Morgunblaðið - 19.10.1985, Qupperneq 35
MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
35
Farprestur þjónar
Kársnesprestakalli
SR. ÁRNI Pálsson, sóknarprestur í
'Kársnesprestakalli í Kópavogi, hefur
fengiö sex mánaöa leyfi frá störfum
til námsdvalar erlendis, frá 15. októ-
ber aö telja.
Á meðan sr. Árni er fjarverandi
þjónar sr. Guðmundur Örn Ragn-
arsson, farprestur íslensku þjóð-
kirkjunnar, í Kársnesprestakalli.
Sr. Guðmundur Örn Ragnarsson
hefur viðtalstíma í Kópavogs-
kirkju mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga kl. 17.30—18.30, og svar-
ar þá í síma 41898.
Borg í Miklaholtshreppi:
Kindur finnast
dauðar í mógröfum
Borg, MiklaholLshreppi 17. október
SENN fer sumarið að kveöja, því
hverju vori fylgir sumar, hverju
sumri fylgir haust. Eftirmáli þessa
sumars, sem senn er aö baki, er á
einn veg. Ilagstæð blíöskapartíð allt
til þessa dags, þótt undanfarna daga
hafí úrkoma verið allveruleg, en
10—15 stiga hiti á haustdögum er
óvenjulegt. Litadýrð haustdaganna
Tveir prestar
sækja um
Miklabæjar-
prestakall
SÉRA Bragi Benediktsson, félags-
málastjóri í Hafnarfirði, og séra
Dalla Þórðardóttir, sóknarprestur
á Bildudal, sækja um Miklabæjar-
prestakall í Skagafjarðarpró-
fastsdæmi, sem auglýst var laust
til umsóknar. Sr. Þórsteinn Ragn-
arsson sem þar var áður sóknar-
prestur hefur verið ráðinn prestur
Öháða safnaðarins í Reykjavík.
Engin umsókn barst um Hólma-
víkurprestakall né Staðarpresta-
kall í Súgandafirði, sem einnig
voru auglýst laus til umsóknar.
(FrétUtilkjnning.)
er óviðjafnaleg, því hverju góðu
hausti fylgir jafnan fagurt kvöld.
Sláturtíð fer nú senn að ljúka.
Áætlað er að í sláturáætlun Kaup-
félags Borgnesinga, að 25. október
sé slátrun lokið. Dilkar hafa kom-
ið óvenju vel framgegnir eftir
sumarið. Fallþungi þeirra með
besta móti og flokkun góð.
Nokkuð ber á að heimtur séu
ekki góðar, þrátt fyrir góða veðr-
áttu sumarsins. Þar sem fé hefur
gengið á flóum í sumar hafa kind-
ur verið í leit að vatni og fundist
dauðar í mógröfum, því flóar voru
orðnir mikið þurrir seinnipartinn
í ágúst. Þótt illa liti út með að
framkvæma mikið, þá eru þó til
bjartsýnir og framfarasinnaðir
bændur. í næstu sveitum eru í
byggingu þrjú íbúðarhús. Á þverá,
Haukatungu og Kaldárbakka. Þá
er stutt í að nýju brýrnar sem
byggðar voru á Fáskrúð og Laxá í
sumar, verði umferðarhæfar.
Uppfylling að þeim er að verða
lokið. Verður þessi framkvæmd
góð samgöngubót. í næsta mánuði
verða 20 ár síðan Laugargerðis-
skóli tók til starfa. Ákveðið er að
minnast þeirra tímamóta í viðeig-
andi hátt. Þar eru nú í vetur rúm-
lega 100 nemendur og 10 kennarar
auk skólastjóra.
Páll
Sýningin Form ísland opnuð í Norræna húsinu
SÝNINGIN Form ísland verður opnuð í sýningarsöl-
um Norræna hússins á morgun, sunnudag kl. 16 að
lokinni mikilli sigurgöngu um Norðurlönd.
Verndari sýningarinnar, Vigdís Finnbogadottir,
forseti íslands, opnaði sýninguna í apríl 1984 í
Listiðnaðarsafninu í Helsinki, þegar hún var í
opinberri heimsókn í Finnlandi.
Sýningin var síðan sett upp í þrem borgum öðr-
um í Finnlandi, en fór síðan til Danmerkur, Sví-
þjóðar, Noregs og Færeyja. Þaðan fór sýningin
aftur til Danmerkur, því að borgarstjórn Fred-
riksberg bað um að fá sýninguna áður en hún ýrði
send til íslands frá Færeyjum eins og upphaflega
var ákveðið.
