Morgunblaðið - 18.05.1985, Qupperneq 15
heimi breyskra manna, að þetta
val skipti máli, sé raunverulegt!
Hlutverk löggjafar-
þingsins
Það er útúrsnúningur af lítil-
mótlegu tagi, þegar talað er um að
kosning handhafa framkvæmda-
valds, forsætisráðherra eða hvað
hann er kallaður, sé kosning
sterka mannsins eða einræðis-
herra. í landinu eru lög, samþykkt
af löggjafarsamkundunni. Eftir
þeim lögum stjórnar fram-
kvæmdavaldið. Og það yrði nýtt
hlutverk Alþingis að fylgja því
eftir að þeim meginreglum, sem
settar hafa verið, sé fylgt eftir af
framkvæmdavaldinu.
Framkvæmdavaldið yrði auðvit-
að ekki óháð löggjafarvaldinu,
vegna þess að það þarf að sam-
þykkja allar leikreglurnar. Ef í
óleysanlegan ágreining stefndi,
skæri þjóðin úr í atkvæðagreiðslu.
Og það er hámark mannfyrirlitn-
ingarinnar og lítilsvirðing við það
stjórnarfyrirkomulag, sem allir
þykjast vilja búa við og nefnist
lýðræði, að amast við þjóðarat-
kvæðagreiðslu af tæknilegum eða
kostnaðarlegum ástæðum, þegar
um meginatriði er að ræða.
Stærri flokkar —
færri skoöanir
Sumir vilja halda því fram að
vandræði þjóðarinnar stafi af því
að stórnmálaflokkar í landinu séu
of margir. Menn eigi að flykkja
sér í stóra flokka, þá verði þeir
sterkir og hafi áhrif. í mínum
huga þýðir þetta hið sama og að
það beri að fækka skoðunum í
íandinu. Gömlu flokkarnir, fjór-
flokkurinn, í þessu landi hafa
komið þjóðinni út í einn allsherjar
forarpytt, sem hún kemst ekki upp
W.iHí’/.t,
.m
úr, nema flokkakerfið verði brotið
upp. Og flokkakerfið verður ekki
brotið upp innan frá, það verður
ekki brotið upp öðru vísi en að
fólkið í landinu hafi nýtt val.
Fólkið í landinu verður að eiga
þann kost, að það geti brotið upp
samtryggingu fjórflokksins. Ef
meirihluti þjóðarinnar vill ekki
brjóta upp þessa samtryggingu, þá
er út af fyrir sig ekkert við því að
gera. Það þýðir á hinn bóginn ekki
að þeir, sem það vilja gera, megi
ekki vera til. En það er auðvitað
það sem valdhafarnir vilja, að þeir
sem andæfa verði kæfðir í lýðræð-
islegum atkvæðagreiðslum í litl-
um klíkum í bakherbergjum.
Þjóð í vanda
Stjórnmálaumræða er í hugum
fólks umræða um vanda í efna-
hagsmálum, vanda í húsnæðis-
málum, vanda í sjávarútvegsmál-
um og þannig mætti lengi upp
telja. Við í Bandalagi jafnaðar-
manna teljum það forsendu fyrir
að þessi vandi verði leystur, að
stjórnkerfinu verði breytt, því
þangað til munu valdhafarnir,
sem komu okkur í þennan vanda,
halda uppteknum hætti bráða-
birgðalausna og gerviúrræða.
í stuttu máli segjum við: Þetta
kerfi er ónýtt, það þarf að byggja
upp nýtt kerfi, ekki plástra það
sem fyrir er. Og nýja kerfið á að
vera þannig að fólk fái ráðið lífi
sínu sálft, að það hafi sem beinust
áhrif á valdhafana og geti þannig
á sem skýrastan og einfaldastan
hátt komið vilja sínum fram, því
spurningin er ekki „hverjir eiga
ísland?", spurningin er „hver á
þig?“-
Höíundur er raraformadur lands-
nefndar Bandalags jafnaðar-
manna.
Kaffisala
í Neskirkju
HIN árlega kaffisala og bazar
Kvenfélags Neskirkju verður
sunnudaginn 19. maí og hefst
kl. 15.00 að aflokinni guðsþjón-
ustu. Markmið félagsins hefur
frá upphafi verið að styrkja og
standa vörð um kirkjuna, og að
efla safnaðarstarfið eins og
frekast er kostur. Það hafa
konurnar gert með því að að-
stoða okkur prestana við
barnastarfið og annast kaffi-
veitingar á samverustundum
aldraðra alla laugardaga vetr-
arlangt um árabil. Þá hafa þær
f
síðastliðinn vetur fært út kví-
arnar og hafið starf á nýjum
vettvangi með því að hafa
svokallað „opið hús“ fyrir aldr-
aða á þriðjudögum og fimmtu-
dögum frá kl. 12.00 til 17.00, og
er sú starfsemi alfarið á þeirra
vegum. Þá er leikið á hljóðfæri
og sungið, tekið í spil, lesið
upp, og handavinnukennari
leiðbeinir í handmenntum ým-
iss konar.
Ágóða af kaffisölunni og
bazarnum hyggjast konurnar
nota til frekari uppbyggingar á
góðu safnaðarstarfi, og fegrun
kirkjunnar og umhverfi henn-
ar. A þessu vori er ætlunin að
prýða í kring um kirkjuna með
gróðursetningu á sumarblóm-
um, trjám og runnum.
