Morgunblaðið - 23.05.1985, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23..MAÍ 1985 j
22
spurt og svarad
Lesendaþjonusta MORGUNBLAÐSINS
Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar, hefur
tekið að sér að svara spurningum lesenda Morgunblaðsins
um garðyrkju. Þau verða síðan birt eftir því sem spurn-
ingar berast. Lesendur geta lagt spurningar fyrir Hafliða,
jafnt um ræktun matjurta sem trjárækt og blómarækt.
Tekiö er á móti spurningum lesenda á ritstjórn Morgun-
blaðsins í síma 10100 á milli kl. 11 og 12 árdegis, mánu-
daga til fóstudaga.
Glerbrot
út um allt
Sjaldan brýtur gæfumaður gler,
segir gamalt spakmæli.
Eflaust er það ekki sársauka-
laust, þegar þaö hendir á góðu
heimili, að glas fellur á gólf og
brotnar og skiljanlega er það til-
finnanlegur skaði, þótt ekki sé
nema að brestur komi í einn disk
eða bolla, úr fína postulinsstell-
inu.
Þegar þetta er haft í huga, er
það með ólíkindum hvað jafnvel
fólk, sem grætur skaða i heima-
húsum, ef ílát brotnar, getur látið
sér það í léttu rúmi liggja, og ef til
vil sjálft haft nautn af, að brjóta
gler á almannfæri.
Allt umhverfi okkar ber þessa
órækt vitni. Tæpast verður þver-
fótað um götur og útivistarsvæði í
þessu landi, án þess að eiga á
hættu að ganga eða aka yfir
glerbrotamylsnu. Það kostar
skattborgarana drjúgan pening að
launa menn og tæki til að bjástra
við að hreinsa þessi óþrif og fjar-
lægja. Gler fýkur ekki á brott eins
og plastið og pappirssnifsin, sem
einnig er fleygt fyrir fætur sam-
borgaranna, en sjaidnast valda þó
slysum á sama hátt og glerbrotin.
Það er margra skoðun að sú
árátta, sem felst í þvi að brjóta
gler, sé viss tegund af geðveiki og
eflaust er nokkuð til í þeirri skoð-
un. Sé svo, þá er það ekki lítill
hópur íslendinga, sem þyrfti á
meðferð sálfræðinga að halda.
Hér er um slíkt ófremdarástand í
glerbrota-ástríðu fólks að ræða,
að fyllsta ástæða væri til að
kanna, hvað þessum ósköpum
veldur. Hyggilegast væri að láta
það ekki dragast, þar til við bætist
meira gier að brjóta.
Dísarrunnar og lyklar
Hildur Karlsdóttir, Ásvallagötu
71, spyr:
1. Hvernig get ég varið dísar-
runna fyrir ágangi katta sem
sækja mjög í runnana og klóra
m.a. upp stofninn?
2. Einhver bjöllutegund sækir
mjög á lykla (prímúlur) um
þetta leyti árs. Hvað er til ráða
gegn þessum skaðvaldi?
Svar I.:
Fljótvirkasta ráðið er að bera
litilsháttar lýsól á neðsta hluta
stofngreinanna.
Svar II.:
Trúlega er um ranabjöllu að
ræða, þótt hún sé óvenju fljótt á
ferðinni.
Ef þetta er alvarlegt mál, þá
þarf að hafa samband við garð-
yrkjumann, sem getur meðhöndl-
að varnarefni, er hugsanlega gæti
dugað.
Gegnblaut gróðurmold
Jóhann Hólm, Brekkubyggð 63,
Garðabæ, spyn
Ég var að kaupa mér gróður-
mold um daginn og er hún mjög
blaut. Hvað þarf ég að bíða lengi
áður en hægt er að fara að sá í
hana eða tyrfa?
Svar:
Hætt er nú við, að sú mold, sem
máske kemur djúpt úr húsgrunni
eða hefur skamma hríð staðið frá
því að henni var mokaö upp, geti
tæpast kallast gróðurmold, en vel
má hinsvegar bæta hana og gera
að gróðurmold. Það tekur oft lang-
an tíma.
Fljótlegast er að bæta í moldina
sandi og húsdýraáburði og herfa
vel saman við hana. Þá þornar
hún fyrr með því, að það kemur
loft og hlýja í moldina.
