Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 18
18 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGUST 1985 „Kanntu ekki aö stela bensíni, hel- vítis ormurinn þinn?“ Innlit hjá Kidda í Aratungusjoppunni Kristínn Sigurðsson i Brautarhóli Kristinn Sigurðsson á Braut- arhóli, hann er eins og ókleifur hamar við fyrstu kynni en þegar að er gáð fínnur maður leiðina upp bergið. Smátt og smátt kviknar bergið í öllum sínum fjölbreytileik með mýkt og snerpu og þannig er þessi sérstæði maður sem um ára- tugaskeið hefur séð um rekstur sjoppunnar í Ara- tungu og er þekktur fyrir snaggaralegt tungutak og gamansamt. Hann er 83ja ára gamall og hann afgreiðir gesti og gangandi þegar þörf er á, hvort sem er á nóttu eða degi og heldur eigin takti hvað sem á dynur. Bensín- og mjólkurverðið hafa loðað saman „Ég er búinn aö vera meö bens- ínsölu síðan lítrinn var á 7,50, það var fyrir stríð, byrjaði 1937,“ sagði Kiddi. „Það er svo langt síðan, að ég meira að segja var að afgreiða þegar það var skammtað, bensínið. Ég held að ég sé einn sá elsti i þessu, sá sem lengst er búinn að vera með bensínsölu. Lengi fylgdi bensfnverðið mjólkurverðinu. Fyrst þegar við létum mjólkina í mjókurbúið var Iftrinn á 12—14 aura og þá var bensfnið það sama eða þar um bil. Og það er reyndar ekki langt frá vegi núna. Ég byrj- aði hjá OLÍS 1937, var lengi aðeins með bensin og olfur en með smá- verslun hef ég verið f um það bil 20 ár, alltaf hér.“ Afgreiði á nóttu og degi, ef með þarf „Jú, það er umferð og sala alla daga, eitthvað smávegis. En það er lítið um það núorðið að stórir ferðabílar stansi. Aðallega eru þetta viðskipti við sveitina og sumarbústaðafólk. Nokkuö eru viðskiptin tengd sundlauginni. Ég reyni alltaf að afgreiða þegar menn vantar eitthvað, eiginlega hvort sem er á nóttu eða degi ef með þarf. Það er nú ekki alltaf gott að leggja sig á daginn, a.m.k. ekki stundum. Stundum hef ég aðstoð frá Bjarna syni mfnum og tengdadóttur minni. Ég er nú orðinn 83ja ára og vel það. Síðustu 10 til 12 árin hef ég verið nær eingöngu við þetta starf en var áður með bú. Ég kom í Tungurnar úr Holtunum, byrjaði að búa hér 1932. Þá hafði ég verið austur f Holtum, f Hreiðri. Ég hafði einnig verið kaupamaður hjá Skúla á Mó- heiðarhvoli. Já, tímarnir eru breyttir. I þá daga byrjaði maður um miðjan júlf með orf og ljá f kargaþýfi og það var ekki hægt að heyja á útjörðinni nema að slá annað hvert sumar, helmingurinn var sina. Hér byrjaði ég með tvær kýr og 38 kindur, keypti Va úr Stóra-Fljóti á 6.000 krónur og var talinn forrfkur þegar ég flutti úr Holtunum." Þú ættir að vita það, skepnan þín Nú renndi í hlað hjá kaupmann- inum ung stúlka og spurði hvað Royale-sígaretturnar kostuðu. — Þú ættir að vita það, skepnan þín, sagði Kiddi um hæl, þú ert búin að reykja það mikið af þessu; 63 krón- ur pakkinn. „Já, mikil skelfing eru umskiptin orðin mikil. Nú er heyskapurinn búinn hér í sveitinni eða svo gott sem. En þannig var þetta nú forð- um að þegar við vorum rétt byrjuð að búa, þrátt fyrir allt ríkidæmið sem menn héldu, þá átti maður ekki einu sinni að éta. Þá þekktist reyndar ekki á sumrin nema að éta tros eitt, ket þekktist ekki þá. Það var allt verðlaust, lömbin á 7 krón- ur stykkiö á haustin. Þetta var 1932. Svo gekk þetta betur og betur með mikilli vinnu og ég fékk alltaf mikla og góða aðstoð frá konu minni, Kristrúnu Sæmundsdóttur frá Eiríksbakka í Tungunum. Hún liggur lömuð, blessunin, á spítala, hefur verið þar f fimm ár. Ég missti óskaplega mikið þegar ég missti konuna frá mér. Það er vist að maður veit ekki hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Það er nú svo.