Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985 3 Gunnar Helgi Hálfdánarson fram- kvæmdastjóri Fjárfestingafélags íslands: „Þessar hugmyndir eru stórhættulegar“ óskilahross kjaftskoöuö Morgunblaðið/Árni Sæberg „Þessi er örugglega níu vetra,“ sagdi Stefán frá Möðrudal spámannlega, viðstöddum áhugamönnum um hesta til mikillar kátínu. Myndin var tekin á föstudagskvöldið á uppboði á óskilahrossum hjá Fáki. Hesturinn sem Stefán er að kjaftskoða hafði nýlega verið sleginn Guðmundi Björnssyni, sem stendur á bak við Stefán, á 7 þúsund krónur. Þrír aðrir hestar voru seldir á uppboðinu, þar arf einn sex vetra foli á 30 þúsund. Sá er bæði gullfallegur og mikið gaeðingsefni, að dómi hestamanna. Bónusviðræður á Austfjörðum: Tillaga um 15—20% hækk- un frá fellda samningnum „MÉR ÞYKJA hugmyndir um að skattleggja raunvexti sparifjár sem eru umfram verðbólgu, stórhættuleg- ar og að þaer eigi alls ekki við hér á landi, þó þetta sé tíðkað sumstaðar annars staðar,“ sagði Gunnar Helgi Hálfdánarson framkvæmdastjóri Fjárfestingarfélags fslands í samtali við Morgunblaðið í gær, um hugleið- ingar stjórnvalda að skattleggja vexti sparifjár, sera eru umfram verðbólgu. Gunnar Helgi benti á að sparifjáreig- endur hefðu mjög áleitinn valkost, Stefán hafnar bónorði Jóns „STÓLASKIPTI sjálfstæðismanna eru náttúrlega ekki tilefni til þess að menn fari almennt út í slíkar aðgerð- ir,“ sagði Stefán Benediktsson, þing- maður Bandalags jafnaðarmanna, er blaðamaður Morgunblaðsins spurði hann í gær hvernig honum litist á þau orð Jóns Baldvins Hannibalssonar í útvarpsumræðum f fyrrakvöld, þar sem hann hvatti til þess að þingflokk- ar jafnaðarmanna sameinuðust í einn þingflokk á Alþingi. Sagði Jón Bald- vin að slíkt væri verðugt svar við stóla- skiptum sjálfstæðismanna. Stefán sagði að ekki væri hægt annars vegar að gagnrýna tilgangs- leysi slíkra aðgerða og jafnframt að telja það nauðsyn fara sjálfur í slíkar aðgerðir. „Hugmyndir um samruna Al- þýðuflokksins og Bandalags jafnað- armanna eru náttúrlega ekki nýjar af nálinni," sagði Stefán, „en af- staða okkar bandalagsmanna til þeirra hugmynda er algjörlega óbreytt, þannig að við munum ekki taka þessu bónorði Jóns Baldvins." er þeir ákvæðu hvernig þeir ráðstöf- uðu sparifé sínu, þ.e. að ákveða að verja sparifé sínu í mjög fánýtar fjár- festingar, frá þjóðhagslegu sjónar- miði, svo sem í fasteignir eða í hreina eyðslu, sem yki við innflutning og þar af leiðandi viðskiptahalla. Þessi val- kostur yrði ugglaust enn áleitnari, ef stjórnvöld tækju ákvörðun um að skattleggja vexti sparifjár. „Ástæðan er einfaldlega sú að framboð fjármagns hér hefur verið ónógt," sagði Gunnar Helgi, „hér hefur ekki fengist fjármagn til ný- sköpunar atvinnulífsins og það hlýtur að vera markmið ríkisstjórn- arinnar að efla innlendan sparnað eins mikið og hægt er, í þeirri von að meira fjármagn fáist til nýsköp- unar atvinnulífsins og að þannig megi draga úr viðskiptahallanum, svo að lífskjör geti batnað hér á næstu árum.“ Gunnar Helgi sagði að ef menn vildu auka framboð áhættufjár- magns hér á landi, þá ætti að ívilna því enn frekar, til dæmis með skattaafslætti. „Það sem skiptir höfuðmáli fyrir okkur Islendinga, er að efla ráðdeildarsemi og sparn- að. Með auknum sparnaði þá náum við fram aukinni efnahagsstarf- semi síðar og þar með auknum skatttekjum fyrir ríkissjóð. Þetta gerist auðvitað ekki alveg strax, en menn verða að geta séð skóginn fyrir trjánum. Ég er þess fullviss að skattlagning á sparifé myndi eyðileggja þann vísi að sparnaði sem myndast hefur hér á sl. tveim- ur árum,“ sagði Gunnar Helgi. Hann sagði að vel mætti hugsa sér að afstaða til slíkrar skattlagningar yrði einhverntíma í framtíðinni endurskoðuð, þegar og ef sparnaður yrði of mikill, en í dag væri of lítill sparnaður vandamálið sem við blasti. ATVINNUREKENDUR á Austfjörð- um hafa nú til athugunar nýja tillögu verkalýðsfélaganna í Neskaupstað, á Breiðdalsvík og Stöðvarflrði um nýja útfærslu á bónussamningunum, sem þessi félög felldu nýverið, eins og fram hefur komið í Morgunblaðinu. Nýja tillagan gerir ráð fyrir um 15-20% hækkun frá þeim samn- ingi, sem felldur var 1 þessum þremur verkalýðsfélögum, að sögn Sigfinns Karlssonar, forseta Al- þýðusambands Austurlands. „Hugmyndin hjá okkur er að hækka þá, sem verst fóru út úr samningnum - þá, sem hafa góða nýtingu en minni hraða," sagði hann. „Þetta jafnast svo út eftir því sem ofar dregur, þannig að toppurinn er óbreyttur frá þeim samningi, sem víðast hvar er i gildi." Tillaga þessi var lögð fram á fundi aðila í gærmorgun. Sigfinnur kvaðst reikna með að næsti fundur yrði haldinn fimmtudaginn 24. október. Sumir versla dýrt — aðrir versla hjá okkur... Opið til ki. 16 í dag í Mjóddinni en til kl. 12 í Starmýri og Austurstræti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.