Morgunblaðið - 27.10.1985, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985
SVIPMYND Á SUNNUDEGI / Sten Andersson
„Fæddur lýðskrumari“
— segir Dagens Nyheter
Sten Andersson ræðir við fyrirrennara sinn, Bodström.
FÁIR leiðtogar jafnaðarmanna í
Svíþjóð hafa reitt borgaraflokkana
eins oft til reiði og nýskipaður
utanríkisráðherra þeirra, Sten
Andersson, og ef trúa má blaðinu
Dagens Nyheter í Stokkhólmi er
hann „fæddur lýðskrumari".
Hins vegar sagði blaðið að póli-
tískir mótherjar Anderssons
fagni skipun hans og telji hana
bera vott um að ríkisstjórnin
vilji vekja aftur traust á sænskri
utanríkisstefnu og mótun henn-
ar.
Ummæli blaðsins voru dæmi-
gerð fyrir viðbrögð manna í Sví-
þjóð við þeirri ákvörðun Olofs
Palme forsætisráðherra að skipa
nýjan mann í embætti utanríkis-
ráðherra.
Lélegur fyrirrennari
Ástæðan fyrir því að nýr
maður var valinn var fyrst og
fremst vaxandi óánægja með
Lennart Bodström fráfarandi
utanríkisráðherra, sem hefur
ekki þótt starfi sínu vaxinn.
Andersson er miklu viljasterkari
maður og þótt hann hafi orð fyrir
að vera réttlínumaður og lýð-
skrumari dregur enginn í efa að
hann hafi til að bera hæfni og
getu til þess að fylgja fastmót-
aðri og heilsteyptri utanríkis-
stefnu.
Flokksritari
Andersson var ritari sænska
jafnaðarmannaflokksins um ára-
bil þar til hann var skipaður fé-
lagsmálaráðherra 1982. Tveir
aðrir ritarar flokksins hafa einn-
ig gegnt embætti utanríkisráð-
herra, þeir Torsten Nilsson og
Sven Andersson. Báðum þessum
mönnum tókst að ávinna sér
virðingu stjórnarandstöðunnar
og Sten Andersson mun vafa-
laust gera það líka að flestra
dómi.
Hinn nýi utanríkisráðherra
Svíþjóðar er 62 ára að aldri.
Hann er verkamannssonur frá
Södermalm í Stokkhólmi. Á unga
aldri var hann bréfberi og hann
tók stúdentspróf í bréfaskóla.
Andersson gekk ungur í æsku-
lýðshreyfingu sósíaldemókrata
og lét alþjóðamál til sín taka i
henni. Árið 1951 var hann kjör-
inn í borgarstjórnina í Stokk-
hólmi og árið 1962 varð hann
ritari sósíaldemókrataflokksins.
Hann er kvæntur og þriggja
barna faðir.
Trúr flokknum
Tryggð Stens Andersson við
flokkinn og sterk staða hans
innan hans virðist hafa átt
drjúgan þátt í þeirri ákvörðun
Palmes forsætisráðherra að
skipa hann eftirmann
Bodströms.
Þegar Palme tilkynnti skipun
hans og aðrar breytingar á stjórn
sinni á blaðamannafundi gaf
hann m.a. í skyn að það hefði
háð Bodström í ófriðlegu and-
rúmslofti, sem rfkt hefði í sænsk-
um utanríkismálum á undan-
förnum árum, að hann hefði ekki
haft að baki nauðsynlega flokks-
pólitíska reynslu.
Enginn efast um að Andersson
hafi nógu mikla reynslu og hörku
til að bera í nýja starfinu. Margir
virðast hallast að því, eða a.m.k.
vona, að sterk staða Anderssons
muni verða til þess að stefnan í
utanríkismálum verði traustari
og fastmótaðri en í utanríkisráð-
herratíð Bodströms og vekji ekki
eins harðar deilur.
Of linur
Bodström hefur verið talinn
alltof linur og eftirgefanlegur við
Rússa í fjölmörgun deilumálum,
sem upp hafa komið út af kaf-
bátum þeirra í sænskri lögsögu.
En ýmsir hægri menn telja að í
raun og veru hafi Bodström
aðeins endurspeglað afstöðu
Palmes sjálfs og að sjálfur hafi
hann ekki gegnt nokkru aðal-
hlutverki.
