Morgunblaðið - 23.05.1985, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAl 1985
Dalton Baldwin
heldur námskeið
FÖSTUDAGINN 24. maí heldur
Dalton Baldwin píanóleikari nám-
skeió í Norræna húsinu fyrir píanó-
leikara og söngvara.
Dalton Baldwin hefur verið tíð-
ur gestur hér á landi og skemmst
að minnast Sðnghátíðar ’83. Nám-
skeiðið á föstudag stendur frá kl.
2—5 og eru áhugasamir áheyrend-
ur velkomnir. Áheyrnargjald er
kr. 300.
(FrétUtilkyaBiag)
Aðalfundur KÁ:
Hagnaður af
rekstrinum
4,1 milljón á
síðasta ári
AÐALFUNDUR Kaupfélags Árnes-
inga var haldinn 7. maí sl. i Selfossi.
Fundinn sóttu um 120 manns.
í frétt frá KÁ kemur fram að
reksturinn á árinu 1984 hafi geng-
ið mjög vel. Heildarhagnaður á
rekstursreikningi var um 4,1
millj., og höfðu þá verið færðar til
afskrifta 14,2 milljónir. Fjárfest-
ingar námu um 15,3 milljónum og
tekin voru ný lán vegna þeirra að
upphæð 7,9 milljónir. Heildarvelta
var 599,3 millj. og er aukningin frá
árinu áður 32,7%.
Fjöldi tillagna kom fram á
fundinum. Samþykkt var að kaup-
félagið beiti sér fyrir uppbyggingu
iðnaðar, fiskeldis og loðdýrarækt-
ar á félagssvæðinu. Einnig voru
samþykktar tillögur um skoðun á
möguleikum til starfrækslu fóður-
blöndunarstöðvar og að gera átak
í þágu æskufólks í héraðinu á ári
æskunnar. Að lokum var sam-
þykkt að gefa út samvinnusögu
Árnessýslu á 60 ára afmæli KÁ
árið 1990.
,,Ef þú þarft að geyma 600 vörutegundir í
1—6 stærðum frá 30 framleiðendum ullar-
vara er þér vandi á höndum nema þú getir
treyst tölvunni þinni og starfsliði.“
„Hér hjá Hildu tölum við um „biblíuna okkar“. Hún er hjálpar-
gagnið okkar við stýringu á framleiðslu og ein meginforsenda þess
að framhald verði á vexti síðustu ára. Sjáðu til, hérna hjá Hildu not-
um við ekki aðeins IBM tölvur við fjárhagsbókhald, viðskiptamanna-
bókhald, lagerbókhald og launabókhald (þetta er hvort eð er nokkuð
sem sérhver tölva ætti að geta leyst nú á tímum). Nei, sem ég segi,
mergur málsins er „biblían" sem við fáum frá S/36 og vinnum áfram
í PC vinnustöðvunum okkar. Þannig fáum við fullkomna mynd af öll-
um pöntunum fram á daginn í dag. Jafnframt veitir hún okkur ná-
kvæmar upplýsingar um vörubirgðir og allt sem við eigum von á að
fá afhent næstu þrjá mánuði.“
Ófeigur Baldurs-
son — Minning
Fæddur 31. janúar 1940
Dáinn 15. maí 1985
í dag verður til moldar borinn
frá Akureyrarkirkju ófeigur
Baldursson, lögreglufulltrúi,
Klapparstíg 7, Akureyri.
Hann var sonur Baldurs Bald-
vinssonar, á ófeigsstöðum í
Köldukinn, sem er látinn, og
seinni konu hans, Sigurbjargar
Jónsdóttur, en hún lifir háöldruð
og dvelur á sjúkrahúsinu á Húsa-
vík.
Að ófeigi standa styrkir stofnar
þingeysks atgervis og mennta í
báðar ættir fram. Ungur nam
hann gamlar hefðir í föðurgarði.
Að loknu skyldunámi naut hann
kennslu í alþýðuskólanum að
Laugum í Reykjadal.
Á sínum þroskaárum stundaði
hann sveitavinnu. Er hann eltist
og á manndómsárum fór hann til
sjós og stundaði síðan mjólkur-
bílaakstur í sveit sinni, Köldu-
kinn, og í Bárðardal, snjóþyngstu
sveitum Þingeyjarsýslna.