“ Verslunarstarfíð heldur lífinu í mér „Jú, það er allt i lagi með versl- unarstarfið. Veðrið hefur a.m.k. ekkert að segja f sambandi við verslunarstarfið. Já mér líkar það, það heldur lffinu í mér með hreyf- ingunni. Að liggja hreyfingarlaus uppi i bæli er engin meining. Ég hitti fólk hérna og stundum er sprellað og ýmislegt kemur fyrir svo það er hlegið og gert að gamni sfnu, og það styttir daginn. Það var hollensk kona sem var hér með fleira fólki fslensku. Það var hlegið einhver skelfing. Hún vissi ekkert af hverju var hlegið, en það lengir lífið að hlæja og hún hló einhver lifandis ósköp með okkur. Hún skildi ekkert hvað verið var að segja. Jú, mér hefur gengið heldur vel að afgreiða útlendinga þó svo ég tali ekkert erlent mál. Ég veit ekki — ég var kannski svolftill prakkari f mér áður fyrr, en þetta er allt farið. Ég kannske segi þér skrýtlur á eftir sem þú mátt ekki skrifa.“ Nú bar að garði ungan mann sem snaraði sér inn f sjoppuna með tóma, stóra flösku, kókflösku. — Ert það þú skrattinn þinn, sagði Kiddi. Ertu ekki með spfra á henni? Strákurinn svaraði neitandi en spurði hvort hann ætti að út- vega eitthvað slíkt, það hlyti að vera auðvelt. — Það verður þá að vera eitthvað sérstakt, svaraði Kiddi um hæ), alveg hrútsterkt. Svo lauk strákurinn viðskiptum. Nú er vissara að skrifa ekki „Ja-á, nú er vissara að skrifa ekki. Það var einu sinni þrennt sem Egilsstaðir: Allt til hann- • • yrða hjá Oglu Agla er ein þeirra mörgu sérverslana sem skotið hafa upp kollinum hér á Kgilsstöðum hin sfðari ár. Hjá Öglu fæst allt til hannyrða, fondurvörur hvers konar auk ýmiss konar gjafavöru. Tíðindmaður Mbl. hitti eigendur Öglu, Helgu Aðalstcinsdóttur og Sigrúnu Einarsdóttur, sem snöggvast að máli í tilefni frídags verslunarmanna. Við opnuðum þessa verslun hér í Selási 13 fyrir réttu ári og við- skiptin hafa aukist jafnt og þétt síðan. Fjarðamenn versla mikið við okkur ekki sfður en Héraðs- menn auk þess sem ferðamenn eru drjúgur hluti viðskiptavin- anna á sumrin — sögðu þær Helga og Sigrún. Jú, það er rétt, meirihluti viðskiptavinanna eru konur — en einn og einn karl kemur nú hér inn. Sumir eru að sendast fyrir konuna — aðrir eru handavinnu- menn og eru að kaupa fyrir sjálfa sig. Og hvernig hannyrðir stunda karlarnir? Það viröist aðallega vera út- saumur — en sumir smyrna. En hvers konar handavinnu- efni kaupa ferðamennirnir? Morgvnblaðið/ólafur Helga Adalsteinsdóttír og Sigrún Einarsdóttír, eigendur hann- yrða rerslunarinnar öglu. Það er allur gangur á því. Flestir ferðamennirnir sem hingað koma búa f orlofshúsun- um á Eiðum eða Einarsstöðum — og það virðist nokkuð algild regla að konurnar koma hingað á þriðja degi til að kaupa eitthvað til hannyrða. Þið eruð bjartsýnar á hag sér- verslunarinnar? Já, já, a.m.k. hvað okkar svið áhrærir. Við eigum nú orðið traustan hóp viðskiptavina — og meðan við leggjum áherslu á vöruvöndun og hagstætt vöruverð trúum við ekki öðru en viðskipta- mannahópurinn stækki frekar en hitt — sögðu þær Helga Aðal- steinsdóttir og Sigrún Einars- dóttir. — Ólafur kom hérna inn f búðina til mfn, karlmaður og tvær konur, og önnur var allgild og búsældarleg. — Nú vil ég fá hjá þér stóran vindil, sagði hún hress f bragði, verulega stóran og fínan vindil. — Æ, svaraði ég um hæl, ég á bara þennan gamla stóra, en hann er orðinn hálflinur, greyið! Og mikið var hlegið — mikið var hlegið. — Kauptu bara gúrku, sagði maðurinn sem var með konunum, og benti á gúrkukassann f hillunni og þá skall nú f lærunum við hlátrasköllin. Einu sinni komu hér inn tvær hálfberar. Það var ekki nokkur lif- andi mynd á þessum flíkum sem þær voru í. önnur bauðst til þess að losa bandið, þetta litilræði. Ég sagði það nú óþarfa, ég hefði nú séð annað eins. Jú, það hefur oft verið glatt á hjalla hjá mér f skúrnum. En það besta á svæðinu er nú jarðhitinn, það er það besta af jörðinni. Ég var lengi búinn að vera langt frá veginum en nú er ég við veginn og það eru mikil hlunnindi að vera í þjóðbraut. Hér skipti um á svæðinu þegar farið var að setja gróðrarstöðvarnar upp, þá skapað- ist vinna. En umskiptin voru ógur- leg þegar hætt var að vinna fðtin á heimilunum, þá breyttist margt. En lengi höfðu synir bændanna verið þrælar, lengst af þrælar. Þótt þeir ynnu fyrir árskaupi við sjóinn á vetrarvertfð þá unnu þeir allt hitt fyrir ekki neitt heima við, fátæktin var svo mikil.“ Allt til bóta sem verið er að gera „Jú, ég held að þetta sé nú í raun- inni allt til bóta sem verið er að gera, allt til bóta. Og hér lifir mað- ur sínu lífi og reynir að taka þátt i þessu á sinn hátt — á minn hátt. Stundum er ég nú ugglaust ekki með sérlega heflað orðbragð en yf- irleitt held ég að ég sé nú vel lát- inn. Þeir hafa verið alveg prýði- legir hjá Olfufélaginu, það mætti koma fram. Þeir hafa verið mér mjög góðir. Og fólk tekur mann eins og maður er og það er nú víst það skynsamlegasta til lengdar að taka hlutunum eins og þeir eru. — Já, það er svolftil trafík f kvöld. Nú er sundlaugin opin og þá er hreyf- ing á fólkinu." Nú renndi skellinaðra f hlað að gamla bensfntanknum og strákur- inn á skellinöðrunni baksaði eitthvað við tankinn. — Er hann læstur? Kanntu ekki á hann? kallaði Kiddi f gegnum gluggana. — Kanntu ekki að stela bensíni, helvftis ormurinn þinn? Bensindælan hrökk f gang og stuttu seinna kom stráksi inn, kurteis og þægilegur drengur. — Geturðu verið þekktur fyrir að taka svona helvfti lftið bensfn, sagði Kiddi. — 84 krónur, það er ekki neitt. Það er svona þegar mað- ur er blankur, sagði ungi maður- inn, þá verður maður að láta sér nægja lítið. — Já, já, þetta kemur allt, sagði Kiddi. Það er um að gera að hafa einhvern titring í þessu. Annar kom að bensíndælunni á bíl sínum, Jón f Friðheimum. Hann dældi bensíni á bflinn og kom inn. — Hvað er þetta? Að hugsa sér allt þetta bensín — tólf hundruð krón- ur, sagði Kiddi og dæsti f hálfum hljóðum. — Helvítis ormurinn þinn, sagði hann við Jón í Frið- heimum með fullum þunga, þú tek- ur alla tómatsöluna frá mér. — Er það ekki gott hjá mér, svaraði Jón, annars gæti ég ekki verslað við þig. Æ, nú er ég ekki með tékkheftið. — Komdu þá bara á morgun, svaraði Kiddi. — Er þetta svona dýrt, sagði Jón, sem var búinn að ná sér i ein- hvern varning á borðið. Hann ætl- aði að borga Kidda með seðlum og klinki. — Ég er hættur að nota þessa helvítis peninga, sagði Kiddi. — En líttu bara í skrána hérna ef þú vilt bera einhverja andskotans lygi á mig. — Þeir hlógu báðir. Þannig var brugðið á leik. Menn göntuðust og höfðu gaman af lffinu og tilverunni. Og þannig er það yf- irleitt f sjoppunni hjá honum Kidda á Brautarhóli. Hann kemur til dyranna eins og hann er klædd- ur og ætiast til þess að aðrir geri hið sama. Þá gengur þetta stór- slysalaust undir hinu gamla og góða kjörorði: Maður er manns gaman. Grein: Árni Johnsen

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.