Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 03.08.1985, Blaðsíða 22
22 B MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 Ég hef aldrei getaö tekið mér frí um verslunarmannahelgina Morgunblaðid/Olafur Gunnar Gunnarsson, kaup- maður í Gaggabúð. aukana og að lokum varð ekki aft- ur snúið. — Er það rétt sem ég hef heyrt að fáist varahluturinn ekki hjá Gagga sé hann að öllum líkindum ófáanlegur? Ætli þetta sé nú ekki tilkomið af því að ég hafði það lengi vel fyrir nokkurs konar tómstunda- gaman að verða mér úti um vara- hluti í Willys-jeppana góðu, gömlu — enda voru flestir ferðalangar á fyrstu árum mínum hér á slíkum farkostum. — Áttu enn slíka varahluti? Ja, jú, hvað skal segja. Ætli ég eigi ekki sitthvað í árgerð 1946. — En hafa ekki orðið miklar breytingar í varahlutaversluninni á undanförnum árum? Jú, miklar. í fyrsta lagi hefur bifreiðategundum fjölgað um all- an helming og svo hafa bensín- stöðvarnar í æ ríkari mæli tekið upp sölu ákveðinna varahluta sem hefur komið verulega við rekstur hinna hefðbundnu varahlutaversl- ana. En hvað um það. Eins dauði er annars brauð — er ekki svo? — Eru varahlutaverslanir þungar í rekstri? Já, því ber ekki að neita. Fyrst og fremst vegna þess að við verð- um að sitja uppi með dýran lager lengur en flestar aðrar verslaiiir — og nú eru smávörurnar eins og kerti og platínur horfnar inn á bensínstöðvarnar og jafnvel keðj- urnar líka — þannig að lagerinn íþyngir okkur meira en áður. — En hvernig veistu hvaða varahluti þarf helst að hafa á boðstólum? Maður verður að hafa spurnir um hverja og eina bíltegund og afla vitneskju um hvað bilar helst í hverri þeirra. — Og þú átt viðskiptavini víða? Já, ég býst við að sala skiptist nokkuð jafnt milli póstkröfusend- inga og sölu yfir búðarborðið. Annars hefi ég haft þann háttinn á að senda Austfirðingum vöruna án kröfu — en síðan sent bréfa- kröfu eftir á — enda liggur mönnum yfirleitt á svona vöru. Og Austfirðingar eru einstaklega skilvísir og heiðarlegir. Ég hefi nær aldrei orðið fyrir minnstu skakkaföllum vegna þessara viðskiptahátta. Menn hér kunna að meta snögga þjónustu og að þeim sé treyst. Já — og svo á ég viðskiptavini nánast úti um allt land og auk þess hefi ég selt nokk- uð til Færeyja. — Þú ert þekktur fyrir frjáls- legan opnunartíma verslunarinn- ar. Já, ég reyni að hafa opið fram eftir kvöldi og einnig um helgar — a.m.k. yfir ferðamannatímann. Það er eins gott. Annars er maður bara sóttur heim — ef eitthvað vantar. — En tekurðu þér ekki frí um verslunarmannahelgina? Nei, ég hefi aldrei getað tekið mér frí um verslunarmannahelg- ina. Þá er yfirleitt mest að gera og brýnust þörf fyrir þjónustu svona verslunar — segir Gunnar Gunn- arsson, kaupmaður i Gaggabúð. - Ólafur Pétur Pétursson kaupmaður. MorgunblaOia/Sig. Jóna. Fólk ætti aö eiga úr til skiptanna engu síður en skó Rætt við Gunnar Gunnarsson í Gaggabúð til komin — segir Gaggi — að fyrstu ár mín hér á Egilsstöðum var ég kostgangari í mötuneyti Kaupfélags Héraðsbúa í Tehúsinu svonefnda. Þá voru Sovétmenn nýbúnir að senda fyrsta mannaöa geimfarið á loft — og eins og allir vita hét geimfarinn Gagarín. Mér þótti mikið til þessa koma og varð sjálfsagt