Morgunblaðið - 18.08.1985, Síða 29
MORGUNBLADID, SUNNUDAGUR 18. ÁGÚST 1985
B 29
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
'VA* UJrW 'lJ If
Tilraunin við Tjörnina
Hallgrímur Sveinsson, Hrafnseyri
skrifar.
Ágæti velvakandi.
Fjaðrafok það og uppistand sem
verið hefur í kringum þennan
blessaða Tjarnarskóla sem fyrir-
hugað er að stofnsetja á hausti
komanda, hefur ekki farið fram
hjá neinum. Auðvitað orkar flest
tvímælis þá gert er og má svo
einnig vera um stofnun þessa
einkaskóla. En hvers vegna menn
þurfa að láta svona við þessar
ágætu konur sem standa fyrir
þessari nýbreytni, er eiginlega lítt
skiljanlegt. Ef þetta mistekst hjá
konunum, er vandséð að nokkru sé
spillt í raun. Fari hins vegar svo
að skóli þessi komist á þann
rekspöl sem aðstandendur hans
ætlast til, verður ekki annað séð
en Tjarnarskólinn geti orðið til
góðs, því þá geta menn nefnilega
séð svart á hvítu hvers hinum
opinbera grunnskóla er vant á
ýmsum sviðum.
Auðvitað verður þetta fyrir-
myndar skóli ef allt gengur að
óskum. Kennarar, kennslutæki og
aðbúnaður allur vonandi fyrsta
flokks. Og þá verður gaman fyrir
Vestfirðinga til dæmis, sem trú-
lega eru aftast i röðinni í upp-
byggingu skólamála hér á landi,
að geta barið upp á hjá mennta-
málaráðuneyti og farið fram á
betri skóla hjá sér með tilvísun til
Tjarnarskólans. Og þegar dyrum
verður upp lokið, er ekki að efa að
undinn verður bráður bugur að því
að bæta meðal annars úr því við-
varandi ástandi sem er á margra
vitorði hér á kjálkanum, að það er
aðeins til í einum grunnskóla á
Vestfjörðum eitthvað sem hægt er
að kalla skólabókasafn. í grunn-
skólalögum frá 1974 eru þó
fortakslaus ákvæði um að skóla-
bókasafn skuli vera eitt megin-
hjálpartækið í öllu skólastarfi í
landinu.
Og Velvakandi minn, þú sem
aldrei sefur á verðinum. Sumum
hér um slóðir finnst meir en mál
til komið fyrir okkar ágæta
menntamálaráðherra að fara aö
skyggnast um eftir ástæðum fyrir
því, hvers vegna vestfirsk ung-
menni hafa farið svo miklar hrak-
farir við útskrift úr grunnskólan-
um og raun ber vitni. Ár eftir ár
virðast Vestfirðingar nefnilega
vera langlægstir á samræmdum
prófum 9. bekkjar. Skyldi það geta
verið, Velvakandi, að það sé orðið
tímabært að gerð sé alvöru úttekt
á því í hverju vandi vestfirskra
grunnskóla er raunverulega fólg-
inn.
Það er vitað að Vestfirðingar
standa undir þó nokkuð stórum
hluta af hinum góðu lífskjörum
sem margir njóta hér á landi. Það
verður því að ætla að þetta frum-
framleiðslufólk eigi skilið góða
skóla fyrir börn sín. Fari svo að
Tjarnarskólinn opni augu manna
fyrir þeim staðreyndum sem hér
hafa verið nefndar, hefur ekki til
einskis verið af stað farið. Til-
raunin við Tjörnina mun e.t.v.
verða til þess að ráðamenn skilji
að það vantar ýmislegt í hinu
opinbera grunnskóla. Aukið fjár-
magn er þar á meðal, þó hér skuli
alls ekki undir það tekið að hægt
sé að laga alla hluti i skólakerfinu
með peningum frekar en annars
staðar. En ætli menn að veita
meira fé í þennan þátt samfélags-
ins, verður það að koma úr sam-
eiginlegum sjóði landsmanna.
Annað gengur tæplega upp f okkar
þjóðfélagi.
Bréfritari er á því að Tjarnarskólinn geti orðið fyrirmyndarskóli, en hann verður væntanlega til húsa í gamla
miðbæjarskólanum.
Þessir hringdu . . .
Ekki neyðar-
ástand á
barnaheimilum
H.K. hringdi:
Ég hélt það vantaði starfsfólk
á barnaheimili borgarinar, en
svo virðist ekki vera. Þegar lýst
var yfir neyðarástandi og að
sennilega yrði að loka nokkrum
barnaheimilum 1. september
ætlaði ég að slá tvær flugur í
einu höggi.