Árið 1967 hóf hann störf í lög-
regluliði Akureyrar og árið 1975
valdist hann til þess að gegna
starfi rannsóknarlögreglumanns.
Árið 1981 var honum falið að veita
forstöðu sérstakri deild innan
lögreglunnar á sama sviði og því
gegndi hann til hinstu stundar.
Eftirlifandi kona hans er Þor-
björg Snorradóttir, sem hann
kvæntist árið 1965. Eignuöust þau
eina dóttur, Valgerði Guðlaugu, 14
ára nú.
Öll sín skyldustörf rækti Ófeig-
ur af trúmennsku og alúð. Hann
var mannasættir, að eðlisfari um-
burðarlyndur og umfram allt
réttsýnn. Hann var vinsæll og
dáður af samstarfsmönnum. Virt-
ur af þeim, sem hann þurfti að
hafa afskipti af í meðferð mála, og
hafðir voru fyrir meintri sök.
Á yngri árum var Ófeigur virk-
ur þátttakandi í íþróttum, enda
vel íþróttum búinn. Allt til síðustu
stundar var Ófeigur driffjöður í
íþróttafélögum lögreglumanna.
Fyrir nokkrum árum vann hann
það afrek að bjarga drukknandi
manni úr sjó. Synti hann úr landi
í ísköidum sjó, langan spöl, og til
lands með hinn drukknandi mann.
Fyrir það hlaut hann viðurkenn-
ingu.
Heimili hans og eiginkonu var
samastaður ættingja og fjölda
vina, þar sem móttökur voru alúð-
arfullar og innilegar.
Fyrir háifum mánuði héldu þau
hjón vandamönnum og vinafjöld
fagnað á fertugsafmæli Þorbjarg-
ar, sem verður öllum viðstöddum
ógleymanlegur. Og því kom fregn-
in um sviplegt fráfall Ófeigs hinn
15. þ.m. eins og reiðarslag yfir alla
þarstadda og marga fleiri.
Ófeigi kynntist ég, er við urðum
svilar, en kona mín og Þorbjörg
eru dætur Valgerðar Bjömsdóttur
og Snorra Ólafssonar, síðast yfir-
læknis á Kristnesi í Eyjafirði.
Ófeigur reyndist tengdafólki
sínu öllu sannur vinur og ráðgjafi
og ólatur að veita hverjum þeim
lið, sem á þurfti að halda.
Ættingjum sínum í Þingeyjar-
sýslu var hann ástsæll sonur,
bróðir, mágur og frændi.
Öllum, sem honum kynntust, er
hann harmdauði, en sorgin er
mest eiginkonu og dóttur.
Hvíli hann í friði.
Ásmundur S. Jóhannsson
Það var að kvöldi dags þess 15.
sl. sem við félagar í Lögreglufélagi
Akureyrar fréttum að vinur okkar
og starfsbróðir, ófeigur Baldurs-
son lögreglufulltrúi í rannsóknar-
lögreglunni á Akureyri, hefði beð-
ið bana í umferðarslysi í Norður-
árdal þann sama dag.
Skyndilega var sem ský drægi
fyrir sólu á þessum fagra vordegi
og tilveran breytti um svip í einu
vetfangi. Á stundum sem þessum
spyrja menn gjarnan ýmissa
spurninga. Af hverju hann? Hver
er tilgangurinn með að kalla á
brott menn í blóma lífsins, frá
ástvinum sínum og félögum? En
þó við spyrjum þá fást engin svör,
í það minnsta ekki á meðan við
dveljum hér á jörðu.
Á einu og hálfu ári hafa þrír
menn úr lögregluliði Akureyrar
verið kallaðir yfir móðuna miklu,
allir fyrir aldur fram. Það segir
sig sjálft að í ekki stærri hópi
hlýtur það að setja sín merki á þá
sem eftir standa.
Hér verður ekki rakinn æfiferill
ófeigs, en kynni okkar hófust er
hann gerðist lögreglumaður á Ak-
ureyri árið 1967. Störf hans sem
lögreglumaður einkenndust af
gætni og skilningi á mannlegum
brestum, enda svo oft er þörf á í
því starfi. Þessir eiginleikar hafa
eflaust ko'mið honum að góðu
gagni er hann seinna varð rann-
sóknarlögreglumaður, enda varð
hann farsæll í starfi sínu.
