Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
Framkvæmdanefnd um launamál kvenna:
Konur leggi niður
vinnu 24. október
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi fréttatilkynning frá
Frarakvæmdanefnd um launamál
kvenna:
Framkvæmdanefnd um launa-
mál kvenna hvetur konur til að
leggja niður vinnu 24. október nk.
til að leggja áherslu á mikilvægi
vinnuframlags kvenna og mót-
mæla vanmati hefðbundinna
kvennastarfa á vinnumarkaðinum
svo og þeim gífurlega mismun er
er á launakjörum karla og kvenna.
Jafnframt hvetur Fram-
kvæmdanefndin konur til að fjöl-
menna á útifund á Lækjartorgi,
sem ’85-nefndin stendur fyrir kl.
14.00 þennan sama dag og á sýn-
ingu á störfum og launakjörum
kvenna, sem haldin verður í nýja
Seðlabankahúsinu.
í Framkvæmdanefnd um laun-
amál kvenna eiga sæti 18 fulltrúar
frá kvennasamtökum, stéttarfé-
lögum og öllum stjórnmálaflokk-
um.
Bandarískur söngv-
ari skemmtir í
Upp og niður
BANDARÍSKI söngvarinn Forrest
mun skemmta gestum skemmtistaðar-
ins Upp og niður nú um helgina.
Þetta er í annað skiptið sem
Forrest kemur hingað til lands.
Hann er búsettur í Hollandi og
starfar þar í hljómsveitinni The
Affair ásamt hollenskri stúlku og
afrískum pilti.
Fréttatilkvnning
Kvikmyndaklúbburinn Hispania:
Tvær myndir í Regn-
boganum á morgun
KVIKMYNDASÝNINGAR verða í
Regnboganum á vegum kvikmynda-
klúbbs Hispania í dag, laugardag.
> Sýningar verða í E-sal og er öllum
heimill aðgangur á meðan húsrúm
leyfir. Aðgangur er ókeypis.
Kvikmyndin „Maravillas" verð-
ur sýnd kl. 15.00 og 18.15. Hún
fjallar um stúlku, Maravillas, sem urinn
Bústaðakirkja:
Síðdegiskaffi
fyrir eldri Esk-
firðinga og
Reyðfirðinga
SÍÐDEGISKAFFI verður fyrir eldra
fólk frá Eskifirði og Reyðarfirði í
safnaðarheimili Bústaðakirkju
sunnudaginn 20. október kl. 15.30.
Messað verður í kirkjunni kl. 14.00
og hefst kaffið að messu lokinni.
Fréttatilkynning
Landleiðir hf. hafa nýiega tekið I notkun nýjan strætisvagn á leiðinni milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Myndin er
tekin þegar nýja innanbæjarleiðakerfið var kynnt fyrir skólastjórum í Hafnarfirði.
Hafnarfjörður:
Strætisvagnaþjónusta
innanbæjar bætt verulega
Á UNDANFÖRNUM árum hafa risið upp ný íbúðahverfi í Hafnarfirði og
atvinnufyrirtækjum hefur fjölgað mikið víðs vegar um bæinn. Um nokkurt
skeið hefur verið í athugun hvernig auka mætti þjónustu strætisvagna inn-
anbæjar.
verður ástfangin af leikara einum
sem er í leikför í heimabæ hennar.
Þau verða bæði vitni að ráni þar
sem ungmenni ræna klerk einn.
Þau Maravillas og unnusti hennar
hafa þó uppi á smaragði þeim sem
ræningjarnir voru að leita að og
færa ræningjunum hann. Klerk-
heldur föður Maravillas
hafa rænt sig en faðirinr. grunar
aftur klerk um græsku þar sem
hann tilkynnti ekki iögreglu ránið.
Þegar ráðist er á gimsteinasalann
liggur öll fjölskylda Marvillas
undir grun og þegar játningin
kemur fram fer að fara um stúlk-
una.
Kvikmyndin „E1 Aguilda Imp-
erial“ verður sýnd kl. 17.00. í
myndinni segir frá keisaraörnum,
en þeir eru á meðal fágætustu
ránfugla heims og talið er að á
öllum Íberíuskaga séu einungis
um fimmtíu arnarpör. Myndin er
tekin á miðhálendinu í Andalúsíu
og lýsir hún tilhugalífi arnanna,
hreiðurgerð og heimilislífi allt til
þess er ungarnir hverfa á brott,
tveggja og hálfs mánaða gamlir.