Metra hátt
kartöflugras
Margrét tiísladóttir, Hamrahlíð 2,
Egilsstöðum, spyr:
1. Ég hef sáð í kartöflugarðinn
minn í um 12 ár og alltaf vaxið
vel í honum. Hin síðari ár hefur
kartöflugrasið þó viljað vera
óhemju mikið. I fyrra var það
t.d. u.þ.b. einn metri. Getur ver-
ið að búið sé að bera of mikinn
áburð í garðinn?
Sama er upp á teningnum í
blómabeðum hjá mér þar sem
ég hef oft plantað sumarblóm-
um. Þar vaxa blöð mun meira
en blóm. Getur orsökin verið of
mikil áburöargjöf?
2. Hvað er besta ráðið gegn því að
hindber leggi heilan garð undir
sig?
Svar I.:
Vissulega getur það skeð, að
jarðvegurinn sé orðinn það frjór,
að með öllu sé óþarft að bera á eitt
eða tvö vaxtartimabil. Einkum
kemur þetta fyrir ef vetur er með
lítilli úrkomu og áburður skolast
þar af leiðandi ekki úr jarðvegin-
um.
Svar II.:
Ef um það er að ræða, að hind-
berin séu farin að vaxa sem ill-
gresi innan um annan gróður, þá
verður ekki komið öðrum vörnum
við, en að uppræta þau t.d. með því
að klippa stöðugt alla sprota, sem
skjóta upp kollinum. Nái lauf-
sprotar aldrei að afla loftnær-
ingar, þá verður þess ekki langt að
bíða, að ræturnar veslist upp, ein-
kum ef þær fá heldur engan frið
fyrir skærum eða skóflu.
Að færa til víði
Margrét Árnadóttir, Eskihlíð 10A,
spyr:
1. Er orðið of seint að færa til al-
askavíði? Ef ekki, hvernig er þá
best að undirbúa beðið? Hvort
er betra að nota tilbúinn áburð
eða húsdýraáburð.
2. Mikil grasrót er í einu trjábeð-
anna. Er best að nota svokall-
aðan graseyði til að losna við
grasrótina? Er þá rétt að bæta
mold ofan á grasið, strá síðan
graseyðinum ofan á og setja svo
sand yfir allt beðið í haust, til
að kæfa grasið algerlega?
Svar I.:
Ennþá er öllu óhætt með til-
færslu á víði.
til félaga
í Verkfræðingafélagi
Föstudaginn 24. maí lýkur atkvæða-
greiðslu um þá tillögu að VFÍ segi sig
úr Bandalagi háskólamanna.
Við undirritaðirskorum á allafélaga
okkaríVFÍ að taka þátt í atkvæða-
greiðslunni og fella tillöauna.
T Jerkjræðingafélagið hejur Jrá upp-
V haji tekið virkan þátt í störfum
BHM og átt ríkan þátt í mótun þess.
Fjórír aj níu Jormönnum BHM haja
komið úr okkar röðum.
Sjaldan hejur veríð meírí þöijjyrír
samstöðu íslenskra háskólamanna,
en þeim er ætlað að skapa grundvöll
Jyrír nýsköpun í atvinnulífi lands-
manna með menntun sinni og
þekkingu. Við teljum það mjög miður,
ej VFÍ Jærí úr BHM, enda engin
íslands
sjáanleg ástæðaJyrír svo ajdríjaríkrí
ákvörðun.
Launamál ríkisstajsmanna innan
BHM eru Jyrír löngu skilin Jrá
annarrí staijsemi bandalagsins og
aljaríð i höndum sérstakrar deildar,
BHMR. Óánægja með laun ríkis-
starfsmanna má því ekki haja áhrij
á kosninguna.
Ragnarlngimarsson
FinnurJónsson
ValurGuðmundsson
PéturGuðmundsson
Aðalsteinn Guðjohnsen
Jónas Bjarnason
Vífill Oddsson
GunnarH. Gunnarsson
GuðmundurBjörnsson
Egill Skúli Ingibergsson
Jóhannes Guðmundsson
ValdimarK. Jónsson
Sigmundur Guðbjarnason
Steján Hermannsson
Helgi Hallgrímsson
Oddur B. Björnsson
Karl Ragnars
Sigrún Pálsdóttir
JúlíusSólnes
Elías Gunnarsson
Einar B. Pálsson
Sveinn Björnsson