Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
Útganga Kennarasam-
bandsins úr BSRB
— eftir Valgeir
Crestsson
Úrsögn Kennarasambands ís-
lands úr BSRB hefur orðið tilefni
mikillar umræðu og blaðaskrifa.
Fulltrúaþing KÍ 1984 valdi þá lýð-
ræðislegu Ieið að félagsmenn tækju
afstöðu til aðildar KÍ að BSRB í
allsherjaratkvæðagreiðslu í byrjun
maí sl. að undangenginni rækilegri
kynningu málsins meðal félags-
manna.
Þátttaka í atkvæðagreiðslunni
var mikil, 75,3% greiddu atkvæði
og tóku 70,6% félagsmanna afstöðu.
Úr BSRB sögðu 1572, áfram í BSRB
719, auðir seðlar voru 151. Þar sem
lög BSRB kveða svo á að % hlutar
greiddra atkvæða þurfi að fylgja
úrsögn svo hún teljist lögleg ræðst
niðurstaða atkvæðagreiðslunnar af
því hvort auðu seðlarnir eru taldir
með þegar hlutfallstölur eru reikn-
aðar út.
Meirihluti fulltrúaráðs og stjórn-
ar KÍ lýsti því yfir þegar eftir að
úrslit lágu fyrir, um miðjan maí,
að auðir atkvæðaseðlar gætu ekki
ráðið úrslitum málsins og tilkynntu
stjórn BSRB úrsögn frá og með 1.
janúar 1986. Sú afstaða byggist
m.a. á því að hefði fulltrúaþing KÍ
tekið afstöðu til aðildar að BSRB
og atkvæði verið greidd með handa-
uppréttingu teldist hjáseta ekki
greitt atkvæði og jafnframt að í
þingsköpum BSRB (19. gr.) segir:
„Auður seðill telst ekki til greiddra
atkvæða." Fjórir lögmenn hafa
skilað áliti um gildi auðu seðlanna
og eru á öndverðum meiði tveir og
tveir.
Steinn í götu kjörstjórnar
Framkvæmd atkvæðagreiðslunn-
ar var í höndum þriggja manna
kjörsjórnar samkvæmt ákvæðum í
lögum BSRB. Skipaði stjórn KÍ tvo
fulltrúa og stjórn BSRB einn. í
tilkynningu kjörstjórnar um úrslit
atkvæðagreiðslunnar ve ekki tekin
afstaða til gildis auðu seðla Ýmsir,
þ. á m. lögmaður BSRB, töldu að
kjörstjórn ætti að fella úrskurð en
enginn fór formlega fram á slíkt
fyrr en 23. ágúst sl. er fulltrúaráð
KÍ óskaði eftir úrskurði kjörstjórn-
ar. Þá brá svo við að fulltrúi í
kjörstjórn, tilnefndur af stjórn
BSRB, sagði af sér og stjórn BSRB
hafnaði síðan beiðni um að skipa
annan fulltrúa.
llrskurður stjórnar
BSRB og kjörstjórnar
Stjórn BSRB úrskurðaði á fundi
sínum 2. september sl. að auðu
seðlarnir skuli taldir með og telur
þar með úrsögn KÍ ógilda. Megin-
rökin eru að „greidd atkvæði" þýði
j af nan að telj a beri öll atkvæði.
Tveir af þremur kjörstjórnar-
mönnum felldu eftirfarandi úr-
skurð 7. október:
„Kjörstjórn telur að ekki skuli
telja auð og ógild atkvæði sem
greidd atkvæði þegar reiknað er
út hvort fjöldi þeirra sem greiddu
atkvæði með úrsögn hafi náð til-
skildum % meirihluta.
Kjörstjórn lítur svo á að niður-
staða allsherjaratkvæðagreiðslu
2.-3. maí sl. um úrsögn KÍ úr
BSRB hafi verið sú að 68,62%
hafi verið greidd með úrsögn en
31,38% hafi verið greidd gegn
úrsögn.
