Morgunblaðið - 03.08.1985, Page 7

Morgunblaðið - 03.08.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 B <f7 Þá var allt reiknað íhuganum Rætt við Óskar hjá Halla Þórarins á Hverfisgötunni Verslun Halb Þórarins í Hverfis- gðtunni er ein af þeim elstu í Rcykja- vík og þar er gamalreyndur verslunar- maður við búðarborðið. Hann heitir Öskar Ágústsson, Reykvíkingur að uppruna. „Ég er búinn að vera lengi í bransanum," sagði hann, „byrjaði árið 1927 hjá Jóni Hjartarsyni og Co. f Hafnarstræti 4. Það var þá stór versl- un í Reykjavík. Sú verslun hætti 1932 og þá var sett í gang verslunin Reykja- foss á sama stað og ég var verslunar- stjóri þar þangað til okkur var sagt upp húsnæðinu. Þá fluttum við á Vest- urgötu 17 og vorum þar til 1938, að við settum upp verslunina hér og hérna bef ég síðan verið verslunarstjóri. 1‘essi verslun hefur alltaf verið ný- lendu- og hreinlætisvöruverslun fyrst og fremsL Jú, það hefur allt breyst mikið frá þvi forðum daga. Nú hafa allir mikla peninga, það er nú eitthvað annað en var í kreppunni. Á hinn bóginn er gamli bærinn búinn að vera, a.m.k. um sinn, hvað varðar mannlífið, fjölskyldulífið I miðborg- inni. Heimilum hefur fækkað svo hér og þannig hefur orðið mikil breyting. Viðskiptin hafa þvi minnkað hjá okkur, eins og öðrum, sem erum í þessu í gamla miðbænum. Áður fyrr kom fólk víða að og verslaði við okkur, meira að segja úr sveitinni. Við vorum þá þrjú að afgreiða og nokkrir að sendast stanslaust frá morgni til kvölds, en nú er þetta reytingur, gangandi sala. Þeim fækkar kaupmönnunum á horninu. Það er þó mikið um sömu viðskipta- vinina, og alltaf er eitthvað af nýju fólki. Hitt er ljóst að við töpum verslun hér á því að það eru ekki næg bílastæði í nágrenni við okkur. > HPIIUL!)IJJIII óskar hetur rerió hjí Halia Þórarins srhan fyrir strfð. Jú, ég er bráðum 74 ára.“ „Þú ert táningslegur,“ sagði ég. „Já, það er af því að maður er alltaf á hlaup- um,“ svaraði Óskar, sem alla tíð hef- ur verið verslunarmaður og aldrei leiðst. „Mér finnst framkoma fólks hafa breyst á undanförnum áratug- um,“ sagði óskar. „Pólk er frjáls- legra en fyrir 30—40 árum. Það má segja í stuttu máli að fólk sé hátt- víst og kurteist. Unglingarnir eru svolítið frakkari, en það er rétt á vissum aldri. Ég byrjaði nú ungur I þessu starfi, 16 ára 1927. Ég hef alltaf ver- ið sáttur við mitt starf, a.m.k. hef ég ekki verið að skipta um atvinnu. Þar af leiðandi þekkir maður verslun- arháttinn í gömlu Reykjavfk I gegn- Ása Ricbardsdóttir og Sigriður Bachman ræia milin rii Óskar. Birgitta bandfjatlar bnetupoka. um tíðina. Breytingarnar hafa orðið margar. Áður þurfti ég t.d. að vigta allt sem kom i verslunina, en nú er allt tilbúið, nú kemur allt tilbúið. Þá voru engar reiknivélar, heldur var allt reiknað í huganum og þannig mætti nefna æðimargt.“ Inn í búðina kom kona, sem auð- heyrilega hafði ekki komið fyrr f verslun Halla Þórarins og hún leit yfir hillurnar og sagði svo: „Þessi búð leynir aldeilis á sér.“ Og það má með sanni segja, þarna kennir margra grasa þótt plássið sé ekki stórt. Og það er skemmtilegt að heyra hvernig óskar spjallar við viðskiptavinina í persónulegum stíl kaupmannsins á horninu. - á.j. Dýnan þarf að laga sig eftir iíkamanum — segir Ingvar hjá Ingvari og Gylfa Ingrar leggur kapp i að dfnan lagi sig eftir Ifkamanum og þai er þrí sjilfsögð regla að prófa dýnurnar. Ingvar & Gylfi við Grensásveg í Reykjavík er ein af elstu versl- unum landsins sem hefur sér- hæft sig í rúmum og öllu er þar að lýtur. Við tókum Ingvar tali í versluninni, þar sem segja má að sé stanslaus straumur fólks daginn út og daginn inn. -ÉK var að koma neðan af Lindargötu frá þvf að hitta konu sem var að koma af spitala og við vorum að reyna að koma gamla rúminu hennar í gott form. Þann- iig fáum við oft ýmis verkefni og allt miðast þetta við að láta fólk- inu líða betur f rúminu sfnu. Tónninn í fólki sem kemur til okkar er yfirleitt mjög góður þeg- ar það fer frá okkur. Það er þakklátt og slíkt er alltaf jákvætt og skemmtilegt," sagði Ingvar. „Við erum þeir einu