Morgunblaðið - 19.10.1985, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
Fólksbíll fyrir
erfiða færð
— Mitsubishi Tredia með aldrifi
Bílar_____________
Guöbrandur Gíslason
Nú eru bflar með aldrifl að
verða álíka vinsælir meðal
bifreiðaframleiðenda og Duran
Duran hjá unga fólkinu. Hér áður
fyrr tilheyrði aldrifið heimi jepp-
anna. Sá sem setti aldrif á fólks-
bifreið hlyti að hafa villst inn í
verksmiðjuna frá Massey Fergu-
son. Það var svo sem vitað að
aldrif var gott í hálku og gerði sitt
gagn þegar snjóaði, en það var
ekki fyrr en AUDI-verksmiðjurnar
settu aldrifsbflinn Audi Quattro
(quattro þýðir 4 á ítölsku) á mark-
aðinn að veruiegur skriður komst
á framleiðslu fólksbifreiða með
drifl á öllum hjólum.
Mitsubishi hefur nú sent frá
sér Tredia-fólksbílinn með al-
drifi. Fyrirtækið framleiddi
fólksbifreið fyrir einum fimmtíu
árum með drifi á öllum hjólum
en hefur þó getið sér hvað mest
frægðarorð fyrir Pajero-jeppana
sem vitaskuld eru búnir aldrifi.
Aldrifs-Tredían lítur eins út og
framhjóladrifin systir hennar að
öðru leyti en því að lægsti punkt-
ur er 30 mm hærra frá jörð,
felgurnar eru stærri, eða 14
tommur og merkið 4WD er á
hliðum og að aftan. Að auki er
aldrifsbíllinn búinn vökvastýri.
Sú bifreið sem ég reynsluók
var rauð einsog nýrunnið kálfs-
blóð en eftir því sem litasálfræð-
ingar (jú, þeir eru víst til) segja
er það eftiriætislitur þeirra sem
vilja komast greitt áfram hvort
sem er á vegi eða í atvinnu.
Jafnvel stuðararnir eru rauðir
en hvort liturinn helst lengi
þegar farið er að nudda þeim upp
við aðra bíla í stæðum skal ósagt
látið. Þegar litið er framan á
bílinn er hann rennilegur, en
séður frá hlið er hann heldur
kubbslegur og á þar nokkurn hlut
að máli hve hár hann er frá
jörðu, 19 sentimetrar. Það er
hinsvegar ótvíræður kostur á
íslenskum vegum, ekki síst eftir
að snjóa tekur. Hægt er að
sprauta vatni á framljósin en
ljósaþurrkur eru engar. Speglar
eru á báðum hliðum. Sá bíll er ég
ók var búinn álfelgum sem setja
skemmtilegan svip á hann.
Hurðir falla vel að stöfum
enda virðist í alla staði vandað
til bílsins. Þó tísti í mælaborðinu
þegar ekið var á malarvegi. Það
fer vel um ökumann undir stýri
svo og farþega frammí, og eru
stólarnir vel stillanlegir. Heldur
er þröngt aftur í bílnum, a.m.k.
fyrir hávaxið fólk, og maður
verður að gæta þess að reka sig
ekki uppundir þegar sest er aftur
í bílinn. Sætisáklæði eru vönduð
og hlýleg, grá í þessum bíl, en
heldur eru þau skítsæl. Hægt er
að læsa öllum hurðum með lykli
í bílstjórahurð og sparar það æði
mörk handtökin þegar til lengdar
lætur (þetta fyrirbrigði er kallað
„central locking" á ensku, sem
mætti e.t.v. þýða sem miðlæsing
á íslensku. Ef einhver lumar á
hentugra orði yrði það þegið með
þökkum).
Farangursrými er þokkalegt
fyrir bíla af þessari stærð, en
heldur finnst mér varadekkinu
illa fyrir komið. Það stendur upp
á rönd fyrir aftan sætin og stytt-
ir farangursrýmið talsvert, auk
þess sem erfitt er að seilast til
þess yfir endilangt skottið. í
framhjóladrifsbílnum er dekkið
á botni farangursgeymslnnar, en
tengibúnaðurinn fyrir aldrifið á
afturhjólunum er það fyrirferða-
mikill að grynnka varð farang-
ursrýmið.
