Morgunblaðið - 19.10.1985, Qupperneq 2
2___________~______________________________________MORG UNBLADIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
Borgarstjóri um strætisvagnafargjöld framhaldsskólanema:
Þessi hús hafa verið auglýst til sölu; efst er Vesturgata 10A, þar sem verslunin Rafmagn hf. er til húsa, þá
Vesturgata 10 þar sem skrifstofur veitingahússins Naustsins eru og loks sjálft Naustið.
HÚSEIGNIRNAR Vesturgata 6-8-10 og lOa hafa verið
auglýstar til sölu. í Vesturgötu 6-8 er veitingahúsið
Naust til húsa, skrifstofur Naustsins eru í númer 10
og verslunin Rafmagn hf. í númer lOa. Eignarlóðin
öll er 1250 fermetrar og er til sölu í heild eða hlutum
hjá fasteignasölunni Eignamiðlunin.
Sögufrœg hús til sölu
Það eru erfingjar Geirs Zoega, sem bjóða húsið til
sölu. Ómar Hallsson, veitingaraaður Naustsins, hefur
gert samning um ieigu húsnæðisins að Vesturgötu 6-8
til 15 ára og hefur hugsanleg sala ekki áhrif á rekstur
Naustsins.
Við erum ekki að biðja um
nýjan háskóla á Akureyri
— segir Halldór Blöndal alþingismaður
„AUÐVITAÐ er rekstur Háskóla íslands, Menntaskóla Reykjavíkur og
Menntaskólans á Akureyri háður fjárveitingu úr ríkissjóði,“ sagði Halldór
Blöndal alþingismaður er hann var spurður álits á ummælum Sigmundar
Guðbjartssonar háskólarektors um kennslu á háskólastigi á Akureyri.
„Hinsvegar er það mjög þröngt
sjónarmið að meta kostnað við
kennslu eingöngu út frá því hvað
það kostar ríkissjóð, vegna þess
að það kostar þá sem í hlut eiga
verulegt fé að fara úr einum lands-
hluta i annan að leita sér mennta.
Hugmyndir mínar um háskólanám
á Akureyri, sem ég hef þegar gert
grein fyrir, fara mjög saman við
skoðanir fyrrverandi rektors,
Guðmundar Magnússonar, og
ýmissa annarra prófessora sem ég
hef talað við. Við teljum eðilegt
að kennt sé upp í sjötta bekk í
menntaskóla og að fitja upp á
tækninámi fyrir norðan. Við telj-
um á sama hátt eðlilegt að hægt
sé að kenna til dæmis meira í
erlendum tungumálum heldur en
nú er á Akureyri og að það nám
gæti nýst sem stig í háskólanámi
í Reykjavík. Og okkur finnst eðli-
legt úr því að það er nauðsynlegt
að kljúfa viðskiptafræðideildina
að athuga möguleika á að kenna
hluta af fyrsta ári fyrir norðan.
Ég þykist vita að háskólarektor
sé ekki á móti þessum hugmyndum
því ég get ekki ímyndað mér að
hann sé á móti því að menn njóti
jafnra tækifæra til menntunar ef
við gerum hlutina í hófi og vel.
Við fyrir norðan erum ekki að
biðja um nýjan háskóla á Akureyri
til að keppa við háskólann í
Reykjavík, við erum að biðja um
útibú frá Háskóla Islands fyrir
norðan. Eg bendi sérstaklega á
þann kost sem Sigmundur Guð-
bjarnarson benti á í Morgunblað-
inu, að taka upp styttra og hagnýt-
ara nám fyrir norðan, til dæmis
tveggja ára nám sem tengist þörf-
um atvinnuveganna. En við þurf-
um að byggja upp skóla á Akureyri
því það býr tíundi hver maður við
Eyjafjörðinn og það er miskilning-
ur og úrelt hugsun ef menn halda
að við sættum okkur við að eftir
efsta bekk menntaskóla sé klipp
og skorið á það sem kenna má á
Akureyri. Það er kennsla á há-
skólastigi á Akureyri og hefur
verið lengi. Háskólinn í Reykjavík
getur ekki komist hjá því að leita
hjálpar Akureyringa við að
mennta fólk í heilbrigðisstéttum.
Þannig að mér finnst að háskólinn
hljóti að vera mjög jákvæður fyrir
samstarfi við okkur fyrir norðan
Eg sá í Morgunblaðinu að há-
skólarektor taldi upp margar
stofnanir við háskólann, sem
þyrfti að byggja myndarlega yfir.
Til allrar hamingju er háskólinn
vaxandi stofnun en sú staðreynd á
ekki að standa í vegi fyrir eðlilegri
þróun annars staðar. Það datt til
dæmis engum manni í hug á
Akureyri, að ónógt húsnæði
Menntaskólans og verkmennta-
skólans þar, ætti að standa í vegi
fyrir uppbyggingu annastaðar svo
sem á Sauðaárkróki eða í Breið-
holtinu," sagði Halldór að lokum.
MAÐUR höfuðkúpubrotnaöi þegar harður árekstur
varð á mótum Elliðavogs og Holtavegar skömmu fyrir
hádegi í gær. Maðurinn ók bifreið sinni norður Elliða-
vog og hugðist beygja til vesturs inn Holtaveg, en
bifreiðin varð fyrir vörubifeið sem ekið var suður
Elliðavog. Ökumaður vörubifreiðarinnar reyndi að
forða slysi, en hemlar bifreiðarinnar biluðu og skullu
bifreiðarnar saman af miklu afli. Draga þurfti fólks-
bifreiðina af vettvangi.