Ófeigur var góður íþróttamaður,
og hafði mikinn áhuga á íþrótta-
iðkun lögreglumanna. Sérstaklega
er okkur félögum hans sem æfðum
með honum og kepptum í knatt-
spyrnu minnisstæður áhugi hans
og dugnaður. Engum sem með
honum voru á fslandsmóti lög-
reglumanna í innanhússknatt-
spyrnu nú fyrir skömmu mun hafa
dottið í hug að hann mundi ekki
keppa með okkur framar, og erfitt
er að sætta sig við að hafa hann
ekki lengur við hlið í starfi og leik.
Ófeigur starfaði einnig að fé-
lagsmálum lögreglumanna. Hann
var í stjórn Lögreglufélags Akur-
eyrar og nefndum innan þess og
vann þar mikið starf og óeigin-
gjarnt sem seint verður fullþakk-
að, og þaö skarð sem hann lætur
eftir sig er stórt.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við félagar ófeigs þakka
honum samferðina á þessari allt
of stuttu vegferð og biðjum Guð að
blessa minningu hans um alla
framtíð. Eiginkonu, dóttur og öðr-
um vandamönnum vottum við
okkar dýpstu samúð.
LSL
55-
,ÞAÐ ERIBM S/36 OG PC AÐ
ÞAKKA AÐ VÖRUBIRGÐIR
OKKAR ERU ÁKJÓSANLEGAR“
Kristinn Jörundsson, Hildu hf.
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1985
43
Kveðja frá London
Með sviplegu fráfalli Ófeigs föð-
urbróður míns hefur einum
traustasta og besta hlekknum í
fjölskyldu okkar verið burtu svipt.
Það skarð verður seint fyllt enda
þótt við reyndum af fremsta
megni að þjappa okkur saman og
treysta böndin. En þó hann sé frá
okkur tekinn um stund, sem í raun
er aðeins eitt augnabíik í eilífð-
inni, þá hefur hann samt ekki skil-
ið við okkur. Minningarnar eigum
við, og þó þær séu óendanlega sár-
ar þessa dagana megum við vita
að þær munu verma okkur og
styrkja um ókomin ár, svo bjartar
og glaðar sem þær eru.
Eg minnist með sérstöku þakk-
læti og gleði uppvaxtarára okkar
Ófeigs á tvíbýlinu ófeigsstöðum
og Rangá. Aðeins 6 árum eldri var
hann mér náinn sem bróðir. Naut
ég þá eins og alla tíð síðan í ríkum
mæli eðliskosta hans sem ein-
kenndust af geðprýði, góðvild og
glaðværð. Hygg ég að þeir kostir
hafi ráðið mestu um gæfu hans og
gengi á lífsbrautinni. Það var
sama að hverju hann gekk — alls
staðar naut hann trausts og hylli.
Ég var mjög ungur þegar ég
skynjaði þetta og upp frá því leit
ég til hans sem fyrirmyndar, bæði
í starfi og leik.
Ég minnist leikbróðurins og
íþróttamannsins drenglundaða
sem aldrei neytti aflsmunar í
viðskiptum sínum við okkur sem
minna máttum okkar. ófeigur var
um skeið meðal fremstu frjáls-
íþróttamanna Þingeyinga og vann
til margra verðlauna m.a. á lands-
mótum. Ungmennafélagi var hann
í bestu merkingu þess orðs.
Ég minnist hans að störfum —
heima við búskapinn sem átti ekki
sérlega við hann þó hann ynni að
búi foreldra sinna meira og minna
til fullorðinsára. Hinsvegar áttu
vélár og bílar hug hans og léku í
höndum hans enda varð bifreiða-
akstur höfuðverkefni hans framan
af starfsævinni. Seinna og lengst
varð lögreglan starfsvettvangur-
inn. Var hann þar án efa réttur
maður á réttum stað. Þar var hon-
um enda sýndur mikill trúnaður
en hann var yfirmaður rannsókn-
ardeildar lögreglunnar á Akureyri
mörg síðustu árin.
