Morgunblaðið - 03.08.1985, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 03.08.1985, Qupperneq 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST1985 Áður var allt fólkið fyrir vestan Snorrabraut en nú fyrir austan — segja Unnsteinn og Halldór í Lúllabúð Lúllabúó á Hverfisgötu er söm vió sig. Aó vísu hstti Lúlli fyrir liólega VA ári, en nú leigja verslunina tveir gamalgrónir starfsmenn Lúllabúðar, Dnnsteinn Sigurjónsson og Halldór G. Lúóvíksson, sem hafa starfaó í versluninni síðan 1945. „Þetta er mikið sama fólkið sem verslar við okkur,” sögðu þeir, „en samt fer salan minnkandi. Það vantar fleira fólk i hverfið, á svæðið og við viljum fá bygg- ingarnar strax sem Reykjavíkur- borg hyggst leyfa að verði byggðar í nágrenninu. Þá fer að lifna yfir og færast fjör í leikinn á ný, von- andi. Þetta eru allt öðruvísi við- skipti nú en áður,“ sögðu þeir, „mest smotterí, en áður voru þetta stórviðskipti, en því miður er það liðin tíð. Stórmarkaðirnir eru al- veg að drepa kaupmanninn á horninu. Það hefur margt breyst," sögðu þeir. „Við hittum t.d. einn heild- sala fyrir stuttu sem sagði, að hann hefði verið að skoða plögg hjá sér. Um 1950 voru það 100 kaupmenn sem versluðu við þenn- an heildsala, en nú eru aðeins 3—4 eftir í viðskiptum. Hinir hafa allir hætt eða fallið frá.“ Jú, þetta er mikið sama fólkið sem kemur hér. En alltaf er eitthvað nýtt fólk. Þetta kemur og fer. Annars má segja að það sé sérstaklega mikil deyfð nú f versl- Guðmundur Haraldsaon rithöíundur at Guðs nið, leit inn í Lúllabúð meðan við stöldruðum við. uninni, enda er verslunin að flytj- ast úr þessu hverfi og það má segja að það séu alltof margar búðir hér á litlu svæði, sem eru með eins vörur fyrir of fáa við- skiptavini. Þegar við vorum að byrja hér i þessari verslun var bærinn allur fyrir vestan Snorrabraut, en nú má segja að nær allur bærinn sé fyrir austan Snorrabraut og sú Björgvin Fredriksen, fastur viðskiptavinur í meira en hálfa öld. hreyfing sem er í gamla miðbæn- um er mikið með höppum og glöppum í slíkri verslun sem við erum með. Við erum að reyna að hafa það helsta, alla almenna vöru, á boðstólum, en okkur vant- ar fleira fólk. Liklegt er að flestir minni kaupmenn vilji nú losa sig út úr versiuninni, a.m.k. þar sem málið er að þróast eins og hér hjá okkur, en geta ekki selt. Það getur Spiðí mHin enginn keypt búð í dag með því að borga hana með þeim lánum sem völ er á. Jú, við erum orðnir rót- grónir hér I búðinni, byrjuðum að sendast á gömlu hjólunum 10 ára gamlir og höfum haldið okkur við þetta fyrirtæki síðan. Oft var það aðalvinnan áður fyrr að koma heim sendingum fram á rauða- nótt, en nú er ekkert sent lengur. Þessi verslun okkar byggist í rauninni á tiltölulega föstum viðskiptahópi, einhvers staðar á' bilinu 50—100 manns.“ - á.j. Síminn, tékkheftíð, Jón í Túni og sölumennirnir voru föstu punktarnir í tiiverunni Selfowi, 27. júlí. „Blessuó vertu, þó skrifum við bara afganginn," sagði Dagur Dagsson í versluninni Ingólfi á Selfossi við eina húsmóðurina úr nágrenninu. Þessi oró eru dcmigerð fyrir kaupmanninn á horninu, sem alltaf er tilbúinn að leysa hvers manns vanda. „Það er mjög gott að hjafa kaup- manninn á horninu," sagði konan um leið og hún gekk út úr búðinni. Dagur hefur rekið verslunina Ing- ólf síðan 1947. Fram til 1964 var verslunin til húsa á Eyrarvegi 3 en það ár flutti Dagur verslunina i nýtt hús á Austurvegi 34, þar sem hún hefur verið síðan. Dagur, eða Daddi eins og hann er nefndur í daglegu tali, er þekktur fyrir að taka vel á móti viðskipta- vinum sem koma inn úr dyrunum og alltaf tilbúinn i rabb um daginn og veginn og þá jafnt um vandamál dagsins sem heimsmálin. „Já, mað- ur hefur rabbað við marga,“ sagði Daddi. „1 gamla Ingólfi