nokkuð tíðrætt um þetta á matmáls- og kaffitímum — þar til einn félagi minn segir sem svo að ég sé nú bara einn helvítis Gag- arín — og eftir það hefi ég sjálf- sagt oftar verið kenndur við Gagarínsnafnið en mitt eigið. — Þú hefur þá ekki tekið þessu illa? Síður en svo. Ég hafði gaman af þessu. Krakkarnir hér voru fljótir að grípa þetta og hafa aldrei kall- að mig annað. Lengi vel, meðan þorpið var minna, sendi ég öllum fermingarbörnum heillaóska- skeyti frá Gagga. Einu sinni var hringt hingað í varahlutaverslun- ina og spurt hver þetta væri. Gunnar — svaraði ég. Er Gaggi við? — var þá spurt. Ég skal at- huga það — sagði ég — og svaraði svo sem Gaggi. Þetta var utanbæj- arsimtal og ég gat ómögulega ver- ið að hrella manninn með því að Gunnar og Gaggi væri sami mað- urinn. Já, þessi nafngift virðist hafa borist víða. — En hver voru tildrög þess að þú hófst rekstur varahlutaversl- unar hér? Fyrstu ár mín hér á Egilsstöð- um vann ég á Vélaverkstæði Steinþórs Eiríkssonar. Þá voru 2—3 flugferðir á viku hingað til Egilsstaða og aðrar áætlunarferð- ir til höfuðborgarsvæðisins enn stopulli — og biluðu farkostir ferðalanga hér — sem var alls ekki fátitt í þá daga — voru þeir oft illa settir. Svo ég fór að eiga algengustu varahluti í verkfæra- skápnum mínum á verkstæðinu. Og smám saman færðist þetta í Kinn eisti og rótgrónasti kaup- maðurinn hér í Kgilsstöðum er Gunnar Gunnarsson eða Gaggi eins og hann er oftast nefndur í daglegu tali. Hann hefur rekið varahluta- verslun hér síðan 1%2 — Varahluta- verslun Gunnars Gunnarssonar — sem raunar hefur gengið manna á meðai undir nafninu Gagarín-mag- asín eða Gaggabúð. Þessi nafngift — sem ég vil leyfa mér að kalla svo — er þannig Velta fjármunanna innan héraðs skiptir öllu máli Sdfoori, 27. júlí. „Ætli vandamálið hérna sé ekki það að fólkið noUr peningana alla í maUrkaup og það á lítið í afgang til að kaupa annað,“ sagði Pétur Pétursson í Radíó- og sjónvarpsstofunni við Austurveg á Selfossi. „Annars hef ég grun um,“ hélt hann áfram, „að breytingar í peningamálum, tilkoma verðbréfa og hávaxUreikninga hafa valdið ákveðnum breytingum. Fólk fer frekar með peningana í banka og geymir þá en að eyða þeim strax, eins og það gerði í mestu verðbólgunni. Verslun í vörum sem ég er með er mun minni en áður. Hljómplötusala er nánast dottin uppfyrir eftir að Rás 2 kom til sögunnar. Fólk á yfirleitt góð hljómflutningstæki og tekur óspart þessa dægurtónlist upp í stereó." fyrst að hlutunum hér fyrir aust- an áður en það fer til Reykjavik- ur.“ Á meðan staldrað var við hjá Pétri hafði hann í ýmsu að snúast, stúlka keypti ryksugupoka, kona fann álitlegt krullujárn, tveir herramenn á ferðalagi keyptu út- varp í bílinn til að geta hlustað á rás 2 og piltur keypti hljómplötu. Þegar Pétur leit upp var hann spurður um þjónustuhlutverk kaupmannsins. „Tilsögnin hjá manni er helst fólgin í því að útskýra möguleik- ana sem hlutirnir bjóða upp á og maður reynir að gefa þær upplýs- ingar sem gera fólkinu kleift að ákveða hug sinn.