Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985 43' VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—11.30 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Sovéskur friður — Jóni Torfasyni svarað Ileiðraði Velvakandi: Ég vil gera athugasemdir við grein Jóns Torfasonar á lesenda- síðum þínum, 21. september nýlið- inn. Fyrst vil ég þakka Jóni fyrir brosleg svör og gagnrýni en ennþá veigrar hann sér við að taka Rússa til bæna. Sem fyrr kúvendir hann á Bandaríkjamenn og aðgerðir þeirra í stríðinu við Japani og kjarnorkusprengjuna sem batt enda á heimsstyrjöldina. Það er tvennt ólíkt að bera saman hernaðaraðgerðir í stríði, eða á friðartímum. Enginn veit hvort færri hefðu fallið í lok stríðs- ins hefðu kjarnasprengjurnar ekki fallið. Um Víetnamstríðið er það að segja, að þar voru kommúnistar að verki enn sem fyrr og þegar Bandaríkjamenn fóru á brott, var haldið áfram að berja á þegnum Víetnam og nærliggjandi landa, með þeim hörmungum sem öllum er kunnugt. Þurfum við frekar vitnanna við hver veldur stríðum og ódæðisverkum nú á tímum sem áður, eins og ég hef oft vakið athygli á. í minni grein var reyndar ekki minnst á „mína ákveðnu stefnu í afvopnunarmálum". Eflaust þess- vegna telur hann mig haldinn „kaldastríðsveiki", eins og hann orðar það og fellur þarmeð á eigin bragði. Hann telur mig fara með getgátur og geri herstöðvaand- stæðingum upp hugsanir. Sérstak- lega sárnar Jóni að ég skuli segja, að herstöðvaandstæðingar hafi ætlað að lifa sig inní atburðina á Japanseyjum með því að borða grillaða lunda. Þetta var nú sagt frekar í stríðni en sé ég ekkert eftir því. Kannski varð það til þessað Jón Torfason svaraði og er mér það nokkurs virði. Það hefur áður komið fram í skrifum mínum að ég vil algjöra afvopnun og sérstaklega eru kjarn- orkuvopn ógnun við allt líf á jörð- inni. En hvers vegna ekki að eyða þeim? Á því er aðeins ein skýring. Bandaríkjamenn hafa marg- sinnis vakið máls á útrýmingu, en Rússar sífellt staðið í vegi fyrir því að svo gæti orðið, því er óger- legt að sannreyna að sú ákvörðun yrði virt. Sama má reyndar segja um Bandaríkin, það er aldrei hægt með öruggri vissu að sannreyna að vopn séu ekki til þar. En Rússar fást ekki til að samþykkja eyðingu þessara vopna því þau eru þeirra besta leið til að leggja undir sig lönd með ofbeldi og engum vörnum verður við komið af ótta við ger- eyðingu. Jón Torfason segir það hugar- burð minn að herstöðvaandstæð- ingar vinni fyrir Rússa. Athugum það nánar. Rússar voru mjög ánægðir með friðarhreyfinguna á vesturlöndum og áttu jafnvel útsendara þar. Þetta var gert til að reyna að stofna til uppþota vestantjalds. Hefði slíkt tekist hefði eftirleikur- inn orðið auðveldur. Kjarnorkuvopnalaus svæði eru Sovétmönnum mjög hagstæð því þar geta þeir óhindraðir beitt sér gegn andstæðingnum ef til ófriðar kemur. Smáþjóðir eru þeim auð- veld bráð. Þannig vinna herstöðva- andstæðingar með Rússum, með áróðri fyrir kjarnorkuvopnalaus- um svæðum. Ég þarf vonandi ekki að skýra það út, að herstöðvaandstæðingar hafa sameinast friðarsinnum. Sovéskur friður er, að hafa frið til að gera óhæfuverkin án íhlutunar annarra. Hver er kominn lengra í útrým- ingatækninni, eru áhöld um, þar sem Rússland er lokað land, en bandaríkjamenn drjúgir með að upplýsa sína tækni, enda stela Rússar henni óspart. Ég ætla nú ekki að