Morgunblaðið - 27.10.1985, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 27.10.1985, Qupperneq 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. OKTÓBER1985 BULGARSKA AÐFERÐINI LÍKA BÖRNIN: tólf stunda vinnu- dagur og fa-dið að heita ó«tt. ÁÞJÁN— Þrælarnir eru geymdir í búrum Að sögn indverska blaðsins Indian Express hefur dóm-- ari, sem fenginn var til að rann- saka vinnuaðstæður hjá verka- fólki, komizt að raun um að börn eru stundum neydd til þess að vinna stanzlaust í 12 klukkustund- ir og nærast á mat sem er ekki boðlegur skepnum. Blaðið skýrði nýlega frá því í forsíðufrétt að héraðsdómari í ríkinu Uttar Pradesh, sem er í norðanverðu landinu, hafi komizt að raun um að mörg fyrirtæki og þar á meðal ríkisfyrirtæki, hafi gert sig sek um brot á vinnulög- gjöfinni. Dómari þessi sem heitir R.C. Aggarwal, kom meðal annars í búr, sem var einungis 5x15 metrar að stærð og þar sem 100 manns hírð- ust. Sumir þeirra höfðu aðeins um 20 krónur i tekjur á dag. Dómarinn segir að þarna hafi mátt sjá börn undir 14 ára aldri sem ynnu 12 tíma í senn og fengju greitt undir lögskipuðum lágmarkstaxta. Dóm- arinn gaf hæstarétti skýrslu um ástandið og sagði þar m.a. að vatn- ið, sem verkafólkið þyrfti að svala þorsta sínum á, væri mengað og hvorki það né maturinn væri boð- legt skepnum. I fyrrnefndri blaðagrein um aðkomuna í búrinu sagði m.a.: „Sumt verkafólkið lá veikt á gólf- inu og fékk enga læknishjálp." Aggarwal dómari var að kanna kærur um einskonar nauðungar- vinnu, sem er bönnuð með lögum í Indlandi. Verkamenn sem ráða sig á þennan hátt eru neyddir til þess að nota bróðurpart launa sinna til þess að greiða af lánum til vinnuveitanda sinna, sem þeir fá við undirritun ráðningarsamn- ings. Þessi tilhögun tiðkast helst í landbúnaði og byggingariðnaði. Brezk samtök, sem berjast gegn þrælahaldi, fullyrtu á síðastliðnu ári að á Indlandi væru um 100 milljónir í nauðungarvinnu, þar á meðal mörg börn. Margir þeirra, sem vinna við þessar slæmu aðstæður í Uttar Pradesh, eru þangað komnir frá ríkinu Orissa í landinu austan- verðu. Til að fá vinnu verða þeir að leggja fram rúmlega tvö þúsund króna tryggingu sem fæstir eru borgunarmenn fyrir. Þar af leiðir að drjúgur tími fer í að vinna fyrir tryggingarupphæðinni en dag- launin eru aðeins um sextíu krón- ur. Að sögn indverska blaðsins brugðu dómarar við skjótt, þegar skýrsla Aggarwals var lögð fyrir hæstarétt. Voru þegar í stað gerð- ar viöeigandi ráðstafanir til þess að sækja viðkomandi fyrirtæki til saka. „Slæpingjarnira eiga að hypja sig út að moka Ekki er óalgengt að sjá hópa ungmenna á kaffistofum og veitingastöðum í miðborg Sofíu, höfuðborg Búlgaríu. Þar lætur unga fólkið fara vel um sig í hlý- legu umhverfi og virðist hafa nægan tíma fyrir sér. En nú er svo að sjá sem þessir sæludagar verði brátt á enda, því að búlgörsk yfirvöld hafa sam- þykkt löggjöf sem kveður svo á, að fólk á aldrinum 15—30 ára, sem hvorki er við nám eða í fastri vinnu, verði nú skuldbundið til að „vinna nytsamleg störf í þágu þjóðfélagsins”, og kvað ástæðan vera skortur á fólki til margvís- legra starfa. Fjölmiðlar upplýsa að vöntun sé á fólki til að annast viðhald á vegum og aðra verka- mannavinnu. Þá