Morgunblaðið - 18.08.1985, Síða 24
24 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1985
Á myndinni eru vinstúlkurnar Unnur Ösp Stefánsdóttir, Anna Svava
Þóróardóttir og Inga Sigurðardóttir. !>ær efndu til hlutaveltu vestur í
Frostaskjóli (Vesturbænum) til ágóóa fyrir Rauóa Króss íslands. Söfn-
uóu þær tæplega 1100 krónum.
Þessir drengir efndu til hlutaveltu til góóa fyrir Blindrafélagió og
söfnuóu 1000 krónur. Þeir heita Kristinn Arnar Aspelund, Auóunn
Ólafsson og Hilmar Jónsson.
Ferðamannastraumur-
inn svipaður og í fyrra
Ferðamannastraumurinn hingað
til lands fyrstu 7 mánuói ársins er
mjög svipaður og i síðasta ári og
sömu sögu er að segja um júlí bæói
árin. í júli nú komu tæplega 1.000
fleiri ferðamenn til landsins en í
sama mánuði í fyrra og það sem af
er árinu, eru ferðamenn tæplega
8.000 fleiri en í fyrra.
í mánaðaryfirliti lögreglustjór-
ans í Reykjavík yfir júlí kemur
fram, að alls hafi 35.375 (34.504)
ferðamenn komið til iandsins,
12.714 (12.145) íslendingar og
22.661 (22.359) útlendingar. Töl-
urnar innan sviga eru sambærij
legar tölur síðasta árs.
Frá áramótum til júlíloka komu
alls 107.968 (100.039) ferðamenn
til landsins, 48.956 (45.196) fslend-
ingar og 59.012 (54.843) útlend-
ingar. I júlímánuði komu alls
12.714 íslending&r heim úr ferða-
lögum. Ferðamenn frá öðrum
þjóðum voru flestir Bandaríkja-
menn, 5.535, Þjóðverjar 3.136,
Danir 2.461 og Bretar 2.296.
Námskeið í
skyndihjálp
Reykjavíkurdeild Rauða kross fs-
lands heldur námskeiö í skyndihjálp
sem stendur yfir í fímm kvöld, hefst
20. ágúst nk. og lýkur þann 28. Nám-
skeiðið verður haldið í húsnæði RKÍ
að Nóatúni 21 og kennt verður frá kl.
20 til 23.
Á námskeiðinu verður kennd
skyndihjálp við ýmisskonar slys.
Auk þess verður kennd blástursað-
ferðin og sýndar myndir um
skyndihjálp. Námskeiðinu lýkur
með verkefni sem hægt er að fá
metið t fjölbrautaskólum og iðn-
skólum. Allir þátttakendur fá skjal
til staðfestingar á þátttöku sinni.
(Ór rrétutiikrnningu)
Nýjungar í lækn-
isfræði á yfir-
litssýningu
Menningarstofnun Bandaríkjanna
á íslandi stendur fyrir yfirlitssýningu
á nýjungum í læknisfræði dagana 26.
ágúst til 10. september í salarkynnum
Domus Medica við Eiríksgötu 1
Reykjavík.
Sýningunni er skipt í sex deildir
og munu íslenzkir lækna- og hjúkr-
unarnemar starfa við hvora kynn-
ingardeild.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14.00 til 22.00 einnig um helgar.
Sýningin er öllum opin og starfs-
fólki heilbrigðisstofnana sérstak-
lega hvatt til að sækja sýninguna.