Morgunblaðið - 19.11.1985, Síða 4

Morgunblaðið - 19.11.1985, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985 Grandi hf. hóf starf- semi á sunnudag Vinna hjá fyrirtækinu fyrst í stað með svipuðu sniði og var hjá BÚR og ísbirninum HIÐ nýstofnaða sjávarútvegsfyrirtæki, Grandi hf, hóf starfsemi sína í gær. Fyrirtækið er samansett úr Bæjarútgerð Reykjavíkur og ísbirninum og tekur yfir rekstur og skuldbindingar þeirra fyrirtækja. Fyrst í stað verður vinna hjá Granda með svipuðu sniði og verið hefur hjá áðurnefndum fyrirtækjum. Togarinn Ásgeir landaði afla þar til uppgjöri á gömlu fyrirtækj- sínum í gær og Jón Baldvinsson landar í dag, báðir hjá fyrirtækinu Granda, þrátt fyrir að það hafi ekki formlega verið stofnað fyrr en á sunnudag. Grandi greiðir kostnað, laun og fleira, en sá afli skipanna, sem veiddur var fyrir stofnun kemur inn í fyrirtækið sem framlag fyrri eigenda skip- anna. Afla verður síðan skipt milli húsa fyrirtækisins eftir þörfum fyrst um sinn, það er til að halda uppi samfelldri vinnu á báðum stöðum. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda hf., sagði í samtali við Morgunblaðið, að stjórnendur fyr- irtækisins litu á sem svo að sam- einingin ætti sér stað í þremur stigum. Fyrst, að fyrirtækið yrði gert rekstrarhæft við yfirtökuna og undirbúningurinn hefði meðal annars falizt í því að fara yfir verkefnaskrá og búa þannig um hnútana að rekstur gæti gengið eðlilega fyrir sig. í öðru lagi væri sú vinna, sem fælist í uppgjöri á gömlu fyrirtækjunum og rekstri hins nýja. Þá tæki við athugun á mannaflaþörf og vinna við að koma á sérhæfingu og sjálfvirkni. Ekki væri á þessu stigi hægt að segja til um það, hvenær sérhæfð vinnsla færi að skiptast á milli húsa á Norðurgarði og Granda- garði. Yfirstjórn og skrifstofufólki gömlu fyrirtækjanna hefur verið sagt upp með þriggja mánaða fyrirvara frá og með 1. desember næstkomandi, en fyrst um sinn verða skrifstofur á báðum stöðum, unum hefur verið lokið. Síðan verða skrifstofur á Norðurgarði og skrifstofuhald endurskipulagt. Öðru starfsfólki hefur verið boðin áframhaldandi vinna við hið nýja fyrirtæki, en það verður að gera upp hug sinn til þess innan einnar viku. Brynjólfur sagði ennfremur, að afstaðin helgi hefði verið mjög annasöm, enda í ótrúlega mörgu að snúast við sameiningu tveggja stórra fyrirtækja. Áherzla hefði verið lögð á það, að fólk mætti í vinnu hjá nýju fyrirtæki á mánu- dag og því meðal annars þurft að prenta mikið af alls konar eyðu- blöðum og skýrslum, skipta um skilti og merkja bíla upp á nýtt. Auk þess hefðu birgðir verið taldar hjá báðum fyrirtækjunum um helgina. Hann vildi gjarnan koma á framfæri þakklæti til starfsfólks fyrir góða vinnu og hve vel þetta hefði gengið allt saman. Eignir hins nýja fyrirtækis eru 7 togarar, tvö frystihús og fisk- verkunarhús, frystigeymslur og fleira. Hlutafé er 200 milljónir króna og eignir að verðmæti rúm- lega 1,3 milljarðar. Stjórn fyrir- tækisins skipa Ragnar Júlíusson, formaður, Jón Ingvarsson, vara- formaður, Þröstur Ólafsson, Þór- arinn Þórarinsson og Vilhjálmur Ingvarsson. Forstjóri er Brynjólf- ur Bjarnason, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Jón Rúnar Krist- jánsson, framkvæmdastjóri út- gerðarsviðs Bjarni Thors, fram- kvæmdastjóri fiskvinnslusviðs Svavar Svavarsson og fram- kvæmdastjóri tæknisviðs Gunnar Sæmundsson. