Morgunblaðið - 19.11.1985, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR19. NÓVEMBER1985
Líf og fjör
á elliheimili
Leiklist
Jóhann Hjálmarsson
Leikfélag Siglufjarðar:
SÓLSETUR
eftir Sólveigu Traustadóttur.
Leikstjóm og leikmynd:
Sólveig Traustadóttir.
Aðstoðarleikstjóri: Þórólfur Tóm-
asson.
Ljósameistari: Magnús Magnús-
son.
Búningar: Ingunn Jónsdóttir.
Tónlist og útsetning: Elías Þor-
valdsson.
Lífið þarf ekki að vera dauflegt
á elliheimili er boðskapur Sólset-
urs, leikrits Sólveigar Trausta-
dóttur. Og það kemur á daginn
að mikið fjör er á elliheimilinu
Sólsetri, allt frá opnunardegi
þess í fyrsta og öðrum þætti til
þriðja og síðasta þáttar sem
gerist sex til átta mánuðum
seinna.
Efni leikritsins er kátleg uppá-
koma á Sólsetri, samdráttur
tveggja vistmanna sem leiðir til
giftingar og ekki síst er leitast
við að draga upp mynd kvensams
sýslumanns sem á drykkfellda
frú og er vitlaus í einni starfs-
stúlkunni. Á elliheimilinu er
einnig smalinn Jón, löngum með
hugann við smalamennskuna.
Pipruð forstöðukona fær við lítt
ráðið.
En í leikritinu eru ekki tóm
ærsl. Hildur er fulltrúi dapur-
leikans. Hún er að bíða eftir að
hitta látna dóttur sína sem
drukknaði i bæjarlæknum, hefur
tapað vitinu og eigrar sífellt um
sviðið.
Sólveigu Traustadóttur tekst
best við hið spaugilega og er
laginn við að búa til skemmtilega
fléttu. Tilsvör eru mörg hnyttin.
Aftur á móti má segja um hina
alvarlegu hlið verksins, þátt
Hildar, að margt í honum takist
vel, en hann er sundurleitari.
Hildur verður þegar á líður of
fyrirferðarmikil í leikritinu. Hún
er í rauninni efni í annað leikrit.
En hefði höfundurinn gert hlut
hennar minni, án þess að þurrka
hana alveg út, gengi dæmið betur
upp.
Hildur er utan við ærslaleik-
inn.
Hún gæti komið beint úr leik-
Sólveig Traustadóttir
riti eftir Nínu Björk Arnadóttur
þar sem ljóðrænar setningar
skipta oft svo miklu máli. Það
vantar ekki að margt er fallegt
og spaklegt í tali Hildar. Til
dæmis: Regndropinn bíður eftir
að breytast í foss.
í ærslaleiknum stendur Sól-
veig Traustadóttir nær Kjartani
Ragnarssyni og ýmsum kunnum
fyrirmyndum farsanna.
Leikfélag Siglufjarðar er
þannig mannað að Sólveig
Traustadóttir nýtur góðs af og úr
verður heppnuð áhugaleiksýn-
ing. Ég skemmti mér vel og svo
var greinilega um fleiri í veit-
ingahúsinu Ríó í Kópavogi á
laugardaginn (16.11.). Mest var
um vert að hér gerðu heimamenn
eitthvað sjálfir, buðu ekki upp á
gamla lummu eins og svo oft vill
verða þegar áhugaleikfélög eru á
ferðinni. Það hefur að vísu líka
sína afsökun.
Eins og vænta mátti var ýmis-
legt viðvaningslegt í sýningunni,
hreyfingar stirðar og ómarkviss-
ar og framsögn gölluð á köflum.
En þetta lagaðist þegar á leið
sýninguna og sumir leikaranna
skiluðu hlutverkum sínum með
eftirtektarverðum hætti. Ég
nefni í því sambandi Elvar Elefs-
sen í hlutverki Jóns, Ragnhildi
Bergþórsdóttur í hlutverki Hild-
ar, Ingibjörn Jóhannsson sem lék
Kristin og Guðbjörgu Ásgeirs-
dóttur sem lék Rósu.
