Morgunblaðið - 18.08.1985, Síða 18
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 18. AGÚST 1986
a
B
kútu-
jómaður
nýr heim
varð 67 ára og hætti sjómennsku.
Þá gerðist ég ráðsmaður við Stúd-
entagarðana, sá um rekstur þeirra
þar til Félagsstofnum stúdenta
tók við fyrir nokkrum árum. Eftir
það hef ég dundað við smíðar
heima.“
Hiti læknar bakveiki
„Þegar ég byrjaði í siglingum
aftur var ég orðinn slæmur í baki
og kominn með hálfgerða „sletti-
löpp“. Við sigldum m.a. til Bras-
ilíu. Við höfðum útbúið okkur
sundlaug á dekkinu með því að
strengja segl á milli lunningar og
lestarlúgu og dæla heitum sjó þar
í. I þessu lágum við á öllum frí-
vöktum eftir að komið var yfir
miðbaug. Mér batnaði í bakinu og
eftir þessa ferð hafði ég ekki
„slettilöpp" lengur og hef ekki
fengið hana síðan."
Sögur afAra
Steinssyni
Nú fara Sigurjón og Guðmund-
ur sonur hans að hugsa sér til
hreyfings. Þegar út er komið er
tekin af þeim mynd á kirkju-
tröppunum og í samræðunum við
þá feðga er við röltum niður túnið
frá kirkjunni kemur í ljós að Guð-
mundur er allra manna fróðastur
um ættir manna, þeirra er lifðu
við Breiðafjörð á síðustu öld.
Hann rekur af mikill íþrótt saman
ættir frægra manna í Flatey og
segir m.a. frá frændsemi Ara
Steinssonar langafa síns og
Matthíasar Jochumsonar skálds.
Sigurjón bætir um betur og segir
frá því að Ari hafi verið laun-
skytta á sel. Það hafi verið tilefni
þess að Matthías ljóðaði á hann og
sagði: „Veifaði hnellinn hvössum
dör“. En Ari var slunginn og hafði
smíðaö bát sinn þannig að hann
gat falið byssuna í stefninu. Hann
hafði svo snæri frá neglu upp í
stýrislykkju sem hann batt selina
í og dró uppundir botn bátsins ef
að honum var komið. Einu sinni
var hann að fara með bréf til
Stykkishólms og sáu menn þá á
hólunum í Flatey að hann hafði
skotið sel. Þá var gerður út bátur
til að eita hann og grípa glóðvolg-
an, en þegar menn komu að bátn-
um sem Ari stöðvaði þegar í stað,
hafði hann dregið selinn undir
Dætur Ögmundar Ólafssonar skipstjóra, Guðlaug, Birna og Guðmunda, en
fjölskylda þeirra á nú neðri hæð hússins þar sem Sigurjón fæddist og ólst
upp.
kjöl og falið byssuna í stefninu.
Þegar þeir ásökuðu hann um
að hafa skotið sel spurði Ari þá
hvort þeir héldu hann slíkan
mann að henda byssunni i sjóinn
og hirða ekki selinn. Þeir gátu
hvorki fundið selinn né byssuna og
gátu því ekkert aðhafst og urðu að
fara við svo búið.
Leiðir skiljast
Nú skiljast leiðir um sinn. Feðg-
arnir halda niður í þorpið til að
skoða gömlu húsin og rifja upp
gamlar minningar en ég fer inn til
mín að hita kaffi. Það var svo um-
talað að ferðalangarnir kæmu við
í kaffisopa áður en þeir færu frá
eynni.
Klukkuna er tekið að halla i
fjögur þegar þeir koma. Veður er
hlýtt og í fjarska grillir í flóabát-
inn Baldur þar sem hann skríöur
framhjá Sýrey áleiðis til Flateyj-
ar. Feðgarnir gera stuttan stans
við kaffidrykkjuna. Ég geng með
þeim í sólskininu niður á Tröll-
enda þar sem Sigurjón og Viktor
reyktu sér til óbóta forðum. Nú er
þarna komin höfn. Þegar farþeg-
arnir eru komnir um borð lætur
Baldur úr höfn.
Skipið verður minna og minna
þar til að lokum að það hverfur og
samtal okkar Sigurjóns verður
minning ein. Hlý og lifandi um-
ræða verður svipul minning sem
pár með kúlupenna á hvit blöð
varðveitir frá algerri gleymsku. Á
sama hátt verða æskustöðvarnar
æ ógreinilegri fyrir sjónum Sigur-
jóns þar til að lokum að þær renna
að fullu saman við blámóðu
Breiðafjarðar.
á A99. «
y\eisl \AuV^
«i
í1
ída&'*SJvsaV
Það stendur mikið til hjá Björgunarsveit Ingólfs í Reykjavík.
í dag tekur sveitin í notkun nýjan björgunarbát og
torfærujeppa. Það verður aldeilis líf í tuskunum og
margt til gamans gert.
• Hátíðin hefst með því að Davíð Oddsson, borgarstjóri
flytur ávarp og gefur hinum nýja og glæsilega
björgunarbáti nafn.
• Að nafngift lokinni mun séra Sigurbjörn Einarsson,
biskup, fyrsti formaður Slysavarnardeildar Ingólfs,
vígja bátinn.
Þegar hér verður komið sögu fer heldur betur að koma
hreyfing á björgunarsveitarmenn og þeir munu sýna listif
sínar: Þeir klifra eins og fjallageitur utan á SVFÍ húsinu,
tylla sér eins og fuglar á þak hússins og skjóta þaðan
neyðarblysum; Þeir leika sér að því að velta gúmmí-
björgunarbátum og koma þeim á réttan kjöl áftur;
Þeir kafa eins og selir niður á sjávarbotn og skjóta þaðan
neyðarblysum; Þá munu þeir leyfa yngri borgurunum
að renna sér í björgunarstól, sem settur verður upp
í tilefni dagsins, og sýna nokkra af hinum velþjálfuðu
björgunarhundum sveitarinnar.
Ekki má gleyma því að slökkviliðið kemur og sýnir hin
mikilvirku tæki sín og svo verða auðvitað öll helstu
björgunartæki sveitarinnar til sýnis.
Sveitinni hafa verið gefnar 1000 Svalafernur sem allir
krakkar sem koma fá ókeypis meðan birgðir endast.
Eldra fólkið vill auðvitað kaffi og því verða slysavarnakonur
með rjúkandi kaffi og gómsætar kökur á boðstólum
(fyrir sanngjarnt verð) í samkomusal SVFÍ-hússins.
INGÓLFSHÁTÍÐIN ER FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA
BJÖR&UNARSVFiTM MGÚLFUR