Morgunblaðið - 27.10.1985, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985
B 5
Hrefna Hjaltadóttir heitir víóluleikari sem kennir átta
nemendum á fíðlu í Tónskóla Sigursveins D. Kristins-
sonar eftir Suzuki-aðferðinni. Hún segist hafa lært að
kenna eftir þessari aðferð hjá vinkonu sinni, Lilju
Hjaltadóttur,
sem er fiðluleik-
ari og kennir í
Tónlistarskólan-
um á Akureyri.
Lilja er útskrifað-
ur Suzuki-kenn-
ari og lærði í
Bandaríkjunum.
„Ég er mjög
hrifin af þessu
kerfi Suzukis.
Það er eitthvað
svo mannlegt og
jákvætt við það.
Hvatningin er
geysistór þáttur
í kennslunni og
það er auðfund-
ið hvað hún hef-
ur góð áhrif á
nemendurna.
Enda segist Suz-
uki vera þess
fullviss að heim-
urinn yrði betri
ef fleiri næðu að
þroskast eftir
kerfi hans,“ seg-
ir Hrefna.
Hún hefur
einnig kynnst
þessu á sinu
heimili þar sem
Hjalti Jóna-
thansson, sem
er fjögurra ára
gamall nemandi
Hauks F. Hann-
essonar i sellóleik og fjallað er um annars staðar í
greininni, er sonur hennar. „Varðandi Hjalta og
hans sellónám er okkar heimili kannski dálítið sér-
stakt þar sem við foreldrar hans erum bæði hljóð-
Aldís Páisdóttir, fímm ára gömul, horfði einbeitt á kennara sinn, Hrefnu
lljaltadóttur. Hún byrjaði að sækja tíma síðastliðinn vetur, kom fyrst í
hóptíma og hlustaði á hina krakkana en byrjaði svo í einkatímum í haust
hjá Hrefnu í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Foreldrar hennar eru
Signý Kjartansdóttir og Páll Eyjólfsson.
færaleikarar. Hann gengur meira að þessu eins og
sjálfsögðum hlut og er ánægður með að hafa sellóið.
Við höfum okkar hljóðfæri og hann sitt. Honum
þykir þetta ekki vera neitt tiltökumál. Árangurinn
fer svo algjör-
lega eftir því
hvað við erum
dugleg við að fá
hann til að æfa
sig“, segir
Hrefna.
„Hlustunin
skiptir líka
miklu máli í
þessu sambandi,
smám saman
þjálfast eyrað.
011 lögin sem
Suzuki notar í
kennslubókum
sínum hafa ver-
ið gefin út á
hljómplötu og á
snældu og það
er gert ráð fyrir
því að börnin
hlusti á þau
helst einu sinni
á dag. Smátt og
smátt læra þau
svo lögin og
taktana og ég er
sannfærð um að
þau börn sem
fylgja þessu
kerfi spila erfið-
ari hluti miklu
fyrr en ef þau
hefðu verið í
hefðbundnu tón-
listarnámi.
Varðandi hlust-
unina þá tek ég
eftir því að tveggja ára gömul dóttir okkar, sem
varla er farin að tala, er farin að syngja mikið af
lögunum sem hún heyrir hér á daginn. Börn á þessum
aldri eru svo fljót að læra,“ segir Hrefna.
Morgunbladid/Bjarni
Hóptími hjá Hrefnu í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. í fremri röð standa Brynja Andrésdóttir og Lilja
M. Siguröardóttir, en í aftari röð eru Auður Rögnvaldsdóttir og Kristín Björg Ragnarsdóttir. Suzuki leggur mikið
upp úr svona hóptímum í kennsluaðferð sinni.
„Þau spila erfiðari
Wuti fyrr en ella“
segir Hrefna Hjaltadóttir í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar