Morgunblaðið - 03.08.1985, Page 10

Morgunblaðið - 03.08.1985, Page 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 Gamla indíánakonan talaði íslensku Viðtal við Ólaf B. Halldórsson, framkvæmdastjóra á ísafirði ísafirói, 26. júlí. Ólafur B. Halldórsson, framkvKmdastjóri hjá heildversluninni Sandfelli á ísafirði. Ólafur er menntaður í framkvemdastjórn fyrirtækja hjá Manitoba Institute of Technology í Winnipeg í Kanada. Eftir að hann lauk prófi 1967, starfaði hann um tveggja ára skeið við innkaupadeild námureksturs Inter- national Nickel Company Ltd. of Kanada. Þá var hann ráðinn framkvemda- stjóri Sandfells hf., sem á þeim tíma eins og nú er aðallega í innflutningi og dreifingu veiðarfera. Það kom í ljós að störf hans hjá Internationai Nickel komu honum að góðu gagni því samskonar- búnaður er notaður hvort sem draga skai málma úr jörðu eða fiskitroll úr sjó. „Mér fannst gott að vera í Kanada," sagði ólafur. „Það er margt líkt með okkur. Þótt þeir séu tíu sinnum fjölmennari, er landið líka tíu sinnum stærra. Fyrir bragðið eru þeir ekki með þá stórveldisvitund sem ríkir í Banda- ríkjunum. Þetta gerir það m.a. að verkum, að ég tel að fólk sem vill mennta sig til starfa í atvinnulíf- inu fái betri menntun þar en víðast annarsstaðar. Þá tel ég að þeir ásamt Bandaríkjamönnum, Japön- um og Dðnum séu hvað þróaðastir í heimsverslun. Það er eftirtektar- vert, að á eftir Englendingum hafa fslendingar og Gyðingar spjarað sig hvað best af landnemunum þarna vestra. Tunga og menning Islendinga eru betur þekkt þarna en nokkurs staðar annars staðar í veröldinni og þótt Kanada sé oft kallað bræðslupottur erlendra þjóðerna, er menningarleifð þeirra svo rík, að það er áberandi gott að vera íslendingur í Kanada. Það er alveg víst að þessi ár mín þar verða mér ógleymanleg og ég mun búa að þeirri þekkingu og reynslu sem ég öðlaðist þar alla ævi. Mér er minnisstætt eitt atvik frá dvöl minni þar. Ég var á gangi i Winnipeg og spurði þá gamla indí- ánakonu til vegar. Hún spurði mig hvaðan ég væri og þegar ég sagði henni að ég væri frá íslandi ávarp- aði hún mig á vel skiljanlegri ís- lensku. Hún sagðist vera uppalin í fslendingabyggðunum í Lundum i Manitoba. Hún verslaði við íslensk- an kaupmann sem þar var og af honum og öðrum lærði hún að gera sig skiljanlega á íslensku. Það hef- ur alltaf verið mjög gott samband milli fslendinganna og indíánanna og reyndar Úkraínumannanna líka, sem voru nábúar f slendinga á land- námsárunum. Það var góð sagan sem ég heyrði um daginn frá Vestur-íslendingi sem hér var. Menn nauðlentu á flugvél einhvers staðar á Winnipeg-vatni. Fyrstu menn sem þeir urðu varir við voru indíánar. Flugmennirnir kölluðu til þeirra og spurðu hvort engir hvítir menn væru I nágrenninu. Nei, sögðu indíánarnir, hér eru bara indíánar og fslendingar. Það er harðgert fólk sem þarna býr; ég upplifði hitamun frá 50°C í 40°C hita. Þegar vetur eru harðir hafa Kanadamenn orð á því að best væri að láta indíánunum þetta land eftir aftur. Nú eru Kanadamenn að verða okkar skæðustu keppninautar á sjávarútvegssviðinu. Þar reka þeir mál sín með aðferðum, sem við er- um alls ekki sammála og bitna á okkur, búandi við hliðina á mikil- vægasta útflutningsmarkaði okkar. Mér finnst að þjóðirnar við Norð- ur-Atlantshaf, Kanadamenn, Grænlendingar, Færeyingar, Norð- menn og Danir, ættu að hafa náið samstarf um markaðssetningu sjávarafurða." Ólafur Halldórsson hefur um margra ára skeið selt skreið til Nígeríu og hefur oft farið þangað í söluferðir, bæði einn og með stærri sendinefndum. Hann á margar sögur að segja frá þeim ferðum, enda segir hann að fátt vaxi honum í augum i viðskiptum eftir að hafa ferðast á eigin spýtur um þetta stóra og margbrotna land. „Ég var eitt sinn staddur i Kanó í NorðurNígeríu einn míns liðs og átti pantað flug til Lagos kl. 10 að morgni. Eftir að hafa setið einn í steikjandi sólarhitanum i sex klukkutíma innan um innfædda og beðið flugvélarinnar birtist hvítur maður og settist hjá mér. Við tók- um tal saman. Hann var frá Birm- ingham í Englandi, en hafði starf- að um tveggja ára skeið hjá frönsku fyrirtæki í Nígeríu. Ég spurði hann hvernig honum líkaði svo löng dvöl í landinu. Hann sagði að dvölin þarna skildi svo sannar- lega mennina frá drengjunum, þeir veikari gæfust strax upp, hinir hörðnuðu við hverja raun. Við bið- um þarna saman í aðra 6 tlma, þá kom fyrsta flugvélin, en samkvæmt áætlun áttu að fljúga fjórum sinn- Ólafúr B. Halldórason um á milli staðanna þennan dag. Ég