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda ins í frystihúsinu á Norðurgarði. Morgunblaðið/Árni Sæberg hf., heilsar upp á starfsfólk fyrirtækis- Jóhannes Nordal á aðalfundi Sambands almennra lífeyrissjóða: Hugmyndir um mis- munandi vexti lífeyris- sjóða varhugaverðar JÓHANNES Nordal, Seðlabankastjóri, telur þær hugmyndir varhugaverðar, að félagar í lífeyrissjóðum greiði lægri vexti af lánum, en aðrir lánþegar sjóðanna. Hann telur, að slíkt skipulag myndi leiða til þess að erfitt yrði að halda til streitu samræmdri stefnu um ávöxtun lífeyrissjóða. Þetta kom fram í svari Jóhann- esar við fyrirspurn frá Ásmundi Stefánssyni, forseta Alþýðusam- bandsins, á aðalfundi Sambands almennra lífeyrissjóða í gær. Til- efni fyrirspurnarinnar var sam- þykkt, sem gerð var á þingi Lands- sambands islenskra verslunar- manna um helgina. Þar segir, að þingið telji eðlilegt að vextir af lifeyrissjóðslánum til sjóðsfélaga vegna eigin ibúða verði lækkaðir um leið og vextir af lánum sjóð- anna til annarra lántakenda verði hækkaðir. Jóhannes Nordal kvað megintil- gang lánveitinga lífeyrissjóða að ávaxta fjármuni þeirra svo unnt væri að standa við skuldbindingar gagnvart sjóðsfélögum um greiðslu lífeyris. Það væri hins vegar ekki fyrst og fremst hlutverk þeirra að veita lán. Seðlabanka- stjóri sagði það skoðun sína, að setja bæri reglur til að tryggja að vaxtakjör þau sem lífeyrissjóðir bjóða væru ekki óhagstæðari en þau kjör sem þeir geta fengið annars staðar. „Eg tel að allir sjóð- imir eigi að lána með sömu vaxta- kjörum, en greiðslukjör geta hins vegar auðvitað verið breytileg," sagði hann. Jóhannes Nordal flutti á fundin- um erindi um framtíðarstefnu líf- eyrismála. Hann kvað brýnt að flýta sem mest setningu löggjafar um lífeyrissjóði, þar sem kveðið yrði á um réttindi þeirra og skyld- ur, skipulag á starfseminni, fjár- hagslega uppbyggingu og eftirlit með rekstri. Jóhannes varpaði fram þeirri spurningu, hvort æskilegt væri að breyta I framtíðinni verkaskipt- ingunni, sem nú er á milli al- mannatrygginganna annars vegar og lífeyrissjóðanna hins vegar. „Þróunin hefur hin síðari ár orðið með þeim hætti, að vaxandi hluti af lífeyrisgreiðslum almanna- trygginga er fólginn í greiðslu tekjutryggingar og annarra sér- stakra uppbóta til lífeyrisþega,“ sagði hann. „Sú spurning hlýtur því að vakna, hvort æskilegt sé, að almannatryggingar haldi i framtíðinni áfram að greiða öllum lífeyrisþegum grunnlífeyri, án til- lits til tekna, eða hvort æskilegra sé, að hlutverk þeirra í framtíðinni felist eingöngu í því að tryggja afkomu þeirra, sem lakast eru settir og stuðla með öðrum hætti að tekjujöfnun milli lífeyrisþega almennt. Mér virðist ýmislegt mæla með síðari leiðinni, eftir að öllum þorra manna hefur verið tryggður hjá lífeyrissjóðakerfinu viðunandi lífeyrir, sem bæði er verðtryggður og tengdur heildar- launum." Jóhannes Nordal sagði, að það lægi fyrir að núverandi iðgjöld lífeyrissjóða þyrfti að hækka veru- lega ef sjóðirnir eiga að geta staðið við skuldbindingar sínar. Mikil breyting væri að verða á aldurs- samsetningu þjóðarinnar og nú væri þvi t.d. spáð, að þeim sem eru yfir 65 ára aldri muni fjölga hlut- fallslega um nálægt 75% fram til ársins 2020, en gæti fjölgað enn meir, ef frjósemi lækkar hér á landi eins mikið og hún hefur gert í öðrum Evrópulöndum. „Hér er vissulega við mjög erfitt viðfangs- efni að glíma, þar sem byggja verður spá um greiðslugetu kerfis- ins á mörgum óvissum forsendum um mannfjöldaþróun," sagði hann. „Það væri hins vegar ábyrgðar- leysi að draga ekki þegar í stað þær ályktanir af þessum útreikn- ingum, að tekjur sjóðanna þurfi að auka að óbreyttum réttindum. Því fyrr sem leiðrétting er gerð í þessu efni, þeim mun minni þarf hún að vera.“ 25 ira gamalt tré rifnafti upp meö rótum f húsagarði á gatnamótum Freyjugötu og Bragagötu í óveórinu um helgina. Höfuðborgarsvæðið: Minni háttar tjón af völdum óveðursins ÓVEÐURSLÆGÐIN sem lá yfir landinu aðfaranótt sunnudagsins og sunnudaginn gerði töluverðan usla á höfuðborgarsvæðinu, og var í nógu að snúast hjá lögreglu og björgunarsveitum. Rúður brotnuðu í húsum, járnplötur fuku af húsum, tré rifnuðu upp frá rótum og í Hafnarfirði slitnaði trilla frá bryggju og brotnaði. 