var mikið skrafað og skeggrætt, sérstaklega á föstudögum þegar nemarnir af verkstæðunum komu og fengu sér gos og sælgæti með. Nú eru þetta meira skólakrakkar sem koma, en þessir gömlu koma margir enn og fá sér öl og gott, svona til að rifja upp gamlar minningar." Og ennþá er það venja gos-gestanna hjá Dadda að setjast í stólinn sem hann hefur i einu horninu og margir kannast við sem aldir eru upp á Selfossi. „Ég kann vel við unga fólkið og hef alltaf gert,“ sagði Daddi þegar talið barst aö þvi aö ungt fólk kæmi mikið til hans. „Maður er svo hepp- inn að krakkarnir eru góðir og þægi- legir og við reynum að vera lipur við þau og tölum við þau eins og jafn- ingja." .Krakkarnir eru miklu sjálfstæð- ari nú en áður,“ skaut Ingibjörg systir Dadda inn f. „Kynslóðabilið er miklu minna nú en áður. Nú geta krakkarnir jafnt það sem fullorðnir gera,“ bætti Ingibjörg við, kölluð Imba af innfæddum Selfyssingum, en hún hefur aðstoðað Dadda við búðarreksturinn frá því hún hætti sem varðstjóri hjá Pósti og síma. „Þetta hefur gengið afskaplega vel. Þegar við fluttum hingað aust- ureftir sögðu menn að þetta færi nú örugglega á hausinn hjá manni þarna austur í mýrinni eins og menn orðuðu það við mig. En reynd- in varð sú að hálft þorpið kom á eftir og byggðist hér fyrir austan. Þetta hefur alltaf verið smátt í snið- um hjá mér, ég hef lftinn lager og kaupi oft inn, þannig strandar þetta ekki. Það er meiri ys og þys núna en áður var,“ sagði Daddi þegar talið barst að breyttum verslunarháttum bæjarbúa. „Menn kaupa meira og eru alltaf að kaupa eitthvað núna. Heimavinna er orðin allt öðruvísi bæði í mat og fatnaöi og þetta setur sitt mark á innkaupin. Nú er meiri hraði á öllu. Hér áður pakkaði mað- ur vörunum vandlega inn en núna er þeim bara skellt í poka og búið mál.“ Á unga aldri gekk Daddi i gegnum berklaveikina og er með staurfót siðan. Þrátt fyrir það hefur hann haldið sfnu striki og rekiö verslun- ina þessi 36 ár. Vegna bæklunar sinnar hefur hann farið sinar leiðir við rekstur- inn: „Hjá mér hafa föstu punktarnir í tilverunni verið sfminn, tékkheftið, Jón í Túni og sölumennirnir. Mér finnst heildsalar vera besta stétt manna. Eg hef aldrei farið sjálfur f innkaupaferð, hef ekki haft orkuna i það að gramsa í heildverslunum. Heilu árin liðu milli þess að ég fór í bæinn og svo er enn. Jón i Túni fór með miða til heildsalanna frá mér sem þeir völdu vörurnar eftir. Ég þarf ekki nema eitt litið simtal til að fá þaö sem ég þarf. Oft hef ég fengið margt skemmtilegt frá heildsölun- um sem þeir hafa valið handa mér og það hefur aldrei komið til neinna árekstra útaf nokkrum sköpuðum hlut vegna vörusendinga. Heildsal- arnir eru afskaplega liðlegir og hafa alltaf sent mér og lánað þó ég hafi ekki séð fjölda þess fólks sem vinnur þar. Svo koma sölumennirnir sem maður pantar hjá.“ — Hvað kemur þér í hug þegar þú lítur til baka? „Já, það er nú með þetta lffsverk manns, það er eins og korkur sem flýtur á læk. Maður lendir einhvern veginn hérna en ekki þarna og mér finnst eins og þetta hafi allt verið ein tilviljun hjá manni að hafa lent í þessu. Auðvitað var maður með I margt annað i kollinum sem ungur maður en heilsutjónið olli þvi að þetta varð úr og allt hefur þetta gengið vel.“ — Og svo er verslunarmanna- helgin framundan. „Já, við vonum að verslunarstétt- inni liði vel og hennar hagur blómg- ist,“ sagði Imba, og Daddi tók undir þau orð. Búðarspjalli í Daddabúð var lokið, inn kom viðskiptavinur sem leit f hillurnar, tók þaðan hlut og sagði: „Hvaað, þetta kostar bara ekki neitt,“ sem sýnir að hjá kaup- manninum á horninu kennir margra grasa og þar gerast ævintýr. Sig. Jóns. Dagur Og Ingibjörg Uorgunblaðid/Sig. Una.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.