Á sýningunni eru verk 42 listamanna, alls rúm-
lega 200 munir og hefur hún hvarvetna hlotið
bestu dóma og aðsókn verið mjög góð. Þetta er án
efa eitt mesta átak, sem gert hefur verið til þessa
að kynna íslenska listhönnun erlendis og á vonandi
eftir að skila sér aftur.
Sýningin Form ísland mun standa fram til 3.
nóvember og er hún opin daglega kl. 14—19.
Frétutilkynning
Fundur um byggðaþróun í Odda
BYGGÐASTOFNUN og Félagsvís-
indastofnun gangast fyrir fundi í
Odda í Háskóla lslands nk. þriðju-
dag, 22. október, og hefst hann kl.
20.30. Á fundinum flytja sex sérfræð-
ingar frá Skandinavíu erindi um
byggðaþróun, aðgerðir hins opinbera
til að hafa áhrif á þessa þróun og
síðast en ekki síst hvað vísindamenn
geti lagt til málanna.
Nú stendur yfir mótun nýrrar
rannsóknaráætlunar hjá Nord-
REFO, Norrænu rannsóknarstofn-
uninni í byggðamálum, og heldur
stjórn stofnunarinnar fund sinn í
Borgarnesi nú um helgina. Sex-
menningarnir, sem flytja fyrir-
lestra í Odda, tóku allir þátt í
síðasta rannsóknartímabili
NordREFO og hefur stjórn stofn-
unarinnar boðið þeim á fund sinn
í Borgarnesi, í þeim tilgangi að fá
ábendingar um verkefnaval. Einn-
ig hefur tveimur fulltrúum Félags-
vísindastofnunar Háskóla íslands
verið boðið að taka þaft í fundinum
í Borgarnesi.
Fundurinn í Odda á þriðjudag
er öllum opinn. Auk sexmenning-
anna munu stjórnarmenn Nord-
REFO, núverandi og fyrrverandi
framkvæmdastjórar taka þátt í
fundinum.
(Úr frétUtilkynningii)
Minning:
Anna Sigríður
Sigurjónsdóttir
í dag, 19. október, verður jarð-
sungin að Breiðabólstað í Fljóts-
hlíð Anna Sigríður Sigurjónsdótt-
ir frá Torfastöðum, en hún lést í
Borgarspítalanum í Reykjavík
þann 6. október sl. eftir aðeins
tveggja vikna veikindi.
Það er með sárum trega sem við
kveðjum Önnu og fylgjum henni
síðasta spölinn. I marga áratugi
hefur hún og fjölskylda hennar
verið tengd okkur sterkum ættar-
og vináttuböndum. Með þessum
fáu kveðjuorðum viljum við þakka
henni — vinátta eins og hennar er
ómetanleg og sjaldgæf.
Anna fæddist að Oddakoti í
Landeyjum 17. september 1923.
Foreldrar hennar voru hjónin
Ólína Sigurðardóttir og Sigurjón
Jónsson bóndi. Árið 1925 fluttu
þau að Torfastöðum i Fljótshlíð
þar sem þau bjuggu síðan. Anna
var eina dóttir þeirra, en bræður
hennar eru Sveinbjörn bifreiðar-
stjóri í Reykjavík, Sigurjón bif-
reiðavirki á Hvolsvelli og Óskar
sérleyfishafi á Hvolsvelli. Hálf-
bróður átti hún, Sigurð Svein-
björnsson, sem látinn er fyrir
nokkrum árum.
Anna ólst upp hjá foreldrum
sínum að Torfastöðum við venju-
leg störf þeirra tíma til sveita.
Þegar sem ung stúlka var hún
ákveðin í að yfirgefa ekki sveitina
sína, enda undi hún þar vel alla
tíð.
Árið 1947 giftist hún Baldri
Ámasyni frá Ölversholtshjáleigu i
Holtum. Foreldrar hans voru
Marsibil Jóhannsdóttir og Árni
Árnason kennari og bóndi. Anna
og Baldur tóku við búi foreldra
hennar að Torfastöðum eftir að
faðir hennar lést árið 1947, en
móðir hennar bjó hjá þeim til
dauðadags 1963, og hugsaði Anna
um hana af mikilli natni.
Anna og Baldur eignuðust fimm
böm, Ólaf Birgi, giftur Jónu Guð-
mundsdóttir, þau búa á Patreks-
firði; Sigurdís Björk, býr á Lyng-
haga í Hvolshreppi; Árna, býr á
Torfastöðum; Marsibil, gift Þor-
steini Hafsteinssyni, þau búa á
Selfossi; og Jóhann, giftur Guð-
björgu Sigurþórsdóttur, búa þau i
Vík í Mýrdal. Dóttursonur þeirra,
Baldur að nafni, ólst upp hjá þeim,
en barnabarnahópurinn er orðinn
stór.