En nú fer að líða að góðu frétt-
unum. Þegar bíllinn er ræstur
þýtur hann í gang hvort sem
hann er kaldur eða heitur og
þægilegt burrhljóð berst manni
til eyrna frá kraftmikilli fjög-
urra strokka vélinni. Þessi vél
sem framleiðir 90 DIN hestöfl
hentar aldrifs-Tredíunni mæta-
vel og skilar mestum krafti á
milli þrjú til fjögur þúsund snún-
ingum á mínútu en það má vel
snúa henni hraðar án þess að hún
pínist og verði of hávær.
Bíllinn er fimm gíra og er
skipting nokkuð nákvæm, en oft
þarf að skipta ef aka á greitt
innanbæjar, því seigla vélarinn-
ar virðist ekki mikil og hún
bankar ef stigið er á bensínið,
t.d. í fjórða gír og snúningshraði
er lítill. Það hve vélin snýst
skemmtilega hvetur ökumann
heldur til þess að aka bílnum
hátt í gírunum. Vindgnauð með
samskeytum heyrist ekki ef
menn fara að lögum um há-
markshraða. Vökvastýrið á bíln-
um er í þyngra lagi, sem fyrir
minn smekk er ótvíræður kostur.
Það er ekki það þungt að erfitt
sé að stýra bílnum í stæði en
hæfilega þungt til þess að öku-
maður hefur alltaf góða svörun
við stýringu. Miðstöðin er hrað-
virk og hiti góður. Einfalt er að
velja hitastig við hæfi, og ekki
spillir það fyrir að í mælaborðinu
er teikning sem sýnir hvert hit-
inn streymir inn í farþegarýmið.
Við venjulegar aðstæður er
hagkvæmast að aka bílnum í
framdrifinu einu saman. Gildir
þá einu hvort ekið er á malarvegi
eða á malbikinu því bifreiðin
hagar sér eins og aðrar fram-
Mitsubishi
Tredia
1800 GLS 4W
árgerð 1986
Slagrými 1755 rúmsenti-
metrar, hestöfl 90 DIN, eigin
þyngd 1135 kg, heildarþyngd
1600 kg (hlass 465 kg), breidd
1,66 m, lengd 4,28 m. Far-
þegar 4, þar af einn hjá
ökumanni. Aldrif eftir vali.
Bifreiðin kostar kr. 597.000,
en Super-geröin, sú sem
reynsluekið var kostar kr.
619.000, án ryðvarnar og
skráningar og miðað við að
gengi japanska yensins sé
0,19022. Umboðið veitir 2%
staðgreiðsluafslátt, en lánar
einnig söluverð bílsins að
bluta eða tekur notaðar bif-
reiðir frá umboðinu uppí.
Mitsubishi Tredia er til á
lager hjá umboðinu, Heklu
hf., Laugavegi 170—72, sími
91-21240.
hjóladrifnar bifreiðir, er rásföst
og lætur vel að stjórn í beygjum.
Drifið er tengt á afturhjólin
með því að ýta á hnapp sem er
ofan á gírstönginni. Smá tíst og
ljós í mælaborði gefa þá til kynna
að nú sé bíllinn með aldrifi.
Afturhjóladrifið er aftengt með
því að ýta aftur á hnappinn og
þá hverfur Ijósið. Hægt er að
tengja drifið þegar bíllinn er á
ferð svo fremi að framhjólin vísi
beint áfram, og er það kostur.
Aldrifið í Mitsubishi Tredia er
14 tommu felgur gera Tredíuna vígalega.
Guðspjall dagsins:
Matt.: Brúökaupsklæðin.
DÓMKIRKJAN: Laugardag 19.
okt.: Barnasamkoma í kirkjunni
kl. 10.30. Sr. Agnes M. Sigurö-
ardóttir. Sunnudag 20. okt.:
Messa kl. 11. Dómkórinn syngur.
Organleikari Marteinn H. Friö-
riksson. Sr. Hjalti Guðmundsson.
Messa kl. 14. Sérstaklega er
vænst þátttöku fermingarbarna
og foreldra þeirra. Foreldrar
flytja bænir og ritningartexta. Sr.