Fyrir atbeina bæjaryfirvalda
var nýlega samið við Landleiðir
hf. um aukna þjónustu strætis-
vagna í tengslum við akstur skóla-
barna. Innanbæjaraksturinn teng-
ist ferðum almenningsvagna
Landleiða hf. milli Hafnarfjarðar
og Reykjavíkur og akstur skóla-
barna er felldur inn í leiðakerfi
vagnanna innanbæjar í Hafnar-
firði.
Landleiðir hf. munu auk ferða
almenningsvagna skv. sérleyfi og
halda úti sérstökum innanbæjar-
vagni mánudaga til föstudaga frá
kl. 7.30—17.00. Akstur þessara
vagna fer fram skv. sérstökum
tímatöflum. Þrír vagnar ganga
um bæinn. Tveir vagnanna aka
jafnframt milli Hafnarfjarðar og
Reykjavikur, en fara í hverri ferð
hring um bæinn. Þriðji vagninn,
bæjarvagninn, mun einungis
ganga innanbæjar og flytja skóla-
nemendur og almenning, sem með
skiptimðium getur farið í vagna er
ganga milli Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar. Einnig geta þeir sem
koma með vögnum frá Reykjavík
fengið skiptimiða yfir í innanbæj-
arvagninn. Tímatafla vagnanna er
samræmd, þannig að hægt er að
skipta á milli vagna á skiptistöð.
Á álagstímum er bætt við fleiri
vögnum á leiðinni milli Reykjavik-
ur og Hafnarfjarðar.
Með hinu nýja leiðakerfi kemst
einnig sú breyting á að á ákveðn-
um tímum alla daga vikunnar
ganga vagnar út að Hrafnistu og
ætti það mjög að auðvelda sam-
göngur vistmanna og starfsfólks.
Einnig ekur innanbæjarvagninn á
ákveðnum tímum upp í Setberg.
Þau skólabörn sem rétt eiga á
skólaakstri munu mánaðarlega fá
afhenta sérstaka miða í skólunum
til notkunar í vögnunum. Skóla-
börn, sem rétt eiga á akstri, geta
gegn framvísun akstursmiða tekið
hvern þeirra þriggja vagna, sem
um bæinn ganga. Leitast er við að
vagnarnir stöðvi sem næst hverj-
um skóla eða kennslustað. Aðrir
skólanemar eiga kost á að kaupa
sérstök afsláttarkort er gilda fyrir
aksturinn innanbæjar í Hafnar-
firði.
Tímatafla innanbæjarvagnsins
hefur verið auglýst og kynnt.
Ennfremur verður hún hengd upp
í biðskýlum á viðkomustöðum
vagnanna.
Innanbæjaraksturinn er tilraun
til bættrar þjónustu við bæjarbúa,
sem rétt er að gera vegna stækk-
unar bæjarins og fjölgun vinnu-
staða. Bæjarsjóður styrkir nokkuð
þessa tilraun Landleiða hf. Til-
raunin með innnanbæjarakstur-
inn stendur til 31. maí 1986. Að
þeim tíma loknum verður metið
hvort framhald verður á þessari
auknu þjónustu vagnanna innan-
bæjar i Hafnarfirði.
(FrétUtilkyiming)
Héraðsfundur Reykja-
víkurprófastsdæmis
í Langholtskirkju
Nýjar umbúðir MAN-
sjampós auka söluna
^ SAPUGERÐIN FRIGG setti fyrir
um 2 mánuðum á markað hér á
iandi af MAN-sjampó og -baðsápu í
nýjum umbúðum og endurbætt að
samsetningu, og að sögn forsvars-
manna sápugerðarinnar hefur sala á
vörunni aukist til muna í kjölfar
þessa.
Nýju flöskurnar eru 250 ml og
króklaga þannig að þægilegra sé
að halda á þeim. Einnig er hægt
að láta flöskurnar hanga t.d. á
blöndunartækjum eða sápuskál í
sturtuklefum. Tappinn er með
smelluloki og litlu opi og er ekki
hætta á að flaskan fyllist af vatni
þótt gleymist að loka henni.