Sten Andersson utanríkisráðherra:
umdeildur, reyndur og duglegur
stjórnmálamaður.
í nokkrum helztu málunum,
sem vöktu deilur þegar Bodström
var utanríkisráðherra, kom hann
sjálfur lítið eða ekkert við sögu.
011 þessi mál snertu fyrst og
fremst Palme forsætisráðherra.
Þetta átti t.d. við um mál
Anders Ferm, sendiherra Sví-
þjóðar hjá Sameinuðu þjóðunum,
sem átti í leynilegum viðræðum
við Rússa skömmu eftir að nefnd,
sem Svíar skipuðu til að rann-
saka kafbátamálið, skilaði
skýrslu. Sænska utanríkisráðu-
neytið kom hvergi nærri því
máli, en Palme sætti harðri
gagnrýni fyrir hlut sinn í því.
Bodström fékk jafnvel ekki að
lesa umdeilt bréf, sem Ferm
skrifaði Palme. Bodström hafði
aðeins þetta að segja á blaða-
mannafundi: „Ég las ekki bréfið
í heild fyrr en það fannst aftur
í skjalasafni forsætisráðherra og
efni þess var almennt orðið
kunnara."
Stóryrði
í deilu Svía og Dana um Hess-
elö á Eyrarsundi var það aftur
forsætisráðherrann, sem tók
frumkvæðið af hálfu Svía. í því
máli Hkti Palme framkomu Dana
við yfirgang Galtieris hershöfð-
ingja fyrir innrás Argentínu-
manna á Falklandseyjar.
Bodström kom hér hvergi
nærri, þótt hann væri oft gagn-
rýndur fyrir vafasamar athuga-
semdir um utanríkismál. Palme
virðist jafnan hafa verið stórorð-
ari en Bodström og magnað deil-
ur í Svíþjóð um stefnuna í utan-
ríkis- og öryggismálum, þótt
Bodström hafi ekki farið var-
hluta af þeirri gagnrýni, sem
sænsk utanrikisstefna hefur
sætt á síðustu árum.
Sjálfstæðari?
Hægrimenn vona að Sten
Andersson muni fylgja sjálf-
stæðari stefnu í utanríkismálum
en Bodström hefur gert og telja
nokkrar líkur á því að honum
muni takast það, þar sem staða
hans í flokknum sé sterk og hann
verði því ekki í einu og öllu háður
duttlungum Palmes forsætisráð-
herra.
Svenska Dagbladet bendir á
að Anderson hafi um margra ára
skeið staðið í nánu sambandi við
þá menn í flokki sósíaldemó-
krata, sem taki raunsærri af-
stöðu í utanríkismálum en
Palme, og blaðinu þykir það góðs
viti.
Blaðið bendir á að rétt eftir
skipunina í utanríkisráðherra-
embættið hafi Andersson hrósað
Carl Bildt, þeim stjórnmála-
manni Svía, sem Palme sé hvað
mest í nöp við og tali helzt ekki
um öðru vísi en „hann Bildt
þarna“.
Blaðið segir að mikilvægasta
verkefni Anderssons verði að
vinna á móti óheppilegum áhuga
Palmes forsætisráðherra á utan-
ríkismálum og of miklum áhrif-
um hans á því sviði, en spyr hvort
það verði hægt. Um leið og Palme
fari að tala um „hann Andersson
þarna“ verði öllum Ijóst að
ágreiningur sé kominn upp.
Sjálfur sagði Sten Andersson
þegar hann tók við nýja starfinu:
„Metnaður minn í starfi utan-
ríkisráðherra er í því fólginn að
varðveita eininguna um sænska
utanríkisstefnu."
(Aftenposten, Svenska
Dagbladet.)
Tilboð óskast
Tilboö óskast í AMC-JeepCJ-7 árgerö 1983,6cyl. 5gíra, m/6000
Ibs. rafspili, sem veröur á útboöi þriöjudaginn 29. október kl.
12—15 aö Grensásvegi 9, ásamt öörum bifreiöum.
Sala Varnarliðseigna
Bladburóarfólk
óskast!
plnrj0iuiiWaliíl»
Ingólfsstræti
Leifsgata
Hverfisgata
65—115
Barónstígur
4—33
Laugavegur
34—80