sem höfum snúið okkur eingöngu að rúmum og öllu í sambandi við þau. Við höfum verið í þessu f 28 ár, en þar áður var ég verkstjóri hjá Guð- mundi H. í 8 ár hjá Húsgagna- verslun Reykjavíkur. Þar stðrf- uðum við Gylfi saman. Hann kom að austan en ég er úr Reykjavík." í rúminu á líkaminn ad fá ad hvflast „Jú, það hafa orðið stór stökk í kröfum, sérstaklega varðandi rúmdýnur, og svo að smíðin sé góð og rúmin sterk. Fólk fylgist vel með öllum nýjungum og það tekur eftir því sem er verið að gera nýtt. Sérstök bylting hefur orðið í dýnum. Í dag á ég t.d. dýn- ur fyrir hjartveika og þindar- slitna. Þeir þurfa að liggja svolít- ið uppréttir. Þá hefur tvöfalda dýnukerfið mikið rutt sér til rúms. Sá sem er alltaf að kuðla koddann sinn f rúminu á við dýnuvandamál að glfma, en það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir því. Svo er hægt að hjálpa fólki með of háan blóðþrýsting og bjúg í fótum og einnig þeim astmaveiku, svo að eitthvað sé nefnt. Fólk er farið að kynna sér hlutina miklu meira nú en áður. Það er farið að velta því meira fyrir sér að það skiptir miklu máli að likaminn fái tækifæri til að hvílast á réttan hátt. Ég hef tekið þá afstöðu að auglýsa ekki sérstaklega sjúkradýnur sem ein- hverja allsherjar lausn þvf hver dýna þarf að vera gerð eftir þyngd og líkamsbyggingu þess sem á að nota hana og svo hvað að er ef eitthvað þjáir manninn. Margir hafa fengið bót í betra rúmi Þá höfum við sérhæft okkur í að búa til hærri rúm. Við höfum búið til dýnukerfi þannig að við getum sett tvöfalt kerfi f hvaða rúm sem er. Svo höfum við lagt áherslu á að fólk geti fengið allt i stíl inn í herbergið, skápa, spegla, liti og hvaðeina. Efnið í okkar dýnum er sænskt stál f gormum og þær dýnur hafa reynst mjög vel auk þeirra bandarisku. Allt stopp og efni í bólstrun er inn- flutt, valið úr þvi besta fáanlega en sett saman hér á landi þannig að við teljum okkur standa fylli- lega á sporði þeim innfluttu dýn- um, sem eru á markaði hér. Fólk getur beðið um hvaða efni sem er í dýnur hjá okkur. Það er hægt að stoppa upp eftir óskum fólks og við höfum lagt mikla vinnu f það að sinna þeim, sem eru í vand- ræðum vegna bakveiki. Það er ánægjulegt hve margir hafa fengið bót í rúmunum frá okkur. Mest tel ég vera um það að fólk sé með of harðar dýnur í rúmum sínum. Dýnan þarf að ríma við líkamann, laga sig eftir likaman- um en ekki lfkaminn eftir dýn- unni. Líklega er það um helming- ur viðskiptavina okkar sem veltir því strax fyrir sér hvernig dýnan er gerð, hvaða möguleika hún hefur. En við vekjum athygli allra viðskiptavina okkar á því að þetta er grundvallaratriði og það má segja að það sé alger undan- tekning ef fólk leggst ekki og prófar rúmin hjá okkur áður en það kaupir ... Framleiða 2000 rúm á ári Ég hef oft orðið var við það að fólk sem kemur erlendis frá, sér- staklega frá Bandarikjunum og er vant góðum rúmum, biður um þannig rúm. Og það er einmitt það sem við erum að útvega við- skiptavinunum. Gamla fólkið fyrrum var oft að minu mati f betri rúmum en margur nú til dags, þ.e. það fólk sem var á mörgum sængum. Þær voru barð- ar upp á hverju kvöldi og þetta voru náttúruleg og góð efni. Við erum með 30 tegundir af rúmum á boðstólum og alltaf eitthvað nýtt. Það eru t.d. 3 ný rúm á teikniborðinu um þessar mundir, en á þessu timabili sem við höf- um starfað höfum við selt á milli 30 og 40 þúsund rúm. Það má segja að nú sé það fast, að það séu um 2000 rúm sem við seljum á hverju ári og framleiðum. Við höfum lagt áherslu á að fylgjast vel með. Við förum helst einu sinni á ári á vélasýningar erlend- is og efnasýningar og við höfum fylgst með á vörusýningum er- lendis og tekið þátt f þeim og ég held að það sé ekkert ofsagt, að við séum fyllilega samkeppnis- hæfir, en það má segja að þá vanti kraftinn i markaðsmálin, sölumennskuna á alþjóðavett- vangi. Þetta er, þó að segja megi að það gangi ágætlega, slikur barningur, að menn hafa eigin- lega ekki þrek i neina umfram sölumennsku utan við innlenda markaðinn.“ — á.j.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.