Morgunblaðið - 03.08.1985, Page 12

Morgunblaðið - 03.08.1985, Page 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 B 13 ið með póstferðum Guðlaugur Pálsson er bú- inn að starfa að verslun í 69 ár. Hann er enn að og hjá honum er því mikið vðru- úrval og sérstætt að koma og versla við hann. Við röbbuðum saman og hann dró fram úr pússi sínu fyrstu bókhaldsbókina frá 1917 þar sem um var að ræða innkaup og sölu á vör- um. Ég varð að kaupa papp- ír í þessa fyrstu bókhalds- bók mína og láta binda hana inn hér á Bakkanum, sagði hann. Það var ekki svo björgulegt þá, að það væru til bækur til þess að færa inn í. í tvö ár leigði ég hús undir verslunina af Sig- urði Guðmundssyni. Ég var fyrst hjá honum í tvö ár, leigði síðan í tvö ár og upp í leiguna fór ég í póstferðir til Selfoss og Stokkseyrar tvisvar í mánuði á hvorn stað á vetrum og fjórum sinnum á sumrin. Þannig greiddi ég húsaleiguna. Hræddur við gjaldþrot í 30—40 ár Ég byrjaði strax á ný- lenduvörum, keypti restina frá Sigurði sem er afi Þor- steins Pálssonar, faðir Páls. Ég keypti aðra íbúð um leið og þar var mikið af vörum sem kostuðu alls 8500 kr. Þær keypti ég af Bergsteini Sveinssyni. Þegar Sigurður Guð- mundsson hætti, þá bauð hann mér að taka við. Ég lét flytja vör- urnar 3. des. og það var svo mikil ófærð að ég varð að fá menn úr næstu húsum til þess að ýta á sleðann og hjálpa hestinum yfir mestu skaflana. Þá var enginn vörubíll hér. Ég var strax með margar vörutegundir á boðstólum, vefnað, pappír, matvöru. Ég pant- aði mikið inn beint að utan. Ég man eftir því að einu sinni pantaði ég frá firma í Þýskalandi rétt í VE ti Íiís Myndina tók Haraldur Blðndal Gudlaugur PUsaon kaupmaður fyrir utan rerslun sína í Sjónarbóli um 1920. Guðlaugur byrjaði að rersla sjálfur 1917. Fyrstu tvö írin rar hann f leiguhúsnæði, en írið 1919 keypti hann Sjónarhól (Settubús), sem þí rar ekki nema ein hæð með lágu risi. Síðan hefur Guðlaugur stækkað húsið, en innréttingar í rersluninni ern að stofni til þær sömu f dag og þegar hann byrjaði þar sro ekki hefur rerið tjaldað til einnar nætur. Til rinstri á myndinni sér í Garðsbús (Jónasarhús) og til bægri er Garðbær (Völubær). endann á fyrra stríðinu, J.G. Dibbern hét fyrirtækið. Ég pant- aði hjá þeim fyrir 5 millj. marka en það gerði á 6. þúsund krónur. Markið komst niður í hálfan eyri. En þá var varan send í pósti frá Þýskalandi til Reykjavíkur. Ástæðan fyrir því að ég fór að versla var einfaldlega sú að Sig- urður hætti og bauð mér að taka við. Ég hafði ekkert gaman af að versla og ætli það hafi ekki verið svona 30—40 ár sem maður var alltaf hræddur við gjaldþrot. Varð að rölta heim með drauminn um sjómennsku í sjópokanum En maður hafði bara ekkert annað að gera þá, var búinn að vera í erfiðisvinnu, í síld á Siglu- firði 1914 þegar stríðið byrjaði en þar vann ég við að kverka og salta. Árið 1914 hafði ég reyndar ráðið mig til sjós, því ég hafði einlægan áhuga á að komast á sjóinn. Ég hafði fengiö ráðningu á gufuskipið Ingólf sem gekk milli Reykjavíkur og Eyrarbakka og það var Sigur- jón P. Jónsson skipstjóri sem réð