Morgunblaðið - 23.05.1985, Blaðsíða 60
KEILUSALURINN
OPINN 10.00-00.30
ffgntiINtafrtfr
HIBCKURIHBMSKEDJU
FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Morgunblaðið/Júlíus
Heim til Eskifjarðar
HJÓNIN Jóna Mekkín Jónsdóttir og Magnús Guðnason héldu heimleiðis til Eskifjarðar í gærmorg-
un með þríburana sem fæddust á fæðingardeild Landspítalans 1. maí sl. Þríburarnir, tvær stúlkur
og einn drengur, hafa braggast vel. Heimferðin gekk að óskum og var fjölskyldan komin til
Eskifjarðar um hádegisbil. Hér má sjá fjölskylduna í flugvélinni rétt áður en lagt var af stað
austur.
Ahrif úrskurðar Kjaradóms:
Laun háskólamanna
hækkuðu um 9,3 % um-
fram samninga BSRB
KOMIÐ hefur í Ijós að borgar- eftir kjaradóminum og hefði
KOMIÐ hefur í Ijós að borgar-
starfsmenn í Bandalagi háskóla-
manna fengu með úrskurði Kjara-
dóms 9,3% meiri launahækkun að
meðaltali en borgarstarfsmenn í
Bandalagi starfsmanna ríkis og
bæja fengu í kjarasamningi sínum
í vetur. Gr þetta nokkuð meira en
áður var talið. Munurinn mun
vera svipaður hjá ríkisstarfs-
mönnum.
Davíð Oddsson borgarstjóri
sagði í samtali við Mbl. í gær að
starfskjaranefnd borgarinnar
hefði nú lokið við að raða borg-
arstarfsmönnum í launaflokka
Freistingin var
of mikil:
Stal veski
dómara síns
MAÐUR nokkur, sem hafði
koraist í kast við lögin og hlotið
dóm, hugðist fyrir nokkru kynna
sér stöðu sinna mála hjá dómara
hjá embætti einu á Reykjavík-
ursvæðinu. Hann bankaði upp
hjá dómaranum en kom að
mannlausu herberginu. Dómar-
inn hafði brugðið sér frá rétt
sem snöggvast. Fyrir augum
mannsins blasti við jakki og það
var meira en hann, breyskur
maðurinn, stóðst. Hann vatt sér
að jakkanum og hafði á brott
með sér veski dómarans.
En upp komast svik um síðir.
Stuttu síðar var þjófurinn hand-
tekinn í Hagkaup þegar hann
hugðist framselja 6 þúsund
króna ávísun. Veskið fannst á
honum, en nokkur ávísanaeyðu-
blöð voru horfin. Ekki er enn
ljóst hve mörgum ávísunum
þjófurinn framvísaði, en sjálfur
ber hann að hafa aðeins náð að
selja eina ávísun.
MJöG líklegt er, skv. upplýsingum Mbl., að á fundi forystumanna
Alþýðusambandsins og Vinnuveitendasambandsins árdegis í dag
muni VSÍ leggja fram samningstilboð, sem felur í sér launahækkan-
ir er kæmu til framkvæmda áður en gildandi kjarasamningar renna
út 1. september næstkomandi. Ekki er Ijóst um hversu miklar
hækkanir getur orðið að ræða, það verður væntanlega ákveðið end-
anlega á fundi samningaráðs VSÍ, sem hefst kl. hálfníu, en fundur-
inn með forystumönnum ASÍ hefst kl. 10.30. Til fundarins er boðað
að ósk framkvæmdastjórnar VSÍ.
Á fundinum munu forystu- setar og formenn landssam-
menn Alþýðusambandsins, for- banda þess gera atvinnurekend-
um grein fyrir þeim viðhorfum,
sem fram komu á formannaráð-
stefnu ASÍ á mánudaginn. Eins
og fram kom í Mbl. á þriðjudag
var ágreiningur á fundinum um
hvort freista ætti þess að ganga
til samninga við VSÍ í vor eða
bíða þar til samningar væru al-
mennt lausir í haust. Fulltrúar
Verkamannasambands íslands
lögðust gegn hugmynd Ásmund-
ar Stefánssonar forseta ASÍ um
að þess yrði freistað að ná
bráðabirgðasamningum fyrir
miðjan júní.
„Við munum gera grein fyrir
hvaða viðhorf komu fram á
formannaráðstefnu okkar en
eins og ég hef sagt áður varð það
niðurstaða þess fundar að það
þarf að ræða þessi mál betur í
okkar hópi,“ sagði Ásmundur
Stefánsson forseti ASÍ i samtali
við blaðamann Mbl.
eftir kjaradóminum og hefði að
því loknu komið í ljós að úr-
skurður Kjaradóms hefði meiri
hækkun í för með sér en í fyrstu
var talið, eða 9,3% umfram
BSRB-samningana í stað um 7%
sem áður var talið. Davíð sagði
að ekkert hefði verið ákveðið um
viðbrögð borgarinnar við þess-
um niðurstöðum enda niður-
stöðurnar nýfengnar en taldi
aðspurður að borgin myndi ekki
hafa frumkvæði að viðræðum
við Starfsmannafélag Reykja-
víkurborgar vegna þessa mis-
munar.
Fundur árdegis með forystumönnum ASÍ og VSÍ:
VSÍ býður nýjan samn-
ing og kaupnækkanir
Þriðjungs
lækkuná
tómötum
TOMATAR lækkuðu um þriAjung
í vikunni og kosta nú 138 til 165
kr. kílóiA. í sólinni aA undanförnu
hafa tómatarnir þroskast hratt,
þannig aA mikiA berst af þeim á
markaAinn. Er verAlækkunin af
þeim sökum heldur fyrr á ferAinni
en undanfarin ár. Gúrkurnar voru
einnig lækkaAar niAur í sumar-
verAiA fyrir nokkru. Sölufélag
garAyrkjumanna selur einnig
sveppi á kynningarverAi nú í
nokkra daga.
Níels Marteinsson, sölustjóri í
Sölufélaginu, sagði í samtali við
Mbl. að heildsöluverð tómat-
anna hefði verið lækkað úr 175
kr. í 120 kr. kílóið, eða um þriðj-
ung. Sagði hann að mikið bærist
af tómötum og gúrkum eins og
stendur og einnig sveppum og
væru þeir því seldir með þriðj-
ungsafslætti í nokkra daga.
Smásöluverð tómatanna er
nokkuð mismunandi eftir versl-
unum. Mbl. kannaði verðið í
nokkrum verslunum og reyndist
það hæst 165 kr. og lægst 138,20
kr.
Óli Valur Hansson garðyrkju-
ráðunautur hjá Búnaðarfélagi
íslands sagði að framleiðslan á
tómötum og gúrkum væri mikil
um þessan mundir, enda hefði
sólin þau áhrif að afurðirnar
þroskuðst hraðar en ella. Gúrk-
urnar hefðu borist í fyrra lagi í
vor og sérstaklega áberandi
væri hvað tómatarnir hefðu far-
ið að berast snemma að þessu
sinni. Taldi hann að ræktunar-
horfur væru almennt mjög góð-
ar í gróðurhúsunum.