Morgunblaðið - 19.10.1985, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 19.10.1985, Qupperneq 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985 Norðurlandamótið í karate í Höllinni í dag: Þrír Evrópumeistarar meðal þátttakenda STÓRA stundin hjá íslenskum karatemönnum rennur upp í dag. Noröurlandamótið í karate hefst í Laugardalshöll klukkan 10 og áœtlaö er aö því Ijúki um klukkan 19. Það veröa 50 bestu karate- menn Norðurlanda sem reyna meö sór í Höllinni í dag og að sögn íslensku keppendanna œtti mótiö aö geta oröiö mjög skemmtilegt. Keppnin fer fram á tveimur völl- um samtímis og hefst klukkan 10 meö skylduæfingum á báöum svæöunum. Um klukkan 12 hefst síöan liöakeppnin og mæta islend- ingar fyrst Finnum og síöan Svíum. Stutt hlé veröur gert á keppninni um klukkan 13.35 og munu þá fé- lagar úr KR sýna islenskaglímu. Eftir hléiö hefjast skylduæfin- garnar aftur en um klukkan 16 hefst liöakeppnin aö nýju. Mótinu líkur síöan meö úrslitakeppninni í karla- og kvennaflokki. Þeir sem áhuga hafa á aö fylgjast með bestu karatemönnum Noröur- landa ættu aö leggja leið sína i Laugardalshöllina í dag. Fyrir þá sem ekki geta verið allan tímann er best aö koma um fjögurleytiö þvi þá eru Islendingar aö keppa viö Norömenn og sú viöureign veröur aö öllum líkindum jöfn og spenn- andi. Þetta er í fyrsta sinn sem Norður- landamót í karate fer fram hér á landi og hefur stjórn Karatesam- bandsins lagt mikiö erfiöi á sig til aö mótiö geti tekist sem best. Þess má að lokum geta aö Noröurlanda- þjóöirnar standa vel á alþjóðavett- vangi í karate og því tilvalið aö fylgj- ast meö bestu karatemönnum Evr- ópu í Laugardalshöllinni í dag. • Magnús Jónatantaon Magnús þjálfar Víkinga MAGNÚS Jónatansson hefur veriö ráöinn þjálfari annarar deildarliös Víkings f knatt- spyrnu ffyrír nœsta keppnis- tfmabil. Magnús mun taka strax viö liöinu og er œtlunin aö hefja afingar á miövikudaginn. Gunnar Örn Kristjánsson, stjórnarmaöur í knattspyrnudeild Víkings sagöi f samtali viö Morg- unblaöiö í gær aö samningurinn væri til eins árs. „Það eru ákvæöi í samningnum um framlengingu samningsins ef báöir aðilar eru ánægöir. Magnús er ráöinn hjá okkur út næsta keppnistímabil ef hann stendur sig.“ ITHURSDA ■■■ ' V.SEPTEMBER 19. 1985 ^^gim^HINA^MgRNINÍ^gS^ 1 It’s French on the rocks as cool Icelanders click _________________________________ m • Fyrirsögn kínverska blaösins South China Morning Post frá 19. september í haust. Sigur Valsmanna á franska liðinu Nantes í haust vakti athygli í Kína Róleg helgi FREKAR rólegt er á íþrótta- sviðinu hér heima um helgina. Annars staöar er greint frá Norðurlandamótinu f karate sem fram fer í Laugardalshöll í dag, enginn leikur verður í 1. deild handboltans, þar sem landsliöiö er úti, og aöeins einn leikur veröur í úrvals- deild körfuknattleiksins. í dag eru tveir leikir í 1. deild karla í körfubolta. Á Akureyri leika Þór og Breiöablik kl. 14, og á sama tima hefst viöureign Fram og ÍS í Hagaskóla. i 2. deild karla eigast viö Snæfell og Esja í Borgarnesi og KFÍ og UMFT í Bolungarvik. Báöir leik- ir hefjast kl. 14. Einn leikur er i 1. deild kvenna í dag — Njarövíkur- stúlkurnar fá ÍA i heimsókn og hefst viðureign þeirra kl. 15.30. Á morgun sunnudag er einn leikur í úrvalsdeildinni. Kl. 20 byrjar baráttan i Seljaskóla þar sem Valur og Haukar mætast. Einn leikur er á morgun í 1. deild kvenna: UMFN og Haukar leika í Njarövík kl. 14. I 1. deild karla eigast svo viö Reynir og UMFG kl. 14 í nýja íþróttahús- inu i Sandgerói eins og hér aó neðan kemur fram. Ókeypis aðgangur FYRSTI kappleikurinn f nýju íþróttahúsi í Grindavík fer fram á morgun, sunnudag. UMFG