sem tók
þátt í tónlistarkeppninni fyrir
hönd Danmerkur í Osló 1984,
sem leikur á harmoníku.
Hann byrjaði að læra á
harmoníku níu ára gamall í tón-
listarskólanum í Voss. Að loknu
Jostein Stalheim
stúdentsprófi 1979 hélt hann til
Danmerkur og lagði stund á
harmoníkuleik við Konunglega
danska tónlistarháskólann í
Kaupmannahöfn. Þar var aðal-
kennari hans Mogens Ellegaard
dósent. Auk harmóníkunámsins
lærði hann tónsmíðar hjá Gert
von Bulow og Niels Viggo Bent-
zon.
Stalheim hefur komið víða
fram sem einleikari, m.a. með
Konunglegu dönsku hljómsveit-
inni og Sinfóníuhljómsveit
danska útvarpsins. Hann hefur
leikið í útvarpi í Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Englandi og
auk þess haldið tónleika í mörg-
um tónlistarskólum og tónlist-
arháskólum, t.d. í París og
Edinborg.
Einleiks- og hljómsveitarverk
eftir Jostein Stalheim hafa verið
flutt í útvarpi og sjónvarpi í
Noregi og hann hefur frumflutt
verk sem hafa verið samin fyrir
hann af Ketil Hvoslef, Steen
Pade og fleirum.
í kvöld leikur hann bæði göm-
ul og ný verk.
(FrélUtilkynoinK-)
SVR:
Breytt tíma-
áætlun á
leið 15
Á morgun, 15. apríl, verður breyting
á tímaáætlun á strætisvagnaleiö nr.
15, Lækjartorg-Grafarvogur. Breyt-
ingin felst í því að ekið verður einnig
á kvöldin og um helgar, en fram að
þessu hefur aðeins verið ekið mánu-
daga til föstudaga frá kl. 0719.
Ferðir verða eins og áður einu
sinni á klukkutíma með brottför
frá Lækjartorgi átta mínútur yfir
heila tímann og frá Reykjafold á
hálfa tímanum. Síðasta ferð
kvöldsins verður frá Reykjafold á
hálfa tímanum.
Síðasta ferð kvöldsins verður
frá Reykjafold klukkan 23.30 og
frá Lækjartorgi klukkan 24. A
helgidögum verður fyrsta ferð frá
Lækjartorgi klukkan 10.08 og frá
Reykjafold klukkan 10.30.
DASAMLEQ BORG
SEMÞUATTHH
EKKIAUÐVELT MED
■ADYFIRGEFABBI
Þegar til Salzburgar er komiö, og bílaleigubíllinn
hefur verið afhentur, þá bíða þín óteljandi
ferðamöguleikar. Þér kann að reynast erfitt að slíta
þig frá Salzburg, sem er ein fegursta borg Evrópu.
En takist það, þá er aðeins fárra klukkustunda
akstur til Vínar, Innsbruck. Mílanó og Feneyja.
Fljúgðu með Flugleiðum til Salzburgar
og aktu á bílaleigubíl um Austurríki og Ítalíu
Vidkomustaðurá suðurieid
I