Morgunblaðið - 19.10.1985, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985
47
• Valur Ingimundarson var stiga-
hæstur í liði UMFN í gær, skoraöi
24 stig, og lék nokkuð vel.
Bremner
til Leeds?
Fré Bob Hennessy fréttamanni
Morgunblaðsins i Englandi.
Billy Bremner, fyrrum fyrirliöi
Leeds United, ræddi við forráöa-
menn liðsins í gær — en hann
er sá sem þeir hafa mestan áhuga
á í starf framkvæmdastjóra, eftir
að Eddie Gray var rekinn.
Bremner hefur undanfariö verið
hjá Doncaster — og staöiö sig vel
sem stjóri. Hann hefur mikinn
áhuga á því aö taka viö liði Leeds.
Bremner lék á sínum tíma 54 lands-
leiki fyrir Skotland — og áriö 1970
var hann kjörinn knattspyrnumaðui
ársins í Englandi. Hann var fyrirliöi
Leeds er liðið varö enskur meistari
áriö 1974.
• Það vaeri sérgrsetilegt fyrir
Toria Ólafsson kraftlyftingamann
að fá ekki heimsmet sitt staðfest
vegna þess aö ÍSÍ skilar ekki
niðurstöðu úr lyfjaprófi því sem
hann fór í.
Njarðvíkingar fóru yfir 100
stigin þegar þeir sigruðu ÍR
NJARÐVÍKINGUM tókst aö rjúfa
100 stiga múrinn í gærkvöldi er
þeir léku gegn ÍR í úrvalsdeildinni
f körfuknattleik. UMFN sigraði
meö 102 stigum gegn 84 eftir aö
staðan í hélfleik hafði veriö
39—33 fyrir Njarðvík. Leikur lið-
anna var mjög slakur í fyrri hélf-
leiknum en heldur lífnaöi yfir
honum í síöari hálfleik.
Um miöjan fyrri hálfleikinn haföi
UMFN náö góöu forskoti 24—15
en ÍR-ingar misstu þá aldrei mjög
langt á undan sér. Á fimmtu mín-
útu leiksins fengu tveir af máttar-
stólpum ÍR, þeir Jón Örn og Jó-
1. deildin i körfu:
Þór skoraði 104
stig gegn UBK
ÞÓR vann Breiðablik 104—81 í 1.
deildinni í körfuknattleik í gær-
kvöldi á Akureyri. í hálfleik var
staöan 55—32.
Sigur Þórs var mjög öruggur. Um
miöjan fyrri hálfleik var staöan
20—18, en síöan juku Þórsarar
forskotiö jafnt og þétt. Breiöablik
náöi aö minnka muninn niöur í 13
stig í síðari hálfleik, 72—59, og var
þaö minnsti munur á liðunum.
Stigahæstu leikmenn í liöi Þórs
voru: Konráö Óskarsson 32, Eiríkur
Sigurösson 18, Jóhann Sigurösson
16, Ingvar Jónsson 10, HólmarÁst-
valdsson 9 og Björn Sveinsson 8.
Stig Breiðabliks: Kristján Rafns-
son 26, Kristinn Albertsson 15,
Kristján Oddsson 9, Alfreö Tulinius
og Matthías Jónsson 8 stig hvor.
Liðin leikaafturídag kl. 14.00.
UMFN — IR
102—84
hannes Sveinsson, sína þriöju villu
og þá varö Kristinn Jörundsson
þjálfari aö skipta þeim út af en þeir
komu aftur inná í síöari hálfleik. Á
þessum kafla komust Njarövík-
ingar í 21 — 11 og réöi það aö
sjálfsögöu miklu um gang leiksins.
Frá 15. til 18. mínútu í síöari hálf-
leik bar þaö til tíöinda aö hvorugu
liöinu tókst aó skora stig. Engin
karfa var skoruö í þrjár mínútur.
I síöari hálfleiknum tókst ÍR-
ingum aö jafna leikinn meö harð-
fylgi á 5. mínútu, 49—49. Jafnræöi
var meö liöunum næstu mínutur en
Njarðvík komst þá aftur yfir og á
10. min. síðari hálfleiksins var
staðan 65—56 fyrir UMFN. Njarö-
vík hélt síöan forystunni alveg til
leiksloka. Um tíma var staöan
90—73 og þá var sigurinn í höfn.
Bestu menn Njarövíkur voru ís-
ak Tómasson, Valur Ingimundar-
son og Árni Lárusson. Bestu menn
ÍR voru Ragnar Torfason og Hjört-
ur Oddsson.
Stig Njarövíkur: Valur Ingimundarson 24, ísak
Tómasson 23, Helgi Rafnsson 16, Árni Lárus-
son 16, Ellert Magnússon 10. Jóhannes Krist-
insson 7, Kristinn Einarsson 4.
Stifl ÍR: Ragnar Torfason 24, Hjörtur Oddsson
11. Björn Steffensen 11, Karl Gunnlaugsson
11, Bragi Reynisson 6, Jón Jörundsson 5, Jón
Örn Guömundsson 5. Jóhannes Sveinsson 5
og Hafþór Óskarsson 2, Benedikt Ingólfsson
4
Tíu marka sigur
gegn Lemgo í gær
ÍSLENSKA landsliöið í hand-
knattleik lék í gærkvöldi æfinga-
Fær Torfi ekki
helmsmetið staðfest?