Að mörgu er að hyggja hjá hús-
móður í sveit með stórt heimili.
Fyrir utan heimilisfólkið voru
alltaf börn og unglingar til sumar-
dvalar hjá þeim fyrr á árum.
Dugnaður Önnu var mikill alla tíð,
sama hvort um var að ræða inni-
eða útiverk, og oft var starfsdag-
urinn langur. Gestkvæmt var á
heimilinu, og alltaf var öllum jafn
vel tekið. Hún var heimakær, undi
best á heimilinu við að hlúa að þvi
og fólkinu sínu. Þegar hún fór i
heimsókn til ættingja eða vina
(sem ekki var oft), leið henni best
þegar heim var komið, þó hún
hefði annars mikið gaman af ferð-
inni.
í þá tæpu tvo áratugi sem við
áttum heima á Höfða, ríkti sterk
vinátta milli fjölskyldnanna sem
ekkert minnkaði þó lengra yrði á
milli þegar við fluttum til Reykja-
víkur. Ættartengsl voru mikil og
aðeins steinsnar á milli bæjanna.
Börnin voru nánast eins og systk-
inahópur, á svipuðum aldri og
bæði skírð og fermd saman. Það
var mikill styrkur fyrir okkur að
eiga þau að vinum á erfiðleikatím-
um. Það er margs að minnast frá
þessum árum. Eftir að við vorum
flutt úr Hlíðinni var oft farið
austur. Það var eins og þá fyrst
værum við komin heim þegar sest
var inn i eldhúsið hennar Önnu.
Hér á það við að skjótt getur
skipast veður í lofti, og skuggi
sorgar er nú yfir sveitinni hennar
fögru. Það er erfitt að trúa því að
Anna sé þar ekki lengur.
Mikill er missir Baldurs. Guð
gefi honum styrk í þessari miklu
raun og börnunum þeirra og
barnabörnum sem hún var svo
mikil stoð.
f lok þessara fátæklegu orða
viljum við þakka Önnu fyrir allt
það sem hún hefur verið okkur og
fyrir okkur gert. Blessuð sé minn-
ing hennar.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Ásta, Sveinbjörn og dætur
Minning:
Huldís Ingadóttir
Fædd 19. október 1929
Dáin 16. maí 1985
Mamma fæddist í Hafnarfirði
19. október 1929 og hefði hún orðið
56 ára í dag hefði hún lifað. Hún
var dóttir Dagbjartar ívarsdóttur
og Inga Kristjánssonar smiðs i
Hafnarfirði. Það setti marga
hljóða þegar fréttist að Huldís á
Malarrifi væri dáin svo lífsglöð og
mikil dugnaðarkona eins og hún
var — og alltaf tilbúin að rétta
öllum hjálparhönd þegar þörf var
á. Enginn kom að Malarrifi öðru-
vísi en að þiggja þar kaffi hjá
þeim sæmdarhjónum Huldísi og
Pétri og erfitt er að hugsa sér
heimilið á Malarrifi án mömmu.
Mig langar að minnast hennar
með þessu kvæði sem mér finnst
eiga vel við hugsanir mínar um
hana. Ég veit að mömmu væri það
á móti skapi ef ég ritaði langorð
eftirmæli. Þess skal þó getið að
hún lést úr krabbameini í Land-
spítalanum 16. maí sl., aðeins sex
mánuðum á eftir systur sinni,
Sjöfn Ingadóttur, sem lést úr
sama sjúkdómi. Mamma var gift
Páli Guðmundssyni og áttu þau
þau þrjú börn: Svanhildi, sem er
gift Hermanni Magnússyni og
eiga þau fjögur börn; Inga Arnar,
sem er giftur Kristínu Ólafsdóttur
og eiga þau einn son, og Pál
Heimi, sem er giftur Borghildi
Blöndal og eiga þau tvö börn.
Huldís og Páll Guðmundsson slitu
samvistum. Síðari maður mömmu
var Pétur Pétursson vitavörður á
Malarrifi og áttu þau einn son,
Pétur. Sambýliskona hans er Lov-
ísa Sævarsdóttir og eiga þau einn
son.
Nú ert þú fallið, fríða tré,
og framar enginn sér þitt skraut,
þá skuld við gjalda eigum öll,
og ég hverf líka senn á braut
á annað svíð — og enginn veit,
en ef til vill þar bíður mín
með silfurglit og sumardýrð
í sóldögg fagra krónan þín.
(Reynitréð)
Svanhildur Pálsdóttir
og fjölskylda
ttrgtmtfiifcffe
Áskriftarsíminn er 83033