Morgunblaðið - 18.05.1985, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAt 1985
Sigríður A.
Þrastardóttir
Hárgreiðslumeistarinn í hópi keppenda heitir Sigríður Þrastardóttir
fædd 23.02.1962 á ísafirði. A Vestfjörðum dvaldi hún fyrstu níu árin,
en þá var stefnan tekin á Kópavog og við bæinn hefur hún haldið
tryggð síðan. 17 ára gömuí hóf hún nám í hárgreiðslu og hefur
stundað hana síðan, nema hvað hún tók sér tveggja ára frí frá faginu
og starfaði í Líkamsræktinni í Kjörgarði, „og hef verið viðloðandi
likamsræktina síðan," segir Sigríður.
Til áhugamálanna telst ýmislegt, meðal annars það að prjóna og
sauma, en Sigríður saumar mikið af sínum fatnaði sjálf. „Að vísu
ætla ég ekki að sauma síðkjólinn fyrir keppnina sjálf, en vil nú eigna
mér hönnunina á honum að vissu leyti. En áhugamálin þar fyrir utan
eru hlutir eins og tónlist og lestur góðra bóka,“ segir Sigríður.
Keppnin um Fegurðardrottningu íslands er sú fyrsta sem Sigríður
tekur þátt í — og hvernig leggst keppnin í hana?
„Bara vel. Þetta er náttúrulega allt mjög spennandi, en Iíðanin er
bara góð, að minnsta kosti ennþá!“
Halla Bryndís
Jónsdóttir
Halla Bryndís Jónsdóttir, fædd 12.09.1964, er Reykvíkingur í aðra
röndina og á heima í Mosfellssveitinni, en hefur undanfarið ár verið
með annan fótinn í Florida í Bandaríkjunum þar sem unnustinn er
við nám. Um áramótin hóf hún sjálf enskunám í Florida Institute of
Technology og hyggst Ijúka þvi að ári. Hér heima hefur hún starfað
við verslun, þá löngum tengda einu helsta áhugamálinu — líkams-
rækt sem er „áhugamál númer eitt“, eins og hún segir sjálf. „Eins
vann ég um tíma í skíðaskálanum í Hveradölum og var þá töluvert á
skíðum. Komst eiginlega ekki hjá því,“ segir Halla Bryndís.
Hún hefur áður tekið þátt í fegurðarsamkeppni, keppninni um
Ungfrú Hollywood og hafnaði þá í öðru sæti, með titilinn „sólar-
stúlka Úrvals“. Hvernig leggst í hana að taka þátt í keppninni um
Fegurðardrottningu Islands?
„Ég tvísteig nú svolítið áður en ég afréð að vera með. Er fegin því
núna, þvf að þetta hefur allt saman verið mjög skemmtilegt. Ég lít
kannski alvarlegri augum á þessa keppni en hina og sviðsskjálftinn
hefur ekki gert vart við sig og gerir það vonandi ekki úr þessu.“
Sif
Sigfúsdóttir
í hópi keppenda með heimilisfang í Garðabænum er Sif Sigfúsdóttir,
fædd 16.11.1967, sem fyrr í þessum mánuði lauk verslunarprófi frá
Verslunarskóla Islands. Stefnir síðan á stúdentspróf frá sama skóla,
og þá úr máladeild.
„Það er nú varla hægt að kalla mig Garðbæing, a.m.k. ekki ennþá,“
segir Sif. „Ég er búin að búa þar í ár og er nú meira og minna i
Reykjavíkinni eftir sem áður, sérstaklega vegna skólans." En það eru
ekki einungis ferðir á milli Reykjavíkur og Garðabæjar sem Sif
leggur fyrir sig. Utanferðir eru á meðal helstu áhugamála og í
framtíðinni hefur hún áhuga á að kynnast störfum á borð við farar-
stjórn og flugfreyjustörf. „Ég hef bara svo gaman af því að ferðast
um erlendis, sjá nýja hluti og nýtt fólk. Gerðu það samt fyrir mig að
setja ekki „vill verða flugfreyja" eða eitthvað álíka í fyrirsögn!” segir
hún hlæjandi og bætir við að framtíðin sé annars óráðin, en ekki sé
ólíklegt að ævintýramennskan og nýjungagirnin fái einhverju um að
ráða, a.m.k. til að byrja með. Til áhugamála flokkast ennfremur
líkamsræktin. „Ég hef gaman af jassballett, sundi, trimma svolítið
og fer síðan á skíði á veturna."
— Nú, það er þetta með nýjungagirnina, átti hún sinn hlut í
þátttökunni? „Já, það er alltaf svo gaman að prófa eitthvað nýtt,
sérstaklega þegar maður er búinn að sitja á skólabekk alla daga í
langan tíma. Svo að kynnast þessum stelpum öllum saman, koma
saman í skemmtilegum hóp og samstilltum, þar sem við fáum stuðn-
ing hver frá annarri. Það er ofsalega garnan."