Morgunblaðið - 14.04.1985, Side 51

Morgunblaðið - 14.04.1985, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1985 51 ÞINGBRÉF eftir STEFÁN FRIÐBJARNARSON • 2) Sameiginlegum kostnaði þjóðfélagsþegnanna hjá ríki og sveitarfélögum, sem sóttur er til fólks og fyrirtækja með margvís- legri skattheimtu. • 3) Lífskjörum heimila og ein- staklinga, sem greidd eru með ráð- stöfunartekjum vinnandi fólks, eftir að skattheimtan hefur hirt sitt. Á þetta hefur nokkuð skort und- anfarin ár, samanber viðvarandi viðskiptahalla við umheiminn og vaxandi skuldasöfnun erlendis, sem tekur til sín stærri og stærri hlut útflutningstekna. Þá hefur ríkið tekið til sín vax- andi hlut af þjóðartekjum, vegna útþenslu ríkisbúskaparins, þó slakað hafi verið á heildarskatt- heimtu 1984 og 1985. Sem dæmi um þensiu í hinu opinbera „kerfi" má nefna að 13,2% vinnandi fólks í landinu starfaði hjá ríki, sveitar- félögum og bönkum árið 1963 en tuttugu árum síðar, 1983, hafði þetta hlutfall nær tvöfaldast, var 25,3%, samkvæmt könnun VSÍ. Nærri lætur að greidd laun og launatengd gjöld í landinu séu um 70% af hreinum þjóðartekjum. Það skiptir því meginmáli, hve há- ar þessar nettótekjur eru á hverj- um tíma, hvar sem þær lenda end- anlega, hjá almenningi, ríki, sveit- arfélögum eða erlendum skuldar- eigendum. Þegar talað er um nýsköpun ís- lenzks atvinnulífs þá er í raun ver- ið að tala um atvinnuöryggi og bætt lífskjör. önnur leið að þessu tvennu er ekki til. Það kann að sefa æsta lund að þylja slagorð og iðka marxíska hugarfimleika, en það er tímasóun, ef árangurinn á að gagnast lifandi fólki. Hafa verður í huga að hagvöxt- ur, með öðrum orðum auknar þjóðartekjur, eru ekki aðeins for- senda aukins kaupmáttar ráðstöf- unartekna heimila og einstakl- inga, heldur og kostnaðarleg und- irstaða þess, sem greitt er úr sam- eiginlegum sjóði landsmanna: fræðslukerfis, heilbrigðisþjón- ustu, almannatrygginga, lista og menningar. Ekkert verður af engu gjört, jafvel þótt falboðið sé með fyrirferð og tilfinningahita. Þessvegna er mergurinn máls- ins að stuðla að nýsköpun í ís- lenzkum þjóðarbúskap; auka ha- gvöxt þ.e. þjóðartekjur á hvern vinnandi einstakling; skapa for- sendur fyrir auknum kaupmætti launa — í stað verðbólgusamn- inga, sem rýra kaupmátt gjald- miðils okkar og skekkja sam- keppnisstöðu atvinnuvega okkar, án þess að bæta í raun stöðu lág- launahópa. Leiöin til bættra lífskjara var lengd meö vanræskslusyndum Þegar bornar eru saman þjóðar- tekjur á hvern vinnandi mann, sem eru raunhæfasti mælikvarði á lífkjör fólks, annarsvegar hjá samkeppnisþjóðum V-Evrópu og N-Ameríku og hinsvegar hjá ríkj- um sósíalisma (marxískum hag- kerfum) í A-Evrópu og víðar, eru hin síðarnefndu naumast hálf- drættingar. Samkeppnisþjóðir Vesturlanda hafa enn gleggri vinning þegar borin eru saman þegnréttindi, mannréttindi; réttur hverrar manneskju til að ráða eigin lífs- stíl, mynda sér eigin skoðanir og koma þeim á framfæri. Þjóðfélagsgerð lýðræðisríkja er enganvegin annmarkalaus. Þar má margt betur gera. En þau hafa þann höfuðkost að geta þróast á friðsaman hátt frá annmörkum sínum til meiri fullkomnunar. Meðal annars fyrir meirihluta- áhrif fólks í frjálsum, leynilegum kosningum. En jafnframt