Morgunblaðið - 18.08.1985, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR18. ÁGÚST1985
B 15
Rússar hafi svipað varnakerfi í
undirbúningi.
George Bush varaforseti sagði
þegar hann var á ferð í Evrópu
fyrr í þessum mánuði að geim-
varnaáætlunin og Eureka gætu
vel farið saman. Hann kvaðst telja
að stjörnustríðsáætlunin væri
rannsóknaráætlun, sem lyti ekki
eingöngu að kjarnorkuvörnum. En
stjórn Reagans virðist enn ekki
hafa tekizt að sannfæra Evrópu-
menn um að þeir muni fá jafn-
greiðan aðgang að fjármunum og
tækni og Bandaríkjamenn við
rannsóknir á geimvarnavopnum.
Ekki hefur tekizt að eyða með
öllu ugg Evrópumanna, sem vísa
til gamallar reynslu, um að
strangar hömlur bandarískra yfir-
valda á tæknilegum upplýsingum
gætu að engu gert vísindaleg
n skipti á upplýsingum, sem þeir
6 telja aðalkost geimvarnaáætlun-
arinnar. Bandaríkjamenn hafa oft
kvartað yfir vaxandi tækniþjófn-
aði Rússa og spurt er hvort niður-
stöðum stjörnustríðsrannsókn-
anna verði haldið leyndum af ör-
yggisástæðum. Þar við bætast efa-
semdir Evrópumanna um að áætl-
, unin muni ekki ýta undir rann-
sóknir á skyldum sviðum í Evrópu.
HAGNÝT
SAMVINNA
Áhuginn á Eureka hefur því
aukizt af ýmsum ástæðum og
stuðningur Breta er mikilvægur.
Þeir spenna bogann ekki eins hátt
og Frakkar, leggja áherzlu á hag-
nýtt gildi áætlunarinnar og telja
árangursríka tækninýtingu mikil-
vægari en rannsóknir og úr-
vinnslu.
í skjali, sem brezka stjórnin
birti í tilefni af Parísarfundinum,
sagði að skjót viðbrögð við „gífur-
legri" tækniógnun Bandaríkja-
manna og Japana við Evrópu væru
nauðsynleg, en aðalvandi Evrópu-
manna væri sá að þeir væru of
seinir að hagnýta vísinda- og
tækniafrek sín til að framleiða
verzlunarvöru í gróðaskyni. Til að
það mætti takast þurfi tvennt að
koma til.
I fyrsta lagi verði að velja við-
fangsefni, sem mæti þörfum
venjulegra borgara í Evrópu. Unn-
ið skuli að hverju verkefni í sam-
einingu í því augnamiði að fram-
leiða vöru fyrir heimsmarkað og
beita margs konar háþróaðri
tækni. í öðru lagi skuli ljúka því
verkefni að gera Evrópu að einum
risamarkaði, sambærilegum við
hinn bandaríska, þar sem Eureka
geti dafnað.
Bretar benda á nokkur við-
fangsefni, sem þeir hafa í huga:
Sjálfvirkni í samgöngum á landi,
flugumferðarstjórn, tölvuútvarpi
og póstþjónustu, verksmiðju fram-
tiðarinnar búna fullkomnustu
tækni sem völ er á, og tæknivæð-
ingu heimila; fullkomnari miðlun
upplýsinga og afþreyingaefnis og
fullkomnari heimilistæki.
Samkvæmt hugmyndum Breta
eiga framleiðendur háþróaðs
tæknivarnings að geta sótt um
sérstakt „Evrópuleyfi" að upp-
fylltum vissum skilyrðum. Fram-
leiðendur verði að sýna að vara
þeirra hafi verið framleidd i sam-
vinnu við fyrirtæki í a.m.k. einu
öðru Evrópulandi. Þeir stinga upp
á nýjum fyrirtækjum, samvinnu
fyrirtækja til að keppa við banda-
riska og japanska keppinauta og
eflingu fyrirtækja með ýmsum
ívilnunum.
Mörg vestur-evrópsk fyrirtæki
hafa látið í ljós áhuga á Eureka og
munu sennilega einnig vinna að
verkefnum fyrir stjörnustríðs-
áætlunina. Fjögur stærstu raf-
eindafyrirtæki álfunnar hafa
ákveðið að verja einum milljarði
dala til sameiginlegra rannsókna.
Franskt hergagnafyrirtæki og
Norsk Data ætla að taka upp sam-
eiginlegar rannsóknir. Siemens og
franskt fyrirtæki munu kanna
framleiðslu á nýrri tölvu og Aero-
spatiele í Frakklandi og Messer-
schmitt-Bölkow-Blohm í Vestur-
Þýzkalandi hafa ákveðið að vinna
saman að rannsóknum.
„GRÆNT UÓS“
Þegar Eureka var hleypt af
stokkunum á fundinum í París í
síðustu viku vildu Bretar að fylgt
yrði gætilegri og raunsærri
stefnu, en Frakkar vildu skjótar
aðgerðir, og lítill árangur náðist
þrátt fyrir einróma samkomulag
um sjálfa áætlunina. Le Monde
birti frétt um fundinn undir fyrir-
sögninni „Grænt ljós en lítill
áþreifanlegur árangur".
í forystugrein benti blaðið á að
jákvæð niðurstaða fundarins
minnti á athugasemd bandaríska
gamanleikarans Woody Allens:
„Svarið er já, en um hvað var eig-
inlega spurt?“. Hægrablaðið Le
Figaro sagði að mörg vandamál
væru óleyst.
Á fundinum áréttaði Genscher,
utanríkisráðherra Vestur-Þjóð-
verja: „Eureka er nauðsyn — með
eða án stjörnustríðsáætlunarinn-
ar. Eureka kemur ekki í staðinn
fyrir stjörnustríðsáætlunina og
ekki þarf að velja á milli þessara
tveggja kosta.“
Áfundinum var í aðalatriðum
mótuð sú stefna, sem Eureka-rík-
in fram að næsta fundi tækniráð-
herranna í Bonn 15. nóvember.
Þangað til fjallar nefnd sérfræð-
inga um fjármögnun áætlunarinn-
ar og hugmyndir fyrirtækja og
rannsóknarstofnana um evrópsk
verkefni. Ráðherrarnir taka síðan
afatöðu til þessara hugmynda á
Bonnfundinum og þá munu málin
skýrast.
GH
Borðtennisskóli
Námskeiö fyrir byrjendur og lengra komna í íþróttahús-
inu Ásgerði, Garöabæ, dagana 21. — 27. ágúst. Tveir af
fremstu þjálfurum landsins leiðbeina þeir Stefán Kon-
ráösson og Albrecht Ehmann. Spaðar og kúlur á staö-
num.
Innritun í síma 43132
Stjarnan notar Butterfly borðtennisspaöa.
Kalmar Portal
Stílhreint
----
fallegt
—
a i CZD — d—il
II
f?=Ss
Kalmar Portal eldhúsiö er eldhús
fyrir þá, sem vilja stílhreint og sterk-
legt en jafnframt vandaö eldhús.
Portal eldhúsiö er fáanlegt í hvítu og
eik, í hæö 210 sm eöa í fullri lofthæð.
í sýningarsal okkar sýnum viö
margar geröir innréttinga, viö flesta
hæfi. Lítiö viö eöa fáiö heimsendan
bækling.
:iiiiiiiiii*iii.i
..........ilúm
....L...ÉÉ,
]
Kalmar
Skeifan 8 Reykjavík
Sími 82011
lfiö höf>um hœkkað
vextina!
18 mánaða Sparincikningar Búnaðarbankans bera óumdeilanlega hæstu vextina.
fi BÍNAÐARBANKINN
\f V TRAUSTUR BANKI
TIMABÆR