Þórir Stephensen.
ÁRBÆ J ARPREST AK ALL:
Barnasamkoma í Foldaskóla í
Grafarvogshverfi laugardaginn
19. okt. kl. 11 árdegis.
Barnasamkoma í safnaöarheimili
Árbæjarsóknar sunnudag kl.
10.30 árdegis. Guðsþjónusta í
safnaöarheimilinu kl. 14. Organ-
leikari Jón Mýrdal. Framhaldsaö-
alfundur Árbæjarsafnaöar aö
lokinni messu. Miövikudag 23.
okt. Fyrirbænasamkoma í safn-
aöarheimilinu kl. 19.30. Sr. Guð-
mundur Þorsteinsson.
ÁSKIRKJA: Barnaguösþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14.
Þriöjudag 22. okt. kl. 20 —
Fræöslukvöld í safnaöarheimil-
inu. Sigurbjörn Einarsson biskup
fjallar um bænargjörð. Sr. Árni
Bergur Sigurbjörnsson.
BREIÐHOLTSPREST AK ALL:
Barnasamkoma laugardag 19.
okt. kl. 11. Messa sunnudag kl.
14 í Breiöholtsskóla. Ferming-
arbörn aöstoöa. Sr. Lárus Hall-
dórsson.
BÚST AÐAKIRK JA: Barnasam-
koma kl. 11. Báöir prestarnir.
Messa kl. 14. Fermdir veröa
Helgi Björn Ormarsson, Þing-
hólsbraut 63, Kópavogi, og
Magnús Ólafur Garöarsson,
Þinghólsbraut 63, Kópavogi.
Organisti Guöni Þ. Guömunds-
son. Bræðrafélagsfundur mánu-
dagskvöld. Æskulýösfélagsfund-
ur þriöjudagskvöld. Félagsstarf
aldraöra miðvikudagseftirmiö-
daga. Sr. Ólafur Skúlason.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guös-
þjónusta kl. 14.00. Sr. Kristinn
Ágúst Friöfinnsson messar. Fé-
lag fyrrverandi sóknarpresta.
DIGR ANESPREST AK ALL:
Barnasamkoma í safnaöarheimil-
inu v/Bjarnhólastíg kl. 11. Guös-
þjónusta í Kópavogskirkju kl. 14.
Altarisganga. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA:
Laugardagur 19. okt.: Kirkjuskóli
fyrir börn 5 ára og eldri í kirkj-
unni við Hólaberg 88 kl. 10.30.
Sr. Helga Soffía Konráösdóttir.
Barnasamkoma í Hólabrekku-
skóla kl. 14. Sunnudagur 20.
okt.: Guösþjónusta kl. 14.
Organleikari Guöný Margrét
Magnúsdóttir. Sr. Hreinn Hjart-
arson.
GRENSÁSKIRKJA: Barnasam-
koma kl. 11. Messa með altaris-
göngu kl. 14. Organleikari Árni
Arinbjarnarson. Þriöjudag 22.
okt.: Bibliulestur kl. 20.30.
Fimmtudag 24. okt.: Almenn
samkoma á vegum UFMH kl.
20.30. Sr. Halldór S. Gröndal.
HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardag
19. okt.: Félagsvist í safnaöarsal
kl. 15. Sunnudag 20. okt.: Barna-
samkoma og messa kl. 11. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson. Kvöld-
messa kl. 17. Sr. Karl Sigur-
björnsson. Þriöjudag 22. okt.:
Fyrirbænaguösþjónusta kl.
10.30. Miövikudag 23. okt.:
Náttsöngur kl. 22. Fimmtudag
24. okt.: Opiö hús fyrir aldraöa
kl. 14.30.
LANDSPÍTALINN: Guösþjónusta
kl. 10. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl.
10.00. Barnaguösþjónusta kl. 11.
Sr. Tómas Sveinsson. Messa kl.
14. Fermd veröa: Bjarnþóra
Maria Pálsdóttir, Barmahlíö 35,
og Atli Þorbjörnsson, Laugateig
46. Organisti Orthulf Prunner. Sr.
Arngrímur Jónsson.