Auk miða á framhlið umbúð-
anna eru miðar að aftan þar sem
greint er frá eiginleikum hverrar
tegundar, efnainnihaldi og
pH-gildi (sýrustigi). Mjög sjald-
gæft er að sjá pH-gildi gefið upp á
, sjampóumbúðum, en slíkar upp-
lýsingar eru sérstaklega mikil-
vægar fyrir íslendinga, þar sem
pH-gildi hitaveituvatns er víða
mjög hátt, segir í frétt frá Frigg.
Við efnasamsetningu MAN-vöru-
flokksins og ákvörðun á pH-gildi
hefur sérstaklega verið tekið tillit
til þessara aðastæðna. Bent er á í
þessu sambandi að mikilvægt sé
að nota MAN hárnæringu eftir
hárþvott þar sem pH-gildi hennar
er mjög lágt.
Nú eru til sjö mismunandi teg-
undir undir vörumerkinu MAN.
Þær eru: MAN sjampó til nota
fyrir þá sem eru með feitt hár og
þvo sér ekki daglega um hárið,
MAN eggjasjampó er milt og
hentar öllu hári, MAN flösueyð-
andi sjampó dregur úr flösumynd-
un við reglubundna notkun, MAN
sérlega milt sjampó er einkum
fyrir þá sem þvo sér daglega um
hárið, MAN barnabaðsápa er sér-
lega mild fyrir húð og hár, MAN
húð og hár er hentugt fyrir sund-
og íþróttafólk og aðra sem baða
sig daglega, MAN hárnæring eyðir
burt síðustu leifum af sjampói úr
hárinu, styrkir og fegrar hárið, að
því er segir í fréttinni.
HÉRAÐSFUNDUR Reykjavíkur
prófastsdæmis verður haldinn í
Langholtskirkju á morgun, sunnu-
dag, og hefst kl. 16. Er þetta fyrsti
héraðsfundur í prófastsdæminu sem
haldinn er samkvæmt nýjum lögum
frá því í sumar og kennir þar ýmissa
nýjunga.
Á fundinn mætir Þorleifur Páls-
son, deildarstjóri í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu og fer
nokkrum orðum um hina nýju
löggjöf um kirkjusóknir, safnaðar-
fundi, sóknarnefndir, héraðsfundi
o.fl. og um sóknargjöld sem nú
verða innheimt með nýjum hætti
þegar á næsta ári. Að venju flytur
dómprófastur yfirlitsskýrslu sína
og lagðir verða fram endurskoðað-
ir reikningar safnaðanna, sem eiga
hér eftir skv. hinum nýju lögum,
Aðstoðarfor-
stjóri — ekki
skrifstofustjóri
ÞAU mistök urðu í tveimur fréttum
Morgunblaðsins í síðustu viku um
málefni Fiskveiðasjóðs, að Svavar
Ármannsson, aðstoðarforstjóri sjóðs-
ins, var sagður skrifstofustjóri hans.
Morgunblaðið biðst velvirðingar á
þessum mistökum og leiðréttir þau
hér með.
að vera komnir í hendur prófasti
eigi síðar en 1. júní ár hvert og
fylgi reikningunum skýrsla sókn-
arnefndar um helstu starfsþætti
liðins árs.
Ýmsar nefndir sem starfa á
vegum prófastsdæmisins gefa
skýrslur sínar og mörkuð verður
stefna næsta árs. Þá verður flutt
erindi séra Sigurðar H. Guð-
mundssonar, um umönnunar- og
hjúkrunarheimilið Skjól, og for-
stjóri Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæmis skýrir frá málefn-
um garðanna, svo eitthvað
nefnt.
(Úr rrétlatilkynningu)
se
Samsýning í
Gallerí Gangi
SÝNING Kees Visser og Péturs
Magnússonar á samvinnuverkum
stendur nú yfir í Gallerí Gangi.
Myndirnar voru unnar sl. vor
með ýmsum nærtækum efnum s.s.
blýanti, tússi, vaxlitum, vatnslit-
um o.fl. Bók sem gefin var út með
þessum verkum er einnig til sýnis.
Svissneskur listmaður, Peter
Emch, opnar sýningu á grafík-
myndum áinum í Gallerí Gangi 25.
október nk.
(Fréttatilkynning)