Að hverju sem hann gekk —
hvort sem honum líkaði betur eða
verr — leitaðist hann alltaf við að
sjá björtu hliðarnar á tilverunni
og var sífellt með spaugsyrði á
vörum. Því var alltaf gott og gam-
an að vera í návist hans og ganga
með honum í verk.
Síðast en ekki síst minnist ég
hans sem fjölskylduföðurins
trausta og hlýja. Ófeigur átti því
láni að fagna að eignast góða og
kærleiksríka konu, Þorbjörgu
Snorradóttur. Var heimili þeirra
ætíð einn helsti griðastaður okkar
fjölskyldu á Akureyri og var þang-
að oft og mikið leitað. Segir það
sína sögu um andrúmsloftið sem
þar ríkti og hjartalag þeirra sem
húsum réðu. Eina dóttur eignuð-
ust þau hjónin, Valgerði, sem
fermd var um síðustu páska. Var
það mikil og gleðileg fjölskyldu-
hátíð sem verða mun einn af
mörgum ljósgeislum í minning-
unni.
Fleira verður hér ekki tínt til úr
þeim dýrmæta sjóði sem ég geymi
innra með mér. Ófeigur var þeirr-
ar gerðar að honum hefðu ekki
hugnast langar lofræður um sjálf-
an sig, svo hógvær sem hann var
og laus við tildur og prjál. Orð eru
líka alls ónýt til þess að tjá það
sem í huga mínum býr.
Ég kveð kæran frænda minn
þakklátur og stoltur yfir því að
hafa átt hann að. Megi minningin
um hann verða okkur öllum sem
nutum hans hvati til dáða. Henni
höldum við best á lofti með því að
rækta með okkur þá kosti sem
prýddu hann.
Frændur og vinir heima, í sorg
okkar erum við öll á sama báti.
Það er sárt að sjá á bak hraustum
og tápmiklum vini í blóma lífsins.
En svona er tilveran fallvölt og við
vitum aldrei hvenær kallið kemur.
f rauninni er jarðlífið sem örstutt
skref á eilífðarbrautinni og þegar
á heildina er litið skiptir það ekki
öllu máli hvort það er stigið
skemmra eða lengra.
Kristur sagðist fara á undan
okkur að búa okkur stað. Ég efast
ekki um það að hann hefur búið
vini okkar góðan stað og að við
munum þar sameinast honum að
nýju í eilífu ríki Guðs þegar skref-
ið okkar er fullnað. Megi þessi
bjartsýni boðskapur lifsins lýsa
upp myrkur sorgarinnar sem nú
grúfir yfir sál okkar allra. Megi
huggarinn, Andinn heilagi, sem
hvítasunnan vitnar um, leggja
líknarhönd sína yfir okkur öll og
þá sérstakiega mæðgurnar Þor-
björgu og Valgerði, svo mikill sem
missir þeirra er, og ömmu mína
blessaða, Sigurbjörgu, sem nú
syrgir son sinn og dvelur í sjúkra-
húsinu á Húsavík.
Megi Hann sefa sorg þeirra,
styrkja þær og blessa.
Jón A. Baldvinsson
Stundum finnst okkur að lífið
hreinlega leiki við okkur. Allt •
virðist vera með þeim hætti að það
vekur gleði og ánægju. Veðurblíð-
an á ekki hvað minnstan þátt í
þessu. Það er eins og allt fas og
viðmót manna verði með meiri
einlægni og tillitssemi. Enginn vill
verða til þess að gera striðan óm í
þeirri hljómkviðu skaparans, sem
blíðast leikur við hug og hönd.
Þegar horft er út í fagran vor-
daginn er ekki margt sem okkur
finnst að gæti sett skugga þar á.
Allt virðist vera að vaxa, dafna og
lifna.
Samt hvílir þungur dómur skap-
arans yfir öllu þessu og innst inni
reynum við að bæla þá hugsun, að
þetta sé jú allt í hans hendi og
hann einn viti hve lengi þetta allt
er okkar. Og lífið gengur áfram,
hver dagur fylgir öðrum. Verund
gærdagsins verður að minningu
morgundagsins og við leyfum
okkur að leggja á ráðin með það
hvaða viðfangsefni skal glímt við
með komandi degi.