í samræmi við 7. grein laga BSRB
telst því Kí hafa samþykkt í alls-
herjaratkvæðagreiðslu að sam-
bandið segi sig úr BSRB.“
Hvort fleiri úrskurðir eða jafnvel
dómar verði felldir um gildi auðu
seðlanna breytir því ekki að félags-
legar forsendur fyrir áframhald-
andi starfi KÍ innan BSRB eru
brostnar. Það væri gerræði að ætla
Kí að starfa innan BSRB eftir svo
afgerandi viljayfirlýsingu svo mik-
ils hluta félagsmanna og afdráttar-
lausar samþykktir fulltrúaráðs og
stjórnar KI sem telur úrsögnina
löglega samkvæmt lögum BSRB.
Á að knýja KÍ til að endur-
taka atkvæðagreiðsluna?
Stjórn BSRB fór þess tvívegis á
leit við stjórn KÍ að atkvæða-
greiðslan yrði endurtekin þrátt
fyrir að fulltrúaráð KÍ hefði fellt
tillögu þess efnis 18. maí. Fulltrúa-
ráðið hafnaði þeim tilmælum
stjórnar BSRB endanlega 23. ágúst
og ítrekaði jafnframt fyrri sam-
þykkt um úrsögn. Fjöldi félags-
manna KÍ, jafnt úr hópi þeirra sem
fylgdu úrsögn sem og hinna er
fylgdu áframhaldandi aðild að
BSRB, taldi það skrípaleik að end-
urtaka atkvæðagreiðsluna eftir svo
greinileg úrslit.
Fyrir þingi BSRB, sem haldið
verður 22.-26. október nk., liggur
tiliaga frá stjórn BSRB þess efnis
að knýja stjórn KÍ til þess að endur-
taka atkvæðagreiðsluna. Vandi
BSRB vegna útgöngu KÍ er félags-
legur og verður ekki leystur með
valdbeitingu bandalagsþings. Von-
andi bera fulltrúar á þingi BSRB
gæfu til þess að takast á við þann
vanda án þess að ánetjast þrákelkni
stjórnar BSRB og reyna að knýja
Valgeir Gestsson
„Hvort fleiri úrskurðir
eða jafnvel dómar verði
felldir um gildi auðu
seðlanna breytir því
ekki að félagslegar for-
sendur fyrir áframhald-
andi starfi KÍ innan
BSRB eru brostnar. Það
væri gerræði að ætla KÍ
að starfa innan BSRB
eftir svo afgerandi vilja-
yfirlýsingu svo mikils
hluta félagsmanna og
afdráttarlausar sam-
þykktir fulltrúaráðs og
stjórnar KÍ sem telur
úrsögn löglega sam-
kvæmt lögum BSRB.“
fram endurtekna atkvæðagreiðslu
félagsmanna Kí.
Fjármál og eignir KÍ
Þeim sögusögnum hefur verið
komið á kreik að KÍ verði eigna-
laust við útgönguna er hrein fjar-
stæða. Kl er meðeigandi BSRB og
fleiri félaga í Grettisgötu 89 og
getur því selt þá eign eða átt áfram
að vild. Orlofsíbúð í Þingholtsstræti
30 er séreign KÍ, kjaradeilusjóð
(verkfallssjóð) stofnaði KÍ á þessu
ári. Verði ekki samkomulag um
áframhaldandi eignaraðild KÍ að
orlofshúsum BSRB á KÍ rétt á
endurgreiðslu þess hluta sem það
hefur lagt í húsin úr eigin sjóðum,
framreiknað samkvæmt byggingar-
vísitölu að frádreginni fyrningu um
'/25 fyrir hvert ár sem KÍ hefur
notað húsin. Þetta kom fram er
félagsmönnum var kynnt aðild KÍ
að BSRB fyrir atkvæðagreiðsluna.
Ríkissjóður greiðir reglulega
framlög í starfsmenntunarsjóð
BSRB og orlofsheimilaframlag til
félaga ríkisstarfsmanna. Framlög-
in miðast við laun félagsmanna í
viðkomandi félagi. Hvort þessi
framlög koma til með að renna í
sérstaka sjóði fyrir félagsmenn
KÍ eftir útgönguna úr BSRB eða
áfram í sameiginlega sjóði fer eftir
samkomulagi KÍ við fjármálaráð-
herra og BSRB.
Samkvæmt ákvæðum í kjara-
samningum tekur fjármálaráðu-
neytið að sér innheimtu félags-
gjalda fyrir félög ríkisstarfs-
manna. Innifalið í félagsgjaldi KÍ
er gjald til BSRB, 0,3% fastra
launa, og munu félagsgjöld KÍ því
lækka er því nemur er KÍ gengur
úr BSRB.