“ Þegar jólaörtröðin nálgast má heyra auglýsingar I útvarpi þar sem Pétur hvetur fólk til að spara sér Heiðina og stytta leiðina í verslanirnar og versla á Selfossi. Pétur var spurður um þetta atriði. „Við tókum okkur einu sinni saman nokkrir kaupmenn og aug- lýstum þannig að fólk færi síður til Reykjavíkur I verslunarerind- um og ég hef haldið því áfram. Það er nú einu sinni þannig að velta fjármunanna innan héraðs skiptir öllu máli. Fólk gerir sér ekki næga grein fyrir þessu og því að það skiptir máli þó upphæðin sé lág. Það er mikil samkeppni í verslun með rafmagnstæki og það er nauðsvnleet fvrir fólk að leita — segir Birta Einarsdóttir úrsmiður Mér finnst sjálfsagt að fólk eigi úr til skiptanna. Öllum finnst sjálfsagt að taka fram spariskóna þegar þeir búa sig upp á og engum dettur í hug að fara á þeim í vinn- una. Hins vegar ganga flestir með sama úrið hvort heldur þeir eru í vinnugallanum eða uppáklæddir — sagði Birta Kinarsdóttir er tíð- indamaður Morgunblaðsins leit inn í nýja úra- og skartgripaversl- un hennar að Lyngási 1 á Kgils- stöðum í tilefni verslunarmanna- helgarinnar. En þetta á sjálfsagt eftir að breytast — hélt hún áfram. Mér þykir líklegt að innan tíðar þyki sjálfsgt að hver og einn eigi úr til skiptanna — enda hefur verð á úrum hlutfallslega lækkað hin síðari ár — og úrið er í æ ríkari mæli að verða tískuvara. — Eru íslendingar vandfýsnir á úr? Nei, ég held að þeir geri al- mennt ekki miklar gæðakröfur til úra. Flestir kaupa ódýr úr — sem ganga tiltölulega fljótt úr sér — en auðvitað er þetta mis- jafnt eins og gengur. — Eru gömlu handtrekktu úr- in að hverfa af sjónarsviðinu? Já, þau eru nær alveg horfin af hinum almenna markaði. Þó eru nokkur heimsfræg merki þeirrar gerðar enn framleidd, s.s. Rolex, handunnin svissnesk gæðaúr — sem kosta líka sitt. Það er stöðutákn að eiga Rolex. MorgunblaðiS/Ólafur Úra- og skartgripakaup- maðurinn Birta Einarsdótt- ir. — Hvað kosta úrin hjá þér? Þú getur fengið úr hérna á 600.- kr. og allt upp í rúmlega 3.000.- kr. -i Áttu Rolex-úr? Nei, það er of dýr vara til að liggja með hérna — en ég er með ágæt úr handa þér, t.d. Tissot — sem eru handunnin að verulegu leyti — og svo Edox og Belinda. — Er að vænta breytinga á úrum á næstunni? Já, það eru ákveðnar breyt- ingar að ganga yfir núna. Tölvu- úrin með „digital“-skífunni eru að hverfa, eru á útsölu um allan heim, en gamla skifan með tölu- stöfunum og vísunum að koma aftur — þótt gangverkið sé það sama. — En þú selur líka skart- gripi? Já, þð er alltaf talverð sala I skartgripum hérna, einkum til hvers konar tækifærisgjafa — og svo er ég með úrsmíðavinnu- stofu hér inn af. Margs konar viðgerðir taka verulegan hluta af vinnutímanum. — Og þú hefur nóg að gera? Já, ég get ekki sagt annað. Þetta er eina sérverslun sinnar tegundar á Áusturlandi svo að viðskiptavinirnir eru víðs vegar úr fjórðungnum. Ég hóf þennan rekstur fyrir tæpum þremur ár- um og til þessa hefur aðstaðan e.t.v. ekki verið nógu góð en ég bind miklar vonir við þessa nýju aðstöðu að Lyngási 1. Hér eru tvær verslanir undir sama þaki — og þær eiga áreiðanlega eftir að styrkja hvor aðra. Verslun- armiðstöð er líklega það sem sérverslanir hér á Egilsstöðum þyrftu að sameinast um til að tryggja framtíð sína — sagði Birta Einarsdóttir að lokum. — Ólafur Sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.