Morgunblaðið - 19.10.1985, Page 19

Morgunblaðið - 19.10.1985, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985 19 Stöndum heldur saman — eftir Álfheiði Ingadóttur Samtök um kvennaathvarf hafa á undanförnum þremur árum sannað tilverurétt sinn. Almenn- ingur sem og opinberir aðilar sýndu strax í upphafi skilning á ætlunarverki samtakanna og studdu það. Fjöldi þeirra kvenna og barna sem notið hefur skjóls í at- hvarfinu staðfestir, svo ekki verður um villst, þörfina sem fyrir hendi var og er. Allir þessir aðilar hafa borið traust til samtakanna og ég fullyrði að þau hafa verið þess trausts verð. í samtökum um kvennaathvarf tókust í hendur konur úr öllum stjórnmálahreyfingum landsins og utan flokka til að hrinda í fram- kvæmd áformum sem við vorum ekki einasta sammála um, heldur töldum ákaflega brýn. Með Sam- tökum um kvennaathvarf vorum við ekki að búa til nýjan pólitískan orrustuvöll handa frammákonum í stjórnmálaflokkum til að rjúka fylktu liði af fundum eða senda hver annarri tóninn í fjölmiðlum. Slíkir orrustuvellir eru nógir fyrir. Með Samtökum um kvennaathvarf vorum við hins vegar að feta okkur „Nýleg blaðaskrif um málefni samtakanna eru til þess eins fallin að tvístra hópnum og grafa undan trausti á kvenna- athvarfinu í Reykjavík. Af þeim ástæðum leyfi ég mér að átelja þau harðlega og skora hér með á aðstandendur at- hvarfsins að hætta þess- um Ijóta leik. Stöndum heldur saman.“ til samstöðu um málefni sem við vissum allar að snertir ekki konur eftir pólitískum litarhætti og þar við liggur framtíð athvarfsins að okkur takist að halda þeirri sam- stöðu. Nýleg blaðaskrif um málefni samtakanna eru til þess eins fallin að tvístra hópnum og grafa undan trausti á kvennaathvarfinu í Álfheiður Ingadóttir Reykjavík. Af þeim ástæðum leyfi ég mér að átelja þau harðlega og skora hér með á aðstandendur at- hvarfsins að hætta þessum ljóta leik. Stöndum heldur saman. Hér hefur sannast sem fyrr þeg- ar menn bera „ágreiningsefni" sín á torg að hálfur sannleikur er verri en enginn. í samræmi við áskorun mína hér að framan beini ég ekki orðum mínum frekar til starfs- manna athvarfsins eða samstarfs- kvenna minna í samtökunum. Þess í stað vil ég benda velunnurum at- hvarfsins meðal almennings og opinberra aðila á eftirtalin þrjú efnisatriði: 1. Fjárreiður Samtaka um kvenna- athvarf eru í röð og reglu og bókhald allt endurskoðað af löggiltum endurskoðanda. Eng- um, hvorki stuðningsmönnum athvarfsins né opinberum aðil- um er meinað eftirlit með fjár- málum samtakanna. Ársreikn- ingar eru sendir hverjum þeim sem beðinn er um fjárstyrk um leið og þeir hafa verið endur- skoðaðir og samþykktir á aðal- fundi. 2. I haust kom upp alvarlegt ósætti meðal 13 starfsmanna kvenna- athvarfsins. Allar tilraunir framkvæmdanefndar og ein- stakra félagsmanna til að sætta starfsmennina urðu því miður árangurslausar. Meirihluti framkvæmdanefndar lagði ekki mat á hvor deiluaðila hefði rétt fyrir sér en taldi að þeir yrðu að leysa ágreining sinn utan veggja athvarfsins og víkja allir úr starfi til þess að deilan bitnaði ekki frekar en orðið var á rekstri athvarfsins. Þá málsmeðferð studdi ég. Þessi niðurstaða hláut hins vegar ekki samþykki fé- lagsfundar, þar sem ákveðið var að víkja einni konu úr starfi. 3. Gildi kvennaathvarfsins felst fyrst og fremst í því að það er ekki stofnun þar sem „skjól- stæðingar" eða „sjúklingar" eru lagðir inn og skrifaðir út eftir ákveðna „meðferð". Þvert á móti er bundið í 4. gr. laga samtak- anna að athvarfið sé heimili sem allar konur eiga rétt á að leita til, telji þær sér ekki vært heima vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis. Þangað koma konurnar sjálfar undir fullkominni nafn- leynd og dvelja þar uns þær kjósa að fara. Mikils er um vert að friður haldist um þessa starf- semi svo athvarfið sé það skjól sem því er ætlað að vera. Að lokum: Markmið okkar er að uppræta það ofbeldi sem nú hrekur konur af heimilum sínum. Fyrr en því marki er náð getum við ekki lokaö kvennaathvarfinu. Fram til þess tíma verðum við að standa saman og starfa saman. Samtaka- mátturinn og traustið sem við höf- um hvarvetna notið í krafti hans varð til þess að kvennaathvarf var opnað í Reykjavík 6. desember 1982 — aðeins 6 mánuðum eftir að sam- tökin voru stofnuð. Látum ekki kvennaathvarfið verða sundrungu að bráð. Stöndum heldur saman. Reykjavík 17. október 1985. Höfundur er blaðamaður rið Þjóð- riljann. pVI EÞlbTsJúcZiJ SkZPTX'R TiL MlkLU_ MÁLI . .. GÆBZ OCc Gob HonþJuþJ TRYCcúcJA TQVoTA "BÍt-aM LfittJúcAiJ y < LÍFTXMA ± SOLLLSkOí>LOs/ Á KJöTUbUM BTLUM ER FARXÍi X SAuMAk/A ;A ÖlLUM HLLLTUM - OGt GcERT \JZb þAb SEM pAKFiJAST - V'Xf)(xER-bAR S pU bORGAR 90 pu>S. UT OGL GrETUR SVO FEJj&Tb AFúcAtJCcTiJiJ ^ lAnJADAní X r HEXLT 'AR ) \ ÞECcAR pi'l kAuPlR níotaDAM BrL - Æ.TTTRbU AD ATHbUÍA SELTAiJDAsJhJ Y JAFnÍ VLL BTLIMnJ TOYOTA Nybylavegi 8 200 Kopavogi S 91-44144 essemm

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.