Maðurinn var fluttur meðvitundarlaus í slysa-
deild Borgarspítalans. Hann komst til meðvitundar
síðdegis og er ekki talinn í lífshættu.
•mÆ * I A| r w m * • Morgunblaðið/Jón Svavarsson.
Maður hofuðkupuhrotnaði
Óeðlilegt að borgar-
sjóður niðurgreiði
„VIÐ höfum skrifað mennta-
málaráðuneytinu bréf þar sem
spurt er um afstöðu þess. Fram-
haldsskólarnir eru reknir af rík-
inu og ef þessi hópur á að fá
niðurgreiðslur á fargjöldum,
umfram aðra borgarbúa, verður
Stjórnarflokkar deila:
Átök um for-
mennsku í
utanríkis-
málanefnd
ALLT BENDIR til þess að til
átaka komi á milli stjórnar-
flokkanna í utanríkismálanefnd
Alþingis, þegar kosinn verður
formaður nefndarinnar á fyrsta
fundi hennar, sem að líkindum
verður nk. þriðjudag. Fram-
sóknarmenn telja sig eiga rétt
á formanni nefndarinnar, og
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra staðfesti það í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins, þar sem hann sagðist
líta svo á að þetta mál væri frá-
gengið þannig að Haraldur ól-
afsson yrði formaður nefndar-
innar. Heimildir Morgunblaðs-
ins herma hins vegar að Eyjólf-
ur Konráð Jónsson, sem var
formaður nefndarinnar á síð-
asta þingi, hafi fullan hug á að
gegna formennskunni áfram.
ríkið að taka það á sig, sem
rekstraraðili að framhaldsskól-
unum,“ sagði Davíð Oddsson,
borgarstjóri, er hann var spurður
um áskorun frá framhaldsskóla-
nemum um ódýrari fargjöld með
strætisvögnum Reykjavíkur.
í bréfi, sem stjórnir nem-
endafélaga framhaldsskólanna
í Reykjavík hafa skrifað borg-
aryfirvöldum er þess farið á
leit, að nemendum framhalds-
skólanna verði gefinn kostur á
ódýrari fargjöldum með stræt-
isvögnunum en nú er. í bréfinu
segir ennfremur að þessi hópur
sé stærsti notendahópur SVR
og þeir sem þurfi að taka stræt-
isvagna úr og í skóla verji til
þess um 11 þúsund krónum
árlega. Davíð Oddsson sagði,
að hér væri um að ræða hluta
af kostnaði við framhalds-
skólamenntun og því væri ekki
eðlilegt að borgin greiddi niður
þennan kostnað. „Það er eðli-
legra að menntamálaráðuneyt-
ið fjalli um það, hvort það vill
greiða þetta niður. Hins vegar
fá framhaldsskólanemendur,
sem og aðrir borgarbúar, nú
þegar mikinn afslátt af stræt-
isvagnafargjöldum. Þeir fá um
50% afslátt þegar allt er talið,
miðað við rekstur SVR og
eignabreyti ngar,“ sagði borg-
arstjóri.
Launamálaráð BHM
krefst 3 % hækkunar
FORYSTUMENN launamálaráðs
BHM gengu í gær á fund fjármála-
ráðherra og fóru fram í 3% launa-
hækkun eins og aðrir launþegar í
landinu hafa almennt fengið í kjölfar
samnings BSRB og fyrrverandi fjár-
málaráðherra.
Ákvörðun um þetta var tekin á
fyrsta fundi nýkjörinnar stjórnar
launamálaráðsins á miðvikudag-
inn, að sögn Þorsteins A. Jónsson-
ar, formanns ráðsins. „Krafa okk-
ar er sú að þessi hækkun gildi frá
1. október, eins og hjá öðrum ríkis-
starfsmönnum," sagði Þorsteinn.
„Fjármálaráðherra mun væntan-
lega svara okkur i næstu viku.“
Hann sagöi það misskilning, að
BSRB-samningurinn hafi verið
gerður til að samræma laun ríkis-
starfsmanna í BSRB við laun ríkis-
starfsmanna í Bandalagi háskóla-
manna.
Fjármálaráðherra:
„Engir aukafjár-
munir fyrir hendi
„ÞAÐ ER ekki gert ráð fyrir neinni
fjárveitingu í þessu skyni, þannig að
eigi Háskólinn fé aflögu til ráðstöf-
unar í þetta verkefni, þá er það
athugasemdalaust af minni hálfu, en
það eru engir viðbótarfjármunir fyrir
hendi, til þess að stofnsetja nýja
háskóladeild,“ sagði Þorsteinn Páis-
son fjármálaráðherra er blaðamaður
Morgunblaðsins spurði hann í gær
hvort fyrirhuguð væri aukafjárveit-
ing á fjárlögum næsta árs, til þess
að hægt væri að hefja kennslu á
háskólastigi á Akureyri á næsta ári,
eins og Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra hefur lýst yfir
að verði gert.
Fjármálaráðherra sagði að ekki
yrði um neina aukafjárveitingu að
ræða vegna þessa verkefnis, a.m.k.
ekki eins og sakir stæðu.
Útvarpið:
Fjórir frétta-
menn ráðnir
GENGIÐ hefur verið frá ráðningu
fjögurra fréttamanna við ríkisút-
varpið, hljóðvarp. Fastráðið er I
tvær stöður en tvær eru til 6 mán-
aða. Þeir Páll Benediktsson og
Bjarni Sigtryggsson hafa verið
fastráðnir, en þau Hjördís Finn-
bogadóttir og Þórir Guðmundsson
til 6 mánaða.