Ég vil eindregið hvetja safn-
aðarfólk og alla velunnara
Neskirkju að koma á sunnu-
daginn og njóta þess, sem þar
verður fram borið, og styrkja í
verki hið fórnfúsa göfuga starf,
sem fram fer í safnaðarheimil-
inu fyrir unga og aldraða.
Frank M. Halldórsson
Vorið er komið mn
$£JjlaðSab‘~ SveppZ'
Allt á
útigrillið.
Kynnum í dag í Mjóddinni Nýja íslenska
grænmetið- Grænmetissalat og súpur.
ekki eftir í jarðveginum? Maðkar
og lýs sækja mjög mikið í brekku-
víðinn hjá mér og hef ég í hyggju
að gróðursetja einhverja aðra
trjátegund við lóðarmörkin í stað
hans. Hvaða trjátegund væri
ákjósanleg?
Svar: Vandalaust er að uppræta
brekkuvíði með því að grafa vel
frá rótunum og rífa síðan rótar-
kökkinn upp. Við skulum ekki
dæma brekkuvíðinn óhæfan til
ræktunar og allra síst þar sem
hafvindar valda erfiðleikum við
ræktun.
Það er létt verk að halda honum
hreinum af allri óværu ef góður
vilji er fyrir hendi. Fáar víðiteg-
undir taka honum fram hvað lauf-
fegurð og limprýði snertir. Það er
mest um vert að hirða hann vel og
klippa rétt. Ég ráðlegg enga teg-
und frekar í Njarðvík.
Venusvagninn skaðlaus
Margrét Guömundsdóttir, Espi-
gerdi 2, spyr:
Eru rætur venusvagnsins eitr-
aðar og ef svo er, er þá slæmt að
gróðursetja hann nálægt matjurt-
um eða öðrum gróðri, t.d. trjá-
gróðri?
Svar: Venusvagn, eða öðru nafni
bláhjálmur, ver sig fyrir allri
áreitni skordýra með eitursafa,
sem þó veldur engum erfiðleikum
fyrir mannfólkið sem umgengst
hann. Og það er síður svo svo að
hann sé nokkrum trjákenndum
gróðri til ama nema síður sé. Blá-
hjálmur er vel til þess fallinn að
ræktast á jörðum matjurtareits-
ins, því hann er kjörinn skjólgróð-
ur fyrir hann.
Selja, ösp og síberíuþyrnir
Elínborg Kristjánsdóttir, Vitateigi
5b, Akranesi, spyr:
1. Eiga selja og ösp að vaxa upp af
einum stofni eða á ég að láta
þær kvíslast í friði?
2. Er selja harðgerð?
3. Hvernig á að meðhöndla síber-
íuþyrni?
4. Þýðir að setja niður kartöflur
sem farnar eru að spíra og eru
orðnar linar?
Svar 1: Þetta er nokkurt mats-
atriði. Við stefnum ekki að skóg-
rækt með þeim trjágróðri sem við
ræktum á lóðinni okkar. Þess
vegna geta margstofna tré átt
fyllsta rétt á sér.
Svar 2: Selja verður tæplega tal-
in með harðgerðari víðitegundum.
Best er að velja henni stað í frem-
ur góðu skjóli fyrir hörðustu vind-
átt.
Svar 3: Fremur þykir mér ólík-
legt að síberíuþyrnir þrífist á
Akranesi nema í miklu skjóli og
að hann njóti vetrarskjóls. Svipað
gildir um hann og birki hvað
ræktun og umhirðu varðar að öðru
leyti.
Svar 4: Vel getur lukkast að
setja niður útsæði þótt það sé far-
ið að linast dálítið, ef spírurnar
eru sæmilega gildar og skaplegar
á lengdina. Heppilegast er að
vökva útsæðið daglega fram að
niðursetningu og leyfa því að
njóta sólarbirtunnar hvern dag
þegar hennar nýtur.
Gras yfírgnæfír gróöur
Kvanhildur Guðmundsdóttir, Arn-
arhrauni 48, Hafnarfirði, spyr:
í kartöflugarðinum hjá mér er
nú farin að vaxa einhver grasteg-
und sem ég ræð ekkert við. Líkleg-
ast hefur hún borist með hrossa-
taði sem ég lét bera í garðinn fyrir
nokkrum árum. Nú er þetta gras
að yfirgnæfa allan gróður í garð-
inum, hvað er til ráða?
Svar: Líklegast þykir mér að
þarna sé húsapuntur búinn að ná
yfirhöndinni en hann er víða til
staðar og alls ekki vist að hann
hafi borist með hrossataði. Ef ekki
er um það að ræða að leggja niður
garðinn og gera hann að grasflöt
er ráð að hvíla hann í sumar og
herja á grasið með því að úða yfir
það með Randop-illgresiseyð-
ingarefni, tvisvar til þrisvar sinn-
um í sumar.
N^*ÍamR 295
Kynningarverð
.00
prJíg.
2
stk.
AÐEINS
Gng
Eldhúsrúllur jiggniU*
T? NÝ
Egg
3980 QQoj 129
Z7 Z7Prk8- AÐF.INS
.00
pr.kg.
MS Bruður
Grófar - Finar
.00
250 gr.
45
Blandaðir
ávextir
.80
1/1 dós
59
Jarðarber
.00
1/1 dós
75
Opið til kl. 16
í MJÓDDINNI
& STARMÝRI
en til kl. 13
í AUSTURSTRÆTI
AUSTURSTRÆT117 - STARMYRI 2
MJODDINNI