mig sem háseta. Þegar ég hins vegar kom að skipshlið með sjó- pokann minn í Engey var Sigurjón þar fyrir og sagði að það gengi ekki með ráðninguna, því skrif- stofan hefði verið búin að ráða mann. Ég átti því engra kosta völ, en enn í dag er ég sannfærður um að þarna var ekki allt sem sýndist. pokann minn og rölta með draum- inn minn um sjómennsku heim á ný og í skósmiðina. Ég var i skósmíðanámi í 3 vetur, en hafði enga eirð í mér í skósmíðinni. En hins vegar var ég lengi með skó- fatnað í versluninni hjá mér frá Lárusi G. Lúðvíkssyni. Nei, þetta var erfitt oft og tíðum og maður varð jafnvel að sniðganga ýmsar götur i Reykjavik hjá heildsölun- um svo að maður sæist ekki út um gluggana. Svona var nú það, fá- tæktin var svo mikil. „Ekkert að hætta þótt árín séu orðin 69 í versluninni“ — segir Guðlaugur Pálsson kaupmaður á Eyrarbakka í bók Haraldar Blönd- al, Ljósmyndarinn í þorpinu, gömlum myndum frá Eyrar- bakka, er mynd af Guðlaugi Pálssyni kaupmanni. Myndin er tekin fyrir utan verzl- un hans árið 1920, en Guðlaugur sem fædd- ist 1896 hóf verslun á Eyrarbakka 4. des- ember 1917. Enn er Guðlaugur Pálsson að versla í sama húsinu og hann verslaði í þeg- ar myndin var tekin. •:»........ Sigurjón var vel kunnugur mínu fólki og þótt enginn hafi nokkurn tíma viljað við það kannast þá er ég sannfærður um að mitt fólk hefur haft samband við Sigurjón og haft á móti því að ég færi til sjós og að það hafi ráðið úrslitum hvernig fór. Ég varð því að axla er sérlega falleg og raðað í billurnar á listrænan hátt þá staögreiöi ég, ef þeir senda hana til mín þá sendi ég alltaf greiðslu sama daginn og varan kemur. Ég fékk afslátt út á þetta greiðslufyrirkomulag löngu áður en það þekktist í raun og veru. Enn skipti ég við suma sem ég byrjaði að skipta við í byrjun fyrir 69 árum, Johnson & Kaaber og Nathan & Olsen. Hálf kolaskip, hálft timburskip og allt þar á milli Stundum varð líka að leggja í Morguoblaðið/Árni Johnaen í kjallaranum undir búðinni er rúmgóð geymsla og þar er elcki síður snyrtimennska en annarsstaðar í fyrirtækinu, jafnrel gosdrykkjaflöskum stillt upp eins og eltir lóðbretti. Komið úr kjallaran- um upp í búðina. stór verkefni. Einu sinni fékk ég hálft timburskip á móti kaup- manninum á Stokkseyri. Það var frá Danmörku, liklega 1928. Það voru alveg ágæt viðskipti fyrir mig. Sjötíu þúsund krónur þá kostaði farmurinn og það var mik- ið. Egill Thorarensen fékk sem oftar kolaskip og gat ekki selt nema helminginn vegna fátæktar og ég keypti hinn helminginn. Það var líka ágætt fyrir mig. Sölumenn byrjuðu snemma að koma hingað á Bakkann sem aðra staði landsins. Mest var þetta matvara sem seld var áður, en nú koma stundum þrír sölumenn á dag til þess að bjóða sælgæti. Á sínum tíma var mikið um það að menn væru í mánaðarreikningi. Það var miðað við mánuðinn í gamla daga. Það gekk misjafnlega en Eyrbekkingar hafa yfirleitt verið ákaflega skilsamt fólk. Nú er vöruúrvalið langtum meira og kröfurnar meiri um leið. Islandsmet rúðuglerskurði Frá upphafi í versluninni þessi tæp sjötiu ár, hef ég verið með allar tegundir af