orðlengja skoðanamun okkar Jóns Torfason- ar, því þegar á allt er litið erum við sammála um eitt, afvopnun. En fyrir alla muni beitið ykkur í Velvakanda sl. sunnudag skrif- ar stúlka í Vesturbænum og kvart- ar yfir aðstöðuleysi unglinga í hverfinu. Stúlkan á hrós skilið fyrir að taka sér penna í hönd og benda á í Velvakanda að betur mætti standa að æskulýðsmálum í Vest- urbænum. Með því sýnir hún frum- kvæði og kjark og er með þessu bréfi mínu vonandi búin að fá svör við spurningum sínum. Ég vil fullvissa unglinga í Vest- urbænum um að Æskulýðsráð hefur ekki gleymt þeim og leið- rétta þann leiða misskilning að Æskulýðsráð hugsi bara um ungl- ingana i Breiðholtinu. Æskulýðsráð starfrækir nú 5 félagsmiðstöðvar í borginni, Tónabæ við Skaftahlíð, Fellahelli í efra Breiðholti, Bústaði í Bú- staða- og Fossvogshverfi, Þrótt- heima í Langholtshverfi og Ársel f Árbæjarhverfi. Auk þessa gengst æskulýðsráð fyrir umfangsmiklu tómstundastarfi i skólum borgar- innar. Margt fleira mætti telja upp um starfsemi Æskulýðsráðs fyrir börn og unglinga borgarinnar en ég ætla einungis að nefna að á síðasta vetri leitaði Æskulýðsráð gegn réttum aðilum í þessari til- raun ykkar í friðarátt, friðsam- lega. Að öðrum kosti er ekki hægt að tala um frið í þessu sambandi. ísland er stökkpallur í hernað- arátökum, hvort sem okkur líkar betur eða verr og eini og besti kostur er því að vera í bandalagi lýðræðisþjóða. eftir því við skátana í Vestur- bænum hvort þeir gætu ekki haft opið hús í skátaheimilinu við Neshaga. Skátarnir tóku þessu mjög vel og fengu sérstaka fjár- veitingu frá Æskulýðsráði til starfseminnar. Eins fékk Haga- skóli nokkra fjárhæð til að auka félagsstarf í skólanum. Unglingar í vesturbæ vita að þetta tvennt, félagslífið í Hagaskóla og félags- miðstöð skátanna, var mjög vel heppnað. Nú i haust verður staðið að þessum málum með sama hætti frá hendi Æskulýðsráðs. Starfið hjá skátunum er að hefjast og Hagaskóli fær aftur styrk. Þér finnst eflaust leiðinlegt að þurfa að bíða eftir að nýja félagsmið- stöðin opni en hvað mega jafnaldr- ar þínir í Seljahverfi segja sem hafa enga félagsmiðstöð og búa við yfirfulla skóla. Þar kemur eflaust félagsmiðstöð og Æskulýðsráð hugsar, eins og þú bendir á, ákaf- lega mikið um unglingana i Breið- holtinu en það gleymir samt ekki að það eru unglingar í Vestur- bænum líka. Meö kveðju. Gísli Árni Eggertsson, Æskulýðs- og tómstundafulltrúi. Þorleifur Kr. Guðlaugsson Æskulýðsráð hefur ekki gleymt ungl- ingum í Vesturbænum Til sölu vinnuvélar Steypustöö Liber JCB. Beltagrafa tveggja axla. Vélaflutningavagn. Steinbock lyftari 2,5 tonn. Upplýsingar í síma 92-6007. Frá dagvist barna á einkaheimilum Nú í lok október veröur hætt leyfisveitingum fyrir dagmæöur á þessu ári. Viö brýnum fyrir konum sem hafa hugsað sér aö taka börn til dagvistar á heimili sínu aö sækja um leyfi fyrir næstu mánaðamót. Viö viljum einnig leggja áherslu á aö vöntun á dagvist fyrir börn innan 2ja ára er sérstaklega tilfinnanleg. Umsjónarfóstrur Njálsgötu 9. VBSUBHJR BGVHTMGM Vid höfum vistlega og þægilega veislusali Fyrir 10-120 manns. Salirnir henta vel fyrir rádstefnur og hvers konar samkvæmi, t.d. árshátidir, brúdkaupsveislur o.fl. Allar veitingar. VeMngohú/ió GAPt-mn V/REYKJANESBRAUT, HAFNARFIRÐI SIMAR 54477. 54424 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.