Það er manninum eiginlegt að
stefna sífellt fram á veginn, læra
af hinu liðna og láta reynslu og
tilfinningar verða sem millispil í
hljómkviðunni miklu. Ef til vill
finnst okkur að við, hvert og eitt,
skiptum ekki sköpum mitt í tilver-
unni en bresti einn hlekkur í þessu
samspili, þá finnst okkur sem allt
hafi hrunið. Vorið og angan þess
verður ekki söm og áður og öll
okkar hugsun verður bundin þeim
eina hlekk sem brostinn er.
Okkur starfsfélögunum á Lög-
reglustöðinni á Akureyri fannst
sem nístingskulda setti að þegar
við fréttum lát vinar okkar og
starfsbróður, Ófeigs Baldursson-
ar. Vorið, sem við höfðum horft
saman á að morgni, verður aldrei
hið sama og áður. Öll gleðin og
fegurðin, sem Ófeigur talaði síðast
um þegar hann kvaddi um morg-
uninn verður í minningu okkar
starfsbræðra hans, sem rammi
um sorgarfregn sem erfitt er að
sætta sig við. Hvað gerist og hvað
veldur þegar svo þungur dómur er
felldur? Skýringar eigum við eng-
ar en við eigum þá trú að hans
hafi verið beðið á hærri stöðum og
að þar sé nú hans vettvangur. I
ríki því sem eilíft er er sífellt vor
og þar nær aldrei nístingskuldi
hins ósættanlega að blása.
Enda þótt tilveran virðist stöðv-
ast við slíka harmafregn, þá finnst
okkur að hinn síðasti sólardagur
sem hann var okkar á meðal hafi í
raun verið eins og umgjörð um allt
hans líf. ófeigur bar sól og gleði
með sér hvert sem hann fór. Gleði
hans og glettni var geislandi og
einlæg og það var orðið dapurt
ástand hjá þeim sem ekki fann
fyrir þeim mannkostum sem hann
gaf af sér í öllum kynnum og sam-
skiptum við aðra.
Það traust og virðing sem hann
naut í starfi sínu sem yfirmaður
rannsóknardeildar lögreglunnar á
Akureyri segir meira en mörg orð
um það hvern mann hann hafði að
geyma. 1 festu og ákveðni gleymdi
bann aldrei að viðfangsefni hans,
hverju sinni, var fólk sem hafði
sterkar tilfinningar, þó svo því
hefði skrikað fótur.
Ófeigur bar virðingu fyrir lífinu
og trúði á hið góða sem hverjum
og einum er gefið í vöggugjöf. Það
var sama hvað henti og hvernig
aðstæður gátu verið, að með
bjartsýni sinni og uppörvun lagði
hann oft grunn að þeim skrefum,
sem lágu upp úr öldudalnum.
Ófeigur Baldursson var fæddur
á Ófeigsstöðum í Kinn 31. janúar
1940, sonur hjónanna Baldvins
Baldurssonar bónda þar, sem nú
er látinn, og konu hans, Sigur-
bjargar Jónsdóttur, sem lifir
mann sinn. ófeigur var gæfumað-
ur i einkalifi sínu og reisti ásamt
konu sinni, Þorbjörgu Snorradótt-
ur, fallegt heimili að Klapparstfg
7 hér í bæ, þar sem þau bjuggu í
sambýli við foreldra Þorbjargar.
Þau Þorbjörg og ófeigur voru
samhent og samstillt um að prýöa
og fegra heimili sitt og þar áttu
þau þann augastein, sem þau
þökkuðu meir en allt annað, dótt-
urina Valgerði Guðlaugu, sem
fermd var nú í vor.
Með ófeigi Baldurssyni er geng-
inn góður drengur, sem skilur eft-
ir sig bjarta og góða minningu i
hugum allra þeirra, sem hann
þekktu. Hann var sterklegur á
velli, prúðmenni með mikla
íþrótta- og keppnislund.
Enda þótt okkur vinum hans
finnist að vorið hafi vikið af leið
við fráfall hans, þá skulum við
muna að hann óttaðist ekki þenn-
an aðskilnað því hann bar þá trú i
brjósti sinu, að sá skapari, sem
allt gefur og öllu ræður, leiði vini
aftur saman.
Megi góður Guð blessa og
styrkja alla þá sem líf hans var
tengt ástúðar- og vináttuböndum.
