Morgunblaðið - 19.10.1985, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 19.10.1985, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985 27 Afmæliskyeðja: Guðmunda J. Jóns dóttir frá Hofi Vinkona mín Guðmunda Jóna Jónsdóttir er 80 ára í dag. Hún er fædd á Kirkjubóli í Val- þjófsdal 19. október 1905. Foreldr- ar hennar voru hjónin Marsibil G. Kristjánsdóttir og Jón Guð- mundsson. Hún ólst upp hjá for- eldrum sínum í stórum systkina- hópi umvafin ástúð og það var bjart yfir bernskudögum hennar í Önundarfirði. Ekki er að efa að það veganesti hefur dugað henni vel á lífsleið- inni. Árið 1921, 16 ára gömul, giftist Munda Gunnari Guðmundssyni. Hann er sonur Guðmundar Ein- arssonar, hinnar kunnu refa- skyttu og Katrínar Gunnarsdótt- ur. Þau hófu búskap á Hofi í Kirkjubólsdal 1923 og bjuggu þar til ársins 1958 að þau flytja til Þingeyrar. Eignuðust þau 9 börn og komust 8 til fullorðinsára. Þau eru: Jón, Guðmunda, Gunnar, Aðalsteinn, Björgvin, Marsibil, Katrín og Kristján. Oft hefur lífsbaráttan verið hörð og kjörin kröpp, en þau áttu það sem meira er; kjark, dugnað og bjartsýni. Þau ólust upp við ólík kjör en það virðist ekki hafa haft neikvæð áhrif á sambúð þeirra sem er orð- in löng og farsæl, eða 64 ár. Ég kynntist þeim fyrst fyrir tveimur árum. Þau kynni hafa verið mér lærdómsrík og fært mér ótal gleði- og ánægjustundir. Eftir þetta langa samleið bera þau enn- þá ást og virðingu hvort til ann- ars. Þau lifa í fulíkominni sátt við lífið og tilveruna og eiga gnægð góðvildar til að miðla öðrum. Heyrt hef ég að þegar mest hafi verið að gera við heimilisstörf og barnauppeldi hafi Munda vaggað börnunum, þvegið upp og sungið um leið og hún sinnti störfum sín- um. Það lýsir lundarfari hennar vel. Eftir að til Þingeyrar kom og heimilisstörfin kröfðust ekki eins mikils tíma sneri Munda sér að öðrum hugðarefnum. Hún kann þá list að nýta hæfileika sína sér og öðrum til ánægju og yndisauka. Listsköpun hennar fær útrás í myndum sem hún býr til úr marg- litum muldum steinum sem hún safnar víðsvegar að. Og hefur hún haldið margar sýningar á verkum sínuni. Hún hefur lifandi áhuga á þjóðmálum og hikar ekki við að bregða sér út á ritvöllinn ef henni liggur eitthvað á hjarta. Á þessum sem öðrum sviðum hafa þau hjón verið samhent, því Gunnar hefur einnig á efri árum fengist við myndlist með góðum árangri. „Það er ekki unnt að skapa listaverk án einlægrar mann- ástar.“-(L.da Vinci). Mér finnst þetta eiga vel við þau. Ást til alls sem dregur lífs- andann. Stephan G. Steph. kemst svo að orði: Það er hollt að hafa átt heiðra drauma vökunætur, séð með vinum sínum þrátt sólskinsrönd um miðja nátt, aukið degi í æviþátt aðrir þegar stóðu á fætur. Þó að nú sé haust finnst mér þessar ljóðlínur eiga vel við nú, því það er alltaf vor hjá Mundu og Gunnari og bjart umhverfis þau. Elsku Munda. Á þessum tímamótum hugsa ég til þín með bestu heillaóskum þér og fjölskyldunni til handa. * Megi ævikvöldið verða ykkur hlýtt og notalegt. Arnheiöur Guðlaugsdóttir Gæðakaffi sem gnæfir upp úr Kaffisöludagur í Fríkirkjunni ÁRLEGUR kaffisöludagur kvenfé- lags Fríkirkjunnar í Hafnarfirði verður nk. sunnudag 20. október. Kaffisalan verður í Góðtemplarahús- inu og hefst að lokinni guðsþjónustu í kirkjunni. f kirkjunni hefst dagurinn með barnasamkomu kl. 10:30. Klukkan 14:00 verður guðsþjónusta þar sem sr. Magnús Guðjónsson biskups- ritari og fyrrverandi fríkirkju- prestur prédikar en fermingar- börn aðstoða við helgihaldið. Kaffisala kvenfélagsins er mik- ilvægur þáttur í starfi safnaðarins því allur ágóði af kaffisölunni rennur til kirkjunnar. Það er því von okkar sem þar störfum að frí- kirkjufólk og velunnarar kirkj- unnar bregðist vel við á sunnudag- inn og mæti í Góðtemplarahúsið að lokinni guðsþjónustu. Það ætti enginn að þurfa að verða fyrir vonbrigðum með móttökurnar þar því ef að líkum lætur verður þar góðgæti á borðum. (FréUatilkynning) Samvinnuskól- inn á Bif- röst 30 ára SAMVINNUSKÓLINN á Bifröst er 30 ára um þessar mundir og verður afmælisins minnst í sal skólans nk. sunnudag, 20. október kl. 15.00. Gunnar Grímsson, fyrrum yfir- kennari, segir frá upphafi skólans á Bifröst. Jón Sigurðsson, núver- andi skólastjóri, segir frá fyrir- huguðum breytingum á skólanum. Ýmsir munir frá liðnum árum verða til sýnis auk annarra kennslutækja. Nemendur og kenn- arar munu síðan veita gestum aðr- ar upplýsingar um starfsemi skól- ans. Allir velunnarar Samvinnuskól- ans á Bifröst eru velkomnir og eru gamlir nemendur þó sérstaklega boðnir velkomnir. Því verður vart lýst með orðum hvernig Merrild kaffi bragðast, það verður hver að að reyna sjálfur. En við getum samt nefnt það sem Merrild hefur helst sér til ágætis: nefnilega þennan mikla en ljúfa keim sem situr lengur á tungunni en þú átt að venjast. Kaffið er drjúgt og bragðmikið, en aldrei rammt. í því eru aðeins heimsins bestu kaffitegundir frá Kolombíu, Brasilíu og Mið-Ameríku, en ekkert „Robusta". Merrild kaffið er í loftþéttum umbúðum, sem varðveita vel ferskt bragð og ilm í allt að einu ári. Ef þú geymir kaffipokann eftir að hann hefur verið opnaður í kaffibaukn- um, er kaffið alltaf eins og nýtt. Þú getur því hvenær sem þú óskar notið bragðs af eðal-kaffi, sem hefur hlotið með- ferð sem því hæfir. En sem sagt, reynið gæðin og njótið bragðs- ins. f Ný kaffitegund hefur verið að vinna á hér á landi. £ Þótt þú sért ánægður með það sem þú hefur, skaltu ekki fara á mis við Merrild kaffið. Það svíkur engann. 2 Merrild setur brag á sérhvern dag

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.