Morgunblaðið - 23.05.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1986
23
Best er að gróðursetja í jarðveg,
sem er mildur og frjór, f allt að 60
sm dýpt.
Við gróðursetningu er æskilegt
að setja vel af húsdýraáburði og
blanda honum vei saman við
moldina. Trjágróðurinn býr lengi
að slíku. Þegar fram líða stundir,
nægir að gefa tilbúinn áburð um
leið og borið er á grasflötina.
Svar II.:
í svörum mínum, er birtust sl.
laugardag, voru gefin ráð við
grasi, sem sótti í matjurtagarð.
Þau ráð koma einnig að notum í
trjábeðum. Að sjálfsögðu má bæta
mold eða sandi yfir beðin, þegar
sýnilegt er, að illgresiseyðirinn
hefur haft tilætluð áhrif.
En til er annað gott og hand-
hægt ráð til að gera útaf við gras í
trjábeðum. Það er að leggja svart-
an plastdúk fyrir allt beðið og
hylja dúkinn síðan með sandi. Þar
með er búið að loka yfir illgresið.
Ef hinsvegar er útlit fyrir að
trén fái ekki nógan raka, þá má
bæta úr þvi með stungukvísl á fá-
einum stöðum milli stofnanna.
Afleggjari af
ribsberjarunna
Sesselja Asmundsdóttir, Mela-
braut 65, spyr:
Er hægt að fá afleggjara af rifs-
berjatré með því að skera sprota
af því og setja í vatn?
Svar:
Mjög auðvelt er að fjölga rifs-
berjarunnum með græðlingum.
Það má gera með þeim hætti, að
klippa um 10—15 sm sprota af
grein og stinga beint í mold. Þarf
ekki að setja þá í vatn áður.
Best er að nota í græðlingana
sprota, sem vaxið hefur á sl. sumri
eða sumrinu þar áður. Sæmilegt
verður að teljast, ef annarhver
græðlingur nær að skjóta rót.
Mikill áhugi
er fyrir
dúfnarækt
á Húsavík
Björk, MývatnasveiL
Siðastliðinn laugardag, kl. 9
árdegis, slepptu áhugamenn í
dúfnarækt á Húsavík 27 tömdum
dúfum á loft hjá Reykjahlíð hér í
sveit. Þetta var liður í keppni hús-
vískra dúfna. Verður þessi keppni
síðan endurtekin að viku liðinni á
sama stað. Síðan er áformuð
Norðurlandskeppni dúfna á laug-
ardaginn 8 júni, þá verður þeim
sleppt í loftið austur í Möðrudal.
Eftir að dúfunum var sleppt í
loftið í Reykjahlíð sl. laugardag
svifu þær marga hringi yfir þeim
stað og hækkuðu flugið við hvern
hring og voru þá allar í einum hóp.
Siðan tóku 20 þeirra sig útúr og
stefndu til norðvesturs, sýnilega
búnar að ná réttum áttum og
hurfu fljótlega augum þeirra er
viðstaddir voru. Hinar sjö virtust
eiga erfiðara með að átta sig og
héldu áfram að fljúga yfir sleppi-
staðnum allmarga hringi og voru
þá einnig komnar mjög hátt, þar
til þær hurfu einnig. Hringur er
settur um háls þessara tömdu
dúfna og þegar þær komu á
áfangastað á Húsavík var hring-
urinn tekinn af þeim og settur í
tölvu og kemur þá í ljós tími
hverrar dúfu. 17 þessara dúfna
skiluðu sér til Húsavíkur á ágæt-
um tíma eða um 1000 m á mínútu,
meðalhraði 60—70 km á klukku-
stund. Talið er þó að dúfur hafi ná
80—100 m hraða á klst. Mikill
áhugi er á dúfnarækt á Húsavik
og þeir sem að henni standa telja
þetta skemmtilegt og jafnframt
áhugavert tómstundagaman þó
nokkurt fjármagn þurfi.
Kristján
Reyðarfjörður:
Togarinn
hætti við
að selja
erlendis
Keydarflrdi, 20. maí.
TOGARINN Snæfugl kom af veið-
um 15. maí með 157 tonn af karfa
og grálúðu. Ætlunin var að togar-
inn færi sölutúr til Þýskalands
með aflann en þar sem fiskmark-
aður féll niður í sama og ekkert,
var hætt við og landað hér heima.
Fór Snæfuglinn með 45 tonn af
grálúðu til Borgarfjarðar eystra
en karfanum, 112 tonnum, var
landað hér heima.
Á laugardagskvöld, 18. maí,
lagði togarinn aftur á miðin og
enn á að veiða í söluferð til Þýska-
lands, hvernig sem það gengur.
Hér hefur verið 15 til 17 stiga
hiti og margir notuðu góða veðrið
og unnu í garðinum eða lágu í sól-
baði.
Vegafram-
kvæmdum
miðar vel
ReyóarHrdi, 20. maí.
HALDIÐ verður áfram vega-
framkvæmdum milli Egilsstaða
og Reyðarfjarðar í sumar og nú
þegar er hafin gerð vegar innst í
Reyðarfirði milli Grænafells og
Melshorns.
Þar var nokkrum vélaeigendum
og verktökum gefinn kostur á að
bjóða í efnisflutninga á 29 þúsund
rúmmetrum af möl í 1,4 km lang-
an kafla. Lægsta tilboð kom frá
Steypustöðinni hf. á Neskaupstað,
886.764. Er það 55% af kostnað-
aráætlun vegagerðarinnar, sem
var 1.613.405. Þá verður lögð
klæðning á þann hluta Norðfjarð-
arvegar sem næstur er Egilsstöð-
um þannig að samfellt bundið
slitlag um Fagradal verður um 20
km að lengd.
Ennfremur standa vonir til að
ljúka megi i sumar uppbyggingu á
stórum hluta þess vegarkafla í
Fagradal sem eftir er.
Þess má geta í lokin að af 45 km
löngum þjóðvegi milli Egilsstaða
og Eskifjarðar verða í sumar um
11 km, sem eftir er að leggja á
bundið slitlag.
— Gréta
Ný .
sending a'
n
_ _ Reidhjólaverslunin --
ORNINN
Spitalastig 8 við Oðinstorg
1925 — Sérverzlun í 60 ár — 1985
Æöisleg BMX-hjól,
krómuö og úr króm-
stáli! Meö fót-
bremsum. Bretti
fáanleg meö. Topp-
hjól á ótrúlega lágu
veröi miöaö viö
meiriháttar gæöi.
Kr. 7.975.-
fltatplllMllfetfe
Metsölublad á hverjum degi!
MJÚKfS
Mjúkís frá Kjörís er frábær ábætir.
Eigið ætíð Mjúkís í frystinum. Tilbúinn,
handhægur og vinsæll við öll tækifæri.
Ailir kunna að meta Mjúkís.