Ófeigi Baldurssyni fylgja þakklát-
ar minningar, hans bros og hvatn-
ingarorð gleymast ekki.
„Hér þótt lífið endi, rís það upp
Jrottins dýrðarhendi."
Matthías Einarsson
,,Vöxtur fyrirtækisins hefur verið skjótur
síðustu árin. . .“
Kristinn: „Og það væri ógerlegt að reka fyrirtækið án tölvunnar mið-
að við núverandi umsvif. Tökum útflutninginn sem dæmi. Allur út-
flutningurinn fer í gegnum tölvuna. Við notum IBM PC sem skjástöð
og einnig notum við Lotus 1,2,3 töflureikni. Hámarksskilvirkni náum
við með fjarvinnsluskjástöð og símasambandi, fasttengdri línu. Nú
erum við að skoða þess háttar samband við útlönd.“
,,Eins og margir aðrir útflytjendur eigum
við allt okkar undir þvi að veita góða þjón-
ustu.“
„Réttar vörur á réttum tíma eru lykilorðin,“ segir Kristinn og heldur
áfram: „Það er geysilega mikilvægt að geta séð fyrir að þetta sé unnt,
geta síðan fylgt þessu eftir og séð hvort hægt sé að standa við þetta.
IBM PC tölvurnar okkar eru notaðar til að fylgjast með tölfræðileg-
um upplýsingum um sölu erlendis þ.e. hvaða vörur seljast best (gerðir,
litir, stærðir) á hvaða tíma selst best, hvernig breytast hlutföll á stærð-
arskiptingu eftir svæðum og milli ára. Þessar upplýsingar eru sífellt
sendar fram og til baka, milli verslana erlendis og aðalskrifstofunnar
okkar. Og þessar nákvæmu upplýsingar, sem IBM tölvukerfið flytur
og vinnur úr, tengjast beint framtíðarsölu okkar.“
Helmingur starfsliðs Hildu vinnur nú við
IBM tölvurnar. Svo er IBM skólanum fyrir
að þakka.
Hilda hefur sent flest starfsfólkið á námskeið og IBM skólinn hefur
borgað sig vel í vinnu. Þetta var bráðnauðsynlegt til að flýta því að
tölvan kæmist í gagnið. Flestir fóru á almenna námskeiðið, á tölvu-
kynningu. Þeir sem vinna við tölvuna sjálfa fóru á námskeið í stjórn-
kerfum, vélstjórn og notkun á tölvuverkefnum.
Kemur þú auga á fimm
meginástæður þess
að Hilda hf valdi IBM?
A) Reynslan af IBM var góð almennt. B) IBM er þekkt fyrir að veita
góða viðhaldsþjónustu. C) Hilda hf. hafði keypt 4 skjástöðvar og 3
prentara frá IBM. D)IBM tölvur voru þekktar fyrir að hafa hátt
endursölugildi ef nauðsvn krefði. E) Hilda leitaði eftir sam-
vinnu við þekkt og traust fyrirtæki. F) Hilda hf. hafði ágæta reynslu
af S/34 og S/38 úr fjarvinnslunni. G) Öll fjarvinnsla með IBM hafði
gengið vel. H) Hilda hf. gat reitt sig á tölvuuppbyggingu með IBM
í framtíðinni. I) IBM vörur eru ávallt í hæsta gæðaflokki. J)Upp-
lýsingastreymi frá IBM hafði gefið góða raun — allt frá sviði hugbún-
aðar til vélbúnaðar. K)Allar framleiðsluvörur IBM eru aðhæfðar
notandanum — vinnuhollar og auðveldar í notkun jafnvel þótt unnið
sé lengí í einu.
Velkomin:
Já takk. Mig langar til að vita meira um IBM leiðina til að betur
vinnist með líðan starfsfólks að leiðarljósi. Vinsamlegast
__ hafið samband við mig vegna sýnikennslu
-- sendið mér upplýsingar um:
— IBM PC __ IBM S/36 ___ IBM S/38
__ IBM PC AT ____ IBM 4300 ___ IBM skólann
I
Nafn og starfsheiti:
Fyrirtæki:____________
Heimilisfang:_________
Sími:.
ISLENSK ÞEKKING - ALÞJÓÐLEG TÆKNI L&"*' “L"— S±_l