— fær ekki niðurstöðu úr lyfjaprófi frá ÍSÍ
leik í V-Þýskalandi gegn Lemgo
og sigraöi með 26 mörkum gegn
16. í hélfleik var staöan 14—10.
islenska liöið náöi strax yfir-
höndinni og komst í 5—2, en í síö-
ari hálfleik 21 — 12. Leikur liöanna
var mjög hraöur allan tímann. Þeir
Brynjar Kvaran og Kristján Sig-
mundsson voru i marki og vöröu
báöir vel. Páll Ólafsson skoraói 11
mörk, þar af 6 úr vítaköstum og lék
vel. Júlíus Jónsson skoraöi fimm.
Þorgils var meö 3, Guömundur 2,
Geir 2, Valdimar, Jakob og Bjarni
1 mark hver.
í FEBRÚARMÁNUÐI sl. setti Torii
Ólafsson heimsmet unglinga í
réttstöðulyftu í þyngsta flokki í
kraftlyftingum. Nokkrum dögum
seínna gekkst hann fyrírvaralaust
undir lyfjapróf hjé íþróttasam-
bandi íslands, enda é þeím tíma
undir lögsögu þeirra.
Alþjóöakraftlyftingasambandiö
tók þetta lyfjapróf gott og gilt, þar
sem um unglingamet væri aö ræöa
og ætlaöi aö staöfesta heimsmetiö
aó fenginni neikvæöri nióurstöóu.
Þá niöurstööu hefur Torfi ekki
fengiö og þrátt fyrir málarekstur
formanns Lyftingasambands ís-
lands, hefur iþróttasamband fs-
lands ekki gefiö út staöfestingu á
neikvæðu lyfjaprófi. Er nú ekki
annaö sýnna en islandi og Torfa
Ólafssyni veröi neitaö um staöfest-
ingu á heimsmetinu.
HM í kraftlyftingum:
Kári og Víkingur
keppa í Finnlandi
Heimsmeistaramótið í kraftlyft-
ingum verður haldið í Espoo í
Finnlandi dagana 6.—10. nóv-
ember nk. Kraftlyftingasamband
íslands hefur valið tvo keppendur
é mótið, báða fré Akureyri. i 67,5
kg flokki keppír Kári Elísson og í
125 kg flokki Víkingur Trausta-
son.
Af þeim tveimur á Kári betri
möguleika. Á HM í Dallas í fyrra
varö hann í 4. sæti og í ár hefur
Kári unnið til silfurs á Evrópumóti
og gulls á Noröurlandamóti og er
til alls liklegur. Víkingur hlaut 5.
sæti á Evrópumótinu í ár og síöan
gullverölaun á Noröurlandamótinu
og á raunhæfan möguleika á
6.-7. sæti á HM.
Síöast var Heimsmeistaramót
haldiö í Finnlandi 1978, þá í Turku
og vann Skúli Óskarsson þar til
silfurverölauna, eftir haröa baráttu
um gulliö. Af flestum sem til þekkja
er mótiö i Turku taliö best skipu-
lagöa HM í kraftlyftingum.
Samhliöa HM veröur haldiö þing
Alþjóöa kraftlyftingasambandsins
og mun Ólafur Sigurgeirsson sitja
þaö af islands hálfu. Meöal verk-
efna hans er aö sækja um HM
unglinga 1987, ef núverandi móts-
haldari, kraftlyftingasambandiö í
Perú, missir af mótínu, sem gæti
gerst vegna skulda þess viö al-
þjóöasambandiö.
Innilega þakka ég öllum þeim, sem geröu mér-
afmælisdaginn minn, 19. septembersl., ánægju-
legan, með heimsóknum, gjöfum, skeytum,
símleiðis og með munnlegu viðtali.
Guð blessi ykkur.
Pétur Ólafsson,
Stóru-Tungu, Dalasýslu.
Þakleka - lekavandamál
Fíllkoat: Þéttiefni fyrir bárujárnsþök og þakpappa.
Kmeperol: Á svalir, slétt þök, stein, í kverkar o.fl.
Múrfill: Þéttiefni fyrir sprungna veggi og alkali.
Noxide: Gúmmíteygjanlegt akrýl fyrir bárujárn.
Fagmenn vinna verkin. Vestur-þýsk gæöaefni.
Þétting hf.
dagsími 651710 - kvöldsími 54410
FUSAR
LEIR — MARMARI — GRANÍT
Á GÓLF — VEGGI — ÚTI — INNI
H AGSTÆTT VERÐ OG GREIOSLUSKILMÁLAR
VERULEGUR MAGNAFSLÁTTUR
_________MIKIOÚRVALÁLAGER________
TEIKNUM og veitum FtÁÐLEGGINGAR
komiö og skoöiö úrvaliö
ViKURBRAUT SF.
KÁRSNESBRAUT 124, KÓP. S. 46044