Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐID, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 B 21 Stsrfsfólk Tangans fyrir framan kjörmarkadinn, en gamla rerslunarhúsid er tíl hægri. Lengst til bægri í þessum raska hópi er Gísli Guðlaugsson framkræmdastjóri. i Morgunblaðift/Guðmundur Sigfússon Tangasræðið 1985, en gamla Sjóbúðin er i miðri mynd. Þar eru allir innriðir upphaflegir í efri hluta hússins. gekk fram, skiptu þeir upp fyrir- tækinu. Gunnar rak Gunnar Ólafsson og Co og Jóhann tók við Drífandahúsinu og rak þar versl- unina Drífanda. Gunnar ólafsson hélt eftir Eimskipafélagsumboð- inu og versluninni í Tangahúsinu. Þegar ég byrjaði aftur hjá Gunn- ari Ólafssyni í desember 1978 var búið að steypa upp hluta af nýja húsinu og var þar haldinn úti- markaður um jólin. í ársbyrjun 1979 hófum við framkvæmdir við að koma nýju versluninni í gagn- ið. Var hún opnuð í desember sama ár, 550 fermetra verslun- arpláss, og þá tókum við upp Tanganafnið að nýju á húsnæð- inu við Strandveg 48. f sambandi við Eimskipafé- lagsumboð fyrirtækisins má geta að Vestmanneyingar tóku veru- legan þátt í stofnun Eimskips og mikill fjöldi Eyjamanna átti hlutabréf og á ennþá, margt eldra fólk. Stofnun Eimskips var mikil samgöngubót á sínum tíma fyrir Vestmannaeyjar, og Eyjar voru fyrsta og síðasta höfn Eimskipa- félagsskipanna, bæði við komu þeirra til landsins og þegar farið var frá landinu. Gunnar Ólafsson og Co hf. 75 ára í desember Þegar nýja verslunin var tekin í notkun, 1979, hafði verslunin verið í sama húsinu frá því í byrj- un þessarar aldar. 1983 var síðan byrjað að byggja tveggja hæða hús norðan við nýja húsið. Er hvor hæð 400 fermetrar þannig að verslunarhúsnæðið í dag er um það bil 1300 fermetrar. Og við fluttum inn í nýjasta húsnæðið í febrúar 1985. En Tangaverslunin í þeirri mynd sem við rekum hana í dag, þ.e. undir Gunnars ólafssonar-nafninu, verður 75 ára á þessu ári, í desember. Verslunin er nú rekin sem stór- markaður með matvörum, hrein- lætisvörum, búsáhöldum, leik- föngum og fínni gjafavörum. Þá er kjötvinnsla, þar er heitur mat- ur í hádeginu og segja má að allt húsnæðið sé komið í gagnið eins og það á að vera. Á föstum laun- um hjá fyrirtækinu eru 25 manns, en hluti af þeim starfs- mönnum er hálfs dags fólk. Við höfum verið með mikið af lausa- fólki í kringum reksturinn á Eim- skipsumboðinu og má marka það af því að við erum með 300 launa- miða á ári, margs konar íhlaup í útskipun og slíkt. Eimskip vikulega til Eyja í vetur hóf Eimskip fasta.áætl- un á Bretland með gámafisk frá Vestmannaeyjum hálfsmánaðar- lega, en segja má að það komi skip hingað frá Eimskip vikulega, eða um 50 skip á ári. Einnig er Eimskip með flutninga f gegnum Herjólf vikulega á flutningavögn- um. Við fluttum hingað um 800—1000 tonn á sl. ári, en héðan með Eimskip fluttum við 10—12 þús. tonn af freðfiski auk gáma og þar að auki saltsíld, saltfisk og loðnumjöl. Lóð Tangans og Gunn- ars Ólafssonar er um það bil 9000 fermetrar að stærð og er það eina erfðafestueignarlóðin sem eftir er f Vestmannaeyjum fyrir utan ríkislóðir. Tanginn er lang- stærsta verslunin í bænum í um- -setningu í dag, bæði í húsrými og veltu. Hún er næst í röð skatt- greiðenda á eftir fiskvinnslunni og segir það sína sögu. Veltan tólffaldaðist á Tanganum þegar við fluttum inn í nýja húsið 1979 og viðskiptin hafa aukist stöðugt síðan. Við höfðum alltaf náð tölu- vert fram yfir verðbólguþróunina í veltu og oft verið 50% hærri á ári en verðbólguþróunin. Rekstur fyrirtækisins hefur þannig geng- ið vel, enda hefur verslunin borg- að tekjuskatt öll síðustu ár, en það heyrir frekar til undantekn- inga að verslanir borgi tekju- skatt, sagði Gísli Guðlaugsson að lokum. Grein: Árni Johnsen Frjáls sem Himinn ugimn fluaoabíl i FERÐUMSTMB FEWAMmÖÐINNI 15.736 Flug og bíll verð kr. 15.736 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 7.100. Brottför laugardag. 15.736 Flug og bíll miðað við 4 í bíl verð kr. 15.736. barnaafsláttur kr. 7.100. Brottför föstudaga. STOKKHÓLMUR19309 Flug og bíll verð kr. 19.309 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 8.800. Brottför föstudaga. Flug og bíll verð kr. 14.861 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför laugardaga. 14.861 13.251 Flug og bíll verð kr. 13.251 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 5.800. Brottför fimmtudaga. LUXEMBOURG 14.524 Flug og bíll verð kr. 14.524 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför alla föstudaga og laugardaga. 15.443 Flug og bíll verk kr. 15.443 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför föstudaga. KAUPMHÖFN 16.578 Flug og bíll verð kr. 16.578 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 7.600. Brottför laugardaga. FRANKFURT 14.467 Flug og bíll verð kr. 14.467 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför sunnudaga. SALZBURG 12.244 1 ÞYSKU SUMARHUSINa. A.. í OBERALLGÁU 14.045 Flug og bíll verð kr. 12.244 miðað við 4 í bíl, barnaafsláttur kr. 5.200. Brottför miðvikudaga. Oberallgáu tilheyrir Bæjaralandi, sem af mörgum er talið eitt fegursta hérað Þýskalands. Bæjaraland er skógi vaxið, með djúpa dali, tignarleg fjöll og gömul fögur þorp. Flug/bíll/íbúð: Hjón með tvö börn 1 viku kr. 14.045.- per mann. Ma. er innifalið söluskattur og kaskótrygging v/bfls. HSFERDA.. l!Si MIÐSTODIIM AÐALSTRÆTI 9 S. 28133

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.