fyrir tækniframfarir í kjölfar mennt- unar, rannsókna og þekkingar. Hvatar samkeppnisþjóðfélagsins hafa gert stöðu hins almenna manns æ betri á Vesturlöndum. Við Islendingar höfum að vísu glutrað niður mörgum möguleik- um á „áratug hinna glötuðu tæki- færa“, sem lengja leið okkar að sambærilegum lífskjörum og bezt þekkjast annarsstaðar. Fjárfest- ingarmistök, sem létu sjónarmið arðsemi lönd og leið, og erlend skuldasöfnun, sem bindur okkur erfiða bagga til framtíðar, vega þar þungt. En þyngst þó van- rækslusyndir varðandi það að laga atvinnulíf okkar og verðmæta- sköpun að breyttum aðstæðum. Það er eftirtektarvert að þau tímabil í síðari sögu okkar, sem einkennast af kyrrstöðu, jafvel afturför, í atvinnulífi okkar sem heild, tengjast stjórnaraðild Al- þýðubandalagsins. Alþýðubanda- lagið er vagnhestur marxískrar þröngsýni með augnskjól til þeirra hvata, sem urðu öðrum þjóðum eldsneyti til velsældar. Það eru máske ýkjur að segja það pólitíska ökutæki, sem það býður þjóðinni far með inn í framtíðina, hafi að- eins einn “gír“, „bakkgír", þó flugufótur sé til slíks orðalags. Nær væri e.t.v. að segja að það stjórntæki farskjótans, sem Al- þýðubandalagið hefur sérhæft sig á, séu bremsurnar. Þær eru að vísu góðar til síns „brúks“, en ekki líklegastar til árangurs hjá þjóð, sem verður að vera brekkusækin næstu árin. + MARBJÖRN BJÖRNSSON matreiAslumaöur, Granaskjóli 16, veröur jarösunginn frá kirkju Óháöa safnaöarins mánudaginn 15. apríl k. 13.30. Blóm afþökkuö en þeim sem vildu minnast hans er bent á liknarstofnanir. Jórunn Ingvarsdóttir og systkini hins látna. Innilegar þakkir færum viö öllum þelm er sýndu okkur samúö vlö andlát og útför fööur mins, tengdafööur, afa og langafa, INGVARS H. SÖRENSEN málarameístara frá Seyóisfiröi. Laufey Rasmussen, Wílfred Rasmussen, barnabörn og brnóur hins látna. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúö og hlýhug viö fráfall og jaröarför ÁRSÆLS KRISTOFERS JÓNSSONAR fyrrverandi kaupmanns í Hafnarfiröi. Ársssll Ársnlsson, Erla Gfsladóttir, Siguróur Ársnlsson, Erla Björnsdóttir, Guöumundur bórir Sigurösson, Hjördls Þorgeirsdóttir, Sigriöur Siguröardóttir, Ken Remshaw, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar, tengdafööur og afa, PÁLS SIGURGEIRSSONAR bifválavirkja, Efstasundi 8. Ingibjörg Ólafsdóttir, Gréta Pálsdóttir, Þórir Bjarnason, Agnes Pálsdóttir, Sigurbjöm Egilsson, Ólafur Pálsson, Anna Stefánsdóttir, Ingibjörg Gráta Glsladóttir, Páll Arnórsson, og barnabörn. Loksins veruleiki Hljómplötuklúbbur á borö viö þaö sem best gerist í heiminum í dag f/ o. o\o. x .O^O.V<bT', v*v> Viö keyrum heim strax ef þú óskar, gegn 70 kr. gjaldi. Opið í dag & * 0 SkUyröi: 00 greiöir einu sinni ársgjnld kr. 990. Annað ekki. Siðan nýtir þú þár klúbbinn eins og þér sýnist. e Engin lágmarkskaup e Ekkert afpðntunarkerfi e Engin uppsðgn úr klúbbnum e Engin skilyrði né skuldbindlngar af neinu tagi 6 Engu þrðngvaö upp á þlg •fe. % V Fylltu út meðlytgjandl umsékn og póstsendu okkur eða leyföu okkur að heyra í þér simlelðls i síma 641277. Pösthólf 8322 108 Reykjavik — HLJÓMPLÖTUKLÚBBURINN — v— Hl)ómpiötuklúbburinn — — hljómplötuklúbburinn — dP ,-•••• .. / ✓

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.