Klofningur eða samstaða
Ljóst er að margir félagsmenn
KÍ hefðu fremur kosið áframhald-
andi starf innan BSRB. Sá hópur
sem vill, hvað sem það kostar, vera
áfram í BSRB og jafnvel kljúfa sig
frá Kí við útgönguna, er þó mjög
fámennur og vonandi velur hann
þann kost að standa með kennara-
stéttinni sem heild. Með úrsögninni
hefur Kf tekið þá ákvörðun að
berjast fyrir sjálfstæðum samn-
ings- og verkfallsrétti og vinna að
stofnun nýrra heildarsamtaka
kennara.
Heildarsamtök kennara
á dagskrá
Stéttarfélög kennara, KÍ og HÍK,
hafa í rúmlega 20 ár starfað hvort
í sínum heildarsamtökum opin-
berra starfsmanna, BSRB og BHM.
Kjara- og réttindamál stéttarinnar
svo og ýmis stefnumarkandi skóla-
mál knýja á um sameiningu kenn-
ara í heildarsamtök. Fulltrúaráð
KÍ hefur tekið undir tillögur um
stofnun heildarsamtaka kennara
þar sem gert er ráð fyrir bandalagi
sjálfstæðra skólastigsfélaga fyrir
grunnskóla, framhaldsskóla og tón-
listarskóla. Tillögurnar verða
ræddar á þingi HÍK um næstu
mánaðamót.
Hvort heildarsamtök kennara
verða stofnuð á næstu mánuðum, á
næsta þingári KÍ 1987 eða síðar
breytir því ekki að Kennarasam-
bandið býr sig nú undir að starfa
utan heildarsamtaka frá 1. janúar
1986.
Samningsréttur KÍ
utan BSKB
Þær raddir hafa heyrst að erfitt
verði fyrir KÍ að fá sjálfstæðan
samningsrétt. Ýmsir sterkir aðilar
munu leggjast gegn sjálfstæðum
samningsrétti fyrir kennara. Það
eru þau öfl sem vilja spyrða laun-
þegahreyfinguna sem fastast sam-
an, forræðis- og miðstýringaöflin
innan verkalýðshreyfingarinnar,
studd af stjórnmálaflokkum og
vinnuveitendasambandinu, sem að
undanförnu hefur beitt mjög harðri
miðstýringarstefnu.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráð-
herra fer með samningsumboð rík-
isins gagnvart ríkisstarfsmönnum.
Ekki verður öðru trúað en hann
sýni sjálfstæðisbaráttu Kennara-
sambandsins fullan skilning, taki
tillit til vilja meirihlutans og for-
ystu KÍ en láti ekki undan þrýstingi
miðstýringaraflanna. í viðræðum
fulltrúa KÍ við ráðherra á næstu
dögum mun reyna á hvort frjáls
verkalýðsfélög fá að starfa á fs-
landi.
Samstarf og sam-
staða með BSRB
Engum sem til þekkir blandast
hugur um að úrsögn KÍ úr BSRB
veikir BSRB verulega. Að undan-
förnu hafa fámennir hópar yfirgef-
ið BSRB, t.d. fréttamenn ríkisfjöl-
miðlanna og hópar tæknimanna,
sem vilja starfa í sínu „fagfélagi"
utan BSRB.
Úrsögn KÍ hefur verið á dagskrá
frá því í júní 1984. Þrátt fyrir þessi
umbrot hafa orsakir þeirra lítið
sem ekkert verið ræddar á vett-
vangi BSRB, t.d. á bandalagsráð-
stefnu í ársbyrjun. Úr því sem
komið er verður útganga KÍ ekki
stöðvuð.
Ýmsir brestir eru í uppbyggingu,
samningsrétti og starfi BSRB.
Framtíð BSRB tel ég fremur öðru
ráðast af því hvort BSRB tekst að
berja í innri bresti og bregðast við
breyttri félagslegri stöðu með
breyttu og bættu eigin starfi.
