Morgunblaðið - 18.05.1985, Síða 23
23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. MAÍ1985
Móðursfki
Marie Colbin sýnir afbragós leik sem móðirin í Eigi skal gráta.
Kvikmyndir
Árni Þórarinsson
Eigi skal gráta — Keine Zeit fiir
Tránen -trtr'Aí
Vestur-þýsk. Árgerð 1983. Handrit
og leikstjórn: Hark Bohm. Aðal-
hlutverk: Marie Colbin, Michael
Gwisdek.
Viðfangsefni þýska kvik-
myndagerðarmannsins Hark
Bohm í þessari mynd er eins
vandmeðfarið og hugsast getur:
Hið sannsögulega Bachmeier-
mál um móðurina sem skaut
morðingja og nauðgara dóttur
sinnar til bana í réttarsal, aðeins
einu ári áður en kvikmyndin var
gerð. Þetta val á viðfangsefni
býður í fyrsta lagi heim vanga-
veltum um tilganginn: Er ekki
verið að reyna að hagnast á
ógæfu lifandi fólks? Er þetta
ekki sorpkvikmyndagerð? Efn-
ismeðferð Hark Bohm er með
þeim hætti að um slíkar smekk-
leysur verður hann ekki sakaður.
Að öðru leyti sigrast hann að
hluta til á þeim erfiðleikum sem
viðfangsefnið felur í sér og að
hluta til sigra þeir hann.
Bohm þarf að taka tillit til
a.m.k. þriggja þátta, — félags-
legra aðstæðna fólksins sem
málið snýst um, sammannlegra
tilfinninga og viðbragða, og síð-
ast en ekki síst persónulegs
geðslags og upplags persónanna.
Bohm undirbyggir mynd sína
allvel með atriðum sem sýna los-
aralegt samband foreldra stúlk-
unnar, hins bælda en þolgóða
föður og hinnar jafnvægislitlu,
rótlausu móður, og umfram allt
sakbitið samband hennar við
dótturina. Hann dregur líka upp
trúverðuga mynd af umhverfi
þess og aðstæðum. En eftir að
hið hörmulega morð á stúlkunni
hefur verið framið verður mynd-
in framlengd æfing í móðursýki,
— og hér má nota þetta vand-
meðfarna orð í bókstaflegri
merkingu. Hin hádramatísku
viðbrögð móðurinnar stappa
nærri geðveiki; Bohm lætur
hana ólmast í sorg sinni og sekt-
arkennd eins og leikara í vondu
melódrama. Kannski var per-
sónuleiki þessarar konu einmitt
svona, en á þessum punkti rofna
að nokkru leyti hin tilfinninga-
legu tengsl áhorfanda við efnið
og persónurnar einangrast.
Það eru samt nógu margar
nærfærnislega hugsaðar senur
með sterkum listrænum mynd-
lausnum og ágætum leik til að
gera Eigi skal gráta að athyglis-
verðri mynd. Hark Bohm getur
augljóslega gert fyrsta flokks
mynd úr ívið þakklátara efni.
Nú koma allir að skoða SKODAalbino
sem sló svo rækilega í gegn á afmælissýningu
Kópavogskaupstaðar á dögunum.
Að sjálfsögðu verða einnig allar hinar gerðirnar
á staðnum.
Opið laugardag og sunnudag kl. 13.00—17.00.
JÖFUR HF
NYBYLAVEGI2 KÓPAVOGI
SIMI 42600