1 Hraunbæ fauk rúða úr eldhús- glugga í mannlausu húsi. Járn- plötur fuku af skúr við Þjóðleik- húsið. Ljósastaur losnaði og féll til jarðar í Vesturbergi. í Skafta- hlíð losnaði vinnupallur frá húsi og fauk á og skemmdi nærstadda bifreið. Vinnupallur losnaði einn- ig frá við Bústaðakirkju. Við Tækniskólann á Höfðabakka fauk gámur á bíl og skemmdi hann mikið. Grindverk losnuðu og fuku langar vegalengdir við Suðurgötu og Álagranda. í Kötlufelli gliðn- aði sundur mænir á húsi. Gljávíð- istré losnaði í moldinni í gamla kirkjugaðinum við Kirkjustræti, en það tókst að bjarga því áður en það fór alveg. Á mótum Freyjugötu og Bragagötu tók hins vegar 25 ára gamalt tré upp með rótum og féll út á götuna. Svipað var upp á teningnum í Kópavogi og Hafnarfirði, þak- plötur, tunnur og lausadót kiufu loftið og ollu minni háttar skemmdum. Mesta tjónið varð aðfaranótt sunnudagsins þegar tveggja tonna trilla, Kristín HF 11, slitnaði frá óseyrarbryggju í Hafnarfirði og rak yfir fjórðinn vestur á Malir, þar sem hún brotnaði í spón í fjörunni. Þak á turni þin eyrarkirkju fau Hlonduósi, 18. nóvember. MIKIÐ óveður gekk yfir A-Húna- vatnssýslu síðastliðinn föstudag og aftur aðfaranótt sunnudagsins. Töluvert eignatjón varð í þessu veðri, þó aðallega á föstudag inn. Mest varð tjónið í framanverðum Vatnsdal og Þingi. Þakið á turni Þingeyrarkirkju fauk af í heilu lagi og 70 þakplötur fuku af húsum f Forsæludal. Ennfremur slitnaði gamalt tré í Forsæludal upp með rótum. Eins og áður var greint frá var tjón af völdum óveðursins mest í Vatnsdal og Þingi, en á Blönduósi fauk grindverk í kringum vél- Þrennt slasað- ist er jeppi fauk af vegi Mióhúsum, 18. nóvember. í FYRRA óveðrinu sem gekk hér yfír síðastliðinn laugardag fauk Land Rover-bifreið út af veginum rétt fyrir vestan Króksfjarðarnes. Bíllinn mun hafa farið hálfa aðra veltu. í honum voru hjón með sex ára dóttur sína og voru þau fíutt í sjúkrahúsið á Akranesi. Maðurinn skarst nokkuð í andliti og litla stúlk- an rifbeinsbrotnaði. Konan mun hafa sloppið einna best, að því er virðist. Jeppinn er mikið skemmdur. 1 sama veðri fauk brúin við Geiradalsá. Misvindasamt var og fauk brúin í átt til sjávar og eru undirstöðurnar einar eftir. I seinna veðrinu er ekki vitað um tjón. Sveinn smiðju Húnvetninga og þakplötur fuku af iðnaðarhúsnæðinu Vot- múla. Víða í héraðinu fuku hey og þakplötur, sem of langt mæli væri upp að telja. Að sögn smiða, sem unnu að lagfæringu á turnin- um á Þingeyrarkirkju, fór þakið af í heilu lagi og sveif eina 30 metra án þess að koma neins staðar við á- leiðinni. Engin skemmd varð á steinhleðslu turnsins eftir þessar hremmingar og virðist sem þakið hafi þrýstst upp eftir að rúða í kirkjuturnin- um brotnaði. Þak turnsins er eirklætt og að minnsta kosti V4 tonn að þyngd. Bráðabirgðavið- gerð á þaki turnsins er lokið. Sem dæmi um veðurofsann sem var hér á föstudaginn, þá tókst á loft heybindivél sem er á þriðja tonn að þyngd á bænum Sunnu- hlíð í Vatnsdal. Engin slys urðu á fólki í þessu veðri svo vitað sé. , r T JónSig. Mývatnssveit: Járnplötur fuku af Sniðli Mýyatnssreit, 18. nóvember. MIKIÐ hvassviðri af suð-austri gekk hér yfir Mývatnssveit í gær. Hvassast var fyrir hádegi, en síðdegis fór verulega að draga úr veðrinu. Járnplötur fuku af tré- smíðaverkstæði Sniðils hf. Hér er sjálfsagt um mikið tjón að ræða. Ekki er mér þó kunnugt um aðrar skemmdir hér í veðurofsan- um. Kristján Mikið gekk á í óveðrinu MIKIÐ gekk á f óveðrinu sem gekk yfír Borgarnes fyrir helgina. Um helgina var unnið að lagfæringum þess sem skemmdist og sýnir myndin menn við viðgerðir á þaki húss við Egilsgötu, en þakplötur fuku af hús- inu f óveðrinu. Ekki var þó öllu bjargað. Hesthúsi tókst t.d. á loft í gamla hesthúsahverfínu í „Votadal", fauk um 300 metra, yfír Borgar brautina og „brotlenti“ skammt frá leikskólanum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.