matvöru á boð- stólum og líklega hef ég skorið langflesta kílómetra af rúðugleri sem nokkur íslendingur hefur skorið, eða frá 1915—1975 þegar tvöfalda glerið náði yfirhöndinni. Lengdin í gleri sem ég hef skorið er ugglaust mörgum sinnum milli Reykjavíkur og Eyrarbakka. Sumt er þó eins og forðum, t.d. er sírópið í sams konar umbúðum og frá því að ég man eftir. Hér voru nokkrir kaupmenn á sínum tíma samskipa mér, ólafur Helgason, Þorkell Ólafsson og Sigurður Kristjáns- son. Við vorum ákaflega lengi saman fjórir hér og samkomulagið og samstarfið var ágætt. Lengst af hafði ég opið frá 8—8, en nú hef ég opið frá 9.30—2 og 8—9.30 á kvöld- in. Nei, nei, ég er ekkert að hætta, þótt árin séu orðin 69 í verslun- inni, ég gæti ekkert gert annað. Ég dunda við þetta einsamall en hver veit nema maður taki sig einhvern tíma til og setjist að á Borginni. Þar bjó ég oft áður og þar var ljómandi gott fyrir mig að vera. Eg á innkomu þar þegar ég vil. Einu sinni kom ég seint um kvöld á Borgina til gistingar. Dyravörðurinn sagði að allt væri fullskipað. Ég bað þá að útvega mér pláss einhvers staöar annars staðar þótt ég hefði alltaf gist hjá þeim. Málið var athugað og það kom í ljós að það voru til tvö her- bergi samliggjandi. Mér bauðst annað herbergið upp á það að lok- að væri á milli en varð að borga tíu krónur í stað 5,75, sem ég var vanur að borga fyrir hehbergi á Borginni. Ég varð að láta mér þetta lynda til þess að fá húsa- skjólið en dýrt þótti mér það. Keypti stundum meira af kartöflum en skynsamlegt var Áuðvitað lenti maöur oft i ýmsu hér áður fyrr, smávegis karpi eins og gengur út af einu og öðru, en allt leystist það farsællega. Ég þurfti oft að kaupa allar kartöflur hér á svæðinu þótt það væri kannski ekki mjög skynsamlegt að gera það. En þetta hefur gengið ljómandi í heildina. Hér er ágætis fólk, kurteist fólk og opinskátt, al- veg ágætis fólk. Reykjavíkin hefur oft verið metin dýrt Jú það er rétt, ég lagði minn hlut í bryggjuna hér þegar hún var fyrst steypt, líklega í kringum 1926 eða 1928. Ég keypti 15 hluti fyrir 1.500 kr. Þá var til saman- burðar tímakaupið á klst. fyrir Reykvíking í snjómokstri á Hellis- heiði ein króna. Hins vegar hafði Eyrbekkingur 90 aura á klst. fyrir sömu vinnu. Svona var nú það. Reykjavíkin hefur oft verið metin dýrt. Ekki gat maður nú brunað á milli í þá tíð eins og nú er hægt og einu sinni man ég eftir því á leið- inni til Reykjavíkur að vetrarlagi að snjórinn var svo mikill aö á miðju fjallinu þar sem við gáfum hestunum hey — en við vorum ríð- andi — þá gátum við sest hvor á sinn símastaurinn. Svo mikill var snjórinn og svo mikið var harð- fennið að ríða mátti á svo djúpum snjó. Nei, ég hafði aldrei neitt út úr bryggjunni þó það færu miklir peningar í þetta frá mér. En hún gerði sitt gagn og það varð að gera ýmislegt fleira en gott þótti. Eitt árið varð ég að kaupa um 700 hundrað punda kartöflupoka. Hjá sumum dugði sú framleiðsla sem þeir áttu i pokafjölda fyrir úttekt fram eftir árinu. — En ég hef aldrei haft skemmtun af að versla. Þetta var og er fyrst og fremst starf, en