vanti fólk til starfa við skóla landsins og sjúkra- hús. Af þessu má ljóst vera að unga fólkið verður fengið til að sinna slíkum verkefnum, en lög- gjöfin miðast þó ekki eingöngu við það að draga úr skorti á vinnuafli. Tilgangurinn með henni mun einn- ig vera sá að vinna gegn „glæpa- starfsemi" ýmiskonar. Sofia er tíður viðkomustaður fólks á ferð milli Evrópuríkja og Mið-Austur- landa, og þar þrífst svartur mark- aður, gjaldeyrisbrask og smygl. Ráð og nefndir kommúnista- flokksins munu annast fram- kvæmd þessarar löggjafar, en hið raunverulega vald verður í hönd- um húsvarða og samtaka leigj- enda, sem eiga að hafa vakandi auga með því fólki sem býr í fjöl- býlishúsum. Á þriggja mánaða fresti munu þessir aðilar athuga hagi þeirra sem í húsunum búa. Komi í ljós að einhver þeirra sé hvorki við nám eða í fastri vinnu er skylt að tilkynna það yfirvöld- um. Fólkið verður síðan kallað til viðtals og því boðin atvinna. Ef ekki reynist unnt að finna vinnu við hafi viðkomandi verður hann sendur í þjálfun eða endurhæfingu og eftir það fær hann tilboð um fasta vinnu. En ef einhver hafnar atvinnutilboði verður hann sendur í nauðungarvinnu um nokkurra mánaða skeið samkvæmt ákvæð- um löggjafarinnar. Þeir sem líka tregðast við verða á hinn bóginn að greiða sektir sem jafngilda þriggja mánaða launum. En trúlega býr fleira að baki þessari löggjöf en vinnuaflsskort- ur og vilji til að draga úr „glæpa- starfsemi". Leiðtogi Sovétríkj- anna, Mikhail Gorbaschov, hefur ítrekað haldið því fram að nauðsyn sé á auknum aga, skilvirkni og meiri afköstum og að fólk verji allt of miklum tíma í óreglu og biðraðahangs sem nú sé óhjá- kvæmilegt vegna skorts á matvæl- um og öðrum neyzluvörum. Ekki er ólíklegt að búlgörsk stjórnvöld hafi haft þessar brýningar Sovét- leiðtogans í huga þegar löggjöfin var smíðuð og ætli sér að sýna að þau hafi ráð undir rifi hverji í baráttunni gegn leti, agaleysi og „glæpastarfsemi". Afleiðingarnar af þessu gætu orðið þær að búlgörsk æska fengi öðrum hnöppum að hneppa en að láta fara vel um sig á kaffihúsum og veitingastöðum. En þeir sem þekkja Búlgara þykjast samt vita að æskufólkið verði fljótt að finna smugurnar sem forði því frá af- leiðingum nýju laganna. — JUDY DEMPSEY ALLSNÆGTAVANDAMAL Sorpið er að sökkva V estur-Þjóðverjum Vestur-Þjóðverjar eru að kafna í rusli að því er sér- fræðingarnir segja og þótt stjórn- völd vilji að sjálfsögðu gera eitt- hvað í málinu þá fellur það ekki í kramið hjá forsvarsmönnum iðn- aðarins í landinu. Með breytingartillögu við sorp- eyðingarlögin, sem nú liggur fyrir vestur-þýska sambandsþinginu, er stefnt að því að minnka sorp- framleiðsluna ef svo má segja, sem nú er 240 milljón tonn árlega, og neyða menn til endurvinnsíu ýmissa efna, sem nú er hent. Að því er talsmenn innanríkisráðu- neytisins í Bonn segja, er mesta vandamálið sú gifurlega aukning, sem orðið hefur í framleiðslu alls kyns pappaaskja, dósa og flaskna, ORYGGISVARSLA Þrír hafa þegar gengið í gildruna Keisaralega safnið í Peking, þar sem geymdir eru um 200.000 dýrgripir 24 keisara af Ming- og Manchu-ættinni, hefur lengi verið innbrotsþjófum í borg- inni mikil freisting. Nú hafa þeir hins vegar verið