Ég á níu mánaða gamalt barn
og hafði heitið sjálfri mér að
fara ekki út að vinna frá barninu
strax en þá komu auglýsingar
frá þessum stofnunum svo mér
datt í hug að kannski gæti ég
unnið og hugsað um barnið mitt
um leið.
Þegar börn eru á bilinu 8 mán-
aða til 2 ára byrja þau að læra
ýmislegt og mótast því mikið á
þeim árum. Mér var því illa við
að fara frá barninu á þessum
viðkvæma tíma. Ég hef reynt að
fá vinnu á tveimur barnaheimil-
um en á báðum stöðum hefur
mér verið sagt að ekki sé æski-
legt að börn séu á barnaheimil-
um hjá mæðrum sinum. Ég veit
að það hefur verið farið framhjá
þessari reglu svo nú spyr ég: Éf
neyðarástand rfkir er þá ekki
hægt að gera undantekningu á
ofangreindu? Ég ætlaði að reyna
á einu barnaheimili i viðbót og
fái ég sama svar þar sannfærist
ég endanlega um að neyðar-
ástand ríkir ekki á þessum
stofnunum.
Hjóli stolið
Guðlaug hringdi:
Litill frændi minn, níu ára
gamall, var um daginn á ferð á
Skúlagötunni á nýju hjóli sem
hann átti. Hann brá sér inn f
leiktækjasal og skildi hjólið eftir
fyrir utan á meðan. Þegar hann
kom út aftur var búið að stela
hjólinu. Þetta er BMX-hjól, gult
og svart að lit. Ef einhver skyldi
verða var við gripinn, er hann
beðinn um aö hringja i sima
34627 eða hafa samband við
lögregluna.
Þakkir til
baðvarðar
Piltungur hringdi:
Mig langar að koma á fram-
færi þakklæti til baðvarðarins f
íþróttahúsinu í Vestmannaeyj-
um, hans Elliða. Hann er ein-
staklega þægilegur og kurteis
við alla sem koma í iþróttahúsið.
Það heyrist
ekkert í Jónínu
Eldri kona hringdi:
Við erum hérna þrjár full-
orðnar konur sem höfum lengi
fylgst með morgunleikfiminni í
útvarpinu. Okkur finnst Jónína
Benediktsdóttir ágæt en það er
bara verst að það heyrist ekkert
i henni fyrir skröltinu í honum
Stefáni. Hún hefur auðvitað ekki
eins sterka rödd og hann Valdi-
mar. Væri ekki hægt að lagfæra
þetta?
ífbM oa M
FEWUMSJ MEÐ
EEWmmöÐINNI
15.736
Flug og bíll verð kr. 15.736 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 7.100. Brottför laugardag.
15.736
Flug og bíll miðað við 4 í bíl verð kr. 15.736.
barnaafsláttur kr. 7.100. Brottför föstudaga.
STOKKHÓLMUR 19.309
Flug og bíll verð kr. 19.309 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 8.800. Brottför föstudaga.
Flug og bíll verð kr. 14.861 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför laugardaga.
Flug og bíll verð kr. 13.251 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 5.800. Brottför fimmtudaga.
14.861
13.251
13.251
Flug og bill verð kr. 13.251 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 5.800. Brottför fimmtudaga.
LUXEMBOURG 14.S24
Flug og bíll verð kr. 14.524 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför alla föstudaga
og laugardaga.
15.443
Flug og bill verk kr. 15.443 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför föstudaga.
KAUPMHÖFN 16.578
Flug og bíll verð kr. 16.578 miðað við 4 í bí!,
barnaafsláttur kr. 7.600. Brottför laugardaga.
I
FRANKFURT 14.467
Flug og bíll verð kr. 14.467 miðað við 4 í bíl,
barnaafsláttur kr. 6.700. Brottför sunnudaga.
SALZBURG
Flug og bíll verð kr. 12.244 miðað við 4 í bíl.
barnaafsláttur kr. 5.200. Brottför miðvikudaga.
12.244
1
[
WTSKU SUMARHUSINa. ...
I OBERALLGAU
Oberallgáu tilheyrir Bæjaralandi, sem af mörgum er talið eitt
fegursta hérað Þýskalands. Bæjaraland er skógi vaxið, með
djúpa dali, tignarleg fjöll og gömul fögur þorp. Flug/bíll/íbúð:
Hjón með tvö börn (viku kr. 14.045,- per mann. Ma. er innifalið
söluskattur og kaskótrygging v/bíls.
[rfSFERÐA
llSjll MIÐSTODIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133