Morgunblaðið - 19.10.1985, Page 22
22________
Bandaríkin
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
Hagyöxturinn
jókst í sumar
Washington, 17. október. AP.
HAGVÓXTUR í Bandaríkjunum jókst verulega á þriðja fjórðungi þessa árs
en misserið á undan hafði hann verið minni en búist hafði verið við. I til-
kynningu viðskiptaráðuneytisins sagði, að þjóðarframleiðslan hefði aukist
um 3,3 % í júlí, ágúst og september.
Hagvöxturinn á þriðja ársfjórð-
ungi hefur samkvæmt þessu verið
þrisvar sinnum meiri en hann var
á fyrstu tveimur og allnokkuð
umfram þau 2,8%, sem spáð hafði
verið. Bandaríkjastjórn er mjög
bjartsýn á áframhaldandi vöxt og
er þegar farin að spá því, að hann
verði fimm sinnum meiri á síðara
misseri þessa árs en því fyrra. Ef
það gengur eftir verður hann 3%
til jafnaðar allt árið.
Hagfræðingar ýmsir telja
stjórnvöld bjartsýn um of og finnst
þeim líklegra, að árshagvöxturinn
verði um 2%. Er sá vöxtur skil-
greindur sem samdráttur, þ.e.a.s.
hann er of lítill til að koma í veg
fyrir, að atvinnuleysi vaxi. Við-
skiptahallinn í Bandaríkjunum
jókst enn á þriðja ársfjórðungi en
þóminnaen áður.
Martens boðar
óbreytta stefnu
Brussel, 17. október. AP.
WILFRIED Martens, forsætisráð-
herra, var í gærkvöldi falin stjórnar-
myndun, og boðaði hann í dag áfram-
haldandi samsteypustjórn fjögurra
flokka, sem verið hefur við völd frá
1981. Martens boðaði áframhaldandi
aðhaldsaðgerðir í efnahagsmálum og
að haldið yrði áfram uppsetningu
stýriflauga Atlantshafsbandalagsins
í Belgíu.
Martens sagðist myndu hefja
viðræður við samstarfsflokkana á
mánudag um nýja stefnuskrá
stjórnarinnar og breytingar á nú-
verandi skipan stjórnarinnar.
Búist er við að ný stjórn sverji
embættiseiða i nóvemberbyrjun.
Ný stjórn verður síðan að standast
traustsyfirlýsingu á fyrstu dögum
nýs þings, sem hvatt verður saman
14. nóvember.
Stjórnarflokkarnir fjórir,
Kristilegir demókratar og Frjáls-
lyndir, sem hvor um sig skiptist í
flokka frönskumælandi og hol-
lenzkumælandi Belga, juku þing-
meirihluta sinn um tvö sæti, hlutu
115 sæti af 212. Martens sagði að
í kosningunum hefðu þeir flokkar
tapað, sem vildu fara nýjar leiðir
í efnahagsmálum, og því yrði ekki
vikið út af þeirri stefnu, sem not-
ast hefði verið við undanfarin fjög-
ur ár.
Franskur björgunarmaður sést hér (neðst) hlusta eftir lífsmarki í
skriðunni, sem féll á þorpið Mameyes á suðurströnd Puerto Rico. Nú
er Ijóst, að miklu færri grófust undir skriðunni en talið var í upphafi.
N áttú ru ham far irnar
á Puerto Rico:
Dánartöl-
ur voru
stórlega
ýktar
Ponce, Puerto Rico, 18. október. AP.
FJÖLDI þeirra, sem fórust er
aurskriða féll á þorpið Mameyes
á suöurströnd Puerto Rico 7.
þ.m. kann að hafa verið um 100
að því er borgaryfirvöld í Ponce
upplýstu í gær, en ekki 500 eins
og almannavarnir á eyjunni og
þjóðvarðliðið töldu upphaflega.
„Tölurnar stafa af þeirri
allsherjar taugaveiklun, sem
hér réð ríkjum á þessari
stundu," sagði Vivian Marte,
fréttafulltrúi borgarstjórans í
Ponce.
Ronald Regan Bandaríkja-
forseti lýsti Ponce og nokkra
staði annars staðar á eynni
neyðarsvæði í því skyni að
greiða fyrir aðstoð alríkisins
og eru embættismenn á vegum
ríkisins nú að meta tjónið og
kanna hvar þörfin er mest
fyrir aðstoð.
Samkvæmt manntali
bjuggu aðeins 702 í hreysum í
Mameyes-þorpi en ekki 1.500
eins og yfirvöld og lögregla
sögðu.
Dapena Tompson, borgar-
stjóri í Ponce, staðfesti nýju
tölurnar, en nokkrum klukku-
stundum eftir harmleikinn
sagði hann, að 500 manns
hefðu grafist undir skriðunni.
#s
„60
\ 0<3 -Yv\Ó^c. ••
\&sr
.60
Grænland:
7 % hækkun
námslauna
Kaupmaonhöfn, 18. október. Frá Niks Jörgen
Bniun, frétUriUra Morgunhlaóflins.
ÞAÐ hefur tíðkast í mörg ár í Græn-
landi, að elstu nemendur grunnskól-
ans fái eins konar námslaun, búi
þeir í foreldrahúsum. Nú hefur
íandsþingið ákveöið að hækka þessi
laun um 7 %.
Hér eftir fá nemendur í 9. bekk
661 danska krónu (tæpl. 2.900 isl.
kr.) á mánuði, hafi foreldrar
þeirra 115.000 d.kr. (tæpl. 500.000
ísl. kr.) eða minna í árslaun. Fái
foreldrarnir 168.000 d.kr. (rúml.
700.000 ísl. kr.) árslaun, falla laun
viðkomandi námsmanns niður.
Indland:
Þúsundir
manna missa
heimili sín
KalkútU, 17. október. AP.
GÍFURLEGT fárviðri gekk yfir hér-
uðin Orissa og Vestur-Bengal í aust-
urhluta Indlands og Bangladesh í
dag. Vitað er um eitt anddlát af
völdum veðursins og þúsundir
manna misstu heimili sín. Veruleg
röskun varð á samgöngum og síma-
línur slitnuðu.
Þá fundust lík tveggja manna
til viðbótar í Uttar Pradesh í
norðurhluta Indlands og hafa þá
látist þar 574 menn í flóðum af
völdum monsúnrigninga síðustu
þrjámánuðina.