Morgunblaðið - 03.08.1985, Síða 23

Morgunblaðið - 03.08.1985, Síða 23
1 f.íJUA 8 »lK)Au«A«JAJ.ttHULJBtttfttSQaf MORGUNBLADID, LAUGARDAGUR 3. ÁGÚST 1985 B 23 Akureyrí Morgunblaðið/Mats Wibe Lund Ósanngjarnt að hafa ekki stórmarkaðs- verð — segir Baldvin Ólafsson hjá KEA Verzlunarstjóri í kjörbúð KEA í Hoephners-húsi á Akur- eyri er Baldvin Ólafsson. Hann hefur verið hjá Kaupfélagi Ey- firðinga í 42 ár, þar af 41 ár á sama stað. „Hingað kemur yfirleitt sama fólkið," sagði Baldvin, „og þótt mikið sé farið að beina viðskipt- um í stórmarkaðina þá er samt þörf á þessari verzlun enda eru viðskiptin jöfn og þétt. Þó er varan ekki á stórmarkaðsverði hér. Hér í innbænum eru marg- ir sem hafa ekki tækifæri til að komast í stórmarkað og hér eru vörurnar því miður ekki á stór- markaðsverði sem manni finnst nú ósanngjarnt. Hingað kemur yfirleitt sama fólkið og maður þekkir flesta. Þó er nú töluvert farið að fækka fólki hér í inn- bænum miðað við það sem áður var og flest er þetta fullorðið fólk. En hér er líka mikil sveita- verzlun. Ég gæti trúað að Ey- firðingar væru um þriðjungur þeirra sem verzla hér að stað- aldri. Hvað kjörin varðar þá verður það að segjast eins og er að þau eru léleg og hafa yfirleitt verið það í verzlunarstétt. Hvað ég er með f laun eftir 42 ára starf hjá kaupfélaginu? Ég hef fasta eftirvinnu og fer upp í 37 þúsund krónur á mánuði með íöngum vinnutíma," sagði Bald- vin ólafsson. Láglaunavinna sem maöur hefur ekki efni á að vera í — segir Unnur Þor- steinsdóttir í Amaro „Mér líkar þetta starf nokkuð vel,“ sagði Unnur Þorsteins- dóttir sem vinnur í gjafavöru- deildinni í Amaro, „en þetta er láglaunavinna sem maður hefur í raun og veru ekki efni á að vera í. Samt borga þeir betur hér í Amaro en víða annars staðar. Ég er með um 20 þúsund á mánuði en áður en ég kom hingað var ég ríkisstarfsmaður á Suðurnesjum og hafði þá 26 þúsund á mánuði þannig að mér bregður við. Ástæðan fyrir því að ég réð mig þrátt fyrir þetta lága kaup var sú að ég var að flytjast hingað norður og tók þessa vinnu á meðan ég væri að svipast eftir öðru sem væri bet- ur launað. Ef launin væru betri hefði ég ekkert á móti því að vera í þessu starfi. Ég hef áður verið við afgreiðslu og Akureyr- ingar eru fólk sem gaman er að blanda geði við.“ Góöar vörur augiýsa sig sjálfar — segir Þrúður Gísladóttir í Vörusölunni á Akureyri Vörusalan við Hafnarstræti á Akureyri er snyrtivöruverzlun sem rekin er í tengslum við Ak- ureyrar apótek. Þar starfar Þrúður Gísladóttir og þegar spurt var um starfið í sérverzl- un sagði hún: „Ég er búin að vera hér í tvö ár en er að hætta á næstunni af því að mig langar til að afla mér sérmenntunar á þessu sviði. Við höfum gert okkur sérstakt far um að kynna okkur vel þá vöru sem við erum að selja en þó finn ég að talsvert vantar á til þess að ég geti veitt þá þjónustu sem ég vil veita og finnst viðskipta- vinurinn eiga rétt á. Maður leggur sig fram um að fylgjast með því hvernig varan líkar. Viðskiptavinirnir eru fúsir að láta í té slíkar upplýsingar og af þeim tekur maður mið og ráð- leggur fólki í samræmi við það.“ „Gerir fólk sér miklar vonir um árangur af notkun snyrti- vara?