I samþykkt fulltrúaráðs KÍ frá
23. ágúst sl. segir m.a.:
„Fulltrúaráð Kl skorar á stjórn
BSRB að viðurkenna úrsögn Kí
úr BSRB enda engar félagslegar
forsendur fyrir áframhaldandi
aðild eftir jafn ótvíræða vilja-
yfirlýsingu félagsmanna og úrslit
atkvæðagreiðslunnar bera með
sér. Kennarasambandið óskar
eftir því að úrsögnin verði í fullri
vinsemd og lýsir vilja sínum til
samstarfs og samstöðu með
BSRB sem og öðrum samtökum
launafólks hér eftir sem hingað
til.“
BSRB styrkir ekki stöðu sína með
því að reyna að halda Kl nauðugu
innan sinna vébanda.
Höfundur er skólastjóri Álftanes-
skóla oe formadur Kennarasam-
bands íslands.
Félag velunnara Borgarspítalans:
Handbók um
kransæðasjúk
dóm komin út
MorgunblaðiA/Júllus
Frá vinstri: Gunnar Sigurðsson yfirlæknir lyflækningadeildar og Guðmundur
Oddsson hjartasérfræðingur, sem rituðu formála að bókinni og lásu yfir
handrit. Þýðandinn Anna Sigríður Indriðadóttir deildarstjóri á hjartadeild og
Hafsteinn Guðmundsson hjá bókaútgáfunni Þjóðsögu.
Kirkjudagur
Óháða safnaðarins
Á MORGUN, sunnudaginn 20.
október, er Kirkjudagurinn haldinn
hátíðlegur í kirkju Óháða safnaðar-
ins og byrjar hann með messu kl.
14:00.
Kirkjudagurinn er hátiðisdagur
fjölskyldunnar hjá Óháða söfnuð-
inum.
Þann dag hittist safnaðarfólk,
hlýðir á messu og á saman góða
stund eftir guðsþjónustuna. Þá
mun kvenfélag safnaðarins vera
með sína árlegu kaffisölu til
styrktar safnaðarstarfinu og fleiri
góðum málefnum. Kvikmyndasýn-
ing verður fyrir börn og unglinga
og er vænst þátttöku allrar fjöl-
skyldunnar á þessum fjölskyldu-
degi Óháða safnaðarins.
Sr. Þórsteinn Ragnarsson,
safnaðarprestur.
FÉLAG velunnara Borgarspítalans
hefur gefið út bók, sem ber nafnið
„Listin að lifa með kransæðasjúk-
dóm“. Bókin er einkum ætluð þeim,
sem orðið hafa fyrir þvi að fá krans-
æðasjúkdóm og aðstandendur
þeirra. í henni eru leiðbeiningar um
hvernig hægt er að lifa nokkurn-
veginn eðlilegu lífi þrátt fyrir að
viðkomandi hafi fcngið hjartasjúk-
dóm.
Egill Skúli Ingibergsson for-
maður Félags velunnara Borgar-
spítalans sagði að með þessari út-
gáfu væri félagið að reyna að gera
sjúkdómnum nokkur skil og jafn-
framt leiðbeina sjúklingum um
hvers ber að gæta þegar lifa þyrfti
með kransæðasjúkdóm. Þessi bók
er fyrsta bókin í röð annarra með
sama hlutverk þar sem fjallað
verður um aðra sjúkdóma og mein-
ingin er að komi út síðar. Bókin
er bandarísk, gefin þar út af félagi
sem hefur gefið út svipaðar bækur
um aðra sjúkdóma.
Formaður stjórnar Borgarspít-
alans, Páll Gíslason læknir, sagði
það lofsvert framtak að gefa út
þessa bók. Fólk vill vita meira um
sjúkdóma í dag og leitar eftir
upplýsingum um þá. Upplýsingar
um sjúkdóma hafa lækningarlegt
gildi í sjálfu sér og ýta frá hræðslu
og kvíða. Það væri því þarft verk
að gefa út fleiri bækur sem þessa
þar sem tekinn væri út viss hluti
algengs sjúkdóms og fólki kennt
að lifa með honum.
Tíðni kransæðasjúkdóms hér á
landi er svipuð og í öðrum vestræn-
um Iöndum og er talið að um 5.000
manns beri einkenni sjúkdómsins
en hann dylst með fleirum auk
þeirra sem hafa hjartakveisu, sem
er algengasta einkenni kransæða-
sjúkdóms. Miklar framfarir hafa
orðið í meðferð sjúklinganna og
hefur dánarorsök af völdum krans-
æðasjúkdóms lækkað um 15% á
síðustu árum.