mætir þá Reyni úr Sandgerói í 1. deild karla í körfuknattleik. Leikurinn hefst kl. 14. Forráöamenn Grinda- víkurliösins vilja koma því sérstaklega á framfæri aó aö- gangur á leikinn sé ókeypis. Allir eru aö sjálfsögöu vel- komnir. ÞAD vakti víóa mikla athygli er Valsmenn lögöu franska liöið Nantes aö velli, 2:1, í UEFA- keppninni í knattspyrnu á Laug- ardalsvelli í haust. í blaöinu South China Morning Post, sem okkur hefur borist í hendur, hefst frásögn af Evrópuleikjum daginn áöur á leik Vals og Nantes — og fyrirsögnin tilheyrir einnig þeirri viðureign. Blaðið er gefiö út í Hong Kong. „Tvö fyllilega veröskulduö mörk íslenska landsliösmannsins Guö- mundar Þorbjörnssonar tryggöu Val óvæntan 2:1 sigur á franska liöinu Nantes...” Þannig hefst frásögn blaösins sem unnin er úr fréttaskeytum frá París. Blaóiö segir ennfremur: „Is- lenska liöiö lagði áherslu á sóknar- leikinn þegar frá upphafi leiksins og Guömundur Þorbjörnsson var tvívegis nálægt því aö skora í fyrri hálfleiknum áöur en hann uppskar laun erfiöisins í þeim síöari. Hann skallaói þá í netiö eftir hornspyrnu fjórum mínútum eftir leikhlé. Vinc- ent Bracigliano jafnaöi fyrir meist- ara Frakklands frá 1983 tveimur mínútum eftir mark Guömundar — en Þorbjörnsson skoraöi aftur þremur mín. fyrir leikslok og tryggöi liöi sínu þar meö sigur.“ Segir blaöið aö sigurinn ætti aö veita Valsmönnum mikiö sjálfs- traust fyrir síöari viöureignina í Frakklandi (en knattspyrnuáhuga- menn vita aö sá leikur tapaöist 0:3) Hróöur íslenskrar knattspyrnu berst þvi víöa. Þaö er ekki á hverj- um degi sem sagt er frá henni ás- íðum kínverskra blaöa, en sigur Vals aö þessu sinni vakti mikla at- hygli. Janus farinn til Sviss — leikur að öllum líkindum með 2. deildarliði þar í vetur Landsliösmaöurinn kunni í knattspyrnu, Janus Guðlaugsson fór til Sviss í gær ásamt fjölskyldu sinni og mun hann aó öllum lík- indum leika meö 2. deildarliöinu Lugano þar í landi í vetur. Liðið er nú efst í 2. deild — og bendir allt til þess að Janus skrifi undir samning við liöið um helgina, samning til vorsins. Síöan ræöst þaó af framhaldinu í vetur hvort hann veröur lengur hjá félaginu. Janus fór til Sviss eftir landsleik- inn viö Spánverja í Sevilla í haust og skoöaöi aöstæöur hjá félaginu. Leist vel á og ákvaó því aó fara utan á ný. Hann hefur veriö atvinnumaö- ur hjá vestur-þýska 2. deildarfélag- inu Fortuna Köln undanfarin ár. Hann hætti hjá Fortuna í vor og lók með FH hér heima síðari hluta sumars eins og mönnum er eflaust enníferskuminni. Janus hefur um árabil veriö einn albesti leikmaöur jslands — hann hefur aldrei brugóist í landsleikjum. Traustur leikmaöur sem liklega hefur veriö jafnbesti maöur lands- liðsins undanfariö. Hann er þrítugur aöaldri. Janus er þrióji Islendingurinn sem gengur til liös vió Sviss á stutt- um tíma. Fyrir eru þeir Siguröur Grétarsson hjá Luzern og Guö- mundur Þorbjörnsson hjá FC Bad- en. Þeir leika báðir í 1. deild. Körfuknatt- leikur 2. deild: Mjög jafnt (SLANDSMÓTIÐ í körfuknatt- leik karla í 2. deild hófst um síðustu helgi. Flestir leikjanna sem fram fóru voru jafnir og tvísýnir: f A-riðli sigraði Skallagrímur úr Borgarnesi lið USAH aö Húnavöllum, 73-62, og Tinda- stóll vann svo Skallagrím á sunnudeginum, 80-77 á Sauö- árkróki. j B-riöii voru þrír leikir, Snæ- fell vann ÚÍA naumlega, 71-70, HSK vann Árvak, 53-48 og Léttir vann Esju meö aóeins einu stigi, 57-56. Þorbergur með fimm Þorbergur Aðalsteinsson, landsliösmaöur í handknatt- leik, skoraöi fimm mörk fyrir Saab er liöiö mætti Policen í sænsku 1. deildinni í vikunni. Jafntefli varó í leiknum, 21:21.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.