Magnús Traustason komst
nokkuð vel frá sýslumannshlut-
verkinu þótt hann væri frosinn
inn á milli. Svanhildur Björns-
dóttir fór sömuleiðis lipurlega
með hlutverk sýslumannsfrúar-
innar. Margrét Gunnarsdóttir
var hin unga Díana, ástkona
sýslumannsins, og féll ágætlega
inn í það hlutverk. Forstöðukona
Birnu H. Björnsdóttur er ekki
auðvelt hlutverk, einum of staðl-
að, en Birnu tókst að gæða það
nokkru lífi í síðasta þætti. Minni
hlutverk voru ekki kröfuhörð, en
vel æfð og öllum til sóma, ekki
síst höfundi og leikstjóra em
sýndi hugkvæmni, einkum með
þætti raddanna þriggja.
Leikfélag Siglufjarðar sannaði
með þessum gestaleik að áhuga-
mennsku í leiklist ber síst að
vanmeta. Og við kynntumst nýj-
um höfundi sem ætti að mínu
viti að stefna á brattann og halda
áfram.
Leikhópur Leikfélags Siglufjaröar.
SACHS
V-þýsk gæðavara.
Opið laugardaga
kl. 9—12
Kúplingar
PRESSUR, DISKAR, LEGUR.
Geriöyerðsamanbu£-
VandiðvoniOSL
SACHS
Skittiborð Verslun Verkstæði Soludeild
38600 39230 39760 31236
Bifreiöar & Landbúnaöarvélar hf
Suðurlandsbraut 14
Collonil
ffegrum skóna
Collonil
vatnsverja
á skinn og skó
Guðrún Kristín Magnúsdóttir, leir-
kerasmiður.
Sýnir verk
úr steinleir
í Habitat
GUÐRÚN Kristín Magnúsdóttir,
leirkerasmiður, sýnir smáverk úr
steinleir í Habitat, verslun Krist-
jáns Siggeirssonar, á Laugavegi
13 þessa dagana. Á sýningunni eru
lágmyndir og lítil höggmyndaverk.
Verkin eru öll til sölu.
Fréttatilkynning
Hótel Borg:
Myndasýning
frá ferð
í Himalayafjöll
HELGI Benediktsson fjall-
göngumaður segir frá ferð sinni
og fjallgöngum í Himalayafjöll-
um í Pakistan, á Hótel Borg
annað kvöld, miðvikudagskvöld,
og hefst dagskráin kl. 20.30.
Helgi k'leif m.a. tindinn
Diran 7.273 m, en það er hæsti
tindur sem íslendingur hefur
klifið. Helgi mun jafnframt
sýna litskyggnur úr ferðinni.
Fréttatilkynning
Kynningartilboð
Við bjóðum 15% afslátt á Rolldeck,
hinu frábæra sjálffljótandi gólfefni
frá M. Matthys fram til 15. des. 3
mismunandi litir.
Hentarfyrir:
Verksmiöjur,
verkstæði,
lagera,
þvottahús,
eldhús,
geymslur,
skóla.
Einnig bjóðum við
gólfviðgerðir af
ýmsu tagi, gólffræs-
un og ílagnir með
flotgólfum.
SIMAR 52723-54766
Nýi miðbærinn
Af sérstökum ástæöum er til sölu 4ra herb. 121,8 fm íb.
á efstu hæö sem gefur mikla möguleika ásamt bílskúr.
íb. er tilb. undir trév. en bílskúr fokheldur aö innan, frág.
utan. Allt fullfrág. aö utan og sameign inni.
Til afh. nú þegar.
Fasteignasalan Hátún,
Nóatúni 17 - Sími 21870 og 20998.
Nýtt verslunarhúsnæði
við Skólavörðustíg
Til sölu glæsilegt 125 fm nýtt verslunarhúsnæöi. Til af-
hendingar nú þegar. Lofthæö 3,20 m. Hentugt fyrir
margskonar rekstur.
SÉREIGN — S. 29077,
Skólavörðustíg 38A.