ætlaði að taka töskuna mína og fara t biðröðina, en Bretinn sagði mér að taka til fótanna og elta sig. Við hlupum sem fætur toguðu að flugvélinni og tróðum okkur inn I flugvélardruslu frá Capo Air. Þarna gilda engin brottfararkort eða önnur formsatriði, bara gamli málshátturinn sveltur sitjandi kráka en fljúgandi fær. Bretinn spurði mig hvert ég ætl- aði í Lagos. Ég sagði honum að ég ætlað bara að leita mér uppi hótel og gista þar. Hann sagði að enginn hvítur maður vogaði sér að vera einn á ferli eftir að dimma tæki og sagðist taka mig með sér heim, því bílstjórinn hans biði á flugvellin- um. Ég lét nú í ljós vafa yfir að bílstjórinn biði enn 6 timum eftir að flugvélin átti að koma. En hann sagði bara: „Þeir eru vanir að bíða hér,“ og reyndist það sannmæli. Þarna er öll venjuleg þjónusta menningarþjoða í molum. Síminn er sjaldan í Iagi, raf- magnið fer og kemur oft ekki fyrr en eftir marga klukkutíma og sama er að segja með vatnið. Ég lenti aldeilis í því daginn eftir. Indversk hjón höfðu boðið mér f mat og ég ætlaði að drífa mig í bað eftir vinnudaginn. Þegar ég var búinn að sápa mig fór vatnið af og þegar það var ekki komið aftur eftir korter, fór ég í ísskápinn og sótti þangað tveggjalítra flösku af drykkjar- vatni og notaði til að skola af mér sápuna. Það er sagt þarna að það mætti leysa verulega úr umferðar- öngþveitinu með því að koma síma- kerfinu í lag, því fólk er orðið vant þvi að betra sé að keyra 20—30 km til að hafa samband við mann, en að reyna að hringja. Mér finnst oft vera talað um framleiðslustéttir og þjónustu- stéttir hér hjá okkur og þá um þjónustustéttirnar sem afætur. Ég lærði það í versló í gamla daga að öll sú starfsemi, sem miðar að því að koma vöru til neitenda, sé fram- leiðsla. Ég vil meina að verslun- armenn séu ekki siður mikilvægir en margar aðrar stéttir sem að framleiðslu vinna. Góðir verslun- armenn skapa þjóðinni gífurleg verðmæti með hagstæðum inn- kaupum og góðum árangri í sölu- málum. Því má þjóðin aldrei gleyma," sagði Ólafur Halldórsson að lokum. Úlfar Svissað á nótu í Sportbæ ef veskið er tómt Helfossi 28. júli. „Svo á ég hérna myndarlega regnhlíf handa þér,“ sagði Ársell Árselsson í Sportbe við golfara sem var að versla. „Skelltu þér bara á hana, þetta er sú síðasta. Þú svissar bara á nótu ef þú átt ekki fyrir henni og svo er líka að koma helgi,“ hélt Ársell áfram þegar maðurinn hikaði. „Það er búið að vera nóg að gera,“ sagði Ársæll, „tlðin hefur skapað traffík. öll vikan er í sjálfu sér búin að vera eins og föstudagur. Maður heldur alltaf að verði lítið að gera þegar gott er veður en þá er ailtaf mikið að gera, fólk slappar af og kemur til að skoða," sagði Guð- rún Kjartansdóttir, kona Ársæls, sem einnig var við afgreiðsiu. í Sportbæ hjá Ársæli er margt að skoða. Þar eru allar helstu sportvörur og sérvörur fyrir ýmsar greinar íþrótta. Leikföng og við- legubúnaður fylla margar hillur ásamt sportlegum fatnaði. „Til að þetta gangi er um að gera að hafa umsetninguna passlega, kaupa lítið inn en oftar,“ sagði Ar- sæll þegar talið barst að því hvern- ig verslunarrekstrinum gengi þetta árið, og hvort ekki séu átakasprett- ir í þessari starfsgrein eins og svo mörgum. „Sem betur fer ólst maður upp við útgerð og verslun og fjölbreytta starfshætti í Eyjum. Maður vann þar og býr að þvi núna. Það er nú komið á þriðja ár frá þvi maður hefur tekið almennilegt fri. Ekki víst að maður fari neitt sérstakt um verslunarmannahelgina en i haust fer maður í frí,“ sagði Ár- sæll. Fólk streymdi inn og út úr búð- inni og lítill tími var til skrafs þó þau hjónin gæfu sér tíma til að líta upp öðru hvoru. „Það er mjög gaman að vinna hérna á sumrin, það er svo fjöl- breytilegt fólk sem kemur hér inn,“ sagði Guðrún, „og það er beðið um ótrúlegustu hluti, jafnvel um saumnálar hérna í sportvörubúð.“ Sig. Jóns. MorgunbladiA/Sig. Jóna. Ársæll Ársælsson og Guðrún Kjartansdóttir fyrir utan rershin sína. Vfikuferðir til Færeyja í ágúst Ferðaskrifstofa ríkisins og Austfar h/f Seyðisfirði vekja athygli á hagstæðum Færeyjaferðum í ágúst. Flogið frá Reykjavík, siglt með Norrænu frá Seyðisfirði. Dvalið á Hótel Borg í Færeyjum, morgunverður innifalinn. Brottför alla fimmtudaga. Hagstætt verð. Ferðaskrifstofa Rikisins, s. 91-25855 og Austfar h/f Seyðisfirði, s. 97-2111. >Tf7 ■ » ■ ■ r 1 ■ ar~‘ y “___Jyfr •••tiHiiiiiiiiiiiniiiia 11111111111111111111 111111111111111 .......... iiiia • •1,1 ■ *' 1 * * ' SMYRIL—LINE •

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.