KÁRSNESPRESTAKALL: Fjöl-
skylduguösþjónusta í Kópa-
vogskirkju kl. 11. Organisti Kjart-
an Sigurjónsson. Sr. Guðmundur
Örn Ragnarsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Óska-
stund kl. 11. Söngur — sögur —
leikir. Guðsþjónusta kl. 14.
Organleikari Jón Stefánsson.
Prestur sr. Sigurður Haukur
Guöjónsson. Sóknarnefndin.
LAUGARNESKIRKJA: Laugar-
dag 19. okt.: Orgeltónleikar kl.
17. Ann Toril Lindstad og Þröst-
ur Eiríksson leika verk eftir ýmsa
höfunda. Sunnudag 20. okt.:
Fjölskylduguösþjónusta kl. 11.
Skólafólk Kársnesskóla syngur.
Fermingarbörn aöstoöa viö
guösþjónustuna. Þriöjudag 22.
okt.: Bænaguösþjónusta kl. 18.
Altarisganga. Föstudag 25. okt.:
Síödegiskaffi kl. 14.30. Sóknar-
prestur.
NESKIRKJA: Laugardag 19. Okt.
Félagsstarfiö kl. 15.00. „Reykja-
vík vorra daga“. Davíö Oddsson
borgarstjóri kemur í heimsókn.
Sr. Frank M. Halldórsson.
Sunnudag 20. okt.: Barnasam-
koma kl. 11. Guösþjónusta kl.
14. Orgel- og kórstjórn Reynir
Jónasson. Sr. Guömundur Óskar
Ólafsson. Fyrirbænamessa miö-
vikudag kl. 18.20. Sr. Guömund-
ur Óskar Ólafsson. Föstudag kl.
16.00: Umræöa um guöspjall
næsta sunnudags. Sr. Guö-
mundur Óskar Ólafsson. Æsku-
lýösstarfiö nk. mánudag kl. 20.
Þriöjudaga og fimmtudaga opiö
hús fyrir aldraða.
SELTJARNARNESSÓKN: Guös-
þjónusta í sal Tónlistarskólans kl.
11. Sr. Guömundur Óskar
Ólafsson.
FRÍKIRKJAN í REYKJAVÍK:
Barnaguösþjónusta kl. 11. Guö-
spjalliö í myndum. Barnasálmar
og smábarnasöngvar. Afmælis-
börn boöin sérstaklega velkom-
in. Framhaldssaga. Viö píanóiö
Pavel Smid. Sr. Gunnar Björns-
son.
ÓHÁDI SÖFNUÐURINN: Kirkju-
dagurinn er sunnudag 20. okt. og
veröur messaö kl. 14. Kaffisala á
vegum kvenfélags safnaöarins
veröur aö messu lokinni og einn-
ig veröa sýndar kvikmyndir fyrir
börnin. Sr. Þórsteinn Ragnars-
son.
FÍLADELFÍUKIRKJAN: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Safnaöarguös-
þjónusta kl. 14. Almenn guös-
þjónusta kl. 20. Samskot til trú-
boðsins.
DÓMKIRKJA Krists konungs
Landakoti: Lágmessa kl. 8.30.
Hámessa kl. 10.30. Lágmessa kl.
14. Rúmhelga daga er lágmessa
kl. 18 nema á laugardögum, þá
kl. 14. I októbermánuöi er lesin
Rósakransbæn eftir lágmessuna
kl. 18.
MARÍUKIRKJA Breiöholti: Há-
messa kl. 11. Lágmessa mánu-
daga—föstudags kl. 18.
KFUM & KFUK, Amtmannsstíg:
Almenn samkoma á vegum
Samb. ísl. kristniboösfél. kl.
20.30. Ræöumaöur Halla
Bachmann.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 14. Samsæti fyrir
heimilasambandssystur kl. 17.
Bænastund kl. 20 og hjálpræö-
issamkoma kl. 20.30. Gunnar
Akerö og frú prédika en foringjar
frá Færeyjum og heimilasam-
bandssystur taka þátt í samkom-
unni.
AÐVENTKIRKJAN Rvík: f dag
laugardag, biblíurannsókn kl.
9.45 og guösþjónusta kl. 11. Eric
Guömundsson prédikar.