allt er hægara nú en áð- ur, þegar t.d. þurfti að treysta á sleða og hesta. Það voru lika upp- ákomur. Einu sinni varð ég að geyma vörur frá Reykjavík i viku úti á ísnum á Fljótinu um miðjan vetur og láta standa vakt við sleð- ana, því pest sem gekk í Reykjavík varð þess valdandi aö læknar stöðvuðu vöruflutningana inn í þorpið. Vagnarnir og sleðarnir voru geymdir úti á ísnum og það var dýrt að láta vakt vera yfir vör- unni en svona gekk það nú samt fyrir sig. Þannig hefur margt komið til á langri leið en þetta hefur gengið frekar snurðulaust og farsællega. Verslun Guðlaugs Héðan sópuðust allir verkfærir þegar herinn kom Ég reyndi fljótlega að ná í allar íslenskar vörur sem hægt var að ná í hér í nágrenninu og mestöll mín verslun var vöruskipti. Ég keypti af fólki kartöflur, gærur, garnir og sundmaga og margt fleira, rófur og gulrætur. Ég seldi héðan fyrstu kartöflurnar til Reykjavíkur og hafði þá sölu á höndum í 40 ár. En ég lagöi alltaf kapp á að reyna að ná í íslenskar vörur hér á svæðinu og koma þeim í verð. Það er nú meiri munurinn nú eða fyrstu 20 árin. Þá voru þetta hrein vandræði í verslun- inni. Flestallar búðir hættu og það fór ekkert að lifna við hér fyrr en herinn kom í Kaldaðarnes. Þá fóru menn að sjá peninga og þetta breyttist á lifandi augabragði. Fram að þeim tíma og langt eftir 1940 voru mikil vöruskipti hjá mér. En þetta var nú meiri breyt- ingin með tilkomu hersins, þegar menn fengu allt i einu greiddar 5,75 kr. á tímann og borgað út Guðlaugur Pálsson kaupmaður fyrir utan Sjónarhól árið 1985 í júlímánuði. vikulega. Hér voru feiknarlega margir sem unnu fyrir herinn og héðan sópuðust allir sem voru verkfærir. Það var furðanlegt hvað gekk þegar hervinnan minnkaði en þá kom frystihúsið til sögunnar og þetta gekk áfram og hefur verið siðan. En það er margt sem hefur breyst í þessu, það má segja að nú sé ekkert staðið við í búðunum. Oft voru búðirnar sneisafullar í gamla daga og það var mikið spjallað. Ég hygg að slíkt hafi verið hvarvetna á land- inu, búðin var eins konar sam- komustaður. En nú staldrar fólk stutt við. „Eg staðgreiði alla vöru sem ég fæ“ Margir menn skiptu hér alla tíð við mig, en nú er ekkert orðið eftir af þessu fólki, allt saman farið, allt þetta gamla fólk. Ég hætti að panta inn beint frá útlöndum þeg- ar heildsalarnir yfirtóku umboðin um stríðsárin. Eg pantaði mikið beint á milli stríða, en frá 1919 hef ég verið í þessu húsi, keypti það þá og lét innrétta fyrir búðina. Þetta var erfiðast þegar ég byrjaöi. Þá kom líka spánska veikin til sög- unnar og það var lokað hjá mér í þrjár vikur, því stúlkan sem vann hjá mér lagðist um leið og ég. En ég hef reynt að halda mínu striki og í mörg ár hef ég t.d. alltaf stað- greitt alla vöru sem kemur, en ég fæ líka afslátt hjá öllum vegna þess. Ef menn koma með vöruna Greiddi fyrir verslunarhúsnæð- Guðlaugur á skrifstofu sinnL Á borðinu er mynd af konu bans, Ingibjörgu Jónasdóttur listakonu, sem lést á síðasta ári. Reiknivélarnar á borðinu sem enn eru ínotkun eru yfir 50 ára gamlar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.