“ „Já, það held ég fari ekki á milli mála. Það gerir sér far um að kynna sér vel hvaða áhrif vörurnar eiga að hafa og gagn- rýnir þær síðan ef ástæða er til. Ef varan hefur líkað vel er hún keypt á ný.“ „Hafðir þú verið í búð áður en þú fórst að vinna hér?“ „Nei, ég hafði unnið á elli- heimili, í þvottahúsi og víðar, en þegar mér bauðst þetta starf tók ég því fegins hendi. Mér fannst þetta æðislega spenn- andi og lifði eiginlega og hrærð- ist i þessu fyrsta árið. Eg hafði þá þegar áhuga á snyrtingu og snyrtivörum og ég hef svo sann- arlega ekki orðið fyrir von- brigðum. Á þessu sviði er alltaf eitthvað nýtt að gerast, nýjar vörur að koma á markað og ég held að fólki sé líka alveg sér- staklega annt um útlit sitt, a.m.k. þvi sem hingað kemur til að verzla. Ég hef gaman af að selja, þ.e.a.s. ef ég er viss um að það er gæðavara sem um er að ræða.“ „Heldurðu þá að eitthvað sé að marka þau fyrirheit sem framleiðendur gefa í auglýsing- um?“ „Ég tek öllu slíku með mikl- um fyrirvara og það held ég að viðskiptavinirnir geri yfirleitt líka. Én i sumum tilvikum held ég að það standist fyllilega og þá er verðið á vörunni alls eng- inn mælikvarði. Til eru ódýrar snyrtivörur sem eru mjög góðar og það eru líka dæmi um rán- dýrar vörur af þessu tagi. En góðar snyrtivörur auglýsa sig reyndar sjálfar. Það sýnir sal- an.“ „Hvað ætlastu fyrir að loknu námi?“ „Ég hef engar ákveðnar áætl- anir um það, en það er einkum tvennt sem kemur til greina, — að setja upp snyrtistofu eða fara út í sölumennsku. Hvort tveggja gæti ég hugsað mér.“ Launin léleg miðað við Hagkaup — segir Kristín Aðal- steinsdóttir hjá KEA „Áður var ég hér í föstu starfi en nú í sumar er ég í afleysing- um,“ sagði Kristín Aðalsteins- dóttir í kjörbúð KEA í Hoephners-húsi. „Samanlagt hef ég verið í tíu ár hjá kaupfé- laginu þannig að ég er komin á hæsta taxta, en þrátt fyrir það eru launin léleg, t.d. miðað við það sem Hagkaup borgar. Þar er fólkið með 111 krónur á tím- ann en ég hef 101,35 á tímann. Reyndar kemur timakaupið bet- ur út fyrir mig þar sem ég er lausráðin. Vinnutíminn er kl. 9 til 6 og með tímakaupinu fer ég yfir 20 þúsund á mánuði, en væri ég fastráðin fengi ég 17.229 á mánuði. Ég er húsmóð- ir og vinnutíminn í búð heldur leiðinlegur, en burtséð frá hon- um og lélegum launum kann ég vel við þetta starf," sagði Krist- ín Aðalsteinsdóttir. Skemmtilegt að gera fólki til hæfís — segir Erna Bára Magnúsdóttir í Amaro Erna Bára Magnúsdóttir starfar í búsáhaldadeildinni í verzluninni Amaro á Akureyri. „Ég byrjaði hér i april og ætla að vera hér fyrst um sinn, en áður var ég í Kjörbúð KEA í Hrísalundi. Ég hef verið við af- greiðslu i þrjú ár og er ekkert orðin leið á því. Það var gaman að breyta til og fara hingað en ég er ekki ákveðin í því að gera verzlunarstörf að framtíðar- vinnu. Það er skemmtilegt að gera fólki til hæfis og aðstoða það við að finna það sem það vanhagar um, þannig að af- greiðslustörf eru ekki bara ein- hver vinna sem maður vinnur til þess að fá kaupið. Reyndar er það mjög lélegt. Hér er ég í hálfsdagsstarfi og fæ tímakaup þess vegna. Það eru 94 krónur á tímann og það dugar skammt,“ sagði Erna Bára Magnúsdóttir. „• " A.íl.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.