sérstaklega varað- ir við að stunda þar sína óheiðar- legu íþrótt. Embættismaður við safnið sagði nýlega fá því, að komið hefði verið upp mjög fullkomnu þjófavarna- kerfi auk þess sem varðmennirnir væru svo færir í sinni grein, að tilraunir til að stela væru „fyrir- fram dauðadæmdar". Sagði hann einnig frá því, að þrír þjófar hefðu fyrir skömmu verið gripnir gloð- volgir við iðju sína, þar á meðal „kung-fu-meistari“ að nafni Song Guofang. Guofang, sem hafði það að sér- grein að „stökkva upp á húsaþök og velta sér yfir veggi", braust inn í safnið, tróð á sig níu gullmunum og var að „velta sér yfir veggin“ þegar varðmennirnir höfðu hendur í hári honum. Guofang mátti gjalda fyrir með lífi sínu. Öðrum þjófnum tókst þó betur en Guofang því að hann komst með þýfið alla leið til Vestur-Kína en þar náðist hann og var dæmdur í lífstíðarfangelsi. Þriðji maður- inn, tugthúslimur, sem hafði flúið úr fangelsi, var á leiðinni inn þegar hann var tekinn. Ætlast er til að þessar sögur skjóti fingralöngum Pekingbúum skelk í bringu og mun ekki af veita. Þótt hár veggur og virkis- gröf umlyki keisarahöllina er það ekkert áhlaupsverk fyrir lögregl- una að passa upp á öll 9000 her- bergin, sem þar er að finna. — HUGH DAVIES sem drykkjarvöruiðnaðurinn vill ekki taka við aftur. Á ári hverju eykst sorpið í Vest- ur-Þýskalandi um 20 milljónir tonna og kostnaðurinn við að eyða því um rúma 40 milljarða ísl. kr. Helmingurinn er umbúðir alls konar en drykkjarvöruílát, sem ekki er hægt að skila, eru 10%. Kostnaðurinn við að eyða þeim einum vex árlega um rúma fjóra milljarðaísl. kr. Friedrich Zimmermann, innan- ríkisráðherra, finnst nú sem nóg sé komið en frá því að hann tók við embætti fyrir þremur árum hefur hann haft umhverfisvernd- armál í fyrirrúmi, til mikillar furðu þeim, sem héldu, að ríkis- stjórn kristilegra demókrata og frjálsra demókrata yrði sérstak- iega höll undir iðnjöfrana. Frammámenn í samtökum iðn- aðarins hafa miklar áhyggjur af breytingartillögurini við sorpeyð- ingarlögin og hafa þau orð um, að hún sé tilraun til „efnahagslegrar ofstjórnunar“. Auk þess, segja þeir, passar hún ekki við þá stefnu stjórnarinnar að minnka reglu- gerðafarganið og opinbert eftirlit. Samkvæmt breytingartillögunni má aðeins fjórðungur drykkjar- vöruíláta vera einnota og verslun- um verður gert að skyldu að taka við hinum ílátunum og borga fyrir. Framleiðendur segja hins vegar, að ef lögin verði samþykkt, muni einkafyrirtækin hrökklast út af markaðnum, ekki aðeins þau, sem framleiða úr gleri og málmi, held- ur líka þau, sem framleiða umbúð- ir úr pappír. Þeir halda því líka fram, að í raun hafi sorpið minnk- að um 16% frá árinu 1980. Tals- menn innanríkisráðuneytisins segjast hins vegar „enga hug- mynd“ hafa um hvaðan iðnrekend- ur hafi þessa tölu og segja sem fyrr, að árlega aukning sé 20 millj- ón tonn. Þess vegna verði ríkið að grípa inn í með lagasetningu. Breytingartillagan er enn í höndum þingnefnda og iðnrekend- ur gera hvað þeir geta til að koma henni fyrir kattarnef eða þynna hana út. Ráðuneytið er jafn ákveð- ið að koma tillögunni